Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Blaðsíða 47
55
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
Islendingaþættir
90 ára_________________________________
Jóhanna Norðfjörö,
Kleppsvegi 62, Reykjavík.
80 ára_________________________________
Þorlákur Þóröarson,
Stórageröi 20, Reykjavík.
75 ára_________________________________
Guðmunda Jónína Guömundsdóttir,
Torfnesi, Hlíf 2, ísafirði.
Sigríöur Jóhannesdóttir,
Gunnarsstööum 1, Þórshöfn.
Svanhildur Jóhannesdóttir,
Álftamýri 8, Reykjavík.
70 ára_________________________________
Björn Víkingur Þóröarson,
Engihjalla 1, Kópavogi.
Margrét I. Halldórsdóttir,
Stigahlíö 97, Reykjavík.
Petrea G. Finnbogadóttir,
Bröttukinn 27, Hafnarfiröi.
Þorbjörg Guöjónsdóttir,
Fossheiði 56, Selfossi.
Hún tekur á móti gestum í Réttinni í Út-
hlíð á afmælisdaginn milli. kl. 14.30 og
17.30.
60 ára_________________________________
Ágústa Lárusdóttir,
Brúarási 10, Reykjavík.
Erla Hjaltadóttir,
Brekkugötu 7, Reyðarfiröi.
Guöný Aöalsteinsdóttir,
Jaröbrú, Dalvík.
Jenný Aðalsteinsdóttir,
Skólabraut 15, Garöi.
Ósk Hannesdóttir,
Hreggnasa 10, Hnífsdal.
50 ára_________________________________
Halldór Torfason,
Fiskakvísl 5, Reykjavík.
Jóhann Steinsson,
Brautarholti 12, Snæfellsbæ.
Ragnheiöur Björnsdóttir,
Kleppsvegi 126, Reykjavík.
Sara Einarsson,
Rfumóa 3e, Njarövík.
Sveinn Allan Morthens,
Garöhúsi, Varmahlíö.
Tryggvi Baldursson,
Espigeröi 20, Reykjavík.
40 ára_________________________________
Aðalsteinn Steinþórsson,
Geitlandi 41, Reykjavík.
Elínborg Svavarsdóttir,
Víöigrund 26, Sauöárkróki.
Jón Pétur Guðjónsson,
Álfaskeiöi 96, Hafnarfiröi.
Kristín Björnsdóttir,
Baldursbrekku 15, Húsavík.
Kristín Stefánsdóttir,
Bakkahlíð 35, Akureyri.
Kristján Matthíasson,
Framnesvegi 57, Reykjavík.
Rannveig M. Jóhannesdóttir,
Ásgaröi 14, Reykjavík.
Sólborg Hulda Þórðardóttir,
Rauðarárstíg 3, Reykjavík.
Sveinn Orri Haröarson,
Heiömörk 13, Stöövarfiröir.
Gullbrúökaup eiga 10. júní hjónin Sig-
ríöur Jóhannesdóttir og Sigfús A. Jó-
hannsson á Gunnarsstööum í Þistil-
firöi. Sigriður á 75 ára afmæli þennan
dag, en Sigfús varö 75 ára 5. júní. Þau
bjóða sveitungum, vinum og vanda-
mönnum til fagnaðar í Svalbarðsskóla
kl. 15 á morgun, sunnud. 10. júní.
Jarðarfarir
Útför Sigrúnar Hailfreösdóttur, Reykja-
hlíð 1, Mývatnssveit, fer fram frá
Reykjahlíöarkirkju laugard. 9.6. kl.
14.00.
Útför Sesselju Bergsteinsdóttur, Laug-
arnesvegi 38, Reykjavík, fer fram frá
Laugarneskirkju mánud. 11.6. kl.
13.30.
Hjálmar Ingi Jónsson frá Mosvöllum í
Önundarfirði, Safamýri 42, Reykjavík,
veröur jarðsunginn frá Bústaðakirkju
mánud. 11.6. kl. 13.30.
Jarðarför Ólafs Loftssonar, Hvassaleiti
58, Reykjavík, fer fram frá Bústaöakirkju
þriöjud. 12.6.æ kl. 13.30.
Attræður
Sveinn Þorbjörn Gíslason
fyrrv. bóndi á Frostastöðum
Sveinn Þorbjörn Gíslason, fyrrv.
bóndi á Frostastöðum í Skagafirði,
Víðigrund 28, Sauðárkróki, verður
áttræður á morgun.
Starfsferill
Sveinn fæddist á Frostastöðum en
ólst upp i Eyhildarholti í Skagafirði.
Hann stundaði nám við Héraðsskól-
ann á Laugarvatni 1938^40.
Sveinn stundaði bifreiðaakstur á
sínum yngri árum, var bóndi á
Frostastöðum á árunum 1950-76 og
lengi starfandi hjá Vegagerð ríkis-
ins, m.a. við brúargerð. Við það
starfaöi hann til starfsloka 1993.
Sveinn hefur tekið virkan þátt í
kórastarfi. Hann söng með skólakór
á Laugarvatni, með Karlakórnum
Heimi i meira en fjörutíu ár og
syngur nú með Kór aldraðra á Sauð-
árkróki.
Sveinn var á búskaparárum sín-
um mikill áhugamaður um sauð-
fjárrækt, stundaði hana af kost-
gæfni og tók virkan þátt í starfsemi
fjárræktarfélaga.
Fjölskylda
Sveinn kvæntist 29.8. 1948 Lilju
Sigurðardóttur, f. 12.10. 1923, hús-
móður. Hún er dóttir Sigurðar Jóns-
sonar og Helgu Pálmadóttur, bænda
að Teigi í Eyjafirði.
Börn Sveins og Lilju eru Sveinn
Sveinsson, f. 2.10. 1947, sjómaður í
Reykjavík, en kona hans er Anna
Dóra Antonsdóttir og eiga þau tvo
syni; Pálmi Sveinsson, f. 26.11.1948,
húsasmiður á Sauðárkróki, kona
hans er Lilja Rut Berg og eiga þau
tvo syni og eitt barnabarn en áður
átti Lilja Rut einn son; Sigurður
Sveinsson, f. 27.2.1955, símsmiður á
Sauðárkróki, en kona hans er Jó-
hanna Þorvaldsdóttir og eiga þau
þrjá syni en áður átti Sigurður einn
son með Önnu Björk Arnardóttur.
Systkini Sveins: Magnús Halldór
Gíslason, f. 23.3. 1918; Konráð Gísla-
son, f. 2.1. 1923; Rögnvaldur Gísla-
son, f. 16.12. 1923; Gísli Sigurður
Gíslason, f. 26.6. 1925; Frosti Gísla-
son, f. 14.7., 1926; Kolbeinn Gislason,
f. 17.12. 1928, d. 15.1. 1995; Árni
Gíslason, f. 21.1. 1930; María Kristín
Sigríður Gísladóttir, f. 4.8. 1932;
Bjarni Gíslason, f. 8.8. 1933; Þor-
björg Eyhildur Gísladóttir, f. 26.8.
1936. Tvö systkinanna, Konráð og
Þorbjörg, dóu í frumbernsku.
Foreldrar Sveins voru Gísli
Magnússon, f. 25.3. 1893, d. 17.7.
1981, bóndi í Eyhildarholti, og k.h.,
Stefanía Guðrún Sveinsdóttir, f.
29.7. 1895, d. 13.8. 1977, húsfreyja.
Ætt
Gísli var sonur Magnúsar, b. á
Frostastöðum, Gíslasonar, b. þar,
Þorlákssonar, b.
á Ystu-Grund,
Jónssonar, b. á
Hóli. Móðir
Gísla var Kristín
Guðmundsdóttir,
b. i Gröf í Laxár-
dal í Dölum,
Böðvarssonar, b.
á Sámsstöðum,
Guðmundssonar.
Móðir Guðmund-
ar í Gröf var
Helga Magnús-
dóttir frá Láxár-
dal í Hrútafirði.
Móðir Kristínar
á Frostastöðum
var Þuríður Sig-
urðardóttir, b. f
Ljárskógaseli,
Bjarnasonar.
Móðir Magnúsar á Frostastöðum
var Sigríður Magnúsdóttir, b. á
Seylu, Magnússonar, prests í
Glaumbæ, Magnússonar. Móðir Sig-
ríðar var María Hannesdóttir,
prests á Ríp, Bjamasonar, í Djúpa-
dal. Kona Þorláks var Sigríður
Hannesdóttir, prests á Ríp.
Guðrún í Eyhildarholti var dóttir
Sveins, b. og barnakennara á Skata-
stöðum, Eiríkssonar, b. þar, Eiríks-
sonar, b. í Héraðsdal. Kona Sveins
var Þorbjörg Bjarnadóttir, b. á Hofi,
Hannessonar, prests á Ríp, Bjarna-
sonar. Móðir Þorbjargar var Mar-
grét Árnadóttir, b. I Stokkhólma,
Sigurðssonar, og fyrstu konu Árna,
Þorbjargar Eiriksdóttur, prests á
Staðarbakka, bróður Hannesar á
Ríp, Bjarnasonar. Móðir Sveins var
Hólmfríður Guðmundsdóttir, b. í
Bjarnastaðahlíð, og konu hans, Guð-
ríðar Jónsdóttur, b. á Ánastöðum og
síðar í Flatatungu, Einarssonar.
Kona Eiríks í Héraðsdal var Mar-
grét Árnadóttir, b. á Skatastöðum.
Tilvera___________________________________________________________
Upplýsingamiðstöðin og Halldórskaffi hafa opnað:
Saga Skips-
stranda á sýningu
- erlend sendiráð hafa aðstoðað við söfnun gagna
DV. VÍK:
Nú stendur yfir undirbúningur
að uppsetningu á sýningu sem
spannar sögu Skipsstranda við
lágsendna strönd Vestur-Skaftafells-
sýslu, frá Jökulsá á Sólheimasandi
austur í vestustu sveit A-Skaftafells-
sýslu, Öræfasveitina. Þessi sýning
er hrein viðbót í sýningahaldi í
Brydebúð, sú sýning sem nú er fyr-
ir, Mýrdalur - Mannlíf og náttúra,
verður opin eftir sem áður.
Sýningin er í meginatriðum
byggð á óútgefinni samantekt Krist-
ins Helgasonar um Skipsströnd í V-
Skaftafellssýslu en Dynskógar
munu gefa hana út á næstunni.
Hönnuður er Björn G. Björnsson, sá
hinn sami og setti upp mannlífs- og
náttúrusýninguna. Menningarfélag
um Brydebúð stendur fyrir uppsetn-
ingu sýningarinnar. Sjóminjasafnið
Hátíðlsdagur
Brydebúö í Vík í Mýrdal var opnuö um helgina, hálfum mánuöi fyrr en vana-
lega. Aö sjálfsögöu var þetta hátíöisdagur í fleirum en einum skilningi.
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁIMARSSON
Upplýsa ferðamenn
Sigrún L. Einarsdóttir og Áslaug Pálsdóttir eru starfsmenn upplýsingamiö-
stöövarinnar.
í Bremerhaven og ýmis erlend
sendiráð, m.a. þýska og breska
sendiráöið, hafa ljáð aðstoð sína við
öflun efnis fyrir sýninguna en þess
má geta að breski sendiherrann
heimsótti Brydebúð nú fyrir stuttu.
Stefnt er að opnun sýningarinnar
15. júlí. Ljóst er að sýningin verður
áhugaverð fyrir erlenda ferðamenn
ekki síður en þá íslensku.
Menningarfélag um Brydebúð
vinnur einnig að því að setja saman
ljósmyndasýningu um mannlíf og
byggðaþróun í Vík frá 1895-1970. Sú
sýning verður staðsett á loftinu í
Brydebúð, undir súð. Samkvæmt
upplýsingum Sigrúnar Lilju Einars-
dóttir, annars starfsmanns upplýs-
ingamiðstöðvarinnar í Brydebúð,
verður opið frá kl. 11 til 21 alla daga
í sumar fram til 20. ágúst.
Sumarstarfsemi i Brydebúð í Vík
í Mýrdal hófst um síðustu helgi.
Kafíihúsið Halldórskaffi hefur bætt
ýmsum skemmtilegum nýjungum á
matseðilinn hjá sér auk þess sem
ýmsar myndlistarsýningar verða
þar í sumar.
-SKH