Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Page 51

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Page 51
59 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 DV Tilvera v'N'ses Rve Senses *** Skiln- ingar- vitin í Five Senses kynnumst við nokkrum mann- eskjum sem eiga það sameiginlegt að vera í leit að tilgangi. Það sem aðgreinir myndina frá öðrum slíkum myndum er að skilningarvitin, heyrn, sjón, snerting, lykt og bragð, eru leiðandi afl í tilvist persónanna, Rona á ítalskan kærasta sem er snilldarkokkur, sjálf fmnur hún vont bragð af öllu sem hún bak- ar. Vinur hennar, Robert, er samkyn- hneigður maður i leit að horfinni ást. Hann telur að finni hann réttu lykt- ina af fyrrum elskhugum þá sé það hinn eini rétti. Sjónin er ráðandi hjá táningnum Rachel sem vill ekki horfast í augu við raunveruleikann. Læknirinn Richard er að tapa heyrn- inni og notar síðustu dagana til að muna hvað hann heyrði. Móðirin Ruth, sem hefur misst bamið, þarf á snertingu að halda. Það sem tengir þessar persónur og aðrar sem koma við sögu, beint og óbeint, er bams- hvarf sem verður mikill fjölmiðlamat- ur. Five Senses er ákaflega vel gerð og áhrifamikil mynd. Persónur eru skýr- ar og einmanaleiki þeirra er dreginn sterkt fram i dagsljósið í gegnum skilningarvitin. Þá eiga þau það sam- eiginlegt að berjast öll gegn einmana- leikanum hvert á sinn hátt. Kanadíski leikstjórinn Jeremy Podeswa skilur við flestar persónur sínar í betra ástandi en í upphafl en þó ekki allar. Það er sérstaklega Rona, sem i fyrstu átti kannski við minnsta vandamálið að stríða, sem líklega á ekki góða daga fram undan. -HK Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Jeremy Podeswa. Leikarar: Mary-Louise Parker, Pascale Bussieres, Molly Parker og Ric- hard Clarkin. Kanada, 1999. Lengd: 106 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. My Dog Skip ★ ★■L Besti vinurinn Ef ætlunin er að láta fara vel um sig eina kvöld- stund er My Dog Skip kvikmynd sem hægt er að mæla með að horft sé á. Þessi hugljúfa kvik- mynd er um vin- skap þeirra sem eru minnimáttar, vinskap sem bætir og gerir þá sterka sem fyrir máttu sín lítils. My Dog Skip gerist í smábæ meðan síðari heimsstyrjöldin stóð yfir. Sögu- hetjan okkar er Willie, ungur dreng- ur, sem í dag mundi verða sagt um að yrði fyrir einelti í skólanum. Hann hefur meira gaman af að lesa en að leika fótbolta. Það kemur þó ekki í veg fyrir að hetjan i hans augum er upprennandi fótboltastjama í næsta húsi sem er á leið í stríðið. I afmælis- gjöf fær Willie frá móður sinni litinn hund sem hann kallar Skip. Það er eins og við manninn mælt, Willie fær aukið sjálfstraust þegar hundurinn er viö hlið hans og með Skip að vopni býður hann heiminum birginn. Það er síðan ekki nóg að fyrrum fjandvin- ir Willies fara að sækjast eftir vin- skap hans heldur nýtur Billy aðdáun- ar fallegustu stelpunnar í skólanum. Það er erfitt annað en að hrifast að þeim innileik sem einkennir My Dog Skip og sumir ættu að hafa vasaklút- inn til hliðar. Myndin er vel leikin, sérstaklega fer Kevin Bacon vel með hlutverk fóðurins og sjaldgæft að sjá þennan ágæta leikara leika jafn inn- hverfan mann. Samleikur hundsins og hins unga Frankie Munitz er einnig með miklum ágætum. -HK Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Jay Russell. Leikarar: Frankie Munitz, Kevin Bacon, Diane Lane og Luke Wilson. Leyfö öllum aldurshópum. Opnun sumarsýningar á Kjarvalsstöðum: Hekla heillaði sýningargesti Margt mætra manna og kvenna var viðstatt opnun sýningarinnar Flogið yfir Heklu á Kjarvalsstöðum í gær. Þar var okkar fræga eldfjall Hekla í ótal myndum og heiflaði viðstadda, rétt eins og margan myndlistarmanninn gegnum tíðina. Einar Garibaldi Eiríksson átti heið- urinn að vali og uppsetningu mynd- anna og studdist þar við eigin fyrir- lestur undir þessu sama nafni, Flog- ið yflr Heklu. Reyndar er nafnið sótt enn lengra, eða til greinar Halldórs Laxness um Kjarval sem birtist i bók um listmálarann árið 1950. Flogið yfir Heklu er önnur tveggja sumarsýninga Listasafns íslands á Kjarvalsstöðum og á eflaust eftir að laða til sín fjölmarga gesti, bæði ís- lenska og erlenda. Spáð í eldfjallið Guörún Jóns- dóttir hjá menningar- máianefnd Reykjavíkurj Þóra Kjarval og Jóhannes Kjarval DV-MYNDIR EJ. Grétar Reynisson og Einar Garlbaldi Eiríksson. Árangur uppsetningarinnar kominn í Ijós. Katrín Siguröardóttir myndlistarkona, Anna Líndal, prófessor viö Listaháskólann, Kristján Steingrímur Jónsson, forseti myndlistardeildar Listaháskólans, og Hrefna Birna Björnsdóttir kennari. Villi Valli flytur um set á ísafirði: Síungur rakari og harmóníkuleikari DV-MYNDIR GS Rakarinn Margar kynslóðir hafa sótt sér klippingu til Villa Valla á síöustu sex áratugum. Hér er hann meö ungan dreng, Hjalta Heimi Jónsson, í stólnum hjá sér. Einn þeirra sem sett hafa svip á bæjarbraginn á ísafirði síðustu ára- tugi er Vilberg Vilbergsson hárskeri, eða Vifli Valli eins og hann er jafnan kallaður. Villi Valli hefur haft hend- ur í hári ísfirðinga frá því um 1940 en rekið eigin rakarastofu í sama húsinu allt frá árinu 1959 þar sem hann hef- ur rakarastofuna á neðri hæð hússins en býr á loftinu. Það eru því kynslóð- ir sem þekkja ekki bæinn án rakara- stofunnar í Hafnarstrætinu. Nú er þessi rótgróna rakarastofa orðin fyrir skipulaginu þar sem til stendur að byggja verslunarmiðstöð þar sem húsaþyrping sú stendur sem meðal annars hýsir stofuna. „Ég lærði á stofunni í Silfurgöt- unni en þegar rakarinn sem var hérna flutti burt keypti ég af honum stofuna og hef verið hérna síðan. Það hefur verið rakarastofa í þessu húsi í að minnsta kosti 60 ár þannig að það verður sjónarsviptir að þessu húsi,“ segir þessi síungi rakari. Villi Valli er nú á næstu dögum að flytja stofuna sína og eftir langa fjar- veru opnar hann á ný stofu í Silfur- götunni, 42 árum eftir að hann fór í Hafnarstrætið. Sama fyrirkomulag verður á nýja staðnum; stofan verður á jarðhæðinni en heimilið á efri hæð hússins. Hann segir þetta hafa ótví- ræða kosti í fór með sér því hann komist alltaf þurrum fótum í vinn- una. Það hefur lengi verið sagt að púls bæjarlífs hvers bæjar slái á rakara- stofunum og stofa Villa Vafla er þar engir) undantekning. Allir aldurshóp- ar sækja stofuna og hafa mislífseigar tískusveiflur lítil áhrif þar á. Þegar sest er í stólinn hjá Villa fær maður Bítillinn Villi Valli meö skúlptúr sem hann hefur smíöaö. bæjarstemninguna beint í æð. Þegar vel gengur og bæjarlifið er á uppleið leikur þessi lífsglaði maður við hvern sinn fingur en þegar á móti blæs slær hann höndum gjarnan niður með síð- um áður en hann kemur sér að því að ræða þau mál sem til óheilla horfa - enda erfitt fyrir menn sem bæði eru bjartsýnir og jákvæðir að horfa upp á það sem miður fer. En Vifli Valli er meira en rakari. Um áratugaskeið hefur hann skemmt Vestfirðingum með tónlist og er enn að. Nýlega gaf hann út geisladisk sem innihélt frumsamið efni og heitir diskurinn einfaldlega Villi Valli. „Ég byrjaði að fikta við tónlist um fimm ára aldur en fyrst kom ég fram tólf ára. Þá spilaði ég á dansleik á Flat- eyri, þaðan sem ég er. Stundum leið nokkur tími á milli dansleikja en svo voru kannski 3-4 í sömu vikunni. Þetta fór allt eftir vinnunni og þegar togarar komu í höfn var jafnan slegið upp balli. Þá voru sendir miðar í hús- in um að það yrði ball í kvöld og fritt fyrir dömur. Svo var selt inn þar til komið var inn fyrir kostnaði. Þá var miðasölunni lokað og þeir sem stóðu fyrir ballinu fóru bara að skemmta sér með gestunum. Það var ekki græðginni fyrir að fara á þeim árum.“ -GS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.