Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Side 24
24
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
x>v
Helgarblað
Meðferðarheimili SÁÁ á Staðarfelli lokað um næstu mánaðamót:
Þar sem örninn boðar edrú
Napur vindur stendur inn
Hvammsfjörð og það næðir um
Staðarfell. Rösklega þrjátíu menn
eru í kvöldmat sem þó er aðeins
rétt stund milli stríða í þéttskipaðri
meðferðaráætlun alls guðslangs
dagsins. Þar sem menn eru á fullu
við byggja sjálfa sig upp með þeim
hætti að löngunin í brennivín og
aðra ólyfjan hverfi. Næðingurinn
um staðinn er um margt táknrænn
fyrir það hvernig málum er nú hátt-
að á Staðarfelli. Nú hefur verið
ákveðið að meðferðarstöð SÁÁ
verði lokað þann 1. júlí næstkom-
andi og veldur þar peningavandi
sem samtökin glíma við. Aukafjár-
veiting heilbrigðisráðherra nú í
vikunni verður þess valdandi að
ekki þarf að loka á Staðarfelli jafn
lengi og menn höfðu óttast. En þóg
þykir samt.
„Drekkum í kvöld og
iðrumst á morgun"
Staðarfell er höfðingjasetur að
fomu og svo er raunar enn. Því
hver er ekki höfðingi sem vill bæta
sig og verða góður og gegn þjóðfé-
lagsþegn að nýju þrátt fyrir að
draugagangur af völdum Bakkusar
hafi sett lífíö á annan endann um
hríð. Á Staðarfelli sátu sýslumenn
löngum, meðal annars Hannes Haf-
stein þegar hann í borðagylltu „úní-
forrni" ríkti sem yfirvald Dala-
manna fyrir rösklega hundrað
árum. „Drekkum i kvöld og
iðrumst á morgun," sagði sýslu-
maðurinn og ráðherrann í einu
ljóða sinna og hefur þá vafalítið
engar hugmyndir gert sér um að
þetta væru áhrínsorð. Að seinna
ættu menn eftir að koma að Staðar-
felli einmitt til þess að iðrast vegna
áfengisneyslu.
Snemma á 20. öldinni var settur á
fót húsmæðraskóli á Staðarfelli,
sem starfræktur var í áratugi, þar
sem ungar stúlkur lærðu grautar-
gerð og saumaskap. Skólinn var
starfræktur nokkuð fram á áttunda
áratuginn þegar minnkandi aðsókn
varð þess valdandi að ekki var leng-
ur grundvöllur fyrir honum. Undir
árslok 1981 fékk SÁÁ húsakynni á
staðnum til afnota og hefur starf-
rækt þar meðferðarstöð síðan þótt
hlé komi í starfsemina nú.
Viljinn ræður mestu
Umhverfi Staðarfells er ægifag-
urt þar sem bæjarhúsin standa í
aflíðandi brekku sem liggur allt frá
flöru upp að hamrabelti. Einmitt í
því verpa ernir sem oft sjást sveima
yfir staðnum. „Strákarnir sem eru
hér í meðferð fara oft út að ganga á
kvöldin og sjá þá oft til arnanna.
Þeir segja sumir að það viti ævin-
lega á gott sjá til þessara konunga
fuglanna. Að sjá til amar boði að
þeim takist að halda sér edrú. En
auðvitað segir öminn ekki allt, ætli
menn að halda sér þurmm ræður
viljinn auðvitað mestu,“ segir Ólaf-
ur Sveinsson staðarhaldari þegar
hann heilsar blaðamanni DV.
Samverustund í sveitakirkju
Meðferöarsjúklingar á Staðarfelli koma saman á hverju kvöldi til samveru-
stundar í gömlu sveitakirkjunni á Staðarfelli sem er fyrir vikið ein fjölsóttasta
kirkja landsins. Þarna fara þeir með bænir og biöja um styrk frá Guði til að
sigrast á áfengislöngun.
Sjö starfsmenn og læknar
úr Reykjavík
Þegar SÁÁ opnaði á Staðarfelli
undir árslok 1981 var þörf fyrir
áfengismeðferð mikil, en vímuefni
voru þó ekki orðin jafn stórt vanda-
mál og er í dag. Ólafur segir að á
þessum tíma hafi mönnum síðast af
öllu dottið í hug að sætta sig við
vandann með því að gæla við þá
hugmynd að selja áfengi í matvöru-
búðum....eða selja dóp í verslunum
eins og landsþekktur lögmaður hef-
ur lagt til,“ einsog Ólafur kemst að
orði.
Á Staðarfelli eru að jafnaði sjö
starfsmenn. Staðarhaldari, fjórir
áfengisráðgjafar og tveir matreiðslu-
menn, auk þess sem læknar SÁÁ í
Reykjavík koma reglulega vestur.
„Viö reynum að halda öllum kostn-
aði í lágmarki og hefur tekist það.
Kostnaður við reksturinn hér var á
Karlinn í kaupfélaginu
/ kjallara gamla húsmæðraskólans á Staðarfelli er starfrækt lítið kaupfélag
þar sem meðferðarsjúklingar afgreiða. Meðal þess sem fæst i kaupfélaginu
er sælgæti og bækur í AA-fræöum, sem Birgir Már Guðfinnsson sést hér
halda á. Hann er nítján ára Grindvíkingur og hefur verið í meðferð á Staðar-
felli að undanförnu.
fara í bæinn aftur áður en meðferð-
inni lýkur, en flestir halda þetta út.
Margir eru nokkuð spenntir og
trekktir í byrjun og fyrir þeim eru
fjórar vikur hér eiris og eilífðin
sjálf, hugsanlega hafa þeir þá ekki
verið vímuefnalausir svo lengi í ein-
hver misseri. En flestir fara héðan
sælir og staðfastir í vilja um að
standa sig. Það sem við leggjum
jafnframt mikla áherslu á í meðferð-
inni er að menn fari á fætur á rétt-
um tíma á morgnana, gangi vel um
í herberginu sínu, þrifi sig, og taki
virkan þátt í öllu starfínu. Séu með
öðrum orðum með allt sitt á hreinu.
Allt þetta skiptir svo miklu máli
ætli menn að koma sínu lífi á réttan
kjöl.“
Á Staðarfelli eru menn ræstir á
hverjum morgni fljótlega upp úr
klukkan sjö og eftir morgunverð
tekur við dagskrá með fundum, hóp-
vinnu og öðru slíku sem stendur all-
an daginn og miðar öll að því að
byggja menn upp og slökkva með
þeim löngunina í áfengi, sem fyrst
og síðast byggist á þeirra eigin vilja.
AA-stefnan er kjölfesta í starfmu og
síðan nota vistmenn sveitakirkjuna
á Staðarfelli til samverustunda en
hún er líklega einhver fjölsóttasta
kirkja landsins. Af öðrum þáttum í
meðferðarstarfinu má nefna að einu
sinni í viku er farið að Laugum í
Sælingsdal með unglingana sem eru
í meðferð, þar sem þeir bregða sér í
sund og leika sér í knattspyrnu í
íþróttahúsinu. Það segir Ólafur að
njóti mikilla vinsælda.
Sé sífellt verr farna menn
Sem áður segir dveljast á Staðar-
felli að jafnaði rösklega þrjátíu
manns á hverjum tíma. Ævinlega er
um þriðjungur þeirra sem koma í
meðferð vestur í svokallaðri Vík-
ingameðferð, en hún er sérsniðin
fyrir menn sem eru að koma í þriðja
sinn eða oftar. Dveljast þeir líkt og
aðrir sem koma á Staðarfell þar í
tuttugu og átta daga, fara margir i
framhaldinu á áfangaheimili um
nokkurra mánaða skeið . Eftir með-
ferðina eru þeir á göngudeild i eitt
ár.
„Margir þessara stráka sem koma
hingað í meðferð eru bráðvel gefnir
og hæfileikaríkir. Staðreyndin er
hins vegar sú að á þeim sex árum
sem ég hef starfað í þessum geira er
ég að sjá menn sem eru sífellt verr
farnir, enda eru hin hörðu efni sem
nú eru helst í umferð þannig að þau
leggja menn mjög öjótt. Og nú, þeg-
ar grammið af hassi kostar 1500 kr.
og menn þurfa að fá sinn skammt
þá leiðast þeir út í afbrot til að ná
sér í peninga. Það myndast víta-
hringur sem menn losna tæpast úr
nema löngunin í vímuefni hverfi og
hjálp við það hafa ótalmargir fengið
hér á Staðarfelli. Halda héðan út í
lífið með áhugamál og væntingar
eins og ungir strákar eiga að hafa -
sem hjálpar þeim aö takast á við til-
veruna."
-sbs
- dapurlegt að lokað sé, segir forstöðumaðurinn. Á
fimmta hundrað manns kom í fyrra í meðferð á höfðingja-
setrinu í Dölum vestur. Staðsetning fjarri borginni er
kostur - og allflestir halda á braut staðfastir í vilja um að
halda sig frá brennivíni
Forstööumaöurinn dv-myndir sigurður bogi
„Mér finnst afskaplega dapurlegt að nú sé verið að loka hér á Staðarfelli, svo brýn er þörfin fyrir starfsemina hér, “
segir Ólafur Sveinsson sem hefur verið forstöðumaður á Staðarfelli síðasta eitt og hálft árið. í húsinu sem Ólafur
stendur hér framan við var húsmæöraskóli löngum áður - en þarna hefur SÁ4 nú starfrækt meðferðarstöð síðustu
tuttugu árin.
„Mér finnst
afskaplega dap-
urlegt að nú sé
verið að loka
hér á Staðar-
felli, svo brýn
er þörfin fyrir
starfsemina
hér,“ heldur
Ólafur áfram.
Segir að strax í
febrúar á þessu
ári hafi SÁÁ-
menn gert sér
grein ljóst að
fjárhagsstaöa
samtakanna
væri slík að til
róttækra ráð-
stafana þyrfti
að grípa. Lok-
un Staðarfells
hafi verið einn
af kostunum í
stöðunni og nú
hafi hann orðið ofan á. Ólafur segir
málin hafa í vetur verið rædd við
Halldór Ásgrímsson sem þá gegndi
tímabundið starfi heilbrigðisráð-
herra. „Halldór hafði fullan skiln-
ing á málstað okkar en þó ekki
þannig að hann gripi til neinna ráð-
stafana. Aðrir stjómmálamenn vita
síðasta ári um 44
milljónir króna.
Það tel ég ekki
mikið sé mið tek-
ið við af því að
hér dvöldust á
síðasta ári 429
manns, en hér
eru að jafnaði um
þrjátíu manns í
meðferð á hverj-
um tíma. Það fer
nokkuð eftir
hvemig raðast í
hópana hverju
sinni hve margir
eru hér. Stundum
fer þetta allt upp í
36 menn, en hér
hafa einvörðungu
karlar komið til
meðferðar síðustu
tvö til þrjú árin,“
segir Ólafur.
Byggja upp menn og
slókkva afengislöngun
Staðsetning meðferðarheimilis
íjarri borginni er góður kostur að
mati Ólafs. „Hér fá menn tíma til
þess að hugsa sin mál en eru ekki
með sífellt áreiti frá borginni. Sum-
um finnst ef til vill of rólegt hér og
Setiö viö skákboröiö
Á Staöarfelli hafa menn sérýmislegt til dægradvalar og verður svo að vera
þegar þeir hafa hvorki aðgang að útvapi né sjónvarpi. Hér sitja þeir Vilhelm
Norðfjörð Sigurðsson og Einar Björn Ingason við skákborðið.
vel hver staða okkar er, þar á með-
al núverandi heilbrigðisráðherra
eftir að hafa lengi verið formaður
fjárlaganefndar þingsins," segir
Ólafur, en bætir því við að auka-
fjárveiting ráðherrans til SÁÁ nú í
vikunni breyti því ekki að loka
þurfi vestra um einhvem tima, auk
þess sem ýmsar aðrar sparnaðar-
ráðstafanir komi til, eins og greint
hefur verið frá'hér í DV.