Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Page 10
10 DV LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aóstoóarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson Fréttastjóri: Birgir Guómundsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiósla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Grœn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Plötugeró: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverö 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndþirtingar af þeim. Trúgimi og óskhyggja Þessa dagana er fólk fúsara en nokkru sinni fyrr aö trúa kenningum um, að grisja þurfi fiskistofnana í hafinu enn frekar, svo að þeir vaxi upp, enda hafi slíkt reynzt vera heppilegt í stöðuvötnum. Kenningasmiðir grisjunar hafa skyndilega fengið byr undir báða vængi. Fólk vill trúa á heilbrigðan grisjunarmátt mikillar veiði, þótt hún hafi alls ekki gefizt vel á ýmsum hafsvæð- um, svo sem i Norðursjó og við Færeyjar og Kanada, þar sem fiskistofnar hafa nánast eða alveg hrunið af völdum þeirrar grisjunar, sem felst í of mikilli veiði. Fólk vill trúa á grisjun, þótt þorskveiðisaga siðustu ald- ar sýni, að hvíldin, sem þorskurinn fékk á timum tveggja heimsstyrjalda, leiddi til stofnstækkunar og mikillar veiði á eftirstríðsárunum. Þá gat veiðin farið upp fyrir hálfa milljón tonna á ári, þrefalt hærra en núna. Hafrannsóknastofnunin hefur gefið á sér höggstað með því að neyðast til að játa þriðjungs ofmat sitt á þorskstofn- inum. í augum fólks hefur henni ekki tekizt að varðveita fræðilegan orðstír, þótt þar sé innan dyra að finna beztu fiskifræðiþekkingu, sem til er í landinu. Stofnuninni hefur mistekizt að gera fyllilega ráð fyrir þeim vanda, að heimilaður afli hefur flest ár verið tölu- vert meiri en sem nemur tillögum hennar. Henni hefur líka mistekizt að gera fyllilega ráð fyrir feiknarlegum afla lítilla, en öflugra og vel búinna báta utan kvóta. Enn fremur hefur henni mistekizt að gera fyllilega ráð fyrir áhrifum brottkasts á fiskistofna. Síðast en ekki sízt hefur hún verið höll undir meintar þarfir þjóðfélagsins fyrir miklar tekjur af fiskafla, eins og þær hafa verið túlk- aðar af aðgangshörðum stjórnmálamönnum. Hafrannsóknastofnunin þarf að verða minna diplómat- ísk og meira fræðileg. Hún þarf að gera meira af því að setja viðurkennda fræðimenn sína i sviðsljósið og hún þarf að halda fjölþjóðlegar ráðstefnur, þar sem erlendir sérfræðingar leggja sitt af mörkum til málanna. Þyngsti hluti vandans leynist þó utan stofnunarinnar. í almenningsálitinu er aflatillögum hennar ruglað saman við svokallað gjafakvótakerfi, sem sætir almennri fyrir- litningu. Reiði fólks út í gjafakvóta stjórnmálamanna kemur niður á fiskveiðiráðgjöf vísindamanna. Fólk er ósátt við, að auðlindir hafsins skuli án endur- gjalds vera afhentar völdum aðilum, sem síðan selja öðr- um kvótann fyrir morð fjár og flytja hagnaðinn úr landi. Almenningur er ósáttur við spillinguna, sem fylgir þess- ari skömmtun eins og svo margri annarri. Spillingu gjafakvótakerfisins má afnema með því að leigja kvótann út á opinberu uppboði. Engin þörf er á að kasta barninu út með baðvatninu. Áfram þarf skömmtun á aðgangi að takmarkaðri auðlind hafsvæðanna við ís- land, þótt núverandi gjafakvóti verði lagður niður. Jarðvegurinn er kjörinn fyrir kenningasmiði grisjunar og pólitíska plötuslagara, sem fylgja þeim fast eftir. Fólk vill trúa notalegum stöðuvatna-kenningum um, að aukin sókn stækki fiskistofnana í hafinu. Trúgirni og óskhyggja taka saman höndum í hugskoti almennings. Kjami málsins er hins vegar, að fiskveiðar við ísland eru engan veginn sjálfbærar. Áratugum saman hefur ver- ið stunduð ofveiði á flestum stofnum nytjafiska. Sjálfur þorskurinn hefur verið 25% ofveiddur í fjóra áratugi sam- fellt og nú er komið að skuldadögunum. Hrunið er svo á næsta leiti, ef trúgirni og óskhyggja fólks leiðir til uppgangs pólitískra plötuslagara, sem magna sóknina i skjóli þægilegra grisjunarkenninga. Jónas Kristjánsson Til Reykjavíkur í rauðsprettu Jóhannes Sigurjónsson blaðamaður Ágætur nærsveitungi minn kvæntist fyrir um þaö bil tíu árum og er auðvitað ekki í frásögur fær- andi nema fyrir það að hjónabandið stendur enn eftir áratug og er því komið langt yfir meðal-endingar- tíma hjónabanda á íslandi. Það væri heldur ekki í frásögur færandi að þessi ágæti maður fór með sinni spúsu í brúðkaupsferð tU Reykjavík- ur, ef það hefði ekki um leið verið hans fyrsta ferð til Reykjavíkur á ævinni. Og er örugglega leitun að tvítugum íslendingum sem ekki hafa komið tU Reykjavíkur. Enda þótti ýmsum þetta dálítið undarlegt og brúðguminn var víöa spurður spjörunum úr um hverju það sætti að hann hefði aldrei lagt leið sín í borg- ina. Og svarið var ævinlega það sama: „Vegna þess að ég hef aldrei átt þangað erindi." Og er auðvitað merg- urinn málsins og mættu ýmsir hugleiða, ekki síst þeir sem eru stöðugt að lenda í ferðalögum og stefnulausu flandri út um hvippinn og hvappinn. Því menn þurfa ekk- ert að vera að afsaka það að sitja aUtaf á sömu hundaþúfunni ef þeim líður þar best. „Hvers vegna hefurðu aldrei gengið á norðurpólinn, ha? Eða kliflð Everest?" - „Vegna þess að ég á ekkert erindi þangað." - Og ekki meira um það. Ég á ekki oft erindi tU Reykjavík- ur en skaust þó suður á dögunum og var eins og ævinlega unaðslegt að koma til þessa höfuðstaðar Suð- vesturlands. Þessi bær er fuUur af vinum mínum og ættingjum og ég er ekki einn um að geta sagt það. Þarna eyddi ég mörgum góðum stundum og árum við meint nám og var nú kominn til að ná í dætur minar sem sækja báðar skóla í borginni eins og ég forðum tíð (og standa sig vitanlega betur en ég í náminu, en skemmta sér vonandi ekki eins vel og frjálslega og ég gerði í den). Jómfrúin Það er misjafnt hvað við dreifbýl- isskjónar tökum okkur fyrir hend- ur í borginni þegar við erum þang- að komnir á annað borð. Sumir fara í leikhús, aðrir á landsleiki, enn aðrir á súludansstaði, allt eftir því hvaö hver og einn er helst nátt- úraður fyrir. Það fyrsta sem ég geri þegar ég kem í borgina er hins vegar að leita uppi eiginlega það eina sem borgin hefur upp á að bjóða en ekki fyrir- finnst úti á landi, sem sé jómfrú. Auðvitað hljómar það kynduglega (kyn-duglega? er betra að vera kynduglegur en kynlatur?) að enga jómfrú sé að finna á hinni sið- prúðu lands- byggð en aftur á móti eina hreina Höfuðborg íslands Reykjavík hentar mjög vel til búsetu, sérstaklega fólki sem þar vill búa. Og landsbyggðin er ekki síður mey í syndum byggilegur staður, einkum ReykJ'avík^^En þetta er reyndar Jómfrú með stór- um staf og líka með ákveðnum greini, sjálf Jómfrúin, hinn dýrlegi staður í Lækjargötu þar sem boðið er upp á danskt smörrebröd eins og það gerist best. Þá fyrst er ég kominn til Reykja- víkur þegar ég er sestur við borð á Jómfrúnni með ískaldan Tuborg, snafs af lífsvatni Álaborgar og síð- ast en ekki síst, brauðsneið með heilu rauösprettuflaki, snögg- fyrir þá sem helst vilja eiga heima úti á landi. steiktu í raspi. Það er í raun þess virði að keyra frá Húsavík til Reykjavíkur, bara fyrir þessa brak- andi gómsætu rauðsprettusneið. Svo er alltaf dálítið gaman að skoða aðrar sneiðarætur þarna inni, þvi oft eru þar þekkt andlit á ferli, yfirleitt framan á höfðinu og höfuðið við búk. Þannig sá ég á Jómfrúnni um daginn mjög frægt andlit og fattaði strax að þetta var poppsöngvari, annaðhvort úr Skíta- móral, Drullupolli eða hljómsveit- inni Smjörbolla. Ég benti syni mín- um 14 ára á þetta fræga fés og þótt- ist hróðugur að kenna þennan mikla poppara. Strákur leit á stór- mennið, hnussaði hneykslaður og sagði: „Þetta er ekki söngvari, þetta er Svavar Örn, tískulögga á Stöð 2“. Og þá fattaði ég auðvitað hvers vegna þetta kunnuglega og órakaða andlit á þessu unga snyrtimenni hafði glott svona hæðnislega og lát- ið skrölta svo í handjárnunum eftir að hafa rennt augunum yfir bux- urnar mínar og skyrtuna sem ég keypti í kaupfélaginu heima fyrir margt löngu. Ég tek það skýrt fram að kaflinn hér að ofan er ekki kostaður af Jómfrúnni og þetta er ekki auglýs- ing. Ég einfaldlega get ekki þagað lengur yfir þessari dýrðarinnar rauðsprettusneið og eins og cillir Rimma Sjonarhorn Jóhanna S. Sigþórsdóttir blaðamaður Djúpstæður ágreiningur sem er uppi milli Barnavemdarstofu og Umboðsmanns barna kemur í veg fyrir að aðilar geti rætt á sömu nót- um um þann viðkvæma málaflokk sem vöktun á velferð bama er. Nýtt dæmi undirstrikar hvernig „sam- starfinu" er háttað: Umboðsmaður barna kemur í fjölmiðla og segir að hópur barna sé á vergangi og sofi jafnvel í bíl- um. Forstjóri barnaverndarstofu skrifar umboðsmanni í kjölfariö og óskar eftir upplýsingum um þessi böm. Umboösmaöur skrifar til baka og gagnspyr forstjórann en svarar engum spurningum. Forstjórinn hyggst ekki svara því bréfi, enda hafi umboðsmaður ekki valdboð yfir Barnaverndarstofu. Hins vegar hafa starfsmenn Barnaverndar- stofu leitaö til forstöðumanns Rauðakrosshússins eftir upplýsing- um. Þar geta börn í vanda leitað at- hvarfs. um barnavanda Níu börn Samkvæmt upplýsingum Rauða- krosshússins reyndist um að ræða mál niu barna á barnaverndar- aldri, hins yngsta 14 ára. Niður- stöður athugunar starfsmanna Bamavemdarstofu eru að i öllum tilvikum hafi verið um að ræða mál sem barnaverndarnefndir hefðu veriö með til meðferðar. Þau hafi verið í vinnslu hjá viðkomandi barnaverndarnefnd vegna marg- þættra erfiðleika, s.s. samskiptaerf- iðleika við foreldra, hegðunarerfið- leika, geörænna vandamála, fjöl- skylduaðstæðna og vímuefna- neyslu. I fjórum tilvikum af níu hafi barn áður dvalið á meðferðar- stofnunum rikisins eða á barna- og unglingageðdeild. í flestum tilvik- um hefðu stuðningsúrræði eða meðferðarúrræði verið reynd hjá viðkomandi barnaverndarnefnd. Forstjóri Barnaverndarstofu full- yrðir, að athugun starfsmanna sinna lokinni, að umrædd börn hafi ekki verið „heimilislaus", þ.e. að þau hafi ekki átt í nein hús að

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.