Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Side 58
66
Tilvera
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
DV
lí f iö
ítalskur látbragðsleikur í Salnum:
í Af listmálara-
fjölskyldu
’ Sýningin Af listmálarafjöl-
i skyldu verður opnuð í Hafnarborg
í dag. Sýndar eru myndir Louisu
Matthiasdóttur, eiginmanns henn-
ar, Leland Bell, og dóttur þeirra,
, Temmu Bell. Louisa er velþekktur
og virtur listamaður bæði hérlend- '
! isogí Bandaríkjunum þar sem
hún hefur átt heima í 55 ár. Færri
íslendingar þekkja Leland Bell
, sem einnig var virtur listmálari
og kennari og Temmu Bell, dóttur
þeirra, sem á að baki gifturíkan
myndlistarferil.
i Sýning þessarar miklu listmál-
■ arafjölskyldu í Hafnarborg er hald- !
> in í tengslum við útkomu veglegrar
! bókar um Louisu Matthíasdóttur.
’ Klassík
■ KRISTtNN SIQMUNPtSON 06
I SJEFNIB I BORGARLEIKHUSINU Krlst-
> inn Sigmundsson syngur með Karla-
kómum Stefni á tónleikum í Borgarleik-
húsinu í dag, kl. 14. Efnisskráin er fjöl-
breytt að vanda en tekur mið af sjó-
mannadeginum á morgun. Því verða sjó-
mannalög í aðalhlutverki á þessum tón-
leikum.
Kabarett
■ SJÓMANNADAGSHÓF Á BRQAD-
WAY Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður sjómannadagsráðs, setur sjó- :
mannadagshóf á Broadway. Einnig
mun Ámi M. Matthiesen ráðherra
flytja ávarp. Bee-Gees-sýningin verð-
ur flutt fyrir gesti auk þess sem Jó-
hann Öm og Petra sýna dansatriði.
Á eftir verða verðlaunaafhendingar.
■ FÍFLASKIPIÐ VH) REYKJAVÍKUR-
HÓFN Fíflaskipið er velþekktur fjöl-
listahópur sem ferðast á eldgömlu
skipi um heimshöfin til að skemmta
fólki. Hingað kemur listafólkið á veg-
um menningarborgarinnar og verður
með sýningar við skipshlið á Mið-
bakka kl. 15.
•* Opnanir________________________
■ VEGGURINN í GALLERÍ@HLEMMUR
Vegna mikillar eftirspurnar eftir sýn-
ingarplássi hafa sýningastjórar hjá
Gallerí@hlemmur ákveðið að hefja
sýningar á vegg í skrifstofurými stað-
arins. Fyrsti myndlistarmaðurinn til
að sýna þar er Sonja Georgsdóttir.
■ GALLERÍ LIST Myndlistarmaður-
inn Erlingur Jón Valgarðsson (EIli)
opnar sýningu í Gallerf List, Skip-
holti 50 d, kl. 15. Á sýningunni verða
málverk og skúlptúrar. Sýningin
nefnist Helga jörð. Um sýninguna
segir listamaðurinn: „Jörðin á skilið
virðingu, auðmýkt og aðdáun. Gjöfult
. líf hennar, fegurð, dulúð og máttur
lætur engan ósnortinn. Til að heiðra
hana fyrir gjafir hennar og líf, og ekki
síst að sýna henni auðmýkt og virð-
ingu, hef ég unnið málverk og skúlpt-
úra sem sýna tilbrigði hennar í litum,
formum og áferð.“ Sýningunni lýkur
18. júní.
■ UST i yóSAFOSSI í dag verður
opnuð sýningin List í orkustöðvum.
Sýningin er á tveimur orkustöðvum
Landsvirkjunar: Ljósafossi við Sogn-
ið og Laxárstöð í Aðaldal. Opnunin
á Ljósafossi er i dag, kl. 14, og stendur
_ t. til 15. september.
■ RÁÐHÚSIÐ í dag verður opnuð
sýning á dúkristum með Reykjavík
sem meginþema. Myndirnar eru eftir
Ágúst Bjamason og stendur hún til
13. júní.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is.
Gamanleikur án orða
- leikið við áhorfendur
„Ég hef leikið fyrir fólk af öllu
tagi. En eitt hef ég lært, þegar við
hlæjum verðum við öll eins. Viö
verðum eins og börn, það ljómar af
okkur. Ég elska það þegar við köst-
um af okkur grimunni og hlæjum
saman.“ Þetta segir italski lát-
bragðsleikarinn Paolo Nani sem nú
er staddur á íslandi en sýningar
hans eru hluti af Listahátið í
Reykjavík 2000. Nani er fæddur i
Ferrara og áður en hann hóf að
starfa sjálfstætt lék hann með
argentínskum leikflokki í ein 12 ár.
Síðustu ár hefur hann sýnt víða um
Evrópu og jafnan hlotið einróma lof.
Nú er komið að því að íslendingar
fái að berja verk hans augum.
Sýning hans, Bréfið, vann evr-
ópsku gamanleikverðlaunin í
Frankfurt árið 1994. Bréfið tekur
u.þ.b. 80 mínúcur í flutningi og er
ætlað öllum aldurshópum.
Þar sem sýningin hefur verið á
fjölunum í meira og minna sex ár
var Nani spurður hvort ekki væri
komin ákveðin þreyta í hann. Hann
sagði svo ekki vera. „Auðvitað
koma lægðir og hæðir en þetta er
alltaf gaman, svo lengi sem ég get
gefið af mér. Ég geri mér aldrei
neinar væntingar og geng inn á
sviðið með opnum huga. Hver sýn-
ing er einstök og engin lík annarri.
Ég reyni að gleyma sýningu um leið
og henni er lokið til að bera hana
ekki saman við þá næstu.“ Aðspurð-
ur hvort hann fyndi mun á áhorf-
endahópum eftir því hvar í heimin-
um hann sýndi sagði hann svo ekki
vera, a.m.k. væri munurinn ekki
mikill. „Samt var svolítið skrýtið að
sýna í Noregi og á Grænlandi,“ seg-
ir Nani.
Leikur að endurtekningu er
kjarni sýningarinnar. Áhorfendur
sjá sama atriöið endurtekið á 15
mismunandi vegu sem leikarinn tjá-
ir af mikilii færni og hugmynda-
auðgi; aftur á bak, sem vestra, án
handa o.s.frv. Þeir sem misstu af
Látbragðsleikarfnn Paolo Nani
Ég skemmti mér nefnilega líka. Og þaö sem heillar mig er samspil áhorfanda og leikara, þaö er eins og leikur og
reglurnar eru einfaldar. “
sýningunni í Salnum í gær komast í tvær sýningar, kl. 14 og 20. þann 6. og 7. júní nk. kl. 20.
dag kl. 17 eða á morgun en þá eru Nani sýnir einnig á Akureyri -HH
Sumarstarfsemi Árbæjarsafns hófst á uppstigningardag:
Þjóðleg skemmtun ryrir alla
fjölskylduna
Sumarstarfið i Árbæjarsafni hófst
á uppstigningardag. Gömlu húsin
eru nú opin á nýjan leik, leiðsögu-
mennimir klæðast búningum sín-
um og handverksfólkið tekur til við
störf sín. Mikið verður um að vera
á safninu í allt sumar og dagskráin
er skemmtileg og fjölbreytt á menn-
ingarári.
Ný sýning sem nefnist Saga bygg-
ingatækninnar er opin i Kjöthús-
inu. Þar er leitast við að gera sögu
byggingatækninnar skil á einum
stað. Sýnd eru gömul verkfæri,
byggingahlutar húsa og handverk
byggingariðngreina. Sýningin er
samstarfsverkefni Árbæjarsafns,
Menntafélags byggingariðnaðarins
og Eftirmenntunar rafiðna og er á
dagskrá Reykjavíkur - menningar-
borgar Evrópu árið 2000.
í safninu er einnig ný sögusýning
sem nefnist Saga Reykjavikur - frá
býli til borgar.
Á morgun er mikið um að vera í
safninu. í baðstofunni verður tó-
vinna og roðskógerð, netahnýtingar
verða við Nýlendu, gullsmiður að
störfum við Suðurgötu og leikfanga-
sýning í Komhúsi. Ný verslun með
listhandverki verður opnuð í Líkn
en þar er selt íslenskt gæðahand-
verk. í Líkn er einnig bókastofa þar
sem gestir geta tyllt sér og flett í bók
og er það einnig nýjung í starfsemi
safnsins. Kaffihlaðborð verður í
Dillonshúsi og hestamir eru komn-
ir á svæðið.
Daglegt líf á árum áður
/ Árbæjarsafni er leitast viö aö draga upp lifandi mynd af lífi fólks á fyrri tíö.
í tengslum við sýninguna um
sögu Reykjavikur koma félagar úr
víkingafélaginu Rimmugíg i heim-
sókn í safnið á morgun kl. 14 og
sýna bardagalistir vikinganna.
Einnig verða eftirlíkingar áhalda og
verkfæra til sýnis. Gestir fá tæki-
færi til að skjóta af boga.
Árbæjarsafn verður opið í sumar
á laugardögum og sunnudögum frá
10-18 og þriðjudaga til fostudaga frá
9-17. Á mánudögum verður Árbær-
inn opinn frá 11-16. Aðgangseyrir er
sem fyrr 400 krónur fyrir fullorðna
en ókeypis er fyrir börn að 18 ára
aldri og eldri bogara.
-SS