Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Blaðsíða 67

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Blaðsíða 67
75 * 'r LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 DV Helgarblað Jólarósir Snuðru og Tuðru frumsýndar á morgun: Góðar inn við beinið Mýkt og harka Nú stendur yfir sýning Ásu Bjarkar Ólafs- dóttur, myndlist- armanns og guö- fræðinema, á lág- myndum í safn- aðarheimili Laugarnes- kirkju. Ása Björk vinnur með mýkt og hörku sem kemur fram í efnisnotkun ann- ars vegar og formi hins vegar. Þar kallast á harka lögmálsins og mildi fagnaðarerindisins. Verkin eru öll ný og unnin í steypu og marmara- steypu. Safnaðarheimilið er opið þriðjudaga-föstudaga kl. 9-14 og sunnudaga kl. 11-13 og sýningin stendur út nóvember. Óður til Margir íslenskir krakkar þekkja þær Snuðru og Tuðru. Þær eru sögupersónur í bráðskemmtilegum bókum Iðunnar Steinsdóttur og svo hafa þær víða stungið sér inn í skólastofur á undanförnum árum og sést á sjónvarpsskjánum í með- förum Möguleikhússins. Nú eru þær heldur betur komnar í jóla- stuð því á morgun, sunnudag, ætl- ar Möguleikhúsið aö frumsýna nýtt verk, Jólarósir Snuðru og Tuðru í húsakynnum sínum við Hlemm. í framhaldi af því verður flakkað með sýninguna um borg og bý. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson og höfundur handrits og söngtexta er Pétur Eggerz en tónlist er eftir Vilhjálm Guðjónsson. Óþekktin borgar sig ekki „Eins og við er að búast gengur jólahaldið ekki alveg snurðulaust þar sem þær Snuðra og Tuðra eru annars vegar. Þær eru nefnilega óþekktarormar. Það vill þó Ingi- björg Stefánsdóttir, sem leikur Tuðru, ekki alveg skrifa undir. „Þetta eru skemmtilegar stelpur en dálítið uppátækjasamar." segir hún. „Já, og góðar inn við beinið,“ bætir Lára Sveinsdóttir við. Hún er Snuðra í leikritinu. Eruð þær nokkuð að kenna krökkum að vera óþekk? „Nei, þær gera mistökin fyrir þau, því þær sjá eftir uppátækjun- um. Þannig læra böm að óþekktin borgar sig ekki,“ segir Ingibjörg og Lára tekur undir það: „Með sínum prakkarastrikum lenda þær nefni- lega i vandræðum og það er tals- verður lærdómur í því. Síðan koma þeir eldri líka fram og leggja lífsreglur,“ segir hún. Bjarni leik- stjóri leggur sitt til málanna í þessari umræðu: „Fjörugir krakk- ar em líka stundum stimplaðir sem óþekkir. Ég hef trú á að flest böm sjái einhver element í þessu verki sem þau kannast við. Þær æfingar sem við höfum haft fyrir börn hafa að minnsta kosti fallið vel i kramið.“ Eiginlega maraþon Ingibjörg kveðst hafa kynnst Tuðru f öðru leikriti, en Lára er að byrja leikaraferilinn, enda útskrif- aðist hún síðastliðið vor. „Þetta er fyrsta stóra verkefni mitt, „segir hún og kveðst afar hamingjusöm með það. Þær tvær bregða sér líka í hlutverk mömmunnar og pabbans og Theodóru í næsta húsi og það eru hraðar skiptingar milli karaktera. „Þetta er eiginlega maraþon, enda erum við bullsveitt- ar þegar sýningunni lýkur,“ segja þær hlæjandi. -Gun. Komnar í jólastub Snuöra og Tuöra lenda í ýmsum vandræöum meö sínum prakkarastrikum. DV-MYND E.ÖL. Glerlist í Gallerí Reykjavík Listakonan Ebba Júlíana Lárus- dóttir opnar stuttsýningu í Gallerí Reykjavík í dag. Hún hefur lagt stund á glerlist frá árinu 1988 og lærði glerbræðslu hjá Chris Ellis og glerblástur í Portland press studio í Texas. Hún hefur haldið einka- og samsýningar, hér heima og erlendis og verk hennar prýða fjölmargar stofnanir, svo sem Ráðherrabústað- inn í Reykjavík, Sparisjóð Hafnar- fjarðar í Garðabæ og Miðskólann í Stykkishólmi. Verk hennar eru að- allega unnin úr flotgleri. friðar Listakonurnar Kuregej Alex- andra og Ingibjörg Hjartardóttir hafa opnað sýningu í Listasal Man, Skólavörðustíg 14. Hún ber yfír- skriftina Biðjum fyrir friði og er óöur listakvennanna til friðar í heiminum á viðsjárverðum tímum. Kuregej sýnir application mynd- verk og Ingibjörg glerlistaverk. Myndverkið sem hér sést er eftir Kuregej og heitir Hvers vegna? Und- irtitill þess er sóttur í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar á rúss- nesku ljóði: „Ó móðir, móðir, móðir, til hvers fæddist ég?“ Sérsmíðaðir sturtuklefar Áttu I vandræðum að fá sturtuklefa í baðherbergið. Smíðum sturtuhurðir og skilrúm eftir þínum þörfum. Kynningarborð Borð fyrir vörukynningar. Hægt að brjóta saman. Létt og þægilegt í flutningi Innréttingar í verslanir Verslunarinnréttingar úr áli og gleri, smíðaðar eftir máli Háborg ÁL OG PLAST Skútuvogi 6 Sími 568-7898 Fax 568-0380 Lítil og nett, rtkulega myndskreytt. ...frábær gjöf undir koddann á aðfangadagskvöld! (sendum í póstkröfu) JPV UTGAFA Bræðraborgarstlg 7 • 101 Reykjavlk • Slmi 575 5600 • ]pv@jpv.ls
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.