Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2001, Side 47
LAUGARDAGUR 3. MARS 2001
55
DV
Tilvera
Allsberar tilboðs-pylsur
Ágústa Valdís Sverrisdóttir land-
fræðmgur er matgæðingur vikunnar
að þessu sinni. Hún starfar hjá innan-
landsdeild Samvinnuferða og segir þar
ríkja skemmtilegan starfsanda og að
þær samstarfskonur myndi mjög sam-
heldinn og góðan hóp.
„Það er mjög skemmtilegur andi í
deildinni og við reynum að gera mikið
saman utan vinnu,“ segir Ágústa.
Aðspurð segist hún hafa lent í ýmsu
tengdu matargerð í gegnum tiðina.
Ein máltíð
„Ég held að það eftirminnilegasta
sem ég hef lent í var þegar við vinkon-
umar ákváðum að ganga hinn svokali-
aða Laugaveg. Undirbúningurinn
hafði staðið í þó nokkum tima enda
þurfti að mörgu að huga. Við vorum
yfir okkur spenntar, héldum fúndi
tengda þessari göngu og tiihlökkunin
var í hámarki. Við vorum allar sam-
mála um að til að þurfa að bera sem
minnst myndum við stilla farangri í
hóf og því miður matarbirgðunum
líka.
Ákveðið var að taka aðeins eina og
þá góða máltið með sem átti að borða
þegar komið væri á leiðarenda. Við
hittumst svo í ónefndri búð í bænum
til að kaupa matarbirgðir fyrir ferðina
og röltum léttar í skapi og í sannköll-
uðum ferðahug um búðina. Þegar kom-
ið var að kjötborðinu renndum við
Humar með
villisveppum
Fyrir 6
500 g skelflettur humar
50 g smjör
Villlsveppasósa
30 g þurrkaðir villisveppir
1 stk. skalottlaukur
1 stk. hvítlauksgeiri
2 msk. furuhnetur
1 peli rjómi
1 dl fisksoð eða vatn og teningur
2 msk. rjómaostur
salt og pipar
1 stk. súputeningur
Meðlæti
Laufsalat, t.d. eikarlauf, og smá-
brauð.
Byrjið á að laga sósuna. Hitið
smjörið á pönnu uns freyðir. Þerrið
humarinn og steikið í smjörinu,
kryddið með salti og pipar. Hellið
tilbúinni sósunni yfir og látið sjóða
í eina mínútu. Berið strax fram.
Skreytið með laufsalati og stein-
selju.
Villisveppasósan
Sjóöið villisveppina í tveim dl af
vatni í fimm mínútur, veiðið siðan
sveppina upp úr. Saxið laukinn og
steikið glæran ásamt villisveppun-
um í örlítilli olíu, bætið síðan furu-
hnetum og hvítlauk saman við.
Kryddið með salti og pipar. Þar á
eftir er bætt við rjóma, rjómaosti,
sveppasoði og teningum. Sjóðið við
vægan hita í 3-4 mínútur.
Hollráð
Gætið þess að ofelda ekki humar-
inn. Því minna sem hann er eldaður
því betri verður hann.
Nýkaup
Þnr semferskleikinn býr
- í síöustu máltíöina
Agústa Valdís Sverrisdóttir
„Þegar komiö var aö kjötboröinu renndum viö hýru auga á allt sem var undir 500 g
en staönæmdumst svo viö tilboðshorniö. “
hýru auga á allt sem var undir 500 g en
staðnæmdumst svo við tilboðshomið.
Okkur var öllum starsýnt og pylsutil-
boð sem var varla hægt að láta fram
hjá sér fara. „Pylsur eru jú svo létt
fæða og góðar á grillið," sagði ein okk-
ar og hinar tóku undir. Það var ákveð-
ið að grillaðar pylsur yrðu okkar mat-
ur þennan daginn. Við höfðum ekki
gert ráð fyrir tómatsósu, sinnepi, re-
múlaði og lauk svo við ákáðum að taka
það með og sleppa þá öllu „nasli“ yfir
daginn.
Bakaðar kjúklingabríngur
4 kjúklingabringur
100 g kastalaostur
salt og pipar
ferskir sveppir
1 peli rjómi
sérrí
ferskar gulrætur
kartöflur
Aðferð:
Það er búinn til vasi í bringuna og í
hann er sett salt og pipar og kastalaost-
ur. Vasanum er síðan lokað með tann-
stönglum. Þetta er síðan brúnað á
pönnu og kryddað með salti og pipar
og hvítlauk. Bringumar em settar í
smurt eldfast mót og bakað í ofni í
3540 mín (160-170").
Sósan:
Niðurskomir sveppir steiktir í
smjöri og hvitlauk, síðan er stráð yfir
salt og pipar.
Að þessu loknu er útbúin hefðbund-
in smjörbollusósa. Meðlætinu er siðan
bætt út í ásamt smávegis koníaki og
einum pela af ijóma. Kryddað að vild.
Sósuna á að þynna með kjúklingasoði
(vatn + teningur).
Meðlæti:
Ferskar gulrætur, steiktar upp úr
smöri og hvítlauk, salti og pipar.
Kartöflui"
Nýjar kartöflur skrældar og í þær
em ristar djúpar raufir. Siðan er þeim
raðað i eldfast mót og bakað í 3540
mínútur (170°). Yfir kartöflumar er
sett gróft salt - mikið.
Salat:
Fersk salat (rosso), með tómötum,
papriku, rauðlauk og feta osti. Einnig
er gott að bæta við balsamik-ediki.
• Stórminnkar sóiarhita
• Gerir sólabirtuna
mildari og þægiiegri
• Útilokar nánast
útfjólubláa geisla og
uppiitun
• Eykur öryggi í
fárviðmm og jarðskjálftum
• Eykur öiyggi gegn innbrotum
• Bmnavarnarstuðull er F 15
• Einangrar gegn kulda,
hita og hávaða
■ Glerið verður 300% sterkara
• Minnkar hættu á
glerflísum í andlit
• Gerir bílinn/húsið glæsilegra
GLÓIHF
Dalbrekku 22 • Kópavogi
í blíöskaparveörí
Það var kátur hópur sem hélt af stað
í þessa göngu og gekk allt að óskum.
Sumir stoppuðu á leiðinni og fengu sér
súpu, súkkulaði og annað slíkt en við
hugsuðum hlýlega um tilboðspylsum-
ar okkar góðu og allt meðlætið.
Það var blíðskaparveður þegar við
komum í Þórsmörk og það vom hungr-
aðar stúlkur sem skelltu pylsunum á
grillið. Við biðum spenntar við grillið
og það var ekki laust við öfúndarsvip
þeirra sem höfðu fengið sér snakk á
leiðinni og ekki verið jafn séðir og við
með pylsur á áfangastað. Nema, nema.
Allt í einu heyrist óþekkt hljóð á grill-
inu og undarlegasta atvik átti sér stað.
Kjötið úr pylsunum skaust út af grill-
inu og einungis pylsuhýðið stóð eftir.
Pylsumar vom allsberar í grasinu allt
í kringum grillið. Það sló þögn á alla
við grillið og ég þarf ekki að lýsa von-
brigðasvip hópsins,“ segir Ágústa og
hlær þegar hún rifjar þetta upp.
„En eins og vani er þá ætla ég að
gefa mína uppáhaidsuppskrift,"
sagði Ágústa að lokum. -klj
hp p
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.