Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Blaðsíða 50
 Hátíð hafsins Lúörasveitir, tívolí, kvæðamannaorrahríð, götutónlist og leiksmiðja bamanna. Allt þetta og miklu fleira er á dagskrá hátíðar hafsins sem haldin er í dag og á morgun í Reykjavík. Sigling um sundin, kappróður, reiptog og ráarslagur eru meðal skemmtiatriða og boðið er upp á lostæti úr haíinu og sjómannskonukaffi fyrir munn og maga. Pjass I SUMARJASS A JOMFRUNNI Gít , s arleikarinn Jón Páll Bjarnason og víbrafónleikarinn Reynlr Slgurðsson koma fram á sumartónleikum ; Jómfrúarinnar á morgun frá 16-18. . Tónleikarnir veröa utan dyra ef veður - leyfir. ' ■ TÓNLEIKAR í NORRÆNA HUSINU Sunnudaeinn 10. júní i fjytja Matthías M.D. Hemstock og ' Úlfar I. Haraldsson verk fyrir f slagverk, bassagítar og rafbljóð sem kallast Hugleiöing. Tónleikarnir eru í Norræna húsinu og hefjast kl. 17. Tónleikar ■ SONGUR I STAFKIRKJUNNI Kammerkór Hafnarfjarðar syngur í j Stafklrkjunni í Vestmanneyjum í , dag kl. 13. Flutt veröur vor-og sumartónlist frá ýmsum löndum. Opnanir ■ UST FRA UÐÍNNI OLD Svningin Llst frá liöinni öld verður opnuð í Listasafni ASÍ í dag. Þar eru m.a. ‘ verk eftir Ásgrím Jónsson, Jón Stef- ánsson, Jóhannes S. Kjarval, Gunn- ‘ laug Scheving, Jón Engilberts og Þorvald Skúlason. ■ HUÓÐVERK í NÝLISTASAFNINU I dag býöur Nýlistasafnið upp á Atta ’ dekkja og Club Bevll. 't ■ AKUREYRI í MYNDLIST í LISTASAFNI AKUREYRAR I dag kl. 16 verður samsýning sextán mynd- listarmanna sem eiga það sameigin- legt að búa og starfa á Akureyri, opnuð ÍListasafninu á Akureyri og ber hún yfirskriftina Akureyri í mynd- list. ■ HENRI CARTIER Í GRÓFARSAL í dag klukkan 16 veröur opnuö í Ljós- myndasafni Reykjavíkur sýningin Henri Cartier-Bresson í Grófarsal, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. ■ TRANS-LIST í GULA HÚSINU í dag kl. 16 opnar Tea Jaaskelainen myndlistarsýningu í Gula húsinu á horni Frakkastígs og Lindargötu. Trans-list nefnist syningin sem sam- anstendur af handmáluðum og hekluöum mandölum (yantras). ■ MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR í LISTHUSI OFEIGS Margrét Magn- úsdóttir opnar sýningu í Listhúsi Ofeigs við Skólavöröustíg 5 í dag kl. 15. ■ BJORG SVEINS I JAPIS Björg Sveinsdóttir sýnir myndir af íslenskum tónlistarmónnum á rauða veggnum í Japis á Laugavegi 13. ■ KRISTÍN S. JONSDOTTIR í STOÐLAKOTI Kristín Schmidhauser Jónsdóttlr opnar í dag sýningu á út- saumsverkum í Stöölakoti við Bók- hlöðustíg 6 kl. 16. Sýningin er opin daglega frá 14-18 og stendur til 24. júní. ■ ÍBBA í SKÓLANUM Á SKAGASTROND Ingibiorg Heiðarsdóttir, Ibba, sýnir leirmyndir í skólanum á Skagaströnd á morgun, sunnudaginn 10. júní. SJá nánar: Lífið eftir vlnnu á Vísi.is Bíóiíaöi rýní LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 I>V Tilvera Jafningjafræðsla í fullu gildi: Enginn tími - engin víma Stjörnubíó - Say It Isn’t So: 0 Ofyndinn vandræðagangur 1 kynningartexta á þessari mynd, Say It Isn’t So, stendur aö hún sé frá strákunum sem gerðu myndirnar There Is Something About Mary og Me Myself and Irene - myndir sem báðar urðu óhemju vinsælar enda var öfgafullur húmorinn vel útfærð- ur, handritin óvænt og leikurinn flnn. Heiðurinn af þeim myndum áttu Farrelly-bræðurnir Bobby og Peter, þeir bæði skrifuðu handrit, leik- stýrðu og framleiddu, en í Say It Isn’t So koma þeir mun minna við sögu en maður er látinn halda þeg- ar maður les bíósíður blaðanna. Þeir eru einungis framleiðendur, leikstjórinn heitir James B. Rogers og hefur unnið með Farrelly-bræðr- unum en er að leikstýra hér í fyrsta skipti. Handritið skrifuðu menn sem heita Peter Gaulke og Gerry Swallow - alveg óskyldir Farrelly- bræðrunum enda hafa þeir alls ekki eins þróað skopskyn og títtnefndir bræður. Chris Klein og Heather Graham leika strákinn Gilly og stelpuna Jo sem verða ástfangin og mitt í allri ofurvæminni rómantíkinni komast þau að því að þau eru systkini. Ans- ans vandræði. Jo stingur af til ann- ars smábæjar til að giftast fyrrver- andi kærasta og leiðindagaur sem heitir Jack. Gilly flytur heim til ný- fundinna foreldra sinna og þolir í rúmt ár skítkast frá bæjarbúum Hárgreiðsla skoðuð Heather Graham og Chris Klein í hlutverkum sínum. sem finnst hann pervert af því hann var með systur sinni en þá er mað- ur reyndar orðinn hálfleiður á per- sónum myndarinnar og situr bara og bíður eftir endinum. Say It Isn’t So er nefnilega ekki fyndin eins og heyrðist glögglega á hljóðum sal Stjörnubíós. Aðstand- endur myndarinnar eru vissir um að það sé nóg að vera gróteskur og ógeðslegur til að vera fyndinn. Sifjaspell eru náttúrlega óhemju- fyndin, sömuleiðis svartur, fótalaus maður í hjólastól sem sífellt er að missa gervifæturna - ótrúlega fynd- inn, svo maður tali nú ekki um mann með höndina fasta í belju- rassi - óborganlega fyndinn. Reynd- ar gætu öll þessi atriði verið spaugi- leg í réttri meðferð. Ef aðalpersónur myndarinnar væru fólk sem áhorf- andinn gæti tengt sig við og þær skiptu hann einhverju máli - og það væri slæmt ef þær lentu í óheppileg- um uppákomum þá væri það fyndið, eins og t.d. gelatriði Ben Stillers í There Is Something About Mary, þar sem Cameron Diaz veit ekki hvers kyns hárgelið er. Hér eru persónurnar svo miklir aular að manni finnst alveg eðlilegt að þær lendi í vandræðalegum og pínlegum uppákomum - þær eiga ekkert betra skilið og þar með er vandræðagangur þeirra alveg laus við að vera skemmtilegur. Heather Graham og Chris Klein hafa það helst sér til framdráttar að hún er fín í wonderbra og hann líkist stundum Keanu Reeves. Sally Fields leikur hér vonda og eigingjarna móður og Richard Jenkins leikur pabbann með heilablóðfalliö - ég vona að þau hafi í það minnsta feng- ið vel borgað. Orlando Jones leikur fótalausa flugmanninn Dig og er skásta persóna myndarinnar og sú eina sem framkallaði fliss. En það er ekki nóg til að bjarga þessari mynd frá kvalafullum dauðdaga. Leikstjóri: James B. Rogers. Framleió- endur: Bobby Farrelly, Peter Farrelly, Garrett Grant og Bradley Thomas. Hand- rit: Peter Gaulke & Gerry Swallow. Leik- arar: Chris Klein, Heather Graham, Or- lando Jones, Sally Field, Richard Jenkins o.fl. EfiX Traffic ★ ★★★ Memento ★★★★ Spy Kids ★★★ The Crimson Rivers ★ ★ ★ State and Main ★ ★ ★ „Við erum alltaf allsgáðir og hressir þegar við spOum og finnst það frábært. Þá getum við sett alla orkuna í spila- mennsku og skemmtun og úthaldið verður mun betra en ef við værum undir áhrifum," segir Jón Jósep Snæ- bjömsson úr hljómsveitinni 1 svörtum fötum. Hann segir hljómsveitina spOa mikið á skólaböOum og árshátíðum og nú verði sveitaböOin tekin með trukki í sumar. En hvemig líður honum á sviðinu þegar gestir em velflestir orðnir slompaðir? „Við reynum að vera jákvæðir en óneitanlega er skemmtOegra að spOa fyrir ódrukkið fólk. Þaö er kurteisara og þótt það sé stundum tregara út á gólfið í byrjun þá endist það þeim mun betur. Auðvitað óskar maður þess að menn skemmti sér ánægjunnar vegna en þurfi ekki einhver hjálparmeðul og allra síst að heOa í sig eins og um kappdrykkju sé að ræöa.“ Dauöaherbergi óeðlilegt í sama streng tekur Sylvía Kristín Ólafsdóttir sem leggur baráttimni gegn vimuefnaneyslu lið í gegnum Jafn- Oigjafræðsluna. Henni finnst það í hæsta máta óeðlOegt að á framhalds- skólaböOum þyki sjálfsagt að hafa eitt „dauðaherbergi" fyrir fólk sem sofnað er áfengissvefni. Sylvía stundar jafh- ingjafræðslu í Vinnuskólanum í Reykjavík, fjórða sumarið í röð og seg- ir það ótrúlega skemmtOegt enda hafi unglingar mOdu að miðla. En hvemig skyldu þeir taka hennar boðskap um að segja nei við vímuefnunum? „í flest- um tilfeOum rosalega vel og oft skapast líflegar og skapandi umræður í hópun- um. Ég var svolítið hrædd um að þeim þættu aðferðir mínar nett haOærisleg- ar. Við byrjum á að fara í leiki og svo skreppum við í stutt ferðalög. En unga fólkiö er mjög jákvætt. Kannski líka vegna þess að það er að reyta arfa og annað slíkt og öO tObreyting er vel þeg- in!“ Vimulausar ævintýraferöir Heiðar öm Stefánsson er líka í jafn- ingjafræðslunni og starfar hjá Flakk ferðaskrifstofunni í Hinu húsinu, sem rekin er í samvinnu við Samvinnu- ferðir-Landsýn, Sprite og Námuna. Þar er boðið upp á spennandi ferðir fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára, bæði innanlands og utan - og aOar vimu- efnalausar. Þar má nefna fallhlOar- Heiðar Örn, Jón Jósep og Sylvía Kristín „Menn eiga aö geta skemmt sér ánægjunnar vegna og án hjálparmeðala. “ stökksferðir, „river rafting" og fleira ævintýralegt. En hvemig skyldi ganga að halda unga fólkinu aOsgáðu í þess- um ferðum? „Innanlands hefur aldrei verið neitt vesen enda er hoppað upp í rútu, keyrt út í náttúruna og krökkun- um skOað heim örþreyttum að kvöldi, eða daginn eftir. Hins vegar hafa kom- ið upp vandamál í utanlandsferð og það var vegna þess að við tókum of stóran hóp,“ segir Heiðar Öm. Hann tekur fram að fólk sé hiklaust sent heim ef það verði uppvíst að einhverri neyslu og verði að borga ferðina fuOu verði í stað þess að fá hana á veruleg- um afslætti. „Aðalatriðið er að unga fóOdð hafi nóg að gera, hvort sem það er heima eða heiman, þá er enginn tími tO að vera í vímu.“ segir Heiðar Öm. -Gun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.