Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2000, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000
21
JOV
Helgarblað
Mick enn
þá skotinn
í Jerry
Svo virðist sem leikarinn Mick
Jagger hafi aldrei verið jafnumhuga
um að vera með fjölskyldunni og
eftir að Jerry Hall, fyrrverandi eig-
inkona hans, fékk endanlega nóg af
kvennafari hans og sagði skilið við
rokkarann. Mick og Jerry virtust
mjög hamingjusöm saman fyrir
nokkrum dögum þegar þau fóru á
íþróttadag í skóla dóttur þeirra, Ge-
orgiu. Parið fyrrverandi stóð þétt
saman og hvöttu dóttur sina óspart
áfram þegar hún keppti, en Mick
sinnti yngst syni þeirra, Gabriel,
allan tímann. Þegar Mick yfirgaf
svo fjölskylduna í lok dags tóku
menn eftir því að Mick kyssti Jerry
mjög ástúðlega og voru margir á því
að þau virtust sem ástfangnir ung-
lingar.
Með börnin í
tónleikaferðalag
Sænska söngkonan úr
Roxette, Marie Fredriks-
son, er á leiðinni í tón-
leikaferðalag í fyrsta
skipti í átta ár. Tímamir
hafa breyst frá því að
Marie og Roxette voru á
toppinum því nú kemur
fjölskyldan með í tón-
leikaferðalagið. Marie
hefur verið með sama
manninum, honum
Micke, í heila eilífð og
þau eiga saman tvö lítil
börn, 7 og 3 ára.
Marie er orðin 42 og
segist ekki hafa viljað
bíða lengur eftir því að
leggja í tónleikaferðalag
og aðdáendur hennar
eru ábyggilega sama
sinnis. Marie segir það
líka hafa haft mikil
áhrif á hana að sjá eft-
irvæntingarfull skrif
Marie Fredriksson
hefur ekki sungiö fyrir
aðdáendur sína í heil
átta ár en er nú tilbúin í
slaginn á ný.
aðdáenda Roxette á
Internetinu.
Hún segir í viðtali
við sænskt dagblað
að ferðin verði ör-
ugglega frábær. „Það
er fint að hafa böm-
in með. Ferðin verð-
ur svo miklu þægi-
legri þegar bömin
sjá hvað það er sem
mamma vinnur við
og krökkunum finnst
þetta mjög spenn-
andi. En ég verð nátt-
úrlega að skipuleggja
hverja einustu mín-
útu og við verðum án
efa að fljúga meira
)ví það getur verið
svolítið erfitt að sitja
lengi í bíl þegar mað-
ur er bara þriggja
ára,“ segir Marie.
Axl Rose ofsóttur
af aðdáanda
Fertug kona var dæmd í ársfangelsi fyrir að brjóta gegn nálgunarbanni
um að halda sig frá söngvaranum
Axl Rose í Guns ‘N Roses. Konan
sem heitir Karen Jane McNeil og
kemur frá Ohio var sett í bann eftir
að hún hafði ítrekað fundist á lóð
söngvarans. Karen þessi er farin að
trúa því að hún sé eiginkona Axls
en eins og hann hefur komið fram
við kæmstur sínar myndi það ekki
teljast draumastaða. Fangelsisvistin
var óumflýjanleg þar sem hún braut
gegn banninu og því ætti Axl að
geta sofið rólega næsta árið, frjáls
frá Karen.
Whitney kann ekki einu sinni sín
eigin lög lengur.
Enn erfið-
leikar hjá
Whitney
Um síðustu hélt Whitney Houston
tónleika í Caesar Palace í Atlantic
City sem gengu vægast sagt ekki vel
. Miklar sögusagnir hafa að undan-
fornu gengið um dópnotkun söng-
konunnar en þær sögur hræddu þó
aðdáendur hennar ekki frá því að
mæta á svæðið. Whitney hafði aug-
lýst aö hún myndi taka góða blöndu
af sínum eigin lögiun, bæði nýjum
og gömlum, en það stóðst ekki. Hver
óvænta uppákoman rak aðra á þess-
um tveggja tíma tónleikum og Whit-
ney söng að mestu coverlög.
Fyrst stoppaði Whitney mitt í
laginu I Wanna Dance with
Somebody", án þess að áhorfendur
fengju nokkra aðra skýringu á því
en þá setningu „Mig langar til að
sættast við ykkur“. Þar á eftir tók
hún ameríska þjóðsönginn. Seinna
á tónleikunm þegar hún ætlaði að
syngja lagið, I Will Always Love
You, brast rödd hennar. „Rödd mín
er ekki tilbúin i þetta lag i dag,“
sagði þá Whitney og tók i staðinn
eigin útgáfu af American Pie.
' ’ \,v
14.000 kr.
með flugvallarskatti
báðar leiðir
. TM
©
bókunarsími 00 44 12 79 66 63 88
250 kr. aukaafsláttur ef
bókað er á www.go-fly.com
miðast við eftirspurn ! samkvæmt skilmálum I nýja lágfargjaldaflugfélagið í eigu british airways ! flýgur til stansted
london stansted • alicante • barcelóna • bilbao • bologna • kaupmannahöfn • edinborg • faro • ibiza • lissabon • madrid • malaga • mílanó • napolí • palma • prag • róm • feneyjar