Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________X>V
Helgi Ellertsson léttist um rúm áttatíu kíló á einu ári:
DV-MYNDIR E.
Reif sig upp úr sófanum
Þaö þarf mikiö átak til aö rífa 180 kílóa líkama upp úr sófanum og
breyta um lífsstíl. „Þetta var spurningin um aö drepast eöa ekki,“ segir
Helgi Ellertsson sem á rúmu árí hefur losaö sig viö 85 kíló.
Hlaupið á Esjuna
Eftir tveggja mánaöa veru á
Reykjalundi, þar sem Helgi hafði
náð mjög góðum árangri, leitaði
hann til Elíasar Níelssonar, einka-
þjálfara á heilsuræktarstöðinni í
toppformi, þar sem hann þjálfar
fimm til sex sinnum í viku i um 90
mínútur í senn. „Fyrstu mánuðina
byrjaði ég á því að ganga en eftir
því sem leið á þjálfunaráætlunina
blandaði ég styrktarþjálfun meira
inn í. í dag geng ég í um 60 mínútur
og lyfti í 30 mínútur. Ég fer vikulega
upp á Reykjalund í vigtun og þaö
hefur veitt mér mikið aðhald.“
Helgi hefur lengi haft mikið dá-
læti á fluguveiði. „I dag nýt ég þess
að þramma um móa og mýrlendi í
leit að góðum veiöistöðum i stað
þess að standa á öndinni í orðsins
fyllstu merkingu. Einnig hefur mér
opnast sá möguleiki að stunda fjall-
göngu og hef gengið á fellin í kring-
um Mosfellsbæ og fyrir skemmstu
gekk ég með Elíasi á Esjuna á inn-
an við klukkutíma. Sú ferð var hluti
af þeim markmiðum sem ég setti
mér í desember á síðasta ári.“
Meira vatn, meiri hreyfing
Helgi starfar sem trésmiður. „Ég
vakna rúmlega sex á morgnana og
er mættur í vinnu um sjö og skipu-
legg daginn," segir Helgi. „Vinnu-
dagurinn er langur og erilsamur og
reynir mjög á mig líkamlega og and-
lega.“
Dæmigerður matseðill hjá Helga
er jógúrt eða skyr í morgunmat,
ávextir klukkan tíu, jógúrt í hádeg-
inu, ávextir í kaffinu og í kvöldmat
er heit máltíð, kjúklingur eða fiskur
með miklu grænmeti. Helgi leggur
einnig sérstaka áherslu á mikilvægi
hvildarinnar í þeim árangri sem
hann hefur náð.
Helgi hefur gert meðvitaðar
breytingar á daglegu lífi sínu og fel-
ast þær meðal annars í því að hann
leggur lengra frá búðum í stað þess
að keyra hring eftir hring í leit að
stæði nálægt inngangi, hann drekk-
ur mun meira af vatni og lítur öðr-
um augum á heilsurækt. „Nú les ég
utan á umbúðir við kaup á matvæl-
um en áður kastaði ég hverju sem
var í innkaupakörfuna."
Nóvember 2001
Helgi viö æfingar í heilsuræktarstööinni í toppformi þar sem hann hefur æft síöustu misserin.
Léttari líkamlega
og andlega
„Þetta var spurningin um að
drepast eða ekki,“ segir Helgi Ell-
ertsson sem 1. október 2000 stóð á
vigtinni á Vífilsstöðum og horfði á
töluna 180 kg. Fjórtán mánuðum
og 85 kílóum síðar hitti ég Helga
ásamt einkaþjálfara sínum, Elíasi
Níelssyni, í Toppformi í íþróttmið-
stöðinni við Varmá I Mosfellsbæ.
Á sama tíma hefur fituprósenta
hans lækkað úr 46% í 26% og er
enn á hraðri niðurleiö. Lif Helga
hefur því breyst talsvert. hann er
léttari i spori og í anda.
Bjórinn eina nautnin
Helgi er 42 ára og býr með 18 ára
gömlum syni sínum í Mosfellsbæ.
Hann hafði áður farið í megrun og
tók þá af sér 50 kíló. „Fljótlega
bætti ég svo aftur á mig 80 kíló-
um,“ segir Helgi. „En í dag er ég
ekki í megrun. Ég hef breytt um
lífsstíl og því er allt önnur hugsjón
á bak við þær breytingar sem ég
hef gert á mataræði mínu og hreyf-
ingu.
1. október í fyrra var ég vægast
sagt illa á mig kominn. Ég hafði átt
við kæfisvefn að stríða og leitaði
hjálpar á Vífilsstöðum. Það sem
einkennir kæfisvefn er stöðvun
öndunar, hrotur, órólegur svefn,
sviti og martraðir. Á Vífilsstöðum
var mér gerð grein fyrir þvi að
annaðhvort tæki ég á í mínum
málum eða leiðin í gröfina styttist
verulega. Þá lá leið mín á Reykja-
lund og má segja að þar hafi ég
fundið leið til að sigrast á vanda-
málinu. í stað þess að fara í hefð-
bundna megrun breytti ég matar-
venjum mínum. Ég er nú mjög
meðvitaður um þann fjölda hita-
eininga sem ég innbyrði og það
sem meira er, ég veit lika hversu
mikið ég þarf að hreyfa mig til að
brenna þeim.“
Helgi skipuleggur vikuna bæði
hvað varðar mataræöi og hreyf-
ingu. „Ég útbý matinn fyrir daginn
kvöldið áður og minnka þannig
líkurnar á því að ég þurfi að grípa
i einhvern bita sem gæti sprengt
þann hitaeiningafjölda sem ég set
mörkin við.“
Mörk Helga eru 1.800-2.200 hita-
einingar á dag en áður var hann að
innbyrða 6-7.000 hitaeiningar á degi
hverjum.
„Það eina hitaeiningarika sem ég
leyfi mér í dag er bjór,“ segir Helgi,
„en ég beiti hálfgerðu bónuskerfi
við heimilisstörfin í staðinn: Ef ég
ætla að fá mér bjór þríf ég húsið,
þvæ bílinn eða slæ garðinn. Húsið,
garðurinn og bílinn hafa aldrei litið
jafn vel út og núna!“
Agúst 2000
Helgi Ellertsson á leiöinni á
Wembley í ágúst 2000 áöur en
hann leitaöi aöstoöar á Vífilsstöö-
um vegna kæfisvefns.
Saman í stríöinu
Elías Níelsson hefur veriö
einkaþjálfari Helga og stutt hann í
breyttum lifnaöarháttum. Þess má
geta aö Elías er nálægt þeim kílóa-
fjölda sem Helgi er búinn að losna
viö á undanförnu ári.
Bætir lífi í árin
Eins og hefur komið fram þá
reyndi Helgi fyrir nokkrum árum
að léttast en hafði ekki erindi sem
erfiði. „Ég hafði ekki búið mig and-
lega undir þann aga og erfiði sem
fylgir því að rífa 180 kílóa líkama
upp úr sófanum og fara að stunda
likamsrækt. Enda fór það svo að ég
bætti á mig allri þeirri þyngd sem
ég hafði tapað og rúmlega það. í dag
haga ég hlutum á annan veg. Ég
skipulegg og set mér markmið fyrir
mataræði og þjálfun. Ég gef mér
tíma frá vinnu til að stunda æfingar
og tómstundir en það gerði ég ekki
áður. En umfram allt nýt ég þess að
vera til og tek einn dag og eitt skref
í einu í áttina að takmarkinu."
Helgi og Elías, þjálfari hans, eru
sammála um að í breytingar á
mataræði þurfi að vera varanlegar
og skyndilausnir og megrunarkúrar
séu fjarri því að vera góð lausn. Sér-
staklega vara þeir við því að taka
fitu, kolvetni eða prótín eitt og sér
út úr mataræðinu, en það er vinsælt
í ýmsum kúrum um þessar mundir.
Og kjörorð félaganna eru skýr:
„Þjálfun bætir árum við lífið og lífi
í árin.“ -sm