Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2001, Qupperneq 47
55
f
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2001
DV Tilvera
Frumsýning í Loftkastalanum:
Rokksöngleikurinn Hedwig var
frumsýndur í Loftkastalanum á
fimmtudaginn. Verkið fjallar um
kynskiptinginn misheppnaða, Hed-
wig, sem elst upp í Austur-Berlín á
valdatíma kommúnista en flyst síð-
an til Bandaríkjanna þar sem hann
(eða hún) lendir í ýmsum ævintýr-
um. Verkið sló fyrst i gegn á Broad-
way fyrir nokkrum árum og hefur
síðan farið sigurför um heiminn.
Ekki var annað að heyra á frónsk-
um frumsýningargestum en þeir
kynnu vel að meta Hedwig og lags-
menn hans.
DV-MYND E.ÓL
Kaupvangsstrætið gott fyrir myndlist
„Ketilhúsiö er mjög fallegt rými, en ég haföi aldrei séö þaö fyrr en ég setti
upp sýninguna,“ segir Kristbergur Ó. Pétursson myndlistarmaöur. „Miðaö viö
þær forsendur geri ég mig ánægöan meö útkomuna. Það er eins og rýmiö
hafi verið útfært meö verkin til hliösjónar. Og Kaupvangsstrætiö er góöur
Undanfarnar vikur hefur staðið
yfir í Ketilhúsinu á Akureyri mynd-
listarsýning Kristbergs Ó. Péturs-
sonar en henni lýkur á morgun.
Sýningin er án yfirskriftar en Krist-
bergur segir að eftir á, þegar hann
hafi heyrt athugasemdir sýningar-
gesta, hafi honum dottið í hug að
heppileg yfirskrift heföi verið: Eng-
inn hávaði.
Fallegt rými
„Framkvæmdastjóri Listasumars,
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir,
kom að máli við mig í fyrra og
spurði hvort ég vildi taka þátt í því
2001,“ segir Kristbergur. „Ég tók vel
í það og síðan hef ég meira og
minna verið að vinna að þessari
sýningu og einbeitt mér alfarið aö
þvi frá áramótum. Ketilhúsiö er
mjög fallegt rými en ég hafði aldrei
séð það fyrr en ég setti upp sýning-
una. Miðað við þær forsendur geri
ég mig ánægðan með útkomuna.
Það er eins og rýmið hafi verið út-
fært meö verkin til hliðsjónar. Og
Kaupvangsstrætiö er góður staður
fyrir myndlist."
Þegar þessi sýning hefur verið
tekin niður flyst hún að nokkru
leyti í Safnahúsið í Borgamesi þar
sem Kristbergur opnar sýningu
fjórtánda júlí. Kristbergur segir lík-
legt að sú sýning verði meiri blanda
af nýjustu verkunum og þeim eldri.
Þegar svona stendur á...
„Þegar svona mikið er í deigl-
unni þá hef ég þurft að einbeita
mér algjörlega að listinni. Þegar
svona stendur á er listin mitt aðal-
starf. Ég vonast til að selja myndir
til að hafa upp í kostnað," segir
Kristbergur sem hefur starfað við
ýmislegt meðfram listinni, svo sem
kennslu, blaðamennsku, hákarls-
verkun og löndun.
„Undanfarið hefur myndlistin
haft yfirhöndina. Það er mjög gott
því þá nær maður betri árangri á
nokkrum mánuöum en nokkrum
árum annars. Þróunin verður mun
hraðari."
Kristbergur segir að breyting
hafi orðið á verkum hans í þessari
törn.
„Ég breytti vinnuferlinu eigin-
lega óvart, sem býður upp á nýja
möguleika. Eldri verkin einkennd-
ust af því að hver mynd var máluð
nánast af fingrum fram, milliliða-
laust. Það voru engar skissur og ég
vann þar til ég var ánægður með
myndina. Ef ég var ekki ánægður
lagði ég myndina til hliðar og byrj-
aði á annarri. Núna vinn ég myndir
í stærra formi og þá er þessi aðferð
dálítið glannaleg. Ég hef því bætt
við góðri skissuvinnu og útfæri
myndimar nákvæmlega. Ég teikna
fyrst, mála síðan lítið málverk sem
ég stækka svo. Allt ferlið við stóru
myndirnar er því fyrir fram ákveð-
ið og ef eitthvað fer úrskeiðis þá er
það beinlínis slys.“
Hvaö er innblástur
„Kannski væri heiðarlegast að
segja að ég sækti innblástur í eigin
verk,“ segir Kristbergur. „Þau eru
að sjálfsögðu sprottin upp úr
ákveðnum jarðvegi fyrir utan mig.
En annars er ég ekkert að velta mér
um of upp úr skilgreiningum. Þegar
ég er aö verki á vinnustofunni þá
vinn ég eftir tilfinningunni um það
hvort mynd virki eða virki ekki. Og
ef ég er ánægður með hana þá stend
ég við það.“
-sm
Eitt lag enn
Björgvin Frans og Ragnhildur Gísla-
dóttir, sem fer meö annaö aöal-
hlutverkiö í sýningunni, taka auka-
númer fyrir áhorfendur.
Feðgar í fjori
Björgvin Frans Gíslason þreytti frumraun sína sem atvinnuleikari í hlutverki Hedwigs. Hér er hann ásamt fööur
sínum, Gísla Rúnari Jónssyni, sem enn fremur á heiðurinn aö þýöingu verksins.
----—---------------------------------------------------------.------
Sýningu Kristbergs Ó. Péturssonar í Ketilhúsinu á Akureyri lýkur á morgun:
DV-MYNDIR EINAR J.
Leikarinn og leikstjórinn
Siguröur Sigurjónsson leikari óskar Magnúsi Geir Þóröarsyni, leikstjóra
verksins, innilega til hamingju baksviös.
Reiða restin
Þeir eru ekki frýnilegir meölimir hljómsveitarinnar Reiöu restarinnar en
eru þó bestu skinn inn viö beiniö.
Myndbartdarýrti
Tigerland ★ ★★
Hermaður skaltu veröa
Joel Schumacher hefur undanfarin
ár ekki beint verið að sinna listrænni
þörf sinni. Það þarf að fara aftur til
1993, þegar hann
gerði Falling Down,
til að finna mynd
eftir hann sem er
meira en bara fyrir
augað. En eftir að
hafa séð Tigerland
þá dettur manni
helst í hug að
Schumacher hafi
fengið samviskubit og ákveðið að
bæta fyrir Batman Forever, Dying
Young og íleiri „stórmyndir". Og ef
svo er þá tekst honum það vel. Tiger-
land er sterk og áhrifamikil kvik-
mynd um það hvemig hermenn voru
undirbúnir fyrir Vietnam-stríðið árið
1971.
Það er ekki laust við að upp í hug-
ann komi kvikmynd Stanleys
Kubricks, Full Metal Jacket. Tiger-
land á margt sameiginlegt með fyrsta
klukkutímanum í þeirri mynd. Titill
myndarinnar vísar á æfingabúðir sem
eiga að líkjast sem mest Vietnam. Þar
eru ungir tilvonandi hermenn í
Vietnam teknir í æfingar sem eiga að
gera þá að hermönnum sem þola allt.
Áður hafa þeir verið i æfingabúðum
þar sem allt er gert til að lítillækka
þá. Aðalpersónan er Bozz, fæddur for-
ingi, en er á móti kerfinu og lætur
aldrei bugast þó reynt sé að brjóta
hann niður. Ungur óþekktur leikari,
Coiin Farrell, leikur þessa persónu
sem alltaf er til að hjálpa þeim sem
eru minni máttar, af miklum krafti,
og yrði ég ekki hissa þó þarna væri
stjama fædd. Með Tigerland sýnir
Schumacher að honum er ekki alls
varnað og mættu fleiri hæfileikaríkir
leikstjórar í Hollywood taka sér fri frá
iðnaðarframleiðslunni og sýna hvað í
þeim býr. -HK
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Joel
Schumacher. Leikarar: Colin Farrell,
Matthew Davis, Clifton Collisn jr. og Cole
Hauser. Bandaríkin 2001, Lengd: 101
mín. Bönnuö börnum innan 16 ára.
Night Flier ★ ★
Fljúgandi vampíra
Þær eru orðnar æði margar
kvikmyndimar sem gerðar eru eft-
ir skáldsögum Stephens Kings. Eru
þær allt upp í það að vera meist-
araverk á borð við Shawshank
Redemptions og Shining niður í
óþverra á borð við
Pet Cemetery og
Graveyard Shift.
Ég hafði ekki
miklar væntingar
þegar The Night
Flier var sett í
tækið. Hún kom
þó þægilega á
óvart. Myndin
verður aldrei talin meðal hans
betri mynda eftir sögum Kings og
greinilegt er að stundum er verið
að teygja lopann, enda gerð eftir
einni smásögu Kings sem birtist í
Nightmares and Dreamscapes.
í sögunni er King, auk þess að
vera aö fjalla um eitt uppáhald-
verkefni sitt, blóösugu að gera lítið
úr æsifréttamennsku. Aðalpersón-
an, blaðamaðurinn Richard Deens,
hefur kannski einhvern tímann átt
eitthvað gott til en er nú öllum til
ama, enda frekur á pláss og gerir
lítið úr öðrum blaðamönnum. Þeg-
ar fréttist af raðmorðingja sem fer
fljúgandi um afskekkta flugvelli og
skilur eftir blóðuga slóð fer Deens
á vettvang. Fljótlega er þó ljóst að
nú ætlar hann sér um of.
The Night Flier er ekki gerð fyr-
ir mikinn pening og tæknflega séð
stendur hún mörgum hryllings-
myndum að baki en hún heldur
áhorfandanum við efnið og Miguel
Ferrer fer vel með aðalhlutverkið
(aö vísu eini leikarinn sem stendur
sig), ekki mjög geðslegan mann
sem á skilið það sem hann fær.
-HK
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Mark
Pavia. Leikarar: Miguel Ferrer, Julie
Entwistle og Dan Monahan. Bandaríkin,
1997. Lengd: 93 mín. Bönnuö börnum inn-
an 16 ára.
Hedwig fagnað sem hetju
- kynskiptingurinn vídförli kominn til íslands
Enginn hávaði