Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001
DV
REUTER-MYND
Perluvinir í Moskvu
George Robertson, framkvæmda-
stjóri NATO, og Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti ræddu nánari tengsl
bandaiagsins og Rússa í Moskvu í
gær. Báöir eru mjög áhusasamir.
Rússar og NATO
keppast um ást-
arjátningarnar
Vladimlr Pútin Rússlandsforseti
sagöi framkvæmdastjóra NATO í
gær að Rússar heföu jafnmikinn
áhuga og bandalagið á að efla vin-
áttuböndin. Pútin sagði aftur á móti
að Rússar hefðu engan áhuga á að
ganga i NATO, né heldur vildu þeir
fá neitunarvald um starfsemi þess.
George Robertson NATO-stjóri,
sem var í Moskvu í gær til við-
ræöna við ráðamenn, sagði að
bandalagið og Rússar myndu nú
skoða breskar tillögur sem miða að
því að Rússar geti rætt ákveðna
þætti öryggismála við aðildarlönd
NATO á jafnréttisgrundvelli. Rúss-
ar hafi lengi barist fyrir þvi.
Tony Blair lofar
og prísar allt
sem evrópskt er
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, lofaði og prísaði allt sem
evrópskt er í tímamótaræðu sem
hann hélt við háskólann í Birming-
ham í gærmorgun. Hann sagði að
Bretar gætu ekki lengur setið hjá
garði og" upphófust þegar miklar
vangaveltur um að aðild að sameig-
inlegri mynt ESB væri á næsta leiti.
í ræðu sinni taldi Blair upp kosti
þess að tengjast öðrum ríkjum ESB
nánari böndum og sagði jafnframt
frá þvi sem Bretar hefðu misst af á
umliðnum áratugum.
Þótt Blair sé hrifinn af mynt-
bandalagi ESB gæti hann átt í
miklu basli með að sannfæra al-
menning sem er mjög andvígur því
að leggja niður pundið.
Hogni Hoydal
Færeyski sjálfstæöisforkólfurinn hef-
ur áhuga á bandalagi viö græn-
lensku fulltrúana á danska þinginu.
Frændur vinna
saman í þinginu
Fulltrúar Færeyinga og Græn-
lendinga á danska þinginu hafa í
hyggju að mynda formlegt bandalag
til að auka áhrif sín, meðal annars í
sj álfstj órnarmálunum.
Hogni Hoydal, sjálfstæðismála-
ráðherra Færeyja sem var kjörinn á
danska þingið í kosningunum á
þriðjudag, hefur sett sig í samband
við grænlensku fulltrúana og munu
þeir hittast í Danmörku í næstu
viku til að kanna hvort þeir geti
ekki komið sér saman um stefnu.
Annar grænlensku fulltrúanna
vill sjálfstæði Grænlands en hinn
vill áfram vera í sambandi við Dani.
Talibönum í Kunduz boðið að gefast upp:
Stuttar fréttir
Fresturinn rennur
út síðdegis í dag
Norðurbandalagið sagðist hafa
gert hlé á árásum sínum á borgina
Kunduz í norðurhluta Afganistans í
gær til að gefa talibönum sem þar
verjast meiri tíma til að gefast upp.
Árásirnar munu þó halda áfram síð-
degis í dag, hafi ekkert gerst.
„Viðræður eru í gangi. Ef þær
bera ekki árangur verða frekari
átök. En Kunduz er enn undir
stjórn talibana," sagði Abdullah
Abdullah, utanríkisráðherra Norð-
urbandalagsins, í viðtali við frétta-
mann Reuters í gær.
Bandarískar B-52 vélar héldu
áfram sprengjuárásum sínum á
Kunduz þar sem talið er að fimmtán
þúsund talibanar og erlendir víga-
menn, hliðhollir hryðjuverkamann-
inum Osama bin Laden, sitji sem
fastast.
Ýmis teikn voru á lofti i gær um
að brestir væru komnir i samstöðu
andstæðinga talibana og bárust
fréttir af deilum milli ættbálka.
REUTER-MYND
Við víglínuna
Hermaöur Noröurbandaiagsins situr
viö víglínuna í Konduz-héraöi í norö-
urhluta Afganistans.
Norðurbandalaginu hefur orðið
mjög ágengt í baráttunni við tali-
bana að undanförnu, meðal annars
vegna stöðugra loftárása Banda-
ríkjamanna sem vilja refsa talibön-
um fyrir að skjóta skjólshúsi yfir
bin Laden. Hann er grunaður um að
hafa staðið fyrir hryðjuverkaárás-
unum á Bandaríkin í september.
Stjómarerindrekar vinna nú baki
brotnu að því að undirbúa fund ætt-
bálka frá Afganistan í Bonn i Þýska-
landi á mánudag þar sem ræða á
framtíðarstjórn landsins. Talibanar
fá ekki að senda fulltrúa sína á
fundinn.
Misvísandi fréttir bárust frá
Afganistan í gær um hvar Omar,
andlegur leiðtogi talibana, væri nið-
ur kominn. Pakistanskur embættis-
maður sagði að hann hefði farið frá
Kandahar, höfuðvígi talibana, og
látið öðrum eftir stjórn þar. Af-
gönsk fréttastofa sagði aftur á móti
að hann væri enn í borginni.
REUTER-MYND
Jólasveinar kíkja í búöarglugga
Jólasveinum er ekki sama hvernig þeir klæöast, eins og dæmin sanna. Þessir tveir sveinkar sáust fyrir utan virta
herrafataverslun á Fimmtu tröö í New York í gær aö skoöa varninginn í glugganum. Hvort þeir fá hefðbundinn klæön-
aö sinn hjá Brooks-bræörum skal hins vegar ósagt látiö. Annars starfa jólasveinar þessir fyrir góðgerðarsamtök sem
leggja heimilislausum í New York og nærsveitum lið. Sjálfsagt veitir ekki af á þessum síöustu og verstu tímum.
ísraelsmenn hvattir til að
koma í veg fyrir pyntingar
Nefnd á vegum Sameinuðu þjóð-
anna sem berst gegn pyntingum
hvatti stjórnvöld í ísrael í gær til að
koma í veg fyrir pyntingar á palest-
ínskum fóngum, eins og margsinnis
hefur verið staðhæft að þau stundi.
Nefndarmennirnir, tíu óháðir sér-
fræðingar, lýstu yfir skilningi sín-
um á áhyggjum ísraelsmanna vegna
uppreisnar Palestínumanna en
sögðu jafnframt að ekkert réttlætti
pyntingar.
Palestínskur táningur lét lífið í
gær i átökum sem brutust út á Gaza
eftir útför fimm drengja sem létust
af völdum dulbúinnar sprengju Isra-
ela, að því er palstínsk stjórnvöld
halda fram.
Þá sögðu palestínskir embættis-
menn að tveir liðsmenn Fatah, sam-
taka Yassers Arafats, heföu týnt lífi
í sprengingu nærri Vesturbakka-
borginni Nablus í gær.
Rúmlega þrjátíu þúsund Palest-
REUTER-MYND
Róstur viö útför
Palestínumenn bera lík eins fimm
drengja sem ísraeiar eru sakaöir um
aö hafa myrt í flóttamannabúðunum
Khan Younis á Gaza á fimmtudag.
Til átaka kom eftir útförina í gær.
ínumenn voru við útför drengjanna
fimm, sem voru á aldrinum sjö til
fjórtán ára. Þeir voru drepnir í
Khan Younis flóttamannabúðunum
á fimmtudag. Margir hvöttu til að
piltanna yrði hefnt.
Embættismenn kröfðust þess að
alþjóðleg rannsókn yrði gerð á því
sem þeir kölluðu morð á saklausum
börnum.
Óttast er að þessi síðasta alda of-
beldis muni grafa undan tilraunum
bandarískra stjórnvalda til að koma
á vopnahléi milli Palestínumanna
og ísraela. Bandarísk sendinefnd er
væntanleg til ísraels um helgina og
hefjast viðræður á mánudag.
Binyamin Ben-Eliezer, land-
varnaráðherra ísraels, lýsti í gær
yfir hryggð sinni vegna drápsins á
drengjunum fimm á fimmtudag og
sagði aö veriö væri að kanna orsak-
ir sprengingarinnar sem varð þeim
að aldurtila.
Danir gagnrýndir enn
Anders Fogh
Rasmussen, verð-
andi forsætisráð-
herra Danmerkur,
og aðrir danskir
stjórnmálamenn
hafa mátt þola vax-
andi illt umtal í
virtum erlendum
fjölmiðlum um þingkosningarnar í
vikunni og kosningabaráttuna. Út-
lendingar hafa furðað sig á því
mikla útlendingahatri sem hefur
komið upp á yfirborðið í Danaveldi.
Ófarir Giistrup að kenna
Framfaraflokkurinn á sér ekki
neina framtíð i dönskum stjórnmál-
um, svo er stofnanda flokksins,
Mogens Glistrup, fyrir að þakka,
segir einn leiðtoga flokksins á Jót-
landi. Flokknum vegnaði mjög illa í
sveitarstjórnarkosningunum sem
voru haldnar á þriðjudag.
Milosevic ákærður enn
Saksóknarar við stríðsglæpadóm-
stólinn í Haag hafa ákært Slobodan
Milosevic, fyrrum Júgóslaviufor-
seta, fyrir þjóðarmorð í Bosníu.
Þetta er þriðja og alvarlegasta ákær-
an á hendur Milosevic.
Dæmdir fyrir smygl
Héraðsdómur í Árósum dæmdi i
gær fimm manns til fangelsisvistar
fyrir að smygla um 80 konum frá
Eystrasaltslöndunum til Danmerk-
ur til að stunda vændi.
við frostmark
Louis Michel, utan-
ríkisráðherra Belgíu,
sagði í gær að sam-
skipti Evrópusam-
bandsins við
Simbabve væru á af-
ar viðkvæmu stigi
eftir árangurslausar
viðræður sendinefnd-
ar ESB við Mugabe forseta um um-
deildan brottrekstur hvítra bænda
af jörðum sínum.
Ópíumræktendur kátir
Ópíumbændur í austurhluta
Afganistans eru kátir yfir að tali-
banar hafa verið hraktir frá völdum
því nú geta þeir aftur farið að rækta
ópíumplöntur.
Slapp með skrekkinn
Fimmtán ára dönsk skólastúlka
slapp með skrekkinn þegar hún var
sýknuð fyrir rétti í gær fyrir að
hafa af stráksskap sent vini sínum
bréf með hvítu dufti þegar miltis-
brandsfáriö stóð sem hæst.
Mál á hendur Sharon
§Sex Palestinu-
menn hafa, með vís-
an í umdeild belg-
ísk lög um stríðs-
glæpi, lagt fram
kæru á hendur
Ariel Sharon, for-
sætisráðherra ísra-
els. Palestínumenn-
irnir saka Sharon um glæpi gegn
mannkyni, að því er lögmaður
þeirra greindi frá í gær. Þetta er
þriðja svona lögsóknin á hendur
ísraelska forsætisráðherranum.
Chirac hitti Schröder
Chirac Frakklandsforseti og
Schröder Þýskalandskanslari sögðu
í gær að þeir væru staðráðnir í að
stækkun ESB til austurs færi fram
samkvæmt áætlun.
Samskipti