Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Side 18
18
Helgarblað
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
DV
Áfram hærra, upp við skulum ná
Hattfell eöa Hattafell er eitt fallegasta fjall á Emstrum. Fjallið er mjög bratt en gróiö alveg upp á topp.
Vel er hægt aö ganga á fjalliö en reynir nokkuö á lofthræöslu. (HS)
erfitt er að nálgast greinargóðar
upplýsingar þegar hann eignaðist
jeppa fyrir fáum árum. Hann fékk
Pál Ásgeir til samstarfs við sig.
Páll Ásgeir er þaulvanur ferða-
langur sem hefur skrifað leiðsögu-
bækur um gönguleiðir á hálendi
íslands sem Mál og menning gaf
út árið 1994 og einnig gönguleið-
sögubók um Hornstrandir sem
kom út 1999.
„Ég ferðast með margvíslegu
móti, bæði akandi og gangandi,"
segir Páll Ásgeir.
„Eins og segir í formála bókar-
innar þá er markmið ferðalangs
alltaf að komast í snertingu við
náttúruna og til þess er duglegur
fjallabíll, með drifi á öllum hjól-
um, aðeins hjálpartæki og sem
slíkur ekkert merkilegri en bak-
poki, göngustafur eða gönguskór.
Akandi sér maður landið í nýju
Ijósi, tekst á við náttúruöflin af
varúð og þekkingu en tekur síðan
náttúruna í fangið með því að yfir
gefa bifreiðina og axla sín skinn
og halda á vit hennar."
Gljúfurleit, Fjallabak og
Gæsavötn
í bókinni er fjallað um nokkur
vinsælustu ferðasvæði hálendis-
ins en stærsti kaflinn segir til veg-
ar um Fjallabaksleiöir syðri og
nyrðri. ítarlega er fjallað um
Gljúfurleit og Kerlingarfjöll, línu-
vegi ofan Hreppaíjalla, Kjalveg og
ýmsa króka af honum og leiðir
norðan Hofsjökuls. Sprengisandur
og Gæsavatnaleið fá sitt pláss og
sagt er til vegar um fáfarna slóða
í Ódáðahrauni og Dyngjufjalladal.
Annar af stærstu köflum bókar-
innar fjallar svo um austuröræfln
frá Öskju, Dyngjufjöllum og
Kverkfjöllum allt til Snæfells og
Hafrahvamma og Laugarvalladals
sem hefur lengi verið eitt af best
varðveittu leyndarmálum hálend-
isins.
Lykillinn að fjársjóðnum
- Hálendishandbókin vísar til vegar um vinsælar hálendisleiðir og opnar hálendið almenningi
„Það sem vakti fyrir okkur við
gerð bókarinnar var að safna sam-
an á einn stað sem mestu af nauð-
synlegum upplýsingum fyrir þá
sem vilja ferðast um hálendi ís-
lands upp á eigin spýtur," sagði
Páll Ásgeir Ásgeirsson, höfundur
Hálendishandbókarinnar, í viðtali
við DV.
Hálendishandbókin er rúmlega
250 blaðsíðna handhægur leiðar-
vísir þar sem sagt er til vegar um
flestar vinsælustu hálendisleiðir á
íslandi. Bókin ber undirtitilinn;
ökuleiðir, gönguleiðir og áfanga-
staðir á hálendi íslands og að sögn
höfundar lýsir það umfangi bókar-
innar harla vel.
í Hálendishandbókinni eru
rúmlega 350 myndir og 30 kort
sem Ólafur Valsson gerði sérstak-
lega fyrir bókina. Ljósmyndirnar
eru að mestu úr fórum höfund
ar og Hauks Snorrasonar ljós-
myndara en alls komu 12
ljósmyndarar við sögu þeg-
ar leitað var fanga á þessu
sviöi.
Öll fjölskyldan á
ferö
„Það sem lagt var
til grundvallar við
gerð bókarinnar
var að hún væri
ætluð fjölskyldu-
fólki á ferð í jeppa
um hálendi íslands. Með
þarfir íjölskyldunnar í huga
reynum við að benda á fjölda
gönguleiða sem eru við hæfi sem
flestra og vísa fólki á áhugaverða
staði sem eru þess virði að skoða
nánar. Við reynum að segja
fólki sem skilmerkileg-
ast hversu erfið-
ir slóðar eru
og hvort vöð á
einstökum ám
eru við allra
hæfi eða aðeins
fær stærri bilum,“
sagði Páll Ásgeir.
Það er alkunna að
jeppaeign íslendinga
hefur vaxið hröðum
skrefum undanfarin ár
og skipta jeppar í eigu
landsmanna nokkrum
þúsundum. Mikið af upp-
lýsingum um áhugaverða
staði, erfiða slóða og skemmtileg-
ar leiöir hefur verið að finna á víö
og dreif í ýmsum árbókum og upp-
flettiritum og síðast en ekki síst í
munnlegri geymd meðal jeppa-
manna og fjallamanna. Þannig
hefur það oft verið þrautalending-
in fyrir nýbakaðan jeppaeiganda
að slást í för með vönum mönnum
á fjöll. Með þessari bók, segja út-
gefandi og höfundur, er ætlunin
að gera fólki kleift að ferðast upp
á eigin spýtur.
Bíll, bakpoki og göngu-
stafur
Það er útgáfufyrirtækið Skerpla
sem gefur bókina út og tilurð
hennar er reyndar hugmynd Þór-
arins Friðjónsssonar útgefanda
sem reyndi á eigin skinni hve
Náttúruleg sturta
„Á Laugarvalladal getur ferða-
langur staðið undir náttúrulegri
heitri sturtu þar sem heitur lækur
steypist ofan af kletti. Þetta er
mikil paradís sem fáir hafa vitað
hingað til hvernig á að finna.“
í bókinni er enn fremur sagt til
vegar um eyðibyggðir eins og
Fjörður og Flateyjardal fyrir norð-
an, Langanes, Loðmundarfjörð og
Húsavík á Austfjörðum og nær
Reykjavík er bent á leiðir sem
liggja bak Skjaldbreið og um af-
kima Hellisheiðar.
- En á höfundur sér eitthvert
uppáhaldssvæði?
„Þessu eiga fjallamenn alltaf
erfitt með að svara en ég verð þó
að nefna Álftavatnakrók við Eld-
gjá, Strútslaug, Laugarvalladal,
Kyrröin ríkir í Kýlingum
/ Kýlingum, rétt austan viö Landmannalaugar, er stööuvatn og nokkurt gróöurlendi. Þar er allnokkurt fuglalíf og kjörland sauökindarinnar.
Þaö er Stóri-Kýlingur sem stendur á höföi í spegilsléttu vatninu. (HS)