Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Síða 12
12
Helgarblað
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
DV
Baráttan hafin um
eftirmann Hagues
Stuöningsmenn evrunnar innan
breska íhaldsflokksins voru famir
að brýna hnífa sína í kosningabar-
áttunni. Þeir bjuggu sig undir haröa
atlögu gegn William Hague, leiðtoga
flokksins, eftir kosningarnar. Það
þorðu þeir nefnilega ekki að gera í
kosningabaráttunni af ótta við að
verða kennt um ósigurinn sem
blasti við.
Andstæðingar Hagues þurftu þó
ekki að grípa til vopna. Fjórum
klukkustundum eftir að Hague
óskaði Tony Blair forsætisráðherra
til hamingju með sögulegan sigur í
fyrrinótt og níu klukkustundum eft-
ir að kjörstöðum var lokað sagði
hann af sér formennsku í íhalds-
flokknum. Vonbrigðin leyndu sér
ekki.
Hague var 36 ára þegar hann varð
leiðtogi íhaldsflokksins 1997. Hann
er fyrsti leiðtogi íhaldsflokksins í 80
ár sem fer frá án þess að hafa gegnt
embætti forsætisráðherra. Hague
tók við flokknum tæpum tveimur
mánuðum eftir stærsta ósigur hans
í langan tíma. Þingsætin í neðri
deildinni voru bara orðin fjórðung-
ur af því sem þau höfðu verið.
Hague greip til ýmissa ráða. Harð-
ari afstaða í málefnum innflytjenda
og Evrópu laðaði ekki miklu fleiri
kjósendur að flokknum. Talið er að
stefnan hafi jafnvel fælt kjósendur
frá flokknum. Hörð andstaða
Hagues gegn evrunni æsti marga á
vinstri væng flokksins og kjósend-
ur, sem ekki virðast reiðubúnir til
að taka ákvörðun í málinu enn,
sýndu málinu ekki áhuga.
Þungavigtarmenn eins og Kenn-
eth Clarke, fyrrverandi íjármálaráð-
herra, og Michael Heseltine, vara-
formaður flokksins, ákváðu aö hafa
sig lítt í frammi á þingbekkjunum.
Það varð ekki Hague til framdrátt-
ar.
Játningar um samkynhneigð
á yngrí árum
Vangaveltur um eftirmann
Hagues voru reyndar uppi áður en
hann sagði af sér. Augu manna hafa
fyrst beinst að Michael Portillo sem
eitt sinn var í uppáhaldi hjá Marg-
aret Thatcher, fyrrverandi forsætis-
ráðherra. Stuðningur við hann er
þó ekki jafn sterkur og hann var áð-
ur. Nokkrir flokksfélaga hans hafa
verið óánægðir með daður hans við
frjálslynda sósíalista. Ekki hafa
heldur aflir verið ánægðir með játn-
ingar hans um samkynhneigð á
yngri árum.
Margir hafa fett fingur út í stuðn-
ings Portillos, sem fjármálaráð-
herra skuggaráðuneytisins, við
efnahagsáætlanir Verkamanna-
flokksins á ýmsum sviðum.
Thatcher sagði eitt sinn við Portillo
að mikils væri vænst af honum en
jafnvel hún virðist vera búin að
missa trúna á hann. Portillo á sér
þó dygga stuðningsmenn. Fjölmiðl-
ar greindu á dögunum frá því að
Kenneth Clark ætlaöi að safna
mönnum á vinstri væng flokksins
að baki Portillo.
PortiUo, sem er 48 ára, þykir vera
með þá töfra og útgeislun sem
Hague skortir. Vegna einbeitni
PortiUos og metnaðar var honum
lýst sem manni með augu morð-
ingja og varir herstjóra. PortiUo er
þekktari en flestir aðrir sem nefnd-
i í
Með augu morðingja og varir herstjóra
Michael Portillo, mögulegur eftirmaöur Williams Hagues, var svo einbeittur aö honum var lýst sem manni meö augu moröingja og varir herstjóra. ímynd hans
varö blíðari eftir kosningaósigur 1997. Portillo hefur töfrana og útgeislunina sem Hague skortir.
ir hafa verið tU sögunnar sem
mögulegir leiðtogar breska íhalds-
flokksins og það þykir mikfll kost-
ur.
FuUt nafn hans er Michael Denzil
Xavier Portillo. Hann er sonur
Spánverja sem neyddist til að flýja
land í stjómartíð Francos á fjórða
áratug síðustu aldar.
Portillo varö fyrir áhrifum af
stjórnmálaskoðunum foður síns og
13 ára gamall tók hann þátt í kosn-
ingabaráttu fyrir Harold Wilson,
frambjóðanda Verkamannaflokks-
ins. Nú kennir hann æsku sinni um
vinstri sinnaðar skoðanir sínar áð-
ur fyrr. Um það leyti sem PortiUo
var að ljúka námi í háskólanum í
Cambridge gekk hann í raðir ihalds-
manna.
Thatcher tók Portillo snemma
undir sinn verndarvæng og fól hon-
um ýmis trúnaðarstörf. Hann var
reiðubúinn að taka við flokksfor-
mennsku féUi John Major í kosning-
unum 1997. Major kolféll fyrir Blair
en PortiUo féll einnig. Verkamanna-
flokknum til mikiUar ánægju tapaði
Portillo einu öruggasta sæti íhalds-
manna í landinu fyrir ungum fram-
bjóðanda Verkamannaflokksins,
Stephen Twigg.
ÁfaUiö leiddi til kúvendingar hjá
Portillo. Imynd hans varð blíðari og
á landsfundinum 1999 sagði hann að
það væri fleira í lífinu sem skipti
máli en peningar. Hann sigraði í ör-
uggu kjördæmi sama ár og hlaut
fljótt starf í skuggaráðuneyti
Hagues. Þar með var hann aftur
oröinn mögulegt leiðtogaefni.
Valdboðsgjarn kaþólikki
Ann Widdecombe hefur einnig
verið nefnd til sögunnar sem mögu-
legur arftaki Hagues. Hún hefur far-
ið með innanríkismál á vegum
Ihaldsflokksins. Widdecomb snerist
til kaþólskrar trúar til að mótmæla
því að konur gegndu prestssembætt-
um. Hún þykir frekar valdboðs-
gjörn. Widdecomb nýtur ekki mikils
stuðnings meðal þingflokksfélaga
sinna þótt hún sé vinsæl meðal
grasrótarinnar.
Kenneth Clarke er einn sá Evr-
ópusinnaðasti í röðum þingmanna
íhaldsmanna. Hann tapaði fyrir
Hague 1997. Clarke hefur lengst
gegnt ráðherraembætti meðal
mögulegra leiðtogaefna íhalds-
flokksins. Hann var heilbrigðisráð-
herra í stjórn Thatcher. ístjórn
Majors var hann menntamálaráð-
herra, innanríkisráðherra og fiár-
málaráðherra. Talið er að hann eigi
mikla möguleika á að verða flokks-
leiötogi segi Bretar já í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um evruna. Ekki er
þó talið útilokaö að hann styðji
Portillo eins og fregnir hafa hermt.
Andrew Lansley þykir rísandi
stjarna. Hann er í skuggaráðuneyti
Hagues og hefur fengið mikla um-
fiöllun í fiölmiðlum.
Francis Maude er eins og Portillo
á frjálslynda væng íhaldsflokksins.
Talið er að hann hafi orðið enn um-
burðarlyndari í skoðunum í kjölfar
andláts bróður sins sem var sam-
kynhneigður og lést af völdum al-
næmis. Maude hefur verið utanrík-
isráðherra í skuggaráðuneyti
Hagues. Þó að Maude sé efins um
ágæti of mikils Evrópusamstarfs
hafa sumir íhaldsmenn enn ekki
fyrirgefið honum fyrir að hafa und-
irritað Maastrichts-sáttmálann fyrir
stjórn Johns Majors. Ekki er talið
að Maude muni fara fram gegn
Portillo í leiðtogamannskjöri.
Byggt á Reuter, BBC o.fl
Ósigurlnn staðreynd
William Hague hlýöir á kosningatölur í kjördæmi sínu. Hann sagöi svo skjótt af sér formennsku í íhaldsflokknum aö
andstæöingar hans innan flokksins þurftu ekki aö leggja til atlögu gegn honum.