Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Side 64
FR ETTAS KOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
Á baki
Ólafur Ragnar og Dorrit á hestbaki í
Landsveit rétt áöur en forsetinn féll
af baki og axlarbrotnaði.
Stærsta hópreið íslandssögunnar:
Forsetinn
aftur á bak
- við setningu Landsmóts
„Það er mikill spenningur fyrir
því að taka þátt í þessari mestu
hópreið íslandssögunnar við setn-
ingu Landsmótsins. Sérstaklega eru
útlendingar spenntir fyrir að fá að
vera með,“ sagði Haraldur Haralds-
son framkvæmdstjóri og sá sem bor-
ið hefur hita og þunga af undirbún-
ingi Landsmóts hestamanna sem
hefst í Víðidal í Reykjavík 4. júlí
næstkomandi. Þá munu 2000 knapar
ríða úr Víðidalnum og umhverfis
Rauðavatn áður en Landsmótið
verður sett af forseta íslands sem er
^vemdari mótsins.
„Forsetinn mun ríða í farar-
broddi en ég veit ekki enn hvort
Dorrit veröur með,“ sagði Haraldur
en þetta mun verða í fyrsta sinn
sem Ólafur Ragnar Grímsson fer á
hestbak eftir að hann féli af baki og
axlarbrotnaði í Landsveit síðastliö-
ið haust.
„Þetta verður stórbrotinn reið og
Fáksfélögum hefur veriö uppálagt
að vera í bláum flíspeysum. Ónnur
hestamannafélög ráða því sjálf
hvemig félagar þeirra verða klædd-
ir,“ sagði Haraldur Haraldsson sem
býst við mikiili þátttöku. -EER
Gæði og glæsileiki
smoft
(sólbaislofaj
Grensásvegi 7, sími 533 3350.
Bónaö í Foxhlll
Gunnar Gunnarsson torfærukappi sýnir hér einum aðstoðarmanna sinna hvernig bóna eigi svo skíni eftir að torfæru-
bíll hans var tekinn upp úr gámi í Foxhill í Swindon en þar taka íslendingar þátt í alþjóðlegu torfærumóti og ætla ekki
að láta sitt eftir Hggja - heldur trylla til sigurs.
Urriðafossvegur:
Logandi landbún-
aðartæki
Lögreglan á Selfossi og slökkvilið
voru kölluð út í gær vegna brennandi
dráttarvélar á Urriðafossvegi. Þegar
kviknaði í vélinni var ökumaður kom-
inn út úr henni og því ekki í hættu.
Slökkvilið kom og slökkti i. -NH
Einkunnir skila sér í HÍ:
Kennarar taka sig á
„! kjölfar
heimasíðu Stúd-
entaráðs og um-
flöllunar fjölmiðla
virðast kennarar
viö Háskóla ís-
lands hafa tekið
sig á og eru farnir
að skila einkunn-
um stúdenta,"
sagði Eirikur Jónsson, formaður Stúd-
entaráðs, í samtali við DV í gær. „Þeir
sem hvað lengst vom búnir að draga
fætumar í þessu og voru komnir á
„topp tíu“ listann okkar svokallaða eru
flestir búnir að skila einkunnum inn
til nemendaskrár. Umfjöllunin undan-
fama daga hefur einnig orðið til þess
að kennarar hafa jafnvel hringt hingað
inn til okkar og farið fram á að þeir
verði teknir af listanum. Það höfum
við þó ekki gert nema um alvarleg
veikindi sé um að ræða,“ bætti Eiríkur
við. Slóð vefsíðunnar er www.shi.hi.is.
-ÓRV
Tékkneskur puttalingur sýnir hetjudáð í Vík í Mýrdal:
Bjargaði fötluðu
barni frá drukknun
- með því að skera á bílbelti eftir bílveltu í sjó
„Ég þakka snögg viðbrögð helst
áhuga mínum á James Bond mynd-
um. Ég gerði ekki annað en það sem
býr í öllum - þetta voru bara eðlileg
viðbrögð miðað við aðstæður," sagði
tékkneski ferðamaðurinn, Ondrej
Konvalina, sem bjargaði fótluðu barni
frá drukknun í sjónum í Reynisfjöru i
Vík í Mýrdal eftir bílveltu í fyrra-
kvöld. Ondrej skar á bílbelti fatlaða
bamsins þegar sjórinn náði því upp í
háls og bar í land. Áður hafði hann
bjargað öðm bami af palli bilsins og
að lokum bjargaði hann bílstjóranum:
„Þeir voru að aka héma austur í
Reynishverfisfjöru og óku svo neðar-
lega í flæðarmálinu að annar helm-
ingur bílsins nam við sjóinn. Þeir
lentu svo í sandbleytu með þeim af-
leiðingum að bíllinn kollsteyptist út í
sjóinn," sagði Þórunn Edda Sveins-
dóttir sem kom á slysstað og varð
vitni að aðfórunum. „Tékkinn hafði
setið á palli bílsins með bami en ann-
að bam, fatlað, sat í framsæti, reyrt í
bílbelti. í þann mund sem bíllinn valt
stökk Tékkinn af pallinum og lenti í
fjörunni. Fyrst bjargaði hann baminu
sem setið hafði á pallinum og gekk
síðan í að skera fatlaða bamið úr bíl-
beltinu. Sjórinn náði því þá upp í
háls,“ sagði Þórunn Edda sem gat
ekki annað en dáðst að snarræði
Tékkans. „Að lokum dró hann bíl-
stjórann sjálfan á þurrt.“
Ondrej Konvalina var hinn róleg-
asti eftir hetjudáð sína en hann hafði
fengið far sem puttalingur á pallbiln-
um og ætlað í Þórsmörk. Mál æxluð-
ust hins vegar þannig að hann endaði
í fjörunni í Vík i Mýrdal:
„Eftir að ég hafði fengið far með
pallbílnum lentum við bílstjórinn í
svo djúpum samræðum að við vorum
komnir til Víkur í Mýrdal áður en við
vissum af. Bílferðin i fjörunni átti að
vera góður endir á skemmtilegum
bíltúr en þá þurfti að fara svona. Ég
er feginn að ekki fór ver. Ég er þakk-
látur almættinu fyrir að hafa bjargað
börnunum og bilstjóranum," sagði
Tékkinn sem hefur dvalið hér á landi
frá í lok maí og hyggst ferðast um
landið þar til hann heldur aftur til
sins heima í lok þessa mánaðar.
Ondrej Konvalina snýr sér þá aftur að
námi sínu en hann er í doktorsnámi í
sálarfræði við háskólann í Prag.
-ÓRV/-EIR
Hestalandsliö íslands vantar einvald:
Leit að hrossum með stáltaugar
- til aö halda uppi sóma landsins á Keflavíkurflugvelli
„Það er ljóst að nauðsynlegt verður
að finna hesta sem eru með sterkar
taugar og styggjast ekki þegar á flug-
völlinn er komið," segir Hákon Sigur-
grímsson, deildarstjóri landbúnaðar-
ráðuneytisins, um skipan fyrirhugaðs
hestalandsliðs íslendinga.
Á næstu vikum er reiknað með að
skipað verði í svokallað hestalandslið
sem ætlað er að taka á móti mætum
gestum íslensku þjóðarinnar við
komu þeirra á Keflavikurflugvöll.
Hugmyndin að landsliðinu er runnin
undan rifjum Guðna Ágústssonar
landbúnaðarráðherra og Hjálmars
Ámasonar alþingismanns sem lögðu
fram þingsályktunartillögu um málið
og fengu samþykkta. Nokkurrar
undrunar gætir vegna þess að enn
bólar ekkert á landsliðinu.
Að sögn Hákons stendur yfir leit
að landsliðseinvaldi sem skipa mun í
liöið og þjálfa það.
„Við erum með einn i sigtinu núna
sem mér þykir líklegur," segir Hákon
og staðfestir að um áberandi aðila í
hestaheiminum sé að ræða.
Glæsileg móttaka
Taugasterkustu hross landsins og
færustu knaþar munu taka á móti
erlendum þjóðhöfðingjum jafnvel
strax í júlí. Sigurbjörn Bárðarson
kemur vafalaust við sögu þar.
Fjármagn til landsliösins fæst að
sögn Hákons með því að þeir aðilar
sem nýta sér þjónustu liðsins muni
greiða fyrir hana og gildir einu hvort
um ráðuneyti eða annað er að ræða.
Landsliðið mun, að hans sögn, verða
skipað glæsilegum fulltrúum íslands
úr röðum hesta og knapa en gert er
ráð fyrir að kostnaöur við hverja sýn-
ingu verði ekki undir 100 þúsund
krónum.
Hákon segir ekki vera langt í að
göfugir ferðalangar hingað til lands
verði þjónustunnar aðnjótandi.
„Gangi allt upp getum við búist við að
sjá landslið hestamanna á flugvellin-
um strax í júlí,“ segir Hákon. -jtr