Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Page 6
6
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
Fréttir DV
Öldungurinn Guðmundur Daðason lætur ekki deigan síga:
Tíræður á leið til
útlanda í fýrsta sinn
- ég verð að vera sigldur maður árið 2001, segir hann
Guðmundur Daðason, sem stendur
nú á tíræðu, lætur aldurinn ekki aftra
sér. Hann er á leiðinni til útlanda í
fyrsta sinn á ævinni. Ferðinni er heitið
til Óðinsvéa í Danmörku, þar sem
hann hyggst heimsækja dótturson sinn
sem dvelur þar við nám. Guðmundur
leggur af stað, ásamt dóttur sinni,
næstkomandi mánudag. Það var greini-
lega kominn ferðahugur í hann í gær,
þegar DV leit til hans þar sem hann
býr á hinu vistlega dvalarheimili í
Holtsbúð.
„Ég verð í eina viku, rétta,“ sagði
hann aðspurður um ferðalagið fyrir-
hugaða. „Nú er 21. öldin gengin i garð
og ég segi að það deyi enginn íslending-
ur ósigldur á þeirri öld. Ég verð að
vera sigldur maður.“
Guðmundur sagði að allt væri reiðu-
búið fyrir ferðalagið, búið væri að
greiða farseðilinn og hann væri búinn
að pakka niður. Hann hefði ekki gert
tilraun til að sigla fyrr en nú skyldi lát-
ið verða af því.
Spurður hvort hann hygðist skoða
eitthvað tiltekið á ferð sinni til Dan-
merkur sagðist hann ekki hafa neitt
sérstakt í huga. „Ég veit að dótturson-
ur minn hefur undirbúið komu mína
og hann mun sýna mér það sem ég hef
helst áhuga á. Ég er ekkert spenntur en
Ferðbúinn dv-mynd hilmar þór
Guðmundur Daðason var búinn að pakka og undirbúa
ferðina að öðru leyti í gær.
hlakka þó mjög til að
hitta hann og sjá mig
um.“
Langlífi í ættinni
Guðmundur varð
100 ára þann 13. nóv-
ember síðastliðinn.
Hann sagði að það
væri langlífi í ættinni.
Til dæmis hefði systir
sin, Ingibjörg, orðið
103 ára og móöir sín,
María Andrésdóttir,
orðið 106 ára.
Sjálfúr hefur hann
komið viða við á
langri ævi. Lengst af
starfsævinnar var
hann bóndi að Ósi á
Skógarströnd. Hann
kvaðst ekki hafa ferð-
ast mikið um landið
því hann hefði verið
einyrki og ekki haft
neinar aðstæður til
þess.
„Ég var tvítugur
þegar ég kom fyrst til
Reykjavikur," sagði
hann og bætti við: „Þá
varð ég svo frægur að
vera í fyrstu kröfugöngu verkalýðsins
sem farin var hér á landi. Þetta var
árið 1923.“
Árið 1968 flutti Guðmundur ásamt
eiginkonu sinni, Sigurlaugu Maríu
Jónsdóttur, suður „á mölina“ eins og
það er kallað. „Þá var atvinnuleysi i
Reykjavík en ég fékk vinnu til bráða-
birgða í hjalli í Kópavogi," sagði hann.
„Þar var verkaður úrvalsgóður harð-
fiskur."
Eftir það fór hann að vinna í fyrir-
tækinu Júpíter og Mars. Þaðan lá leið-
in til fyrirtækis Þorsteins Kristjánsson-
ar, Gúmmisteypunnar, þar sem hann
vann í allmörg ár.
Eftir að kona Guðmundar lést árið
1990 bjó hann einn þar til að hann flutti
á dvalarheimilið í Holtsbúö 1. febrúar í
fyrra. Hann sagði að sér líkaði vistin
vel, hann stytti sér stundir við lestur
og færi einnig i gönguferðir á hverjum
degi.
„Ég les vist meira en ég má,“ sagði
hann og klappaði á bók eftir Matthías
Jochumsson sem lá á borðinu í her-
berginu hans. „Svo er ekki gott að segja
nema ég fái ferðabakteríuna eftir sigl-
inguna," sagði þessi hressi öldungur
um leið og hann kvaddi blaðamenn. DV
óskar honum góðrar ferðar.
-JSS
Konur og lýðræði:
Meðal um-
ræðuefna er
mansal
Haustið 1999 stóð rikisstjórn ís-
lands fyrir ráðstefnunni „Konur og
lýðræði við árþúsundamót" í sam-
vinnu við ríkisstjóm Bandaríkjanna
og Norrænu ráðherranefndina. Til-
gangur ráðstefnunnar var að hrinda
af staö verkefnum sem stuðlað gætu
að framgangi kvenna á öllum sviðum
þjóðlifsins og einkum á sviði stjórn-
mála og atvinnulífs. Var leitað eftir
samvinnu við fyrirtæki og stofnanir
um íjármögnun og framkvæmd verk-
efna. Þekktasti þátttakandi ráðstefn-
unnar í Reykjavík var þáverandi for-
setafrú Bandaríkjanna, Hillary Clint-
on.
Á ráðstefnunni í Reykjavík var
ákveðið að halda framhaldsráðstefnu
innan tveggja ára þar sem árangur
þeirra verkefna sem rædd voru í
Reykjavík yrðu metin. Þar má nefna
jafnan rétt karla og kvenna til fæðing-
arorlofs sem orðið hefur að veruleika.
Ráðstefnan fer fram í Litháen 15. til
17. júní nk. ÖU sömu lönd taka þátt
auk Þýskalands og Póllands. Frá Is-
landi fara 40 þátttakendur, fuUtrúar
frá íslenskum verkefnum, frá stjóm-
völdum og félagasamtökum. Eitt
helsta umræðuefni ráðstefnunnar
verður mansal en stúlkur sem seldur
hafa verið mansali að undanfomu
koma ekki síst frá þessum hluta
heims. Sólveig Pétursdóttir dóms-
málaráðherra mun taka þátt í paU-
borðsumræðum. -GG
Keikó á hörkusiglingu dvwynd tom ordway/ocean future
Menn eru mjög bjartsýnir og sega að sérstaklega vel gangi að venja Keikó við villt líf í sjónum í kringum Vestmanna-
eyjar. í frétt DV ígær kom m.a. fram að Keikó hafi á síðustu dögum átt 10 mínútna „fund“ með öðrum háhyrningi. Á
myndinni, sem tekin er skammt frá Eyjum, er Keikó hins vegar í nánu sambandi viö Stephen Clausen frá Ocean Fut-
ure samtökunum en hann er um borö í einum fylgdarbáta hins heimspekkta háhyrnings.
Lottó: ^
Aftur á RUV
Framvegis verður
bein útsending á út-
drætti á Lottó send út
á Stöð 2, Sýn og í rik-
issjónvarpinu auk
allra útvarpsstöðva
Norðurljósa. Útsendingin verður
klukkan 18.54 en sölukössum verður
lokað kl. 18.40. Útdráttur á Víkinga-
lottó, sem sent er hingað til lands í
gegnum gervihnött, verður sýndur á
sömu stöðvum.
Síldarflotinn á heimsiglingu vegna sjómannadagsins:
Norskt verö komið
niður í 8400 krónur
Síldarleiðangri rannsóknarskips-
ins Árna Friðrikssonar á norsk-ís-
lenska síldarstofninum lauk á
fimmtudag. Meginhluti stofnsins er
nú mun norðar en á sama tíma í
fyrra, djúpt norðaustur i hafi, aust-
ur af Jan Mayen, allt austur að
norsku 200 mílna lögsögunni við
Bjamarey. Jakob Jakobsson leið-
angursstjóri segir að fundist hafi
síld við Jan Mayen í töluverðu
magni sem gefi vonir um að fram-
haldið verði gott.
Norðmenn hafa verið að greiða
allt að 10.000 krónum fyrir tonnið,
eða 91,15 norskar krónur, en ís-
lenskir skipstjórar hafa margir
hverjir ekki áttað sig á því að verð-
Síldarstofninn
Meginhluti stofnsins er nú mun
norðar en á sama tíma í fyrra, djúpt
norðaustur í hafi
ið miðast við fituprósentu, auk þess
sem þeir fá ekki nema um 70% afl-
ans viktaðan eins og áður hefur ver-
ið getið í DV. Þannig hefur verðið
farið niður í allt að 8400 krónur fyr-
ir tonnið en á sama tíma er SR-mjöl
á Seyðisfirði aö greiða 9500 til 9700
krónur fyrir tonnið. Munurinn
verður því enn meiri, SR-mjöli í
hag. Skip eins og Vilhelm Þorsteins-
son EA hafa þó fengið mun hærra
verð en þar um borð er sildin flök-
uð og fryst og eru afköstin um 100
tonn á sólarhring.
Síldarflotinn er nú allur á heim-
siglingu vegna sjómannadagsins 10.
júní nk. Vegna langrar siglingar fer
því allt að vika í það að uppfylla
lagaskyldu um það að vera í landi á
sjómannadaginn. -GG
Flugið kært?
Margir vissu að Kristján Þór Júl-
íusson, bæjarstjóri á Akureyri, væri
snjall og ráðagóður maður. Allavega
hefur hann sjaldan verið staðinn að
því að deyja ráðlaus, hvað sem á hef-
ur dunið. í DV í gær mátti lesa frétt
um Akureyrarmaraþon sem fram fer
í dag. Að sjálfsögðu tekur bæjarstjór-
inn þátt en þó með sínu lagi ef
marka má fyrirsögn fréttarinnar.
„Ég ætla mér að i
fljúga í gegnum
hlaupið," segir
bæjarstjórinn
knái. Andstæðing-
ar Kristjáns Þórs í
bæjarstjórn segja
þetta honum líkt.
Það sé svo mikið I
loft i honum að
hann komist hreinlega ekki með fæt-
urna niður á jörðina. Því geti hann
ekki skokkað eins og aðrir heldur
verði hann að fljúga. Búist er við að
framsóknarmenn kæri flugið til Loft-
ferðaeftirlitsins...
Flutti ávarp Grænlendinga
í heita pottinum vakti það athygli
að á Vestnorrænu iðnsýningunni var
það íslendingur sem flutti ávarp fyr-
ir hönd Grænlendinga. Ekki nóg
með að það væri íslendingur sem
flutti ávarpið held-
ur var það líka
flutt á dönsku. Is-
lendingurinn, sem
í Grænlendingar
treystu fyrir þessu
verkefni, var
Gunnar Bragi
Guðmundsson en
Gunnar starfar sem
forstjóri grænlenska fyrirtækisins
NUKA sem er alhliða matvælafyrir-
tæki með höfuðstöðvar í Nuuk.
Nuka er að kynna ýmsar grænlensk-
ar framleiðsluvörur á sýningunni í
Perlunni, m.a. sauðnautakjöt sem
reyna á að markaðsetja sem gómsæt-
an sérvitringamat á íslandi...
Hitnar undir Össuri
Niðurstaðan í skoðanakönnun DV,
sem birt var í gær, hefur mikið ver-
ið til umræðu í heita pottinum. Sér-
staklega hefur útkoma Samfylkingar-
innar vakið athygli en flokkurinn
virðist ekki ætla að ná sér á strik
úndir stjóm Össurar. Er nú svo
komið að samfylk-,
ingarmetm í vest-
urbænum i |
Reykjavík ræða I
um framtíð tveggja [
manna umfram I
framtíð nokkurra I
annarra. Þetta er I
framtið Péturs
Péturssonar, þjálf-'
ara KR, annars vegar og svo framtíð
Össurar Skarplíéðinssonar hins
vegar. Öiýög Péturs gætu ráðist nú
um helgina en nokkuð lengra er í að
örlög Össurar ráðist. Hins vegar er
fullyrt að stöðugt hitni undir for-
manninum og félagar hans séu nú
farnir að líta í kringum sig eftir
ásættanlegum valkosti. Nafn Ingi-
bjargar Sóirúnar hefur þá jafnan
komið upp en ólíklegt talið að hún
hafi hug á að skipta um vettvang.
Fátt mun um önnur foringjaefni en
Bryndís Hlöðversdóttir heyrist nefnd
og Lúðvik Bergvinsson líka. Einnig
að samfylkingarmenn séu áfjáöir í
að fá Jón Baldvin Hannibalsson til
að snúa til baka í stjórnmálin. Full-
yrt er að það væri Jóni ekki alls
kostar á móti skapi...!
Meö leyninúmer
I pottinum segja menn að svo
bregðist krosstré sem önnur tré. Nú
mun Davíð Odds-
son vera búinn að
fá sér leyninúmer
í símann heima
hjá sér en til þessa
hefur forsætisráð-
herrann verið i
símaskránni. Davíð
mun einfaldlega
hafa gefist upp á
endalausum hingingum á öllum tím-
um sólarhrings frá mönnum í mis-
jöfnu ástandi sem vilja kenna hon-
um að stjórna landinu ...