Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Blaðsíða 19
19 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 1>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað Elskhugar á ströndinni Jón Laxdal leikari og Vaclav Jaros ballettdansari á ströndinni viö Warnemunde í mars 1961. Jón er búsettur í Sviss þar sem hann rékur sitt eigið leikhús. Hann býr í undarlegri stórfjölskyldu því hann er elskhugi tengdaföður síns, œtt- leiddi barnabarn hans og nú er sonur í vœndum. máli en árið 1961 kynntist hann tékkneskum ballettdansara, Vaclav Jaros, sem starfaði við Ríkisleik- húsið í Rostock í Austur-Þýska- landi. Með þeim tókust góðar ástir en leiðir skildu þegar austur-þýsk yfirvöld ráku Vaclav úr landi og aft- ur heim til Tékklands þar sem hann var hnepptur í fangelsi. Þeir félagar og elskhugar hittust ekki aftur fyrr en 1964 þegar Jón Laxdal ferðaðist til Tékklands. Þá varð honum það nokkurt áfall að komast að því að Vaclav var kvænt- ur og átti litla dóttur, Katerinu að nafni. Þeir tóku þó aftur upp samband sitt og Vaclav flutti vestur fyrir járntjald og fékk að lokum samning við óperuna í Zúrich þar sem Jón starfaði við Schauspielhaus. Svo líður tíminn og 1985 eignast Jón Laxdal sitt eigið leikhús í Kaiserstuhl í Sviss og þar búa þeir saman, hann og Vaclav, í sátt og samlyndi en Vaclav lagði ballett- skóna á hilluna eftir slys á fæti. Öldruð móðir hans ílutti til þeirra frá Tékklandi og lést á heimili þeirra. Ekki einföld fjölskylda Það næsta sem gerist í sögu þess- arar litlu en sérstæðu fjölskyldu er að Katerina, dóttir Vaclavs, leitar ásjár föður síns en lítið samband hafði verið milli þeirra feðgina eftir að Vaclav hvarf úr landi og skildi við eiginkonu sína. Hún var fangi í óhamingjusömu hjónabandi í Tékk- landi og vildi gjarnan komast til Sviss. Hún flýði því að lokum til Vaclavs og Jóns með unga dóttur sína, Katerinku og dvaldi á heimili þeirra nokkur misseri þar til skiln- aður var um garð genginn. En hvað gerðist svo? Látum Jón segja frá: „Samkvæmt svissneskum lögum er útlendingum óheimill aðgangur að vinnumarkaðnum, auk þess sem dvalarleyfisheimildir eru takmark- aðar. Það kom sér vel að ég var ókvæntur svo ég bað um hönd Ka- terinu og ættleiddi dótturina. Þarna vorum við nú öll orðin ein fjöl- skylda og Vaclav, lífsforunautur minn, orðinn tengdafaðir minn, dótturdóttir hans orðin dóttir mín. Svona flókin fjölskyldumál þættu lygileg í skáldsögu en svona er nú veruleikinn stundum. Mér féll strax sérlega vel við Ka- terinu, þessa fögru, kyrrlátu konu sem geislar af greind og innri reisn og átti að baki hrikalegan hreinsun- areld en átti þó annað skilið. Ég vildi bæta henni upp það and- streymi sem hún hafði orðið að þola í 25 ár. Þetta hefur allt tekist farsæl- Feögarnir Jón Laxdai eldri með son sinn og nafna, 15 mánaöa aö aldri. lega enginn vegur, fyrr en nú að við blasir sú ánægjulega staðreynd að samkvæmt ósk okkar allra er Kater- ina þunguð og við hlökkum öll gíf- urlega til þegar barn hennar og Jóns fæðist. Við vitum að það verð- ur drengur og hann verður sonur okkar allra. Við spilum nú þegar fyrir hann Mozart og vögguljóð og það er eins og hann bíði eftir sinni aftantónlist því ef þetta dregst fer hann að ókyrrast á sínum stað og róast ekki fyrr en tónlistin hljómar og nær til hans.“ Eins og nærri má geta hefur þessi fjölskyldumynd vakið nokkurt um- tal i hinu strangkatólska þorpi Kaiserstuhl sem í eru aðeins 400 íbúar svo þar þekkja allir næstum alla. Um þetta segir Vaclav að lok- um: „Guð minn góður og barn í vænd- um, hvílíkt og annað eins. Það var svo sem nógu slæmt fyrir, tveir menn og ein kona, svei bara. En hví skyldum við ergja okkur yfir skoðunum annarra sem velta vöngum yfir okkar einkamálum? Við þrjú fórum óvenjulegar leiðir, ekki tilneydd heldur af því að við viljum það og látum ekki þvinga okkur til eins né neins. Við höfum orðið að þola sitthvað, við höfum fengið bréf, jafnvel borist hótanir. Slíkt hefur engin áhrif á okkar elskulega fjölskyldulíf, við göngum okkar veg, troðum engum um tær og kássumst ekki upp á annarra jússur." lega, feðginakærleikurinn er mikill og gagnkvæm ást hennar og þeirrar litlu er einlæg og yndisleg. Stundum sitja feðginin uppi heilu næturnar og spjalla saman á tékknesku. Þau bera saman minningar sínar og reynslu frá þeim tíma sem þau voru aðskilin. Á meðan leik ég mér við þá litlu, sólargeislann minn. Ég tel mig standa mig bara vel í föðurhlut- verkinu og ég er stoltur af því. Við vinnum sameiginlega og af fullum skilningi á því að hér er ver- ið að byggja upp nýjan, kannski heldur óvenjulegan fjölskyldu- kjarna. En fyrir utan einkalífið, sem er í dag í þeim farvegi sem ég heit- ast gæti óskað mér, vinnum við saman að fjölskyldurekna leikhús- inu okkar. Katerina tekur á móti gestunum og vísar þeim til sætis. Vaclav er með lítinn bar svo fólk geti fengið sér hressingu og sú litla er búin að vera stórleikkona siðan hún var 5 ára gömul. Fyrsta hlut- verkið hennar var Louison, dóttirin í ímyndunarveikinni eftir Moliére og hún stóð sig frábærlega. Leikhús- gestir stóðu upp og klöppuðu af hrifningu yfir þessu litla barni sem hafði misst barnatennurnar sínar og ekki enn þá fengið aðrar í stað- inn.“ Sonur í vændum En það er eðlilegt að fjölskyldur stækki og dafni og það gerir þessi litla en óvenjulega fjölskylda líka. Við grípum að lokum niður í síðasta kafla bókarinnar og nú er það Vaclav sambýlismaður Jóns og fað- ir Katerinu sem hefur orðið. „Við Jón hefðum óskað okkur að eignast barn en til þess var náttúr- Ur Brekkukotsannál Jón Laxdal sem Garðar Hóim, Árni Árnason í bakgrunni sem Álfgrímur og Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona sem fröken Gúðmúnsen. 4\LJOS rjLJós w LJÓS LJOSINNI IHJARTA tSINNI Leitaðu ráða hjá Antoni Anton ráögóöi: Það borgar sig að huga timanlega að útiseríum, Sá getur þú gripið tækifærið þegar veðrið er gott - þú þarft eldur ekki að stinga í samband fyrr en þú vilt! j S Nt yNNfNC Endalaust úrval af jólaseríum, jólaljósum, aðventuljósum og jólaljósaskreytingum fyrir unga sem aldna og í öllum verðflokkum, Kvenféíag BreióhoJtssóknar selur kaffi og ijómavófflur laugaraag og stmnudag GARÐHEIMAR Heimur skemmtilegra hugmynda og hluta Stekkjarbakka 6 • Mjódd • Sími: 540 33 00 • www.gardheimar.is efni fyrir aðventukransinn og gntuskreytingar - hvergi meira ** ( ^^Sýn^ennsla laugardag og sunnudag. AÐVENTULJOS!!! Verð frá 990,- kr. INNISERIUR!!! t.d. 20 Ijósa 250,- kr. UTISERIUR!!! t.d. 40 Ijósa 950,- kr. A laugardag og sunnudag: Ekta italskur is! Krakkarnir fá ispinna! í HEIMSÓKN Á laugardag kl. 15. Kiðlingarnir kynna nýjan geisiadisk!!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.