Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Side 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
I>V
Forsætisráðherra írlands
Kjósendur í kjördæmi Aherns voru
meðal þeirra sem sögðu nei.
írar hafna Nice-
sáttmálanum
Irar höfnuðu í gær 1 þjóðarat-
kvæðagreiðslu Nice-sáttmála Evr-
ópusambandsins, ESB. Fyrir Bertie
Ahern, forsætisráðherra írlands,
eru úrslitin áfall þar sem hans eigið
kjördæmi hafnaði sáttmálanum. ír-
land er eina ESB-landið sem verður
samkvæmt stjórnarskrá sinni að
greiða þjóðaratkvæði um sáttmál-
ann sem greiðir leið fyrir stækkun
sambandsins í austur.
Til skamms tíma litið þýðir nei ír-
lendinga að Amsterdam-sáttmálinn
verður enn i gildi. En öll aðildarríki
Evrópusambandsins verða að hafa
samþykkt Nice-sáttmálann í síðasta
lagi á næsta ári til að stækkun sam-
bandsins dragist ekki á langinn.
Möguleg lausn er að írland fái und-
anþágu frá ákvæðum sáttmálans.
Tvöfalt meiri
geislun frá far-
símum í bílum
Þeir sem tala í farsíma í bíl verða
fyrir tvöfalt meiri geislun en þeir
sem tala í síma fyrir utan bílinn.
Þetta kom fram á alþjóðlegri ráð-
stefnu vísindamanna sem haldin er
í London. Bíllinn hindrar örbylgj-
urnar en við það aukast yfirsveifl-
ur. Þar með verður sá sem talar í
síma í bil fyrir meiri heildargeislun.
Vísindamennirnir segja nauðsyn-
legt að nota ytra loftnet tengt far-
símanum tali menn í hann inni í
bíl. Rannsóknin náöi fyrst og fremst
til NMT-síma. Einnig er varað við
GSM-símum og þráðlausum heimil-
issímum. Sérfræðingarnir telja víst
að mikil farsímanotkun geti valdið
krabbameinsæxlum í heila.
Þeir telja einnig sannað að stærri
hluti heila barna verði fyrir geislun
miöað við fullorðna. Taugakerfi
barna er heldur ekki fullþroskað.
Enn í felum
Devyani Rana flýði eftir að unnusti
hennar skaut fjölskyldu sína.
Ást krónprinsins
flýði til Moskvu
Konan, sem sögð er vera orsök
konunglega blóðbaðsins í Nepal fyr-
ir viku, fer enn huldu höfði.
Devyani Rana, kærasta Depindra
krónprins, sem skaut og særði 14
ættingja sína í æðiskasti, er sögð
hafa ílogið til Nýju Delhi í Indlandi
nokkrum klukkustundum eftir blóö-
baðið. Samkvæmt blaðafregnum
mun hún siðan hafa flogið til
Moskvu, til systur sinnar og mágs
þar. Móðir krónprinsins var andvíg
því að hann gengi að eiga unnustu
sína. Móðir hennar er af flnni ind-
verskri ætt en faðir hennar hefur
gegnt ráðherraembættum í Nepal.
Yfirvegaður sigurvegari:
Blair boðar aukna
samvinnu við ESB
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, var yfirvegaður í gær
þegar hann fagnaði í annað sinn
stórsigri í þingkosningum sem
sýndi að hann er sterkasti leiðtog-
inn sem Verkamannaflokkurinn
hefur haft.
Blair stillti sér upp fyrir ljós-
myndara fyrir utan Downingstræti
og sagði kosningaúrslitin skipun
kjósenda um að kosningaloforðun-
um yrði hrint í framkvæmd. Hann
boöaði aukna þátttöku Bretlands í
samvinnu Evrópusambandsríkja.
Hann gaf í skyn að breytinga væri
þörf á viðhorfinu til umheimsins
og sagöi að landið mætti ekki ein-
angrast. Þessi orð forsætisráðherr-
ans voru strax túlkuð sem loforð
um að þjóðaratkvæðagreiðsla um
evruna yrði haldin áður en langt
um líður.
Blair hefur ekki lagt mikla
Nýr innanríkisráðherra Bretlands
David Blunkett, fyrrverandi
menntamálaráðherra, verður nýr
innanríkisráðherra.
áherslu á aðild að evrunni, sameig-
inlegum gjaldmiðli Evrópusam-
bandsins, þar sem hann veit að al-
menningur er tortrygginn. Hann
hefur sagt að hann væri hlynntur
aðild þegar hún hentaði Bretlandi.
Hann sagði þó nýlega í viðtali við
Financial Times að hann væri viss
um að fara með sigur af hólmi í
þjóðaratkvæðagreiðslu um evruna.
Nú vilja aðeins 17 prósent Breta
taka upp evruna. 43 prósent eru
andvíg og afgangurinn vill bíða eða
er óákveðinn.
Blair var i gær önnum kafinn við
stjórnarmyndun eftir að hafa farið
í kurteisisheimsókn til Elísabetar
Englandsdrottningar.
David Blunkett, fyrrverandi
menntamálaráðherra, verður nýr
innanríkisráðherra. Hann þykir
harðskeyttari en fyrirrennari hans,
Jack Straw.
Leo litli stal senunni
Yngsta barn Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, og Cherie, eiginkonu hans, Leo litli, stal senunni þegar fjöl-
skyldan stillti sér uþþ fyrir Ijósmyndara fyrir utan Downingstræti 10 í gær. Leo hefur lítið veriö í sviösljósi fjölmiöla.
Bush fær skýr skilaboð
frá loftslagssérfræðingum
Örfáum dögum fyrir Evrópuferð
sína fékk George W. Bush Banda-
ríkjaforseti skýr skilaboð frá sér-
fræðingum sínum.Gróðurhúsaáhrif-
in eru til staðar og aðgerða er þörf.
Þessi yfirlýsing veldur Banda-
ríkjaforseta vandræðum. Þegar
hann hittir leiðtoga Evrópusam-
bandsins í Gautaborg í næstu viku
verður eitt helsta málið á dagskrá
andstaða Bandaríkjanna gegn
Kyoto-sáttmálanum sem skuldbind-
ur lönd til að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda.
Er Bush lét tilkynna í mars síð-
astliðnum að hann ætlaði ekki að
skrifa undir sáttmálann heyrðust
hávær mótmæli frá Evrópu. Busn
setti þá á laggimar nefnd 11 lofts-
lagssérfræðinga sem allir eru félag-
ar í vísindaakademíu Bandaríkj-
anna.
Einn þeirra hefur verið efins um
Hvíldarstund í hltanum
Bush viö smíðar í Flórída.
gróðurhúsaáhrifin. Hann tekur nú
undir það mat hinna sérfræðing-
anna að gróðurhúsaáhrifin séu af
manna völdum og að meðalhitastig-
ið í heiminum hafi aukist um 0,6
stig á síðustu öld. Gert er ráð fyrir
að hitastigið hafi aukist á milli 1,4
og 5,8 stiga í lok þessarar aldar. Sér-
fræðinganefndin leggur til að gerð
verði áætlun um gagnaðgerðir eins
fljótt og hægt er.
Umhverfisverndarsamtök hafa
fagnað skýrslunni sem þau segja
áfall fyrir stefnu Bush í orkumál-
um.
Bandarískir embættismenn eru
nú sagðir önnum kafnir við að
marka nýja stefnu í loftslagsmálum.
Bandarísk yfirvöld segja Kyoto-sátt-
málann ógna efnahag Bandaríkj-
anna. Auk þess séu ekki gerðar
nógu harðar kröfur til þróunar-
landa eins og Indlands og Kína.
Þarf ekkert vodka
Sergei Mironov,
læknir Vladimírs
Pútíns Rússlands-
forseta, sagði í gær
að forsetinn þyrfti
ekki að drekka
vodka til að geta
slappað af eftir erf-
iðan vinnudag.
Sagði læknirinn meira að segja
erfitt að fá forsetann til að taka inn
mixtúru. Hins vegar drekkur hann
te með hunangi í og hvílist í eim-
baði.
Geislavirkni frá Kúrsk
Ríkisstjórinn í Múrmansk óttast
mögulega geislavirkni frá rúss-
neska kafbátnum Kúrsk þegar hon-
um verður lyft af hafsbotní síðar í
þessum mánuði.
Nunnur í fangelsi
Tvær nunnar frá Rúanda voru í
gær dæmdar í Belgíu í 12 og 15 ára
fangelsi fyrir aðild að þjóðarmorð á
tútsum 1994. Kaupsýslumaður og
háskólaprófessor fengu einnig langa
fangelsisdóma.
Hryðjuverk á helgum stað
Fjórar múslímskar konur létu líf-
ið og yfir 50 særðust þegar víga-
menn fleygðu sprengju að einum
helgasta stað Kasmírs í gær.
Léleg kunnátta kennara
Nær 70 prósent 413 enskukennara
í Hong Kong féllu á skriflegu ensku-
prófi sem stjórnvöld lögðu fyrir þá.
Helsti gagnrýnandi Bush
Bill Clinton, fyrr-
verandi Banda-
ríkjaforseti, hefur
enn ekki viljað tjá
sig um frammi-
stöðu eftirmanns
sins, Georges W.
Bush. Hillary Clint-
on er ekki jafn til-
litssöm. Hún er helsti gagnrýnandi
Bush í öldungadeild Bandarikja-
þings. Margir túlka hörku Hillary
sem undirbúning fyrir næstu for-
setakosningar. Þeir telja að hún
muni bjóða sig fram 2004 eða 2005
þrátt fyrir að hún vísi því á bug.
Jarðskjálfti í Frakklandi
Jarðskjálfti, sem mældist 5 á
Richter, reið í gær yfir vesturhluta
Frakklands, nálægt Nantes.
Hálfbróðirinn atvinnulaus
Lothar Vosseler,
hálfbróðir Ger-
hards Schröders
Þýskalandskansl-
ara, er búinn að
missa vinnu sína
við skólphreinsi-
stöð. Fréttin af at-
vinnuleysi hálf-
bróður kanslarans barst samtímis
því sem greint var frá því að at-
vinnuleysi í Þýskalandi jókst í maí
fimmta mánuðinn í röð.
Hungursneyð blasir við
Hungursneyð blasir við milljón-
um Afgana. Uppskerubrestur er
vegna mestu þurrka í Afganistan í
30 ár. Fjöldi leggur sér til munns
engisprettur og dýrafóður.
Fær að mynda stjórn
Silvio Berlusconi, leiðtogi mið- og
hægribandalagsins á Ítalíu, sem
sigraði í kosningunum í maí, fær að
mynda stjóm.