Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Page 13
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
DV
Helgarblað
13
Nú er Gouda 26% í
kílóapakkningum á
tilboói í næstu
verslun, á meðaiwv
birgðir endast. (O.
Stærsti
KFC I heimi!
■■
Gerir grín að
sjálfri sér
Það er ágætt að vita að Bette Midler
býr enn yfir kímnigáfu í stórum
skömmtum þó að það sé búið að taka
þáttinn hennar af dagskrá. Við fínan
stjörnumálsverð um daginn hélt hún
fólki föstu í hláturskrampa og gerði
stólpagrín að sjálfri sér: „Mikið er ég
fegin að vera komin til New York,“
sagði hún. „Los Angeles er grimmur
staður, sérstaklega eftir að maður hef-
ur verið...hvernig á ég að orða
það...rekinn!“ Hún sagði samt að sú
reynsla heföi alls ekki verið svo bitur:
„Mér fannst til dæmis mjög gaman að
skipta ávísununum."
Midler gerði ekki einungis grín að
sjálfri sér þetta kvöld, heldur tók hún
líka Tom Cruise og Nicole Kidman
fyrir. „Ég legg engan trúnað á þetta
blaður um að Tom sé hommi,“ sagði
hún m.a. „Hann hefur aldrei komið og
séð mig skemmta." En Bette Midler
er, eins og flestir vita, einstaklega vin-
sæl meðal samkynhneigðra karl-
manna.
Nicole Kidman
Hún og Claudia Schiffer eiga sam-
■eiginiegt vandamál. Sami maður-
inn hefur lagt þær í einelti.
Schiffer og Kidman:
Eiga saman
óðan aðdáanda
Leikkonan Nicole Kidman hefur ver-
ið mikið I fréttum undanfarið vegna
skilnaðarins við Tom Cruise sem hefur
logað á síðum blaða um allan heim.
Hún hefur einnig verið i fréttum vegna
óðs aðdáanda sem hefur ítrekað ofsótt
hana og elt á röndum.
Fyrirsætan Claudia Schiffer hefur átt
við svipað vandamál að stríða þar sem
hún hefur verið ofsótt af óðum aðdá-
anda. Nú hefur komið í ljós að um sama
manninn er að ræða. Hann heitir Matt-
hew Hooker og virðist hafa þetta tíma-
freka áhugamál að leggja kvikmynda-
stjömur í einelti.
Hooker hefur stefnt tveimur flugfé-
lögum sem hann segir að hafi byrlað
sér svefnlyf á flugi og þannig eyðilagt
vel skipulagt sumarfrí hans og Claudiu
á Mallorca. Hann vill einnig fá bætur
fyrir kviðslit sem hann fékk við að rog-
ast með farangur sinn upp að húsi
Schiffer á Mallorca, Hún tók heimsókn
hans fálega og lét handtaka Hooker á
tröppunum. Af einhverjum ástæðum
gengur Hooker illa að fá yfírvöld til að
trúa sinni útgáfu af sannleikanum.
Kate Beckinsale:
Algjör prímadonna
Leikkonan Kate Beckinsale leikur
eitt af aðalkvenhlutverkunum í stór-
myndinni um Pearl Harbor sem virð-
ist ætla að verða næsta Titanic í am-
erískri kvikmyndaframleiðslu. Mynd-
in hefur slegið öll aðsóknarmet þótt
gagnrýnendur hamist við að finna
henni sem háðulegust orð og telja
hana eitthvað það versta sem komið
hefur frá Hollywood lengi.
Kate er ekki sein á sér að tileinka
sér alla helstu dynti sannrar príma-
donnu og margir samstarfsmenn
hennar við gerð myndarinnar hafa
verið ósparir á yfirlýsingar um sér-
visku hennar og stjörnustæla við tök-
urnar. Af leikurum var Dan Ackroyd
Lelkland KFC í Mosfelsbæ
Stórglæsilegt leiksvæði fyrir börnin
Háholt 9 Mosfelsbæ • Sími 586 8222
KFC Hafnarfirði • KFC Faxafeni • KFC Selfossi • KFC Kópavogi • KFC Mosfellsbæ
vinsælastur meðal óbreyttra starfs-
manna en Kate þótti langsamlega erf-
iðust.
Kate hefur nokkrum sinnum sagt í
viðtölum að hún hafi verið svo ákveð-
in í að verða leikkona að hún hafi
brotist til metoröa á því sviði þrátt
fyrir að til dæmis leiklistarkennari
hennar i menntaskóla hafi neitað
henni um hlutverk.
Nú hafa fjölmiðlar grafið upp þenn-
an gamla leiklistarkennara sem reyn-
ist heita Mick Fitzmaurice. Hann
Kate Beckinsale leikkona.
man vel eftir Kate Beckinsale í skól-
anum og telur hana hafa verið fyrir-
myndarnemanda en minnist þess
aldrei að hún hafi sóst eftir því að
leika né heldur að hann hafi hafnað
henni á einn eða annan hátt.