Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2000, Page 54
62
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2000
DV
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Stórafmæli 1 1 Fimmtugur
85 ára_________________
Kristín Gestsdóttir,
Rókagötu 4, Reykjavík.
Einar Þór Einarsson
80 ára_____________________________
Geirþrúður F. Júlíusdóttir,
Háukinn 7, Hafnarfirði.
Guörún Guðmundsdðttir,
Kleppsvegi 74, Reykjavík.
70 ára_____________________________
Björk Dagnýsdóttir,
Hólastekk 4, Reykjavík.
Erla Guðmundsdóttir,
Framnesvegi 15, Keflavík.
Guöbjartur Kristj. Guðbjartsson,
Miðtúni 29, ísafirði.
Jóhannes Hermann Ögmundsson,
Hrauntungu 55, Kópavogi.
Sverrir Haraldsson,
Selbrekku 6, Kópavogi.
60 ára_____________________________
Aldís Benediktsdóttir,
Raufarseli 11, Reykjavík.
Ágústa Ingólfsdóttir,
Viðjugerði 12, Reykjavlk.
Bára Sigfúsdóttir,
Austurvegi 10, Þórshöfn.
Bára Sólveig Ragnarsdóttir,
Vesturbergi 132, Reykjavík.
Guðfinna Svavarsdóttir,
Hlíöarvegi 23, Ólafsfirði.
Sigríöur Valdís Sigvaldadóttir,
Háholti 24, Keflavík.
50 ára_____________________________
Dagfríður Jónsdóttir,
Orrahólum 3, Reykjavík.
Guðríður Tómasdóttir,
Litlabæjarvör 4, Bessastaðahreppi.
Herdís S. Eyþórsdóttir,
Lundarbrekku 2, Kópavogi.
Jóhannes Örn Oliversson,
Arnarhrauni 44, Hafnarfirði.
Margrét Árnadóttir,
Sóleyjarhlíð 1, Hafnarfirði.
Matthías Gunnarsson,
Eskihlíð 8, Reykjavík.
Ólöf Konráðsdóttir,
Drekahllð 5, Sauðárkróki.
Ragnar Örn Halldórsson,
Dvergabakka 8, Reykjavlk.
Sigrún Reimarsdóttir,
Smáratúni 18, Keflavík.
Steinar Viggósson,
Köldukinn 15, Hafnarfirði.
40 ára_____________________________
Elzbieta Kowalska,
Strandgötu 14, Sandgeröi.
Guðrún Soffía Þorleifsdóttir,
Fjarðarvegi 25, Þórshöfn.
Gunnar Ásgeir Karlsson,
Árbliki 1, Neskaupsstað.
Sigurborg K. Ásgeirsdóttir,
Hásteinsvegi 23, Stokkseyri.
Smáauglýsingar
f»I*Í
Þjónustu-
auglýslngar
►I550 5000
loftskeytamaður og fyrrv. skrifstofustjóri
Einar Þ. Einarsson, fyrrv. loft-
skeytamaður og skrifstofustjóri,
Flyðrugranda 12, Reykjavík, verður
sjötíu og flmm ára á mánudaginn.
Starfsferill
Einar fæddist í Chicago í Banda-
rikjunum en fluttist til íslands á
öðru ári og ólst upp í Reykjavík hjá
ömmu sinni, Þuríði Hannesdóttur,
og fóstra, Haraldi Magnússyni,
fyrrv. kaupmanni frá Gunnólfsvík,
síðari manni Þuríðar.
Einar gekk í Austurbæjarskólann
og fór síðan norður á Langanes til
frænda síns, Þórðar Oddgeirssonar,
prests á Sauðanesi, sem undirbjó
hann undir menntaskólanám. Hann
stundaði nám við MA og við
Loftskeytaskóla íslands, lauk loft-
skeytaprófi 1946 og stúdentsprófi frá
MA 1950, stundaði nám við Leiklist-
arskóla Lárusar Pálssonar 1949-50
og nám í viðskiptafræði við HÍ frá
1950. Þá stundaði hann nám í drátt-
list við bréfaskóla North Light Art
School í Bandaríkjunum.
Einar var loftskeytamaður til sjós
frá 1946, lengst af á togaranum For-
seta RE 10, lék nokkur ár á sviði hjá
Leikfélagi Reykjavíkur á vetrum en
með leikflokkum Gunnars R. Han-
sens og Gísla Halldórssonar á
sumrin, vann við erlendar bréfa-
skriftir og bókhald fyrir nokkur fyr-
irtæki í Reykjavík með háskóla-
námi og stundaði afleys-ingar sem
loftskeytamaður á togurum.
Að námi loknu varð Einar skrif-
stofustjóri Skipa- og vélaeftirlitsins
og síðar Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar en rak síðan eigin bókhalds-
stofu uns hann tók við skrifstofu-
haldinu hjá Kjötbúðinni Borg, sem
hann sá um næstu tíu árin.
Að lokinni sautján ára landvist
réði Einar sig sem loftskeytamann á
norskt flutningaskip, m.s. Fanafjell
frá Björgvins sem var í Asíuferðum
og sigldi til Tsingtaó í Norður-Kína.
Hann var síðan loftskeytamaður hjá
Eimskipafélagi íslands, lengst af á
m.s. Bakkafossi í Ameríkusigling-
um og síðan á togurum. Hann
stundaði jafnframt útgerð á eigin
trillu, Hreggviði, með sonum sínum
Sextugur
Magnús Þórðarson
byggingameistari og matsmaður
Magnús Þórðarson
byggingameistari og
matsmaður, Furugerði 13,
Reykjavík, er sextugur í
dag.
Starfsferill
Magnús fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp
í Bústaðahverflnu. Hann
var í Miðbæjarskólanum i
Reykjavík, í Gagnfræðaskóla Aust-
urbæjar, stundaði síðan nám við
Iðnskólann i Reykjavik, lærði húsa-
smíði og lauk sveinsprófi 1963, lauk
námi við Meistaraskólann 1971 og
stundaði síðar nám við Endur-
menntunardeild HÍ og sótti nám-
skeið fyrir matsmenn.
Að loknu sveinsprófl flutti Magn-
ús til Kalifomíu í Bandaríkjunum
þar sem hann var búsettur og starf-
aði til 1966.
Magnús hefur alla tíð unnið við
smíðar, rekið verkstæði og unnið
við breytingar og viðhald.
Hin síðari ár hefur Magnús starf-
að sjálfstætt sem matsmaður.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 7.7. 1970 Elín-
borgu Ingólfsdóttur, f. 19.11. 1942,
hjúkrunarfræðingi. Hún er dóttir
Ingólfs Sigurðsonar, skipstjóra á
Akureyri, og Þorgerðar Magnús-
dóttur húsmóður.
Börn Magnúsar og Elínborgar
era Þórður Magnússon, f. 1.12. 1970,
vélaverkfræðingur, i sambúð með
Magdalenu B. Einarsdóttir; Elísa
Magnúsdóttir, f. 24.10. 1973, skrif-
stofumaður, í sambúð með Ásgeiri
B. Sævarssyni rafvirkja og er dótt-
ir þeirra Hulda Maria f. 4.1. 2000.
Systkini Magnúsar: Reynir Þórð-
arson, f. 31.10.1929, smiður í Garða-
bæ; Halldór Þórðarson, f 6.12. 1931,
d. 26.1. 1998, bifreiða-
stjóri; Þórir Þórðarson, f.
26.8. 1933, bifreiðastjóri
Reykjavík; Kristjóna
Þórðardóttir, f. 24.10.
1938, húsfreyja að Laxa-
mýri í Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Foreldrar Magnúsar
voru Þórður Jóhannes-
son, f. 6.7. 1904, d. 7.3.
1959, jámsmiður, og Sveinbjörg
HEilldórsdóttir, f. 10.11. 1901, d. 25.2.
1992, húsfreyja.
Ætt
Þórður var sonur Jóhannesar, b.
á Egilsstöðum, austurbæ í Villinga-
holti, Þórðarsonar, b. á Egilsstöð-
um, Guðnasonar, b. í Syðri-Gröf,
Jónssonar. Móðir Þórðar var Ólöf
Þórðardóttir. Móðir Jóhannesar var
Sesselja Magnúsdóttir, b. á Egils-
stöðum, Bjarnasonar.
Móðir Þórðar járnsmiðs var
Kristgerður Jónsdóttir, b. í Vetleifs-
holti, Péturssonar. Móðir Kristgerð-
ar var Guðrún Filippusdóttir.
Sveinbjörg var systir Ingibjargar,
móður Aðalsteins, fóður Þorbergs,
fyrrv. landsliðsþjálfara í handbolta.
Sveinbjörg var dóttir Halldórs, b. í
Sauðholti í Holtum, Halldórssonar,
b. í Sauðholti, Tómassonar, b. í
Sauðholti, Jónssonar. Móðir Hall-
dórs eldra var Guðrún Gunnarsdótt-
ir, hreppstjóra í Hvammi á Landi,
Einarssonar, og Kristínar Jónsdótt-
ur, yngra, Bjarnasonar, ættföður
Víkingslækjarættar, Halldórssonar.
Móðir Sveinbjargar var Þórdís
Jósefsdóttir, b. á Ásmundarstöðum í
Holtum, ísleifssonar, bróður Ing-
veldar, langalangömmu Ingvars Vil-
hjálmssonar útgerðarmanns.
Magnús og Elínborg eru í París í
Frakklandi.
Andlát
Arinu eldri
Ögmundur Jónsson járnsmíðameistari,
Eiðismýri 30, lést miðvikudaginn 5.7.
Jarðarförin verður auglýst slöar.
Anna Guðvaröardóttir Carswell lést á
The Royal Marsden hospital I London.
Unnur Einarsdóttir, Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði, lést á heimili sínu
miðvikudaginn 5.7.
Guörún Kristín Hjartardóttir frá
Hlíðarenda, Bárðardal, andaðist á
dvalarheimilinu Hllð, Akureyri,
miðvikudaginn 5.6.
-------7-----------------
IJrval
- gott í hægindastólinn
Ragnar Arnalds er 62 ára
í dag. Ragnar var formað-
ur Alþýðubandalagsins
1968-77, menntamálaráð-
herra 1978-79 og fjár-
málaráðherra 1980-83.
Þá var hann alþingismaöur
frá 1963 og þar til I síöustu kosningum
er hann gaf ekki lengur kost á sér.
Ragnar er því fyrrverandi eitt og annað
þó auðvitað megi allt eins titla hann rit-
höfund þvl hann hefur samið a.m.k. tvö
prýðileg leikrit, Uppreisn á isafiröi, sýnt I
Þjóöleikhúsinu 1986, og Sveitasinfóníu,
sýnt hjá LR 1988. Þá samdi hann kvik-
myndahandritið Hundadagakonungur.
Hér verður þó enginn dómur felldur um
það I hvoru hlutverkinu honum tókst
betur upp, sem stjórnmálamaöur er leik-
ritahöfundur. En hann er besta sál.
Engilbert Sigurðsson geð-
læknir er 36 ára í dag.
Engilbert lauk stúdents-
prófi frá MR eftir að hafa
verið þar Inspector
Scholae. Hann lauk emb-
ættisprófi I læknisfræði
við HÍ og framhaldsnámi I geðlækning-
um við háskóla I Bretlandi. Hann er nú
sérfræðingurviö geödeild Landspítalans
I Fossvogi og stundar erfðarannsóknir á
geðsjúkdómum á geðdeild Landspítal-
ans.
Úlfur Helgi Hróbjartsson er 35 ára í
dag. Úlli var svolítið fýrirferðarmikill og
bóhemískur I denn en hefur stillst með
árunum. Hann er sonur arkitektsins
fræga, Hróbjarts Hróbjartssonar.
Úlli lærði kvikmyndagerð, geröi m.a.
myndina Nei er ekkert svar og hefur
tveim, lengst af meö alnafna sín-
um. Hann starfaði hjá Rlkisbók-
haldinu um skeið og var siðan skrif-
stofustjóri hjá Skógrækt ríkisins
uns Aðalskrifstofa Skógræktarinnar
var flutt austur á Hérað en síðustu
starfsár sín vann Einar hjá Skatt-
stofu Reykjavíkur.
Fjölskylda
Einar kvæntist 15.11. 1952 Ing-
veldi Lárusdóttur Hjaltested, f. 22.5.
1934, söngkonu, frá Vatnsenda. Hún
er dóttir Lárusar Hjaltested, óðals-
bónda að Vatnsenda við Elliðavatn,
og k.h., Sigríðar Jónsdóttur Hjalte-
sted.
Börn Ingveldar og Einars eru
Þorgrímur Jón, f. 12.1. 1953, kerfls-
fræðingur í Reykiavík; Einar Þór, f.
4.11.1954, eigandi og framkvæmdar-
stjóri Sandtaks í Hafnarfirði; Lárus,
f. 20.12. 1956, verktaki og hönnuður;
Þuríður, f. 14.10.1958, íþróttaþjálfari
hjá Sundfélagi Hafnarljarðar og eig-
andi fyrirtækisins Rekka í Hafn-
arfirði.
Barnaböm Einars og Ingveldar
eru nú ellefu talsins.
Hálfsystkini Einars, samfeðra,
eru Þorgrímur offsetprentari; Anna
Sigríður tónlistarkennari; Jóhanna,
nú látin, húsmóðir; Edda, búsett í
Bandaríkjunum.
Hálfbróðir Einars, sammæðra, er
Rafnar Karl Karlsson offsetprentari.
Foreldrar Einars voru Einar
Þorgrímsson, f. 15.6. 1896, d. 24.4.
1950, forstjóri í Reykjavík og k.h.,
Jóhanna Þuriður Oddsdóttir, f. 21.7.
1895, d. 2.5. 1972, húsmóðir.
Einar verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Flmmtugur
• •
Orn Gunnarsson
grunnskólakennari í Hafnarfiröi
Örn Gunnarsson
grunnskólakennari,
Breiðvangi 73, Hafnar-
firði, varð fimmtugur í
gær.
Starfsferill
Örn fæddist í Reykja-
vík en ólst upp i Hafnar-
firði. Hann lauk kennara-
prófi frá KÍ 1971, stúd-
entsprófi frá sama skóla
1972 og hefur auk þess stundað
margs konar endurmenntun.
Öm hefur verið grunnskólakenn-
ari frá 1972, aðallega við Lækjar-
skóla í Hafnarfirði þar sem hann
hefur kennt eðlisfræði og íslensku.
Öm sat í stjóm Kennarafélags
Reykjaness 1980-86, var formaður
félagsins 1984-86, sat í fulltrúaráði
Kennarasambands Islands og var
trúnaðarmaður þess 1986-98.
Örn er félagi í Lionsklúbbnum
Ásbimi frá 1983, hefur gegnt ýms-
um störfum innan klúbbsins, m.a.
verið ritari 1990-91 og formaður
1994-95. Þá hefur hann verið fjöl-
umdæmisritari Lionshreyfmgarinn-
ar 1996-97 og 1998-99, umdæmisrit-
ari í A-umdæmi 1997-98, varaum-
dæmisstjóri í A-umdæmi 1999-2000
og umdæmisstjóri í A-umdæmi
2000-2001.
Fjölskylda
Örn kvæntist 17.6. 1972 Jóhönnu
Valdemarsdóttur, f. 8.10. 1947, sér-
kennara. Hún er dóttir Valdemars
Núma Guðmundssonar, f. 17.6. 1926,
d. 14.3.1972, bifreiðarstjóra í Reykja-
vík og á Skagaströnd, og Unnar
Ingvarsdóttir, f. 18.1. 1921, d. 18.6.
1977.
Börn Arnar og Jóhönnu eru
Númi Arnarson, f. 24.5.1972, grunn-
skólakennari, og er sonur hans Al-
starfað við fjölda annarra kvikmynda.
Hann hefur veriö verkefnastjóri hjá Oz,
er kvæntur Sjöfn Evertsdóttur leikkonu
en þau búa að sjálfsögu við Sjafnargötu
I Reykjavík.
Bryndís Schram yngist
meö hveq'u árinu þó að á
morgun veröi 62 ár frá því
hún kom í heiminn.
Hún hefur tekið sér margt
lýrir hendur um ævina, ver-
ið fegurðardrotting, listdansari, leik-
kona, dagskrárgeröamaður, kennari,
skólameistari, ritstjóri og framkvæmda-
stjóri, auk þess aö hafa veriö eiginkona
Jóns Baldvins I öil þessí ár, og þar með
alþingismannsfrú, ráðherrafrú og nú
sendiherrafrú. Geri aðrir betur!
exander Örn Númason, f.
20.11. 1993; Helga Björg
Amardóttir, f. 21.1. 1977,
tónlistarkennari og ein-
leikari, en sambýlismað-
ur hennar er Andrés
Björnsson, iðnrekstar-
fræðingur.
Bróðir Amar var Pétur
Sveinn Gunnarsson, f.
22.1. 1954, d. 29.12. 1968.
Foreldrar Arnar eru
Gunnar Pétursson, f. 17.6. 1927, off-
setprentari, og Guðbjörg Helga Guð-
brandsdóttir, f. 20.1.1932, skrifstofu-
maður sem lengst af hafa búið í
Hafnarfirði.
Ætt
Gunnar er sonur Péturs Jakobs,
verslunarmanns í Hafnarfirði, Guð-
mundssonar netagerðarmanns
Ólafssonar. Móðir Péturs Jakobs
var Katrín, dóttir Péturs Jakobs
Petersen, bókhaldara í Keflavík, Jó-
hannssonar gullsmiðs Péturssonar.
Móðir Péturs Jakobs Petersen var
Jóhanna, systir Sigríðar, ömmu Að-
albjargar Sigurðardóttur, móður
Jónasar Haralz, fyrrv. bankastjóra.
Sigríður var einnig amma Jakobs
fræðslustjóra og Hallgríms, for-
stjóra SÍS, Sigurðssona. Jóhanna
var dóttir Jakobs, b. á Kaupangi í
Eyjafirði, Þorvaldssonar. Móðir
Katrínar var Katín Illugadóttir, sjó-
manns í Reykjavík, Einarssonar.
Guðbjörg er dóttir Guðbrands,
múrara i Reykjavík Guðjónssonar,
b. og sjómanns á Neistastöðum í
Landsveit Guðbrandssonar. Móðir
Guðbrands var Helga Jónsdóttir.
Móðir Guðbjargar var Jóhanna
Gísladóttir, b. á Felli og Tjömum í
Sléttuhlíð Kristinssonar, og Ástu
Jóhannesdóttur.
Afmælisbamið verður erlendis á
Jarðarfarir
Sólveig Ólafsdóttir frá Þinghóli, Vest-
mannaeyjum, síðast til heimilis á Dval-
arheimilinu Hraunbúðum, sem lést
þriðjudaginn 27.6., verðurjarðsungin frá
Landakirkju I Vestmannaeyjum laugar-
daginn 8.7. kl. 10.30.
Júlíana Gísladóttir, Bogahllö 9, Reykja-
vlk, lést föstudaginn 30.6. Útförin fer
fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn
10.7. kl. 13.30.
Jóhannes Helgi Jensson, Sólvallagötu
66, Reykjavík, lést sunnudaginn 2.7. Út-
förin fer fram frá Grafarvogskirkju mánu-
daginn 10.7. kl. 13.30.
Valdimar Árnason Bjarkalandi, Vestur-
Eyjafjallahreppi, verður jarðsunginn frá
Stóra-Dalskirkju laugard. 8.7. kl. 14.00.
Unnur Jónsdóttir, Höfðabrekku 10,
Húsavík verður jarðsungin frá
Húsavíkurkirkju mánud. 10.7. kl. 14.00.