Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________r>V Þaó er stór dagur í Noregi í dag. Krónprinsinn, Hákon Magnús Haraldsson, gengur upp aö altarinu í Dómkirkjunni í Ósló til aó kvongast sinni heittelsk- uöu, Mette-Marit Tjessem Höiby, einstœðri móður frá Kristiansand. Flestir Norðmenn gleójast með krón- prinsinum og brúói hans en þó er langt frá því aó allir séu meó sól í hjarta. Tilvonandi drottning er nefnilega ekki með blátt blóö í œöum, frekar en Sonja, núverandi drottning. íhaldssamar og konungs- hollar sálir hafa því lengi þráö aó eignast alvöruprinsessu. Lífshlaup Mette-Marit raskar líka ró margra Norðmanna. Hún er dóttir blaðamanns og húsmóður sem slitu samvistum fyrir löngu. Eins og flest börn varð Mette-Marit augasteinn foreldra sinna, óx og dafnaði allt þar til hún varð að glæsilegri stúlku á táningsárum sínum. Það þarf sterk bein til að þola athygli og áður en varði hrúg- uðust óveðurský yfir höfði hennar og svelgur hópsálarinnar togaði fast í hana. Mette-Marit missteig sig á hinum þrönga vegi dyggð- anna og hefur ekki alla tið lifað í sátt og samlyndi við venjur og hefðir sem ríkja í samfélagi lög- hlýðinna og siðaðra borgara þjóð- félagsins. í sjónvarpsviðtali á mið- vikudaginn var spjallaði Mette- Marit grátklökk í fyrsta sinn opin- berlega um sitt fyrra líf. Þar viður- kenndi hún að hafa gert ýmislegt sem engan veginn hæfir verðandi drottnmgu. Hún sagðist núorðið iðrast gerða sinna sem orðið hefðu sér æðidýrkeyptar þegar til kast- anna kom. House-party og E-pillan Hákon prins hitti heitmey sína í fyrsta sinn á Qvark-tónlistarhátíð- inni í Kristiansand fyrir rúmlega tveimur árum. Þeim varð strax vel til vina og áður en langt leið tókust með þeim ástir. Þegar norska þjóðin komst á snoðir um vafasama fortíð og félagsskap vinkonu prinsins tóku flestir andköf og fæstum hugnaðist ráðahagur ríkisarfans. Það spurðist fljótt út að stúlkan frá Kristiansand væri einstæð móðir og það þótti ekki konungbomum kærasta sam- boðið. Ekki bætti úr skák að faðir Mariusar, sonar Mette-Marit, var smáglæpamaður sem ámóta oft sat í steininum og í sjónvarpskróknum heima hjá sér. Þjóðin gat ekki hugs- að sér framtíðardrottningu sína í þeirri stöðu, á afmælisdegi Maríus- ar litla, að þurfa jafnvel að sækja bamsföður sinn í fangelsið eða und- irheimana þegar honum væri boðið í afmælisveislu til hallarinnar. Það spurðist líka fljótt út að þrátt fyrir fagurt útlit væri Mette-Marit sjálf ekkert annað en úlfur i sauðargæru. Hún var þekkt í undirheimunum, stundaði svokölluð reif-partí af miklum dugnaði og bruddi E-töflur eins og fermingarbömin tópas. Ofan á allt annað óttast tilvon- andi þegnar hennar að það gæti orð- ið hættulegt konungdæminu ef slúð- urblöðin færu að birta gamlar og óþægilegar Ijósmyndir ásamt því að einkamyndbönd, með drottninguna í aðalhlutverki og ekki ætluð við- kvæmum sálum, kæmust í dreif- ingu. Sú umræða komst reyndar aft- ur í hámæli eftir aö prinsessan jánkaði því í viðtali í vikunni að slíkt myndefni gæti jafnvel verið í geymslu hjá óvönduðu fólki. Upp með lýöveldiö? Afstaða norsku þjóðarinnar til sambands Hákonar og Mette-Marit skiptist strax í tvennt. Yngri kyn- slóðin taldi sambandið mjög jákvætt fyrir Hákon ríkisarfa og bera alþýð- leik hans fagurt vitni. Hann er prins fólksins en ekki aðalsins. Aðr- ir, einkum fólk sem komið var vel yfir fertugt og þaðan af eldra, voru einkar ósáttir við ástandið í höll- inni og sögðu allt stefna í að næsta drottning Noregs yrði undirheima- drottning sem þjóðin gæti á engan hátt sætt sig við. Það er stór dagur í Noregi í dag. Hákon Magnús Haraldsson gengur upp að altarinu í Dómkirkjunni í Ósló til kvongast sinni heittelskuðu, Mette-Marit Tjessem Höiby, einstæðri móður frá Kristiansand. Flestir Norömenn gleðjast með krónprinsinum og brúði hans en þó er langt frá því að allir séu með sól í hjarta. Tilvonandi drottning er nefnilega ekki með blátt blóð í æðum, frekar en Sonja, núverandi drottning. Brúðkaupið: Prinsinn giftist einstæðri móður - Mette-Marit Tjessem Höiby gengur að eiga Hákon Magnús Haraldsson ríkisarfa Hingaö og ekkl lengra Þegar Hákon og Mette-Marit birt- ust svo á sjónvarpsskjánum síðast- liðinn vetur og opinberuðu trúlofun sína keyrði hin neikvæða umræða um þverbak. Nú fannst mörgum nóg komið af því góða og heimtuðu að Haraldur kóngur tæki í taumana. Samkvæmt norskum lögum getur rikisarfinn ekki fest ráð sitt nema konungurinn samþykki ráðahag- inn. Og til eru þeir, m.a. aldnir stjórnmálamenn og fyrrverandi for- sætisráðherra, sem óskuðu eftir umræðum á stórþinginu um ráða- hag prinsins. í þeirri stöðu sem upp var komin í höllinni var bent á að konungurinn væri skyldugur til að leita ráða hjá hinum unga forsætis- ráðherrra, Jens Stoltenberg, um hvort samband prinsins við undir- heimadrottninguna væri þjóðinni samboðin. Forsætisráðherrann er nefnilega sá sem á síðasta orðið um hjónaband ríkisarfans. Nafnið, Mette-Marit, var meira að segja talið henni til vansa því ekkert drottningarlegt væri við það. Raddir urðu nú háværari en nokkru sinni áður um aö tímabært væri aö leggja konungdæmið niöur og gera landið að lýðveldi. Það var ekki eingöngu sauðsvart- ur almúginn sem lýsti vanþóknun sinni á vali Hákonar prins á lífs- fórunauti sínum. Ragnhildur prinsessa, systir Haralds konungs, lýsti í viðtali efasemdum sínum um ráðahag frænda síns og taldi hann ekki konungsríkinu til framdráttar. Meira að segja Sonja drottning, móðir Hákonar, sagði í viðtali sl. miðvikudag að í upphafi, áður en hún kynntist „fröken Höiby“ per- sónulega, hefði andrúmsloftið í höll- inni við Drammensveien 1 verið veriö ansi þvingað. Hún leyndi því aldrei að hún var ekki í hópi þeirra sem samglöddust syni hennar. Kóngurinn var öllu jákvæðari því hann var algerlega hlutlaus og sýndi frjálslyndi sitt í verki með því að benda á rétt einstaklingsins til að velja sér lífsförunaut. í stað þess að búa í höllinni, eða á konungssetrinu í Asker, kaus Há- kon að leigja sér íbúð í miðborg Óslóar. Það voru hæg heimatökin á leigumarkaðinum því prinsessan, systir hans, Marta Louísa, sem ætíð hefur verið mesti stuðningsmaður prinsins, átti ágætis íbúö á Ul- IÞad spurðist líka fljótt út að þrátt jyrir fag- urt útlit vœri Mette- Marit sjálf ekkert annað en úlfur í sauðargœru. Hún var þekkt x undirheimun- um, stundaði svoköll- uð reif-partí af mikl- um dugnaði og bruddi E-töflur eins og ferm- ingarbömin tópas. levaalsveginum sem hún vildi gjarnan leigja bróður sínum og unn- ustu hans. Þar búa þau nú. Öskubuska Ijóslifandi í dag endurlifir norska þjóðin æv- intýrið um Öskubusku. Því lengra sem liðið hefur á árið 2001 hefur Mette-Marit Tjessem Höiby orðið vinsælli meðal þjóðar sinnar. Hún hefur lært að semja sig aö siðum hirðarinnar sýndi glæsileika sinn á svölum hallarinnar á þjóðhátíðar- daginn, 17. maí, þar sem hún stóð í fjóra klukkutíma og veifaði til þegn- anna sem gengu fram hjá og hylltu konungsfjölskylduna. Þó urðu nokkrir til að gagnrýna hatt hennar sem þótti skýla of miklu af andlit- inu og eins þótti hún ekki eins lipur í hægri úlnliðnum og drottningin í veifinu. Mette-Marit hefur líka náð hylli tengdamóður sinnar sem nú segir hana hið besta konuefni til handa Hákoni. Þá hefur Maríus litli unnið stóran hlut í hjarta drottningarinn- ar, sem og konungsfjölskyldunnar allrar. Er skemmst að minnast þess að á köldu vetrarkvöldi sl. vetur horfði þjóðin tárvot á drottningu sína leika við litla drenginn á ís- bjarnarfeldinum framan við arininn í vetrarbústað konungsins. Aðrir í ijölskyldunni horfðu brosandi á for- vitið barnið hlýða drottningunni yfir bjamdýrafræðina. Strax í morgunsárið er búist við því að fólk streymi í hundruðþús- undatali niður í miðbæ til að fagna og í þeirri von að sjá brúðarparið aka eftir Karls Jóhannsgötu á leið frá dómkirkjunni til hallarinnar eft- ir að biskupinn í Ósló, Gunnar Stálseth, hefur gefið parið saman. Mette-Marit hefur unnið hylli langstærsta hluta norsku þjóðarinn- ar með glæsilegri framkomu sinni. Ekkert í fari prinsessunnar er þjóð- inni óviðkomandi og síðustu daga hefur umræðan um brúðarkjól prinsessunnar verið fólki töm á tungu. Ekkert er nógu fint handa Mette-Marit í dag. Þá verður kátt í höllinni Síðdegis verður svo brúðkaups- veislan i nýuppgerðum sölum hall- arinnar sem meðal annars skarta listaverkum frá íslensku þjóðinni. Veislugestir koma víða að úr heim- inum: kóngar og drottningar, prins- ar og prinsessur, furstar og furst- ynjur og að sjálfsögðu forseti vor, Ólafur Ragnar, ásamt nokkrum al- mennum borgurum sem fengið hafa sérstakt boð um að fá að taka þátt í hinni konunglegu brúðkaupsveislu. Sá gestur sem lengst beið með að til- kynna komu sína var Karl Breta- prins sem verður fulltrúi íjölskyldu sinnar. Eftir sjálfa matarveisluna verður gleðinni haldið áfram og stiginn dans langt fram eftir nóttu við undirleik konunglegrar dans- hljómsveitar. Ósló er ekki eini bærinn í Nor- egi sem skrýðist hátíðarbúningi í dag. í Kristiansand, fæðingarbæ Mette-Marit, er líka öllu tjaldað til. íbúarnir fagna því að þeir hafa eign- ast prinsessu. í tilefni brúðkaupsins hefur tíu borgurum bæjarins, völd- um af bæjarstjóranum, verið boðið til búðkaupsveislunnar til að gleðj- ast með sveitunga sínum. Þá hefur lúðrasveit barnaskólans sem prinsessan gekk í fengið boð um að leika fyrir skrúðgöngunni sem gengur á eftir vagni brúðhjónanna. Það ætti því öllum að vera ljóst orðið að norska þjóðin fagnar ríkis- arfa sínum og konuefni hans á brúð- kaupsdegi þeirra. Hákon prins og Mette-Marit, verðandi drottning, eru elskuð af þjóð sinni og það að verðleikum, svo vitnað sé í bisk- upinn í Ósló. DV, Ósló: Guðni Ölversson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.