Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
DV
Fréttir
Skoðanakönnun DV um fylgi við ríkisstjórnina:
51,3 prósent andvíg
stjórn Davíös og Halldórs
- konur á landsbyggðinni í mestri andstöðu en karlarnir hlutlausir
Samkvæmt skoðanakönnun
DV, sem gerð var á fimmtudags-
kvöldiö, er meirihluti þjóðarinn-
ar andvígur ríkisstjórninni. Þó
hefur hún vaxið heldur í áliti
fólks frá síðustu könnun þar á
undan sem gerð var 28. janúar.
I könnuninni á fimmtudags-
kvöldið var úrtakið 600 manns af
öllu landinu, skipt jafnt milli
landsbyggðar og höfuðborgar-
svæðis og einnig jafnt milli
kynja. Spurt var: Ertu fylgjandi
eða andvíg(ur) rikisstjórninni?
Svörun var mjög góð, en alls
tóku 505 manns eða 84,2% afstöðu
til spurningarinnar, en einungis
95, eða 15,8% voru óákveðnir eða
svöruðu ekki. Er það reyndar
mjög áþekk svörun og fékkst við
sömu spurningu í janúar. í heild-
arúrtakinu nú mældust 41% vera
fylgjandi rikisstjórninni, en
43,2% voru henni andvíg. Þá
mældust 11,8% vera óákveðin og
4% svöruðu ekki spurningunni.
Framsókn lagar stööu
stjórnarinnar
í könnuninni í gær mælist and-
staðan við ríkisstjórnina vera
51,3% hjá þeim sem afstöðu taka,
en þeir sem eru fylgjandi stjórn-
inni teljast vera 48,7%. Þótt Sjálf-
stæðisflokkur dali i könnuninni
nú gerir Framsóknarflokkurinn
greinilega sitt til að halda merki
stjórnarinnar uppi. Þannig eykst
mælist meirihlutafylgi við stjórnina
þó ekki sé hægt að tala þar um
marktækan mun. Fylgjendur stjórn-
arinnar eru 50,6%, en þeir sem and-
vígir eru stjórninni mælast vera
49,4% af þeim sem afstöðu taka. Á
landsbyggðinni er munurinn hins
vegar vel marktækur. Þar er and-
staðan við ríkisstjórnina mun meiri
en á höfuðborgarsvæðinu og mælist
hún 53,2%, en fylgjendur stjórnar-
innar teljast vera 46,8%.
Konurnar úti á landi gegn
ríkisstjórn
Ekki er marktækur munur á af-
stöðu kynja á höfuðborgarsvæðinu
til ríkisstjómarinnar. Ööru máli
gegnir á landsbyggðinni þó karlar
þar skiptist nánast jafnt á milli
fylgjenda og andstæðinga ríkis-
stjórnarinnar. Það eru konurhar
sem gera þar gæfumuninn, en í
þeirra hópi er greinilega áð finna þá
andstööu sem skilur á milli feigs og
ófeigs og gefur þá niðurstöðu að rík-
isstjórnin njóti ekki meirihluta-
stuðnings landsmanna.
Karlarnir hlutlausir
Þegar litið er á tölurnar í heild
má segja að karlarnir hengslist
þarna eins og rolur undir vegg og
taki í raun hvorki afstöðu með eða
á móti. Niðurstöður könnunarinnar
úr heiidarúrtakinu á höfuðborgar-
svæðinu sýna fylgjendur í hópi
karla vera 42,7%, andstæðinga
41,3%, óákveðna 12% og 4% svara
ekki. Konur á höfuðborgarsvæðinu
mælast 42,7% á móti ríkisstjóm-
inni, 42% em henni fylgjandi, 12%
eru óákveðnar og 3,3% svara ekki
spurningunni.
Á landsbyggðinni mælast 42,7%
karla fylgjandi ríkisstjórnini, 42%
eru henni andvígir, 12% eru óá-
kveðnir og 3,3% svara ekki. Hins
vegar eru 36% kvenna á lands-
byggðini fylgjandi ríkisstjórninrti,
47,3% eru henni andvígar, 11,3%
eru óákveðnar í afstöðu sinni og
5,4% svara e'Bd'spurningunni að
þessu sinni. -HKr.
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Asgrímssonar
Framsóknarflokkurinn togar nú upp fallandi gengi Sjálfstæöisflokksins sem dugar til aö bæta stööu ríkisstjórnarinnar
meöal kjósenda frá fyrri könnun.
Stuöningur v/ð ríkisstjórnina
- flokkað eftir búsetu
_0/ Höfuðborgar-
‘ /0 svæðið
Lands-
byggðin
SKODANAKfiNNUN
aö skýra það með öðru en vax-
andi gengi Framsóknarflokksins.
Mismunur á afstööu til
flokka og stjórnar
Þó könnun um fylgi flokkanna,
sem birt var í gær, sýni að ríkis-
stjórnarflokkarnir haldi velli meö
samtals 52,7% fylgi, þá er annað
uppi á teningnum þegar spurt er
beint um afstöðu til ríkisstjórnar-
innar sjálfrar. Þannig virðist
svörun fólks varðandi það hvaöa
flokka það myndi kjósa ef kosið
væri nú ekki endilega endur-
spegla afstöðu þess til ríkisstjórn-
arinnar. Er það reyndar sama
niðurstaða og í síðustu könnun
um sama efni.
fylgi stjórnarinnar frá fyrri könn-
un um 2%, en í janúar mældist
andstaðan vera 53,3% og fylgjend-
ur voru þá 46,7% og er vart hægt
Andstaðan meiri úti á landi
Greinilegur mismunur er á af-
stöðu kjósenda til ríkisstjórnar eftir
búsetu. Á höfuðborgarsvæðinu
Þeir sem tóku afstöðu
Ert þú fylgjandi eða andvíg(ur)
ríkisstjórninni?
Allt úrtakið
* SKOBANAKÖNNUN
41,0%
fylgjandl
, 8'-
9" -^14° (e
’ u. V.v
Víöast bjart veður
Fremur hæg vestlæg eöa breytileg átt. Sums
staðar súld vestan til í kvöld og nótt, en
annars víöast hvar bjart veöur. Hiti 8 til 15
stig að deginum.
?3?ITE?r
™ REYKJAVÍK
Sólarlag í kvöld 23.51
Sólarupprás á morgun 03.03
Siðdegisflóó 20.46
Árdeglsflóö á morgun 09.05
. Slk^ílBgíBf á vatetÉ&mtm.
10 °<---HITI
'VINDATI
.10°
NVINDSTYRKUR N
f metfuhi á sékúftdu
LETTSKYJAÐ HALF-
SKÝJAÐ
pi
AKUREYRI
23.53
03.01
01.19
13.38
HEIÐSKÍRT r
o;
SKÝJAÐ AISKÝJAÐ
FR0ST
V.'
RÍBNING
*ít 3»
■
■ SLY0DA SNJOKOMA
EUAGANGUR ÞRUMU-
VEÐUR
SKAF-
RENNINGUR
Allt eftir v
SMki
Gott veöur til útivistar
Þar sem útlit er fyrir skaplegasta veður
um helgina er kjörið að njóta útivistar
hvort sem það er í gönguferðum eða
garðinum heima. Þjóövegir landsins eru
líka allir greiöfærir og bjóöa upp á
lengri eða skemmri skreppitúra.
Hlýtt fýrir austan
Hæg vestlæg eöa breytileg átt, skýjaö með köflum, hætt við lítilsháttar
skúrum og hlýtt í veðri, einkum austan til
m
Mánuda
Vindur:
5-7 m/s
Híti 8° til 18°
Þriðjudagur
Vindur:
5-6 m/s
Kiti 8“til 18“
Virsdur:
5-7 rci/a
Hiti 5“ til 12“
Hæg vestlæg eöa breytlleg
átt, skýjaö meö köflum og
hætt vlö lítllsháttar
skúrum. Hltl 8 tll 18 stlg,
hlýjast á Austurlandl.
Hæg vestlæg eöa breytlleg
átt, skýjaö meö köflum og
hætt vlh lítllsháttar
skúrum. Hlti 8 tll 18 stlg,
hlýjast á Austurlandl.
Austan- en siöar
noröaustan átt og heldur
kólnandi veöur. Skúrlr víöa
um land.
AKUREYRI skýjaö 9
BERGSSTAÐIR
BOLUNGARVÍK hálfskýjaö 7
EGILSSTAÐIR 12
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 11
KEFLAVÍK úrkoma í gr. 8
RAUFARHÓFN léttskýjaö 7
REYKJAVÍK hálfskýjaö 9
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 9
BERGEN skýjaö 9
HELSINKI skýjaö 18
KAUPMANNAHÖFN hálfskýjaö 14
ÓSLÓ rigning 9
STOKKHÓLMUR 14
ÞÓRSHÖFN skýjaö 7
ÞRÁNDHEIMUR úrkoma í gr. 15
ALGARVE léttskýjað 23
AMSTERDAM skýjaö 15
BARCELONA léttskýjað 22
BERLÍN skúr 14
CHICAGO þokumóöa 13
DUBLIN skúr 13
HALIFAX léttskýjaö 15
FRANKFURT alskýjað 13
HAMBORG skúr 13
JAN MAYEN léttskýjaö 2
LONDON skýjaö 14
LÚXEMBORG skýjaö 11
MALLORCA heiöskírt 31
MONTREAL heiöskírt 16
NARSSARSSUAQ hálfskýjaö 10
NEW YORK léttskýjaö 19
ORLANÐO hálfskýjaö 24
PARÍS alskýjaö 14
VÍN skýjaö 24
WASHINGTON þokumóöa 18
WINNIPEG skýjaö 12
■4M4»iBr;aMi,m'.«iiM'H.tiiiaAiiiiHwag