Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Síða 20
20
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
r>v
Helgarblað
Bj art er yfir Bretlandi
- Björgvin G. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar,
fór til Bretlands að taka þátt í kosningunum fyrir Verkamannaflokkinn.
Hann segir Kolbrúnu Bergþórsdóttur frá því hvernig stemningin var.
„Það var ansi mögnuð stemning
þar sem ég var staddur í hópi
hundraða stuðningsmanna Verka-
mannaflokksins í Hammersmith
þegar lá fyrir að flokkurinn hafði
unnið stórsigur. Og ekki bara hald-
ið völdum með þokkalegum hætti
heldur unnið stærsta sigur sem
nokkur flokkur hefur unnið í Bret-
landi eftir sitt fyrsta kjörtímabil,"
sagði Björgvin G. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Samfylkingarinnar,
þegar blaðamaður sló á þráðinn til
hans eftir að úrslit voru ljós í þing-
kosningunum á Bretlandi en þar
hefur Björgvin haldið sig síðustu
tvær vikur og fylgst gi'annt með
kosningabaráttunni. “
Þessi afgerandi stórsigur þýðir
ekki einungis áframhaldandi örugg-
an meirihluta Tonys Blairs heldur
að það þurfa kraftaverk að gerast á
að framgangi flokksins og sjá nú
draum sinn um öfluga jafnaðar-
mannastjórn rætast með svo afger-
andi og sögulegum hætti. Slíkir
stóratburðir lifa með manni afla tíð
og gleymast aldrei. Það er alltjent
bjart yflr Bretlandi núna og róttæka
tímabilið er hafið hjá Blair, Brown
og félögum. Það að hafa fengið að
vera þátttakandi og drukkið í sig
vitneskjuna gerir þetta enn sætara
fyrir mig en ella og maður mun
sjálfsagt búa að því alla tíð.“
Þegar Bjögvin er spurður að því
hver sé meginstyrkur Tonys Blairs
sem foringja segir hann:
„I stuttu máli má segja að hann
hafi verið réttur maður á réttum
tíma þegar John Smith féll frá árið
1995. Kornungur, með talsverða
reynslu, enda verið á þingi síðan
1983 og hafði barist af hörku fyrir
Björgvin G. Sigurösson var í eins konar starfsnámi fyrir Samfylkinguna
„Ég mun að sjálfsögðu skila samantekt um kosningabaráttu Verkamanna-
flokksins og reyna að draga fram hvaða hluti við getum nýtt okkur í Samfyik-
ingunni. Það má alltaf læra og reyna að gera betur en áður. Því er uþplagt að
nota tímann á milli kosninga heima til að safna í sarpinn og semja stef við
framtíðarmúsík okkar."
hægri kantinum ef Verkamanna-
flokkurinn á að missa meirihluta
sinn eftir fjögur ár. Svo sannfær-
andi er þessi sigur og hann veitir
Verkamannaflokknum skilyrðis-
laust umboð til að fara af fullum
krafti í þær félagslegu fjárfestingar
sem þeir boðuðu fyrir kosningar."
Bjart yfir Bretlandi
Björgvin var einnig staddur í her-
búðum Verkamannaflokksins fyrir
fjórum árum.
„Það var ekki sama algleymi í
gangi núna og fyrir fjórum árum
þar sem fólk tók sigurinn sem vísan
nú og spurningin snerist um hve
stór hann yrði og hver kosninga-
þátttakan yrði. Það var samt
ógleymanlegt að vera staddur innan
um hundruð grjótharðra stuðnings-
manna Verkamannaflokksins sem
eru margir búnir að vinna afla ævi
róttækum umbótum á flokki sínum.
Þess utan er hann í augum margra
afar geðþekkur og þægilegur ná-
ungi og sæmilegur ræðumaður þótt
ekki sé hann neinn skörungur á
því sviði. Lykillinn er náttúrlega
fyrst og síðast trúverðug og góö
stefna þar sem saman fer margt
það besta úr báðum heimum stjórn-
málanna. Hann varð að sannfæra
miðjuna um að hann væri trausts-
ins verður og treystandi fyrir at-
vinnu og efnahag þeirra. Það tókst
honum og því er hann að komast í
flokk sigursælli stjórnmálamanna
sögunnar. Liðið er ekki mann-
margt að því er virðist í forystunni.
Þeir Gordon Brown og Tony Blair
gnæfa yfír flokki sínum sem tveir
risar og síðan eru menn á bak við
tjöldin á borð við Alaistar Campell,
talsmanns Blairs, sem er leiftrandi
snjall maður. En þetta er fámennur
Tony Blair er sigurvegari bresku þingkosninganna og Björgvin dáir hann
J stuttu máli má segja að hann hafi verið réttur maður á réttum tíma
þegar John Smith féll frá árið 1995. Kornungur, með talsverða reynslu
enda hefur hann verið á þingi síðan 1983 og hafði barist af hörku fyrir
róttækum umbótum á flokki sínum. Þess utan er hann í augum margra
afar geðþekkur og þægilegur náungi og sæmiiegur ræðumaður, þó ekki
sé hann neinn skörungur á því sviði. “
og harðsnúinn hópur sem fer fyrir
liðinu."
Safnað í sarpinn
En ber breskt þjóðfélag með sér
að sýnilegur árangur hafl orðið af
stefnu Verkamannaflokksins?
„Já, svo sannarlega," svarar
Björgvin. „Efnahagurinn með ólík-
indum góður, vextir og verðbólga í
sögulegu lágmarki og atvinnuleysi
minna en áður hefur þekkst. Til að
mynda hefur atvinnuleysi ungs
fólks minnkað um heil 80% og lág-
markslaunin voru afrek sem mikil
þörf var á. Síðan eru að hefjast
miklar félagslegar fjárfestingar í
mennta- og heilbrigðiskerfinu. Þeir
eru búnir að styrkja efnahagslegan
grunn undir þær og hafa boðað rót-
tækt annað kjörtimabil. Sem aftur
mun áreiðanlega róa marga á
vinstri væng flokksins sem finnst
hann hafa færst allt of langt til
hægri.“
í hverju felast mistök íhalds-
flokksins?
„Þar er á ferð úrelt frjálshyggja,
þjóðernishyggja og slappur leiðtogi
sem hefur fært þá enn lengra inn á
hægri kantinn. Hague boðaði mikl-
ar skattalækkanir, and-Evrópu-
stefnu og hörku gegn flóttamönn-
um. Þessu hafnaði breska þjóðin
með afgerandi hætti. Þannig að
saman fara öfgakennd stefna og
ósannfærandi forysta."
Hvernig ætlar Björgvin að miða
reynslu sinni til íslenskra jafnaðar-
manna eftir að hafa kynnt sér starf-
semi breska Verkamannaflokksins
út í æsar?
„Með ýmsum hætti vonandi. Sem
framkvæmdastjóri Samfylkingar og
varaþingmaður gefast mér ýmis
tækifæri til að koma henni til skila.
Ég mun að sjálfsögðu skila saman-
tekt um kosningabaráttu Verka-
mannaflokksins og reyna að draga
fram hvaða hluti við getum nýtt
okkur í Samfylkingunni. Það má
alltaf læra og reyna að gera betur en
áður. Því er upplagt að nota tímann
á milli kosninga heima til að safna í
sarpinn og semja stef við framtíðar-
músík okkar.“
Sviðsljós
Baldwin borgar ekki
Leikarinn vinsæli, Alec Baldwin,
hefur fengið frekar neikvæða
pressu síðustu misserin. Fyrst var
hann í fréttum vegna þess að hann
sagðist myndu flýja land ef George
Bush yrði kosinn forseti. Siðan þeg-
ar Bush varð forseti stóð Baldwin
ekki við stóru orðin og var hafður
að háði og spotti í fjölmiölum fyrir
vikið.
Nú er Alec í fréttum vegna kvik-
myndar sem hann er viðriðinn fram-
leiðslu á. Myndin heitir The Devil
and Daniel Webster og tökum er ný-
lega lokið. Eitthvað virðist fjárhagur
framleiðenda ekki hafa verið reglu-
lega traustur því gervallt starfsliðið
stendur i útistöðum við þá vegna van-
goldinna launa. Þar lendir Alec milli
stafs og hurðar en hann var listrænn
framkvæmdastjóri við gerð myndar-
innar og mun vera hluthafi í fram-
leiðslufyrirtækinu.
Reiðir starfsmenn hafa að minnsta
kosti beint spjótum sínum að honum
og Alec reynt eftir megni að lofa öllu
fógru. Við þetta bætist að reið kona að
nafni Corinne Mann hyggst lögsækja
Alec vegna samningsrofs við gerö
myndarinnar en hún telur að þau hafi
gert samkomulag um að vera sam-
framleiðendur og fjárfestar og unnið
saman að handriti, sem Alec hafi sið-
an svikið á allan hátt.
Alec Baldwin leikari
Hann er sagður í vondum málum vegna launamála leikara.