Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Blaðsíða 57
LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001
DV
65
Helgarblað
Magnús Leifur blæs og blæs
Þetta er enginn annar en leiötogi Úlpumanna, Magnús Leifur, sem þarna blæs af lítiö minni krafti en úlfurinn í
sögunni um grísina þrjá. Magnús er maöur vart einhamur í hljóöfæraleik því hann er enn fremur gítarleikari og
söngvari hljómsveitarinnar.
Kynnisferð til Bandaríkjanna
á vegum RÓTARÝ
Auglýst er eftir umsóknum um þátttöku í
kynnisferð starfandi fólks á aldrinum 25-40 ára.
Ferðir og uppihald eru þátttakendum að
kostnaðarlausu.
Um er að ræða fjögurra vikna ferð um Kaliforníu
á tímabilinu 1. til 30. apríl 2002. Þátttakendur
verða fjórir karlar og/eða konur sem unnið hafa
í viðurkenndum starfsgreinum í a.m.k. 2 ár. Þeir
mega ekki vera rótarýfélagar, makar,
afkomendur eða makar afkomenda lifandi
rótarýfélaga. Með hópnum fer fararstjóri sem
er reyndur rótarýfélagi.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást
hjá formanni starfshópaskiptanefndar Rótarý,
Snorra Þorsteinssyni, í síma 437-1526 og á
skrifstofu Rótarýumdæmisins
á íslandi í síma 568-2233 f.h.
Umsóknum skal skilað til
rótarýklúbbs á því svæði
sem umsækjandi býr fyrir
14. desember 2001.
Rótarýumdæmið
Úlpurnar blakta við
Austurvöll
Hljómsveitin Úlpa hélt útgáfutón-
leika sína á hinum nýja skemmti-
staö Nasa viö Austurvöll. Fjölmenni
hlýddi á leik piltanna og var gerður
góður rómur að frammistöðu þeirra
en áheyrendur léku við hvurn sinn
fingur og sá ekki vín á nokkrum
manni heldur sveif fólskvalaus gleði
og tónlistarást yfir vötnunum.
Þeir lágu flatir
Áheyrendur tóku leik Úipunnar af
fölskvalausri gleöi og eins og sjá
má kippti leikur sveitarinnar ger-
samlega fótunum undan áheyrend-
um sem lágu flatir af hrifningu.
Sætar stelpur á Úlpu
Popparar njóta kvenhylli fram yfir þaö sem gerist og gengur og Úlpumenn
er þar engin undantekning ef marka má þessar fögru blómarósir sem
uröu á vegi Ijósmyndara DV á tónleikunum.
Madonna:
Rekur
og
ræður
Madonna virðist hafa áttað sig á
því að hún getur ekki verið án fjöl-
miðlafulltrúans síns. Sú sem hafði
gegnt því embætti árum saman er
Liz Rosenberg, en hún hætti að
vinna fyrir goðið fyrir nokkrum
mánuðum. Marga grunaði að Liz
þessi hefði verið rekin vegna þess
að Madonnu hefði ekki þótt hún
sinna starfi sínu nægilega vel. Þetta
var nefnilega á þeim tíma sem fjöl-
miðlar veltu sér mikið upp úr
kjaftasögum um hjónabandsvand-
ræði söngkonunnar og Guy Ritchie.
Liz sagði auðvitað sjálf að hún heföi
alls ekki verið rekin heldur hefðu
atburðirnir 11. september orðið til
þess að hún hefði „endurskoðað líf
sitt“ og ákveðið að segja starfl sínu
lausu. Slúðurpressan leggur ekki
mikinn trúnað á orð Liz vegna þess
að oft hefur hún orðið uppvís að lyg-
um í starfi sínu. Til að mynda laug
hún blákalt að Madonna væri alls
ekki ólétt og alls ekki á leiðinni að
gifta sig þegar hvort tveggja reynd-
ist svo vera raunin.
Madonna
Fjölmiölafulltrúi hennar nýtur ekki
mikils trausts blaöamanna
Um þessar mundir eru að koma
út tvær bækur um söngkonuna
frægu og hefur Liz verið endurráð-
in. Er önnur þeirra eftir hinn ill-
ræmda Andrew Morton svo að öll-
um líkindurh hefur Madonna áttað
sig á því að hún þarfnast hjálpar til
að glíma við fjölmiðlana. Liz segir
hins vegar að hún sé „ekki lengur í
uppnámi" og bætir við „saman höf-
um viö gengið í gegnum súrt og sætt
- ég elska þessa stelpu!" en slúöur-
pressan virðist vera ákveðin í að
trúa ekki orði af því sem hún segir.
Steven Spielberg:
Hreinsar
blótsyrði
úr ET
Leikstjórinn
Steven Spiel-
berg hefur
löngu náð þeirri
stöðu að hann
má gera nánast
það sem honum
dettur í hug.
Spielberg hefur
nú endurútgeflð
einhverja vin-
sælustu mynd
allra tíma sem
hann reyndar
gerði sjálfur og
heitir ET eins og
glöggir lesendur
hafa eflaust þeg- ______
ar rifjað upp.
Það er ekki víst að öllum líki það
vel en Spielberg tók sér það bessaleyfi
að hreinsa myndina svolítið. Hreins-
unin fólst í því að þurrka út nokkrar
byssur sem sáust í myndinni og kæfa
nokkur blótsyrði sem flutu með í upp-
runalegu útgáfunni en þykja í dag
vera of mikið af því góða.
Þetta fmnst hreinlífismönnum
vera fólsun af verstu sort þar sem
þetta sé ekki lengur það listaverk sem
það upphaflega var. Þeir líkja þessu
við að breyta um lit á verkum málara
eða leiörétta orðalag frægra ljóða.
Steven
Splelberg
Hann hefur endur-
útgefiö hina frægu
kvikmynd ET og
hreinsaö hana í
leiöinni.
Pizzur eins
og
eiga að( , .
Æ
---;—
ÞÚ VEluR UM IdElqARNÁMskEÍð
eÖa NÁMskEið kENNd viRk kvötd
KennsIuáætIun í NÓVEMÓER:
5.-4.NOV. ökuskóli 2 (klElqARNÁMskEÍð)
5-8.nov. ökuskóti 1 (vÍRk kvöld)
24.-2 5.nov. ökuskóli 1 (tiElqARNÁMskEið)
26.-29.nov. ökuskóli 2 (vÍRk kvötd)
AllÍR NEMENÓUR ÖkuskólANS SÆkjA UMÍERðARÍUNdi ItjÁ
SEM l)AÍA skiUð 26% ÍÆqRÍ slySATÍðNÍ UNdANÍARÍN ÁR
EÍTÍRTAldÍR ökukENNARAR MæIa MEð
ÖkuskólANUM,SuðuRlANdsbRAUT 6.
EqqERT V. ÞoRkflssoN 895 4744
Davíö ÓUfssoN 8957181
Björn RAqNARSsoN 5 57 8406
Lúðvík EiðssoN 894 4444
Jónas Traustason 892 8582
VaWímar Jónsson 894 145 5
Pétur HAllqRÍMSsoN 897 1250
JóItann Davíösson 897 7419
NjÁll CuNNtAuqssoN 898 5225
SiquRjÓN BjARNAsoN 897 1595
VeI MENNTAÖÍR oq ÁNÆqðÍR ökuMENN ERU okkAR MARkMÍð