Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 Fréttir DV Starfsmönnum Samskipa brá í brún við vinnu sína fyrir utan húsnæði DHL í gær: Fundu umslag með meira en 40 milljónum - sending frá íslandsbanka til Lloyds með DHL hafði verið týnd síðan í mars Sá óvænti atburður gerðist í gær að starfsmenn Samskipa við Holta- garða fundu umslag í ruslagámi fyr- ir utan húsnæði hraðflutningaþjón- ustunnar DHL sem innihélt ávísanir upp á meira en 40 milljónir íslenskra króna. Umslagið hafði verið týnt frá því í lok mars. Hér var um að ræða umslag með ýmsum greiðslum sem íslandsbanki haföi í vetur verið að senda til Lloyds Bank í Bretlandi, m.a. frá sjávarútvegsfyrirtækjum eins og Bergi-Hugin, Vinnslustöð- inni og fleiri. Upphæðin nam sam- tals um 300 þúsund sterlingspundum - andvirði um tíu nýrra jeppabif- reiða. Öllu snúið við víða um heim Hvarf ávísananna í vetur hafði það í för með sér að DHL setti rann- sóknarferli í gang sem náði til starfs- stöðva fyrirtækisins víða um heim. DHL hóf rannsókn þegar ávísanirnar hurfu „Það var leitað í öllum höfnum, í flugvélum og á öllum afgreiðslustöðum, “ sagði Þórður Kolbeinsson, framkvæmdastjóri DHL. „Það var leitað í öllum höfnum, í flugvélum og á öllum afgreiðslustö- um,“ sagði Þórður Kolbeinsson, framkvæmdastjóri DHL, við DV. Þórður segir að á þeim tíma sem umslagið týndist hafi fyrirtækið stað- ið að endurnýjun. „Þetta hafa verið mannleg mistök. En mér létti mjög mikið þegar umslagið fannst. Enginn átti von á að umslag eins og þetta gæti týnst svona þvi hér fara þúsund- ir sendinga um fyrirtækið á dag,“ sagði Þórður. Eftir að umslagið með háu ávísun- unum fannst var því strax komið í hendur íslandsbanka. Bankinn hafði gert ráðstafanir til að afskrifa ávísan- irnar þannig að í raun varð ekkert tjón. Engu að síður var málið flókið og óþægiiegt fyrir alla sem að því komu, bæði hér heima og víða er- lendis. -Ótt Bóhemmálið: Ekki búist viö handtökum Rannsókn lögreglu á málefnum nektarstaðarins Bóhem við Grens- ásveg er enn á frumstigi en hátt í tuttugu starfsmenn staðarins, allt frá dyravörðum til dansmeyja, hafa verið yfirheyrðir. Að sögn rann- sóknarmanna hefur ekkert komið fram við yfirheyrslur sem gefur til- efni til að ætla að handtökur standi fyrir dyrum. Bóhem Enn opinn - yfirheyrslur á daginn og vinna um nætur. „Við getum lítið gert því við fáum ekki að sjá nein gögn þó svo við ósk- um eftir þvi,“ segir Róbert Árni Hreiðarsson, lögmaður Bóhem- kóngsins, sem haldið hefur sig til hlés eftir að lögregla og starfsmenn Skattrannsóknarstjóra gerðu hús- leit á skemmtistaðnum og höfðu á brott með sér öll bókhaldsgögn stað- arins. Skattrannsóknarstjóri gerir ráð fyrir langri og erfiðri rannsókn áður en yfir lýkur. Starfsmenn Bóhem fullyrða að nektardansmeyjarnar fjórar, sem lögðu fram kæru á Bóhemkónginn og starfsemi hans við Grensásveg, hafi reynt að draga framburð sinn til baka en lögreglumenn hafi ekki tekið þær óskir til greina. Lögreglu- menn neita að tjá sig um þessar staðhæfingar. „Við verðum að vanda okkur. Þetta er allt viðkvæmt," segja rann- sóknarmenn. -EIR Stærsti lax sumarsins dvmynd g.bender Ágúst Pétursson heldur á 19,5 punda fiski sem veiddist í Blöndu í gærkvöld en þetta er stærsti lax sumarsins. Blanda hafði gefíð 35 iaxa i gær. Hvalir veiða tvö- falt á við trillurnar „Það gengur ekki til lengdar að ætla að stýra hérna nýtingu á auðlindum hafsins og sleppa úr svona stóru at- riði,“ sagði Ámi Mathiesen sjávarút- vegsráðherra á blaðamannafundi i gær þar sem tilkynnt var um inn- göngu íslands í Alþjóða hvalveiðiráðið á ný og þá með sömu skilyrðum og Norðmenn, þ.e. fyrirvara við svo- nefndan 0-kvóta vegna veiða í atvinnu- skyni, sem felur í sér að hvalveiðar séu ekki leyfðar. Þá samþykkt ráðsins, sem kom til framkvæmda árið 1986, átti að endur- skoða á grundvelli vísindalegrar ráð- gjafar árið 1990 í síðasta lagi. En þeirri endurskoðun er enn ólokið. Þótt ekki sé nákvæmlega vitað hvað hvalir éta mikinn fisk segir Árni til áætlanir um að það kunni að samsvara 10% til 20% af bolfiskveiðum okkar. Sem dæmi um hvaö þetta skiptir miklu máli benti Árni á að lægri talan samsvarar nokkurn veginn afla smábátanna. Vilja Japanir kaupa hval? Enn er óákveðið hvenær hvalveiðar hefiast að nýju við ísland. „Augljós- asta atriðið er að við þyrftum að sjá það fyrir að þaö yrðu einhver við- skipti," sagði ráðherra um hvað helst kæmi i veg fyrir að veiðar hefiist hér að nýju. Auk aðildar að hvalveiðiráð- inu setja Japanar skilyrði um DNA- skrá svo hægt sé að rekja uppruna af- urðanna. Ráðherra segir enn ekki vit- að hvort þetta dugi til að Japanar vilji á ný kaupa hval af íslendingum. Sjávarútvegsráðherra og hans menn harðneituðu því að það hefðu Árni Mathiesen Tilkynnti inngöngu íslendinga í Alþjóða hvalveiðiráðið veriö mistök að segja sig úr hvalveiði- ráðinu árið 1992. Aðstæður væru nú aðrar og menn meti það svo að það sé íslenskum málstað til framdráttar að vera í ráðinu. „Það er alltaf betra að sitja við borðið en frammi á gangi,“ eins og Eiður Guðnason orðaði það. Staða íslands innan hvalveiðiráðsins eftir inngönguna verður hin sama og staða Noregs og Rússlands sem eru óbundin af ákvæðinu sem Island gerði nú fyrirvara við. -HEI Byggt yfir Ingólf Borgarstjóri vill að byggt verði utan um land- námsskálann, sem fannst í mars í Að- alstræti, þannig að hann verði að- gengilegur al- menningi. Breyta þarf deiliskipulagi vegna forn- leifafundarins og skipulagi hót- elsins sem reisa á ofan á skálan- um. Meiri halli Viðskiptahallinn 1. fjórðung ársins nam 15,6 milljörðum króna sem er 1,6 milljörðum króna meira en á sama tímabili í fyrra, mælt á föstu gengi. Stórsvikarar Þrír menn voru úrskurðaðir i gæsluvarðhald i gær en þeir eru grunaðir um að hafa svikið út tugmilljónir króna með því að gefa út innstæðulausa reikninga. Mennirnir starfa í byggingariðn- aði. Sérstakt eftirlit Flugmálastjórn kynnir i næstu viku áætlun um sérstaka öryggis- gæslu við farþegaflug til og frá Vestmannaeyjum á þjóðhátíð. Skemmtiskip norður Þrjátíu skemmtiferðaskip eru væntanleg til Akureyrar i sumar og lagðist hið fyrsta að Oddeyrar- bryggju í gær. Reiknað er með að farþegar skipanna verði um 17 þúsund sem er nokkur aukning frá því í fyrra. Fatlaðir í hættu Forystumenn í félagi þroska- þjálfa óttast að allt faglegt starf þroskaþjálfa með fötluðu fólki í Reykjavik leggist af ef Reykjavík- urborg gangi ekki að launakröf- um þeirra. Háskólinn út um allt Hægt verður að stunda fjarnám frá Háskóla ís- lands á 31 stað á landinu frá og með næsta hausti. Samtök simennt- unar og fræðslu- miðstöðva á lands- byggðinni og Háskóli íslands ætla að bjóða upp á grunnnám til diplómaprófs, BA-prófs og viöbót- ar- og starfsréttindanáms. Löng hátíð - og frönsk Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur um allt land á sunnudaginn en hvergi á landinu er lagt eins mikiö í hátíðarhöldin og í Neskaupstað. Þar eiga þau að standa svo til viðstööulaust í þrjá sólarhringa. Á Patreksfirði verð- ur sjómannadagurinn með frönsku ívafi til að minnast sam- skipta franskra skútusjómanna og íslendinga. Flóttamenn koma í dag eru væntanlegar til lands- ins fimm fjölskyldur flóttamanna frá Júgóslavíu, samtals 23 menn. Haldið til haga Að gefnu tilefni skal tekið fram að Lató-peningar Magnúsar Schev- ing og félaga í Latabæ kosta ekk- ert heldur fást gef- ins. Þegar krakkar leggja inn fé úr sparibaukum sinum fylgir Lató- féð sem bónus en skerðir ekki inneignina. -EIR/-BÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.