Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Page 32
32
Helgarblað
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
I>V
Bylting í íslensku leikhúsi:
Risinn er fæddur
- Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Leikfélags íslands, byrjaði 12 ára að stýra leikhúsi. Hann
stýrir nýstofnuðu leikhúsi sem mun veita Þjóðleikhúsi og Borgarleikhúsi harða samkeppni.
Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Leikfélags íslands
Magnús og félagar segiast ætla að veita stóru leikhúsunum haröa og verö-
skuldaöa samkeppni enda geti þeir samanlagt státaö af ámóta fjölda áhorf-
enda á góðu ári eins og hvort hinna stóru leikhúsa um sig.
Magnús Geir Þórðarson hefur
aldrei viljað vinna annars staðar en
í leikhúsinu. Hann segist fyrst
muna eftir sér í leikhúsi á einhverri
sýningu sem hann man ekki hvað
heitir.
„Ég man bara eftir því að það
gerðist neðansjávar. Ég man eftir
fiskum á sundi, skærum litum og
því að ég var pínulítið hræddur."
Magnús er 26 ára gamall leikhús-
stjóri Leikfélags íslands. Leikfélag
fslands er sex ára fyrirtæki sem í
vikunni stækkaði talsvert þegar það
sameinaðist Flugfélaginu Lofti, sem
rekið hefur leikstarfsemi í Loftkast-
alanum, og Hljóðsetningu, fyrirtæk-
is í eigu nokkurra leikara sem hef-
ur verið mjög umsvifamikið í hljóð-
setningu á kvikmyndum og sjón-
varpsefni og hefur einnig framleitt
mikið af bamaefni fyrir sjónvarp.
Við samruna þessara þriggja fyr-
irtækja verður til atvinnuleikhús
sem hefur yfir að ráða tveimur sýn-
ingarsölum. Annar er í Iðnó og
rúmar 160 manns og hinn er í Loft-
kastalanum og rúmar 410 manns.
Auk þess að reka leikhús með
tveimur sölum mun Leikfélag ís-
lands tal- og hljóðsetja teiknimynd-
ir, kvikmyndir og auglýsingar og
framleiða sjónvarpsefni. Við þetta
má síðan bæta að Loftkastalinn
leggur með í samstarflð 50% hlut
sinn í kvikmyndaveri við Seljaveg
sem hann á ásamt íslensku kvik-
myndasamsteypunni.
Þaö sem við getum
„Það má segja að í hnotskurn
felist möguleikar okkar og kraftur
ekki í því sem við eigum heldur í
því sem við getum,“ segir Magnús,
sem verður leikhússtjóri félagsins,
en Stefán Hjörleifsson verður fram-
kvæmdastjóri og Hallur Helgason
starfandi stjórnarformaður. Hallur
mun stýra þróunarvinnu sem fyrir-
tækið ætlar út í með það fyrir aug-
um að auka framleiðslu efnis fyrir
sjónvarp og aðra rafræna miðla.
Magnús verður listrænn stjóm-
andi yflr leiklistarstarfseminni sem
fer fram bæði í Iðnó og Loftkastal-
anum. Hann mun skipuleggja verk-
efnaval, ráða listamenn og yfirleitt
bera listræna ábyrgð á því sem
fram fer undir merkjum félagsins.
„Við sjáum reyndar þegar ávinn-
ing af sameiningunni þar sem
Shakespeare eins og hann leggur sig
er þegar fluttur yflr í Loftkastalann,
enda sýningin búin að sprengja af
sér öll bönd.“
Samkvœmt bestu heim-
ildum DV er mestur
dhugi á samstarfi við
Benedikt Erlingsson og
Halldóru Geirharðsdótt-
ur sem bœði hafa átt
þátt í mjög vinsœlum
sýningum félagsins.
Hilmir Sncer Guðnason
hefur starfað mikið með
Flugfélaginu Lofti og er
mikill áhugi á frekara
samstarfi við hann.
Einnig má telja fullvíst
að hluthafar í Leikfélag-
inu verði viljugir að
leggja því lið með list-
rœnum kröftum sínum.
Frá Lofti kemur
Baltasar Kormákur inn
en í hópi hluthafa Hljóð-
setningar eru þungavigt-
armenn úr hópi leikara
eins ogjóhann Sigurð-
arson, Sigurður Sigur-
jónsson og Öm Ámason.
En hver er stefna Magnúsar sem
leikhússtjóra?
„Það má kannski segja að verk-
efnaval Leikfélags íslands eins og
það birtist i Iðnó í vetur sé nálægt
þeirri stefnu sem ég vil reka en
áherslur munu að sjálfsögðu breyt-
ast við sameininguna. Það byggist á
þeim grunni sem Flugfélagið Loftur
og Leikfélagið hafa skapað. Við
munum reka leikhús sem spannar
allt litrófið, allt frá hugljúfum gam-
anleikritum upp í kraftmikla söng-
leiki og yfir í áleitin dramatísk
verk. Við viljum segja fólki sögu í
leikhúsinu og snerta við hjarta
þess, hvort sem er til gráts eða hlát-
urs. Við viljum fá til samstarfs við
okkur bestu listamenn þjóðarinnar
og höfða til sem flestra með metnað-
arfullri dagskrá.
Við teljum að eftirspurn eftir af-
þreyingu sé vaxandi, enda frítími
fólks að aukast. Við sjáum vaxtar-
möguleika í sjónvarpinu, því þar
vill fólk fá íslenskt skemmtiefni, og
þessari eftirspurn viljum við geta
svarað."
Ferill Magnúsar
Eins og áður sagði var Magnús
aðeins 12 ára gamall orðinn leikhús-
stjóri í Gamanleikhúsinu sem setti
upp nokkrar sýningar og fór meðal
annars í leikferðir til útlanda. Síðan
lá leið Magnúsar í Menntaskólann í
Reykjavík þar sem leiklistarstarf
stendur traustum fótum í Herra-
nótt. Magnús var reyndar aðeins
einu sinni þátttakandi í Herranótt
meðan hann var í skólanum því
hann gegndi embætti Inspector
scholae sem tók mikinn tíma. Magn-
ús hefur hins vegar leikstýrt upp-
setningum Herranætur oftar en
einu sinni.
Hugur Magnúsar stóð aldrei til
neins annars en að verða leikstjóri
eða leikhússtjóri og eftir stúdents-
próf fór hann og lærði leikstjórn og
leikhúsfræði í Old Vic Theatre
School í Bristol í Englandi. Eftir
heimkomuna réðst hann til starfa
hjá Leikfélagi Reykjavíkur sem að-
stoðarmaður þáverandi leikhús-
stjóra, Sigurðar Hróarssonar.
„Það varð mér afar lærdómsríkur
tími og ég lærði margt af Sigurði og
dvölinni í Borgarleikhúsinu."
V““-4 ’( V 111 i' : 'i % Ya pri1 ^ « W ig * ij 1
Z f j P||! . 'M
Magnús fékk ungur ólæknandi leikhúsdellu. Hann varð 12 ára gamall leikhússtjórl Gamanleikhússins sem hann stofnaöi sjálfur
Gamanleikhúsiö setti upp nokkrar sýningar og fór í leikferöir til útlanda.