Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Síða 29
37
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
DV
Helgarblað
Árni Mathiesen er sjávarútvegsráðherra sem fær ekki að tala á sjómannadag
vil ekki vera aö troöa neinum um tær og ætia ekki aö túlka þetta á einn eöa annan hátt en mér finnst þetta leiöinlegt. Ég mun eyöa mínum sjómannadegi aö likindum í Hafnarfiröi við hátíöahöld
en ég hef ekki haft mörg tækifæri til þess undanfarin ár. “
terrann sem
Lenn höfnuðu
. Mathiesen sjávarútvegsráðherra fær ekki að halda ræðu á
ímlega sextíu ára hefð brotin. Árni talar um erfiðar ákvarð-
anir, hagsmuni LÍÚ og jarðsambandið á Kænunni
heildarinnar og þessir aðilar eru
stór hluti af heildinni." - Eru hags-
munir LÍÚ sem sagt hagsmunir okk-
ar?
„í mörgum tilvikum en ekki
alltaf. En vegna þess er eðlilegt að
slík gagnrýni komi fram.“
Má ekki ávarpa sjómenn
Á morgun er hinn árlegi lögboðni
frídagur sjómanna og hátiðahöld
fara víðast hvar fram samkvæmt
áratugalangri hefð. Ein breyting
verður þó á en hún er sú að sjávar-
útvegsráðherra heldur ekki ávarp á
samkomu sjómanna í Reykjavík en
sú hefð hefur annars verið við lýði
allt síðan 1938. Á undan sjávarút-
vegsráðherrum var það atvinnu-
málaráðherra sem ávarpaði sjó-
menn á þessum degi. Hvernig finnst
þér þetta? Er þetta refsing af hálfu
sjómanna?
„Mér finnst þetta leiðinlegt. Ég
vil ekki vera að troða neinum um
tær og ætla ekki að túlka þetta á
einn eða annan hátt en mér finnst
þetta leiðinlegt. Ég mun eyða mín-
um sjómannadegi að líkindum í
Hafnarfirði við hátíðahöld en ég hef
ekki haft mörg tækifæri til þess
undanfarin ár.“
Jarðsambandið á Kænunni
- Það er annasamur starfi að
vera ráðherra sjávarútvegsmála á
íslandi og forvitnilegt að vita
hvernig ráðherra nær sambandi
við grasrót samfélags sem lifir á
fiski?
„Ég næ mér í jarðsamband með
því að fara eins oft og ég get í
morgunkaffi á Kænunni í Hafnar-
firði sem er kaffihús við höfnina.
Þar safnast saman hópur manna
bæði úr sjávarútvegi og öðrum
greinum. Þama reyni ég að koma
einu sinni í viku og hef gert nokk-
uð lengi og þarna heyri ég margar
og ólíkar skoðanir og fæ mörg góð
ráð og ábendingar. Þetta kom sér
vel í sjómannadeilunni þegar ég
fékk þama ráð sem skiluðu sér alla
leið inn á Alþingi."
- Verður aldrei hvasst yfir kaffl-
bollunum á Kænunni þegar ráð-
herra mætir?
„Ef ekki væri hægt að ræða mál-
in í rólegheitunum þá myndi þetta
aldrei virka.“
Ámi hefur svolitla reynslu af
sjávarútvegi sjálfur en hann fór
nokkra túra í afleysingum á Otri
HF á námsárum sínum. Er það
mikilvæg reynsla?
„Þetta var nóg til þess að ég hef
verið á Halanum og veit t.d hvers
vegna menn hentu fiski áður en
kvótakerfið kom á þegar hann var
orðinn of gamall vegna þess að
ekki hafðist undan viö slægingu og
sitt hvað fleira.“
Það verða margir fulltrúar hags-
munaðila sem ganga á fund ráð-
herra og kynna sjónarmið sín og
eru nokkurs konar fulltrúar þrýsti-
hópa. Er mikill munur á málflutn-
ingi þeirra og því sem Árni heyrir
í morgunkaffinu á Kænunni?
„Þeir sem hingað koma reyna yf-
irleitt að fullvissa mig um að þeir
hafi stuðning allra þeirra sem þeir
eru að tala fyrir og þar sé fullkom-
in eining. Á Kænunni heyri ég
hins vegar sjónarmið allra og veit
að það er ekki alltaf rétt. Ég veit
t.d. að það eru ekki allir smábáta-
sjómenn andvígir kvótasetningu
smábáta."
Börn stjórnmálamanna
Árni er kvæntur Steinunni Krist-
ínu Friðjónsdóttur flugfreyju og þau
búa í Hafnarfirði með tveimur ung-
um dætrum, 3 og 5 ára gömlum.
Árni segist ekki vera mjög mikið
heima við og ekki alltaf á hefð-
bundnum tímum því starflð kallar.
Þetta er heimur sem eiginkonu
hans kemur ekki beinlínis á óvart
því þau eiga það sameiginlegt hjón-
in að vera börn stjórnmálamanna.
Hann er sonur Matthíasar
Mathiesen, fyrrverandi ráðherra, en
hún er dóttir Friðjóns Þórðarsonar
sem var þingmaður og ráðherra fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn.
„Við vissum bæði að hverju við
gengum. Þetta var reyndar ekkert
betra þegar ég var í dýralækningun-
um en í stjómmálum verður að
grípa tækifærin þegar þau gefast.
Ég reyni að aka dætrum mínum á
leikskólann á hverjum morgni og
halda þannig tengslum við þær og
nýti þær fáu frístundir sem gefast
til að vera með fjölskyldunni. Sjálf-
sagt er það minna en ég hefði kosið
en það er val að vera í stjórnmálum
og erfitt að fresta hlutum í þeim efn-
um.“
Stóra áhugamálið í lífl Áma fyrir
utan fjölskylduna, handbolta og fót-
bolta er hestamennska en fjölskyld-
an á hesthús og jörð í Borgarflrði.
Hrossaeign fjölskyldunnar nær
nokkuð á annan tuginn og Árni hef-
ur aðeins fengist við að temja sjálf-
ur en segist lítinn tíma hafa haft í
vetur og varla komið á bak. En er
hann flinkur hestamaður?
„Það er erfitt að meta það en ætli
ég segist ekki vera sæmilega hest-
fær.“ -PÁÁ
„Það er stórt orð vísinda-
maður og menn verða að
sýna fram á að kenning-
ar þeirra standist vís-
indalega skoðun. Ég er
viss um að Jón á eftir að
fá sitt tækifœri til þess og
skoðanir eins og hans
þurfa auðvitað að eiga
sinn sess í framtíðinni.
Við erum í þeirri stöðu
að við verðum að skoða
allar kenningar sem sett-
ar eru fram á vísindaleg-
um grunni. “