Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Blaðsíða 52
60
Helgarblað
LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001
DV
Fjallavinaklúbburinn Kári á Kilimanjaro:
Ungir menn á uppleiö
Það tók þá einungis fimm daga aó ganga á Kilimanjaro. „Flestir sem eitthvaö geta hreyft sig geta fariö þar uþþ.
Fjalliö er í raun skemmtilegur valkostur fyrir þá sem hafa gaman af labbi. “
Gagnlegar upplýsingar:
Á leiðinni á f jallið
Ganga á Kilimanjaro: Leiðsögu-
maður og leyfi kostar á bilinu 650-850
USD. Gott er að lesa t.d. Trekking in
East Africa (Lonely Planet).
Flúðasiglingar (River Rafting):
Nile River Explorers e-mail: raft-
ing@starcom.co.ug kostnaður er 65
USD fyrir daginn.
Ferðast um Afríku: Borgar Þor-
steinsson hjá Rover Expedition
www.roverexpedition.com. Einnig er
gott að lesa bókina East Africa (Lon-
ely Planet).
Ferðasagan í myndum á vef
fjallavinafélagsins www.mounta-
infriends.com.
Kyrrsetufólki þykir oft einkennileg
sú þörf sumra í hópi fuUorðins fólks að
verða sífellt að trampa um fjöll og fim-
indi eða aka þar um á vel útbúnum
jeppum. Og ekki nóg með það að þetta
fólk vilji helst ekki ganga í láréttu
plani, það má helst ekki ganga sama
slóðann tvisvar. Harðlínumenn í hópi
kyrrsetufólks er því ráðið frá því að
kynna sér Fjallavinafélagið Kára
(heimasíðan er www.mountainfri-
ends.com) sem hefur á þriggja ára ferli
sínum látið sig gossa niður gljúfur og
klifið Mont Blanc og Kilimanjaro auk
fjölda fjalla hér á íslandi.
Hnjúkar, vindur og landvörður
Á ferðalögum Kára hér innanlands
hefur hópurinn verið allt að fjörutíu
manns en í þeim tveimur ferðum sem
famar hafa verið út fyrir landsteinana
hafa fjórir menn borið hróður Kára:
Haraldur Teitsson, Haukur Hlíðkvist
Ómarsson, Haukur Parelíus og Skúli
Haukur Skúlason.
Þetta byrjaði allt með siglingu niður
Dimmugljúfúr í júní 1999. Heimildar-
mynd var gerð um affekið og sýnd á
Stöð 2 á nýársdag 2000. í kringum
þennan leiðangur var hóað i marga
hrausta menn sem var treystandi til að
ganga snöfurmannlega til verka.
„Þama varð til góður kjami öflugs
ferðafólks," segja félagamir, „sem varð
að Fjallavinafélaginu sem kennt er við
Kára“. Með nafninu Kári er vísað til
Kárahnjúka, vindsins „og þá spillti
ekki fyrir að nafni félagsins er Kári
Kristjánsson landvöröur." Fiallavina-
félagið er fyrst og fremst áhugamanna-
félag um íslenska náttúm og upplifun
hennar. „Þótt við höfum farið nokkrar
ferðir erlendis þá ferðumst við nú
langmest hér heima, enda löngu búnir
að sjá það að ísland er einstakt.“
Ekki erfltt fjall
Haraldur, Haukur, Haukur og Skúli
Haukur em nýlega komnir úr þriggja
vikna leiðangri til Afríku þar sem þeir
gengu meðal annars á hæsta fjall álf-
unnar, Kilimanjaro, sem margir kann-
ast eflaust við úr samfélagsfræði úr
grunnskóla. „Það hefur slatti farið
þama upp,“ segja þeir, „Agnar Kofoed-
Hansen fór þar fyrstur en síðan hafa
margir íslendingar fylgt í kjölfarið."
Venjulega tekur 7-8 daga að fara á
fjallið, allt eftir leiðarvali og formi
hvers og eins. Varðandi ferðalög til
Afríku er rétt að hafa í huga að vera
snemma á ferðinni með að panta flug
því verðið hækkar jafnt og þétt eftir
því sem dregur nær brottfór. „Við tók-
um þetta á fimm dögum til að spara
tíma og peninga," segja fjórmenning-
amir ansi brattir, „og Haraldur öm
kom svo sömu leið og við stuttu siðar.
Þá vomm við að skoða dýralífið."
Göngumennimir lentu ekki í nein-
um háska í ferðinni sem orð er á ger-
Eitt leiöir af ööru
Þegar einum toþþi er náö er hugaö aö
þeim næsta. „ Viö vorum ekki fyrr lent-
ir I Afríku en fariö var aö plana næstu
ferö sem verður til Suöur-Ameríku. Um
leiö og maöur nær einhveiju markmiöi
veröur annað aö koma í staöinn. “
andi. „Kilimanjaro er ekki erfitt fjall,"
segja þeir. „Flestir sem eitthvað geta
hreyft sig geta farið þar upp. Fjallið er
í raun skemmtilegur valkostur fyrir þá
sem hafa gaman af labbi. Margir sem
ganga á fjallið drífa sig heim þegar nið-
ur er komið en það er upplifunin af
Afríku sem stendur eftir þegar ferð-
inni er lokið, miklu frekar en þetta
blessaða fjall."
Górillur og hermenn
Islendingar virðast vera alls staðar
á jarðarkringlunni. Og það á líka við
t nánd viö górillur
Dýralífiö er aö mati þeirra þaö eftirminnilegasta úr feröinni. Þeir fóru meöal
annars inn í hiö stríöshrjáöa land Rúanda til aö komast í tæri viö fjallagórill-
ur. Þar fóru þeir upp í fjöllin í fylgd vopnaöra hérmanna því skógarnir
eru morandi í skæruliöum.
Magnaö útsýni
Útsýniö af Kilimanjaro var
engu líkt.
um rætur Kilimanjaro því þar fundu
fjórmenningarnir íslendinginn Borgar
Þorsteinsson sem stendur fyrir Rover
Expeditions (www.roverex-
peditions.com) og segja þeir hann hafa
gert ferðina eftirminnilegri en ella.
„Borgar hefur búið í Afríku í nokkur
... með þessum ósköpum
gerðir
Og af hverju em menn að þessu?
„Jú,“ segja þeir, „maður verður að
hafa einhver verkefni; eitthvað til að
hella sér út í. Við vorum ekki fyrr lent-
ir í Afríku en farið var að plana næstu
ferð sem verður til Suður-Ameríku.
Um leið og maður nær einhverju
markmiði verður annað að koma í
staðinn." Og það verður ekki aftur
snúið, þeir verða að uppgötva eitthvað
nýtt og takast á við stærri verkefni.
„Við verðum að sætta okkur við að
vera með þessum ósköpum gerðir og
lifa samkvæmt því.“ -sm
Á toppnum
Þaö tók félagana fimm daga að komast á topþ Kilimanjaro.
ár. Hann rúntar með túrista eins og
þeir séu ekki túristar. Hann veit af
ótrúlegustu stöðum sem manni hefði
aldrei dottið í hug að fara á. Við vor-
um mjög heppnir að kynnast þeim
manni.“
Dýralifið er aö mati þeirra það eftir-
minnilegasta úr ferðinni. Þeir komust
meðal annars á einkalandareign þar
sem túristum er boðið að aka í gegn og
horfa á dýrin úr bílum sínum. Fyrir
tilstilli Borgars varð fór þeirra frá-
brugðin fór annarra ferðamanna því
þeir fengu að gista i garðinum innan
um ljón, hýenur og fleiri þarlendar
dýrategundir og fara í nætursafarí
uppi á þaki Land Roversins með kast-
ara, sem var stórkostleg upplifun.
Þeir fóru einnig inn í hið striðs-
hrjáða land Rúanda til að komast í
tæri við fjallagórillur. Þar fóru þeir
upp í fjöllin í fylgd vopnaðra her-
manna því skógamir eru morandi í
skæruliðum. „Það voru hermenn alls
staðar, maður leit aldrei svo í kringum
sig að maður sæi ekki hermann."
Adrenalínflæðið náði þó hámarki í
flúðasiglingu niður upptök Nflar við
Viktoríuvatn í Úganda. „Það var hrein
gleði að rafta þama niður. Áin er svo
hlý, djúp og vatnsmikil að það var eng-
in hætta þótt við værum oftar úr bátn-
um en í honum. Fyrir adrenalínfíkla
er þetta jú eitt af aðalsmerkjum flúða-
siglinga, við fórum í gegnum fjórar
flúðir sem era af stærðargráðunni 5 en
til gamans má geta að Hvítá er af
stærðargráðunni 2 og Jökulsá eystri
3.“ Á þessum stað ætlar Úgandastjóm
að virkja og því stefhir allt í að allar
helstu flúðimar og fjörið hverfi í upp-
stöðulón og því er hver að verða síðast-
ur að flúðasigla upptök Nílar. „Þetta er
einkennileg árátta stjómvalda, hvort
sem er í Afríku eða á íslandi, að reyna
drekkja náttúraperlum fyrir kílóvött í
stað þess að horfa til ferðamanna.“
Kilimanjaro er
ekki erfitt fjall