Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Side 25
25
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
r>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Gott að vera á Staðarfelli
„Þá fór ég aö drekka meira og verr og þetta fór allt aö vinda upp á sig. Fór úr brenndum vínum yfir í bjórinn og svo í
kókaín og amfetamín," segir Ingimar Örn Gylfason.
Fer bjart-
sýnn út
í lífið
„Mér finnst rosalega gott að vera
hérna og hugsa mín mál. Horfa á fjöll-
in og sjóinn og geta stundað holla úti-
vist sem skiptir miklu máli þegar mað-
ur er að byggja sig upp. Ég var hér í
meðferð á síðasta ári og þekki því að-
eins til og var þvi ekki lengi að velja
þegar mér stóð til boða að fara í með-
ferð annaðhvort hér eða í Vík,“ sagði
Ingimar Öm Gylfason, 28 ára Reykvík-
ingur sem nú er að ljúka sinni meðferð
á Staðarfelli. Ætlaði að koma í Reykja-
víkur í vikulokin og mun í framhald-
inu dveljast um nokkurra mánaða
skeið á áfangaheimili. Segist nú ætla
að leggja upp í harða sókn við að koma
lífl sínu í réttan farveg, svo miklu hafi
hann tapað. Kannski ekki síst trausti
samferðafólks síns sem hann vilji og
verði að endurheimta.
„Ég byrjaði að drekka þegar ég var
fjórtán ára og taldi það vera eðlilegt, að
svo miklu leyti sem eðlilegt má teljast
að krakkar fari að drekka svo ungir,“
era orð Ingimars. Hann segir að
íþróttaþátttaka á unglingsárum hafi
haldið aftur af drykkju, en hún aftur
aukist eftir að íþróttunum sleppti um
átján ára aldur. „Þá fór ég að drekka
meira og verr og þetta fór allt að vinda
upp á sig. Fór úr brenndum vínum yfir
í bjórinn og svo í kókaín og am-
fetamín," segir Ingimar, sem segist þó
ekki hafa gert sér grein fyrir því að
hann væri haldinn alkóhólisma fyrr
en fyrir um þremur árum.
Sex eru látnir
Ingimar fór í meðferð hjá SÁÁ í
fyrra sem hann segir hafa skilað
miklu, en þó ekki því að hann næði
fullum tökum á lífi sínum. Síðasta árið
hafi verið sér einkar erfitt. „Ég fylgdi
aldrei 100% þeirri leiðsögn sem ég fékk
i meðferöinni heldur vildi gera hlutina
eftir eigin höfði,“ segir Ingimar sem
kveðst síðasta árið hafa neytt e-pill-
unnar reglulega sem og ýmissa ann-
arra efna og það hafi haft í fór með sér
að vítahringur ofsóknar- og sjálfs-
morðshugsana hafi búið um sig í koll-
inum. „Ég kannast við sex stráka sem
látist hafa af völdum eiturlyfja og tvo
þeirra þekkti ég mjög vel persónulega.
Sjálfur hefði ég vel getað farið sömu
leið þegar ég hafði tapað allri sjálfs-
virðingu og lífsvon. En ég fer bjart-
sýnn héðan út núna, en veit vel að hin
eiginlega meðferð byrjar fyrst þegar
henni lýkur,“ segir Ingimar sem harm-
ar að verið sé að loka á Staðarfelli -
svo brýn sé þörfm fyrir að þar verði
áfram opið. -sbs
Búinn með
minn eitur-
lyf j akvóta
„Síðustu árin hef ég verið for-
fallinn í neyslu eiturlyfja, hef
neytt amfetamíns um helgar og í
miðri viku reykt mig niður á
hassi. Svona hefur þetta verið
síðustu árin, en frá því ég var
fjórtán ára hef ég verið háður
vímuefnum, fyrst áfengi og svo
eiturlyfjum," segir Siguröur Árni
Árnason, 26 ára Keflvíkingur sem
er á Staðarfelli í sinni þriðju
meðferð, svokallaðri víkingameð-
ferð. Sjálfur kveðst Sigurður nú
sem aldrei fyrr vera einbeittur í
viljanum að ná tökum á því
meini sem hefur verið yfir og allt
um kring í lifi hans síðustu árin.
Meöferð eöa sjálfsmorð
„Ég var kominn á botninn og
þetta gat farið alveg á hvorn veg-
inn sem var. Átti ekki nema um
tvo kosti að velja, að fara í með-
ferð eða fremja sjálfsmorö og
sætta mig við dauðann. Þetta gat
farið á hvorn veginn sem var og
líkurnar voru fiftí-fiftí,“ segir
Sigurður. Hann segir að þær tvær
meðferöir sem hann hefur farið í
fram til þessa hafi glöggvað sig í
skilningi á því að hann væri alkó-
hólisti. Aftur á móti hefði hann
aldrei náð að kyngja þeirri stað-
reynd að hann hefði ekki sjálfur
stjórn á vímuefnaneyslu sinni.
Auk kannabis- og amfetamíns
neytti Sigurður e-pillunnar stöku
sinnum en allt þetta segir hann
að hafi valdið miklu þunglyndi.
Afleiðingar og hugrenningar hafi
verið eins og að framan er lýst og
hann hafi fyllst sektarkennd, t.d.
gagnvart foreldrum sínum um að
hafa brugðist þeim.
„Nú er ég búinn með minn eit-
urlyfjakvóta og verð að breyta
um lífsstíl ætli ég að halda áfram
að lifa,“ segir Sigurður sem
kveðst eftir rugl síðustu ára hafa
safnað upp nær tveggja milljón
króna skuldapakka sem hann
þurfi nú að vinna sig út úr.
„Þetta eru ekki skuldir vegna
vímuefnakaupa, heldur bíla og
annars slíks einhvers rugls sem
maður stofnar til þegar kollurinn
er ekki í lagi. Þá leggur maður
ekki niður fyrir sér hvernig eigi
að greiða af skuldunum. Þær
lenda i vanskilum og svo hleðst
upp snjóbolti vegna lögfræðiinn-
heimtu og dráttarvaxta," segir
Sigurður sem segir hluta af
breyttum lífsstíl sínum vera að
fara í skóla i haust og þar heillar
mest tölvunám við Iðnskólann í
Reykjavík.
„Fikniefnavandinn á íslandi er
að magnast af tíföldum þunga, ég
hef aldrei séð neitt þessu líkt.
Krakkar eru í dag miklu frekar
að leita að e-töflunni heldur en
nokkru sinni áfengi," segir Sig-
urður sem segir vandann í raun
vera orðinn þjóðinni óviðráðan-
legan. Engu að siður verði að
spyrna við fótum og því séu þaö
mikil mistök hjá stjórnmála-
mönnum að tryggja ekki næg
fjárframlög til Staðarfells svo
halda megi áfram gangandi þeirri
mikilvægu starfsemi sem þar sé.
„Fíkn er viðurkennd sem sjúk-
dómur og stjórnmálamenn ættu
að haga störfum sínum og fjár-
veitingum samkvæmt því.“
-sbs
Kíkt út á Hvammsfjörö
„Ég átti ekki nema um tvo kosti aö velja, aö fara í meöferö eöa fremja sjálfsmorð og sætta mig viö dauöann," segir
Siguröur Árni Árnason. Hann kveöst nú ætla og veröa aö breyta um lífsstíl og hluti af því sé aö fara
í skólanám í haust.