Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Page 12
12 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 Helgarblað ____________________________________________________________________________________DV Smáþjóðin sem baðaði sig í ljóma Alexanders fær heimsókn: Nató sendir hermenn á Balkanskaga á ný Atlantshafsbandalagið ákvað á miðvikudag að senda hersveitir á Balkanskaga í þriðja skiptið. Til- gangurinn nú er að afvopna al- banska skæruliða í Makedóníu með þeirra samþykki. Hermenn Nató munu ekki gera annað en að taka við vopnum úr höndum skærulið- anna sem.eiga að koma sjálfir með þau á afvopnunarstöðvar á yfirráða- svæðum þeirra. Stjórnvöld í Makedóníu lýstu aðild Nató að frið- arferlinu í landinu sem mikilvægu skrefi. Slavneski meirihlutinn í landinu virðist hins vegar ósam- mála ríkisstjórninni og sér ekki fram á árangur af veru fjölþjóðlegs herliðs i landinu. Undir kraumar hatur slava á albanska minnihlut- anum, sem hefur átt undir högg að sækja í götuóeirðum og skærum i sumar. Nató-hermennirnir hætta sér út i púðurtunnu sem þarf ekki mikinn neista til að verða ófriðar- bál. Barist um réttindi þjóðar Albönsku uppreisnarmennirnir segjast hafa gripið til vopna til að ná fram auknum réttindum fyrir al- banska þjóðarbrotið i landinu. Þar með talin er aukin aðild Albana að lögreglusveitum og viðurkenning albönsku sem opinbers máls. Talið er að tæpur þriðjungur íbúa Makedóníu sé af albönsku bergi brotinn. Harðlega er þó deilt um þann fjölda og heyrast tölur allt nið- ur í 20 prósent. Makedónía er 25 þúsund ferkílómetrar að flatarmáli, fjórðungur af stærð íslands. I land- inu búa 2 milljónir manna, um þriðjungur, ýmist Albanar eða Tyrkir, eru múslímar og afgangur- inn hluti grísk-kaþólsku kirkjunn- ar. Þarna er því um aö ræða klofn- ingu íbúa ríkisins í tvennt, hvað varðar tungumál, þjóðerni, sögu og trú. Smáríki baðar sig í nostalgiu Nafnið Makedónía var afar um- deilt þegar landið fékk sjálfstæði ár- ið 1992. Það er fengið frá samnefndu fornu konungsríki sem sigraði Persaveldi þegar Alexander mikli tók upp vopn á 3. öld fyrir Krist. Nútímaríkið Makedónía liggur á vesturhluta foma konungsríkisins en eystri hlutinn er undir Grikkj- um. Þeir lögðust harkalega gegn því að nafnið yrði notað, enda heitir hérað í Grikklandi sama nafni. Eftir að veldi Alexanders hrundi komst Makedónía undir Rómaveldi. Því næst var landið hluti af Býsanska keisaradæminu, og í kjöl- far sigurs ottómanskra Tyrkja árið 1389 fylgdu fimm alda yfirráð keis- aradæmis Ottómana. Árið 1918 varð Makedónía hluti Júgóslavíu og und- ir forsæti kommúnistaleiðtogans Jósefs Titós fékk landið sjálfstjórn árið 1946. Síðan þá hafa Makedónar ræktað menningu sína og sjálfs- mynd af kappi. í þeirri þróun hefur albanski minnihlutinn orðið undir, eins og óhentugur aðskotahlutur í hinu nýja ríki. Staða Makedóníu sem smáríki á Balkanskaga gerir Makedónum lífsnauðsynlegt að rækta upp skýra sjálfsmynd. í kringum litlu Makedóníu eru ríki sem nefnd hafa verið úlfamir fjórir: Serbia, Búlgaría, Albania og Grikk- land. Öll þessi ríki þyrstir í yfirráð í Makedóníu og eru auk þess sögu- legir óvinir landsins. Það skilur milli feigs og ófeigs fyrir nýja ríkið að lenda ekki í tilvistarkreppu, og að tryggja samheldni ríkisins. Al- banski minnihlutinn er því litinn hornauga af slavneska meirihlutan- um, sem sakar þjóðarbrotið um tregðu við að samblandast makedónskri menningu. Af þeim sökum reynist Boris Trajkovski, slavneskum forseta Makedóníu, mjög erfitt að gangast við kröfum Albana um sérstök réttindi þeim til handa og viðurkenningu á tungu- máli þeirra. Kröfur Albana uppfylltar Með nýju friðarsamkomulagi milli Makedóniuhers og albanskra uppreisnarmanna hefur slavneski meirihlutinn sumpart horfst í augu við blákaldar staðreyndir. Upp und- ir þriðjungur landsmanna eru Al- banar og þjóðernislega einsleitt ríki Makedóna er ekki orðið að veru- leika. Friðarsamkomulagið sem leiddi til komu herliðs Nató felst í því að Albanar fá takmörkuð rétt- indi sem þjóðarbrot. Tungumál þeirra verður gert opinbert og á þeim svæðum sem Albanar eru meira en 20 prósent íbúanna má nota tungumál þeirra í opinberum stofnunum. Áður hafði albanskan enga opinbera stöðu í Makedóníu. í öðru lagi verður albönsku uppreisn- armönnunum veitt sakaruppgjöf. Þá verður hlutfall Albana í lögreglu- sveitum landsins aukið úr 5 pró- sentum í 25 prósent. Loks hefur ver- ið samþykkt að minnka miðstýring- una frá höfuðborginni Skopje og færa aukið vald heim i hérað til staðbundinna yfirvalda. Allt þetta veltur á því skilyrði að albanskir uppreisnarmenn afvopn- ist, og þar kemur 3500 manna fjöl- þjóðlegt herlið Nató inn í myndina. Táknræn afvopnun Nató hefur sett sér 30 daga tímaramma til að taka við vopnum úr höndum albanskra uppreisnar- manna. Fyrst fer í hönd aðlögunar- timi sem lýkur í síðasta lagi eftir 12 daga. Fyrst þá verður byrjaö að telja niður 30 dagana. Þetta þykir gagn- rýnendum skammur timi og þeir spyrja sig hvað muni gerast ef ekki hefur tekist að safna saman nógu mörgum vopnum þegar tíminn rennur út. Ekki má þó líta fram hjá því að Natóherirnir munu eyða samanlagt rúmum 6 vikum í Makedóníu, og margt getur farið úr- skeiðis í samskiptum deiluaðila á þeim tíma. Uppreisnarmenn og Makedóníu- stjórn eru tvísaga um íjölda þeirra vopna sem þeir fyrmefndu eiga. Þeir segjast ætla að skila inn tvö þúsund vopnum í hendur Natólið- anna. Þetta er að mati ríkisstjórnar- innar allt of lítið. Þau segja þá búa yfir allt að 85 þúsund vopnum. Önn- ur leið fyrir skæruliðana til að forð- ast raunverulega afvopnun er að skila inn gömlu vopnunum sínum og fela afganginn. Ef það bregst munu þeir varla eiga í miklum erf- iðleikum með að útvega sér vopn úr vopnaforðabúrinu á Balkanskagan- um. George Robertson, framkvæmda- stjóri Nató, neitar að tjá sig um hversu mörgum vopnum bandalag- ið vonast til að ná af skæruliðunum. „Heildaríjöldi vopnanna verður að vera í raunsæju magni og gæðum og hafa yfir sér trúveröugleika," sagði Robertson. Það telst ljóst að afvopnunin verð- ur fyrst og fremst táknræn sönnun þess að uppreisnarmennirnir vilji frið. Hún getur ekki tryggt friðinn, þar sem það er í hendi Albananna að skila inn vopnunum og þeir hafa næg úrræði til að halda vopnum sínum þrátt fyrir afhendingu vopna upp að vissu marki. Atlantshafs- bandalagiö er í táknrænni för í Makedóníu og sýnir deiluaðilum siðferðilegan stuðning. Bretland leiðir Leiðandi í afvopnunarverkefni Nató eru Bretar, en þeir senda rúma 1800 hermenn af 3500. Aðrar þjóðir sem senda hermenn á vett- vang eru Frakkar, ítalir, Kanada- menn, Tékkar, Þjóðverjar, Ungverj- ar, Hollendingar, Spánverjar, Tyrk- ir, Grikkir og Norðmenn. Bandaríkjamenn hyggjast ekki senda hermenn á vettvang, heldur ein- ungis sérfræðinga sem þegar eru stað- settir á Balkanskaganum. Þetta er i anda stefnu George W. Bush Banda- rikjaforseta um að draga saman í verkefnum og ítökum hersins erlend- is. Eitt kosningaloforða hans fyrir for- setakosningarnar á síðasta ári var að senda ekki hermenn á Balkanskagann. Blendin viöbrögö Ákvörðun Nató að koma til Makedóníu var misjafnlega tekið. Stríöandi fylkingar lýstu yfir ánægju sinni á meðan slavneskur almenning- ur lýsti vantrú. Makedónar eru marg- ir andvígir Nató og öðrum alþjóða- stofnunum, eins og birtist glögglega i götuóeirðum i sumar þar sem almenn- ingur rústaði alþjóðlegar veitinga- staðakeðjur og stofnanir. Vesturlönd ýttu Makedóníu út i að taka við 230 þúsund albönskum flóttamönnum frá Kosovo árið 1999, en margir þeirra hafa tekið þátt í uppreisn Albana í landinu síðan. Mörgum slövum þykir líklegt að Nató muni hirða þau vopn sem ekki verða falin og fara svo. Eftir brottför- ina falli allt í sama farveg og áður. Rússar segja Nató hafa tekið á herð- ar sér mikla ábyrgð með afvopnunar- leiðangrinum til Makedóníu. Vladimir Pútín forseti segist efast stórlega um að Nató takist markmið sitt að af- vopna skæruliðana. Hann hitti Tra- jkovski Makedóníuforseta í úkraínsku höfuðborginni Kiev á fimmtudag. Tra- jkovski var á ferð í Úkraínu að biðja þarlend stjómvöld um að halda áfram vopnasölu til Makedóníu. Svo virðist því sem ekki allir í Makedóníu séu á því að grafa striðsöxina. Þjóðemissinnaðir Makedónar, sem horfa glampandi augum á glæsta for- tíð ríkisins, eiga margir erfltt með að sætta sig við aukna viðurkenningu á albanska minnihlutanum. í þá 6 mán- uði sem átökin í landinu hafa staðið yfir hefur almenningur að mestu hald- ið sig blessunarlega frá átökunum. Ótti umheimsins snýst um að aukinn þungi færist á átökin og algert borg- arastríð brjótist út. Þetta gæti gerst með því að öryggissveitir stjórnarinn- ar beiti aukinni hörku í að brjóta nið- ur uppreisnina, með þeim afleiðingum að almennir albanskir borgarar drag- ist inn í átökin. Þá væri flóttamanna- straumur Albana til nágrannarikj- anna óumflýjanlegur. í versta falli gætu nágrannaríkin dregist inn í átök- in og tendrað upp í Balkanskaganum á ný. Þetta er það sem Nató-ríkin vilja forðast með sínum takmörkuðu að- ferðum. Heimildir: BBC, CNN og Reuter. Utsýnið yfir Tetovo Tveir albanskir uppreisnarmenn viröa fyrir sér útsýniö yfir Tetovo, óopin- berra höfuöborg Makedóníualbana. Fjör í Makedóníu Þessari bresku stúlku þótti gaman aö koma til Makedóníu á fimmtudag- inn. Nató segist ekki ætla aö vera lengur en 6 vikur samanlagt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.