Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Síða 21
21 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001_________________________________________ TX\r ___________________________________________________________________________Helgarblað Á þröskuldi þorskbyltingar - hagfræðingur gefur út matreiðslubók fórum aö borða skötusel og fleiri tegundir sem þjóðin hafði aldrei borðað áður. Nú er þorskur á mat- seðlum fjölmargra veitingahúsa og mér flnnst áhugi fólks á þessari vanræktu fisktegund vera mjög mikill. Ég held að við séum á þröskuldi þess að átta okkur á því hvað þessi flskur, sem hefur veriö mikilvæg- asta útflutningsvara okkar síðan um 1400, er góður matfiskur." Það hefur ekkert verið sparað til við gerð bókarinnar og fallegar ljós- myndir Áslaugar Snorradóttur vekja sérstaka athygli og ekki síður hönnun Höllu Helgadóttur. Einar vill enn fremur sérstaklega nefna Helgu Guðmundsdóttur sem má segja að hafi gæðaprófað bókina. „Hún fór vandlega yfir allar upp- skriftirnar og samræmdi marga hluti og stundum eldaði hún til þess að staðreyna að rétt hlutfóll væru valin. Hennar framlag var ómetan- legt.“ - En er það góður bisness að gefa út matreiðslubók? „Það þýðir ekkert að spyrja mig um það,“ segir Einar þótt hann sé hagfræðingur. „Þetta var bara eitthvað sem mig langaði til að gera.“ Rauður saltfiskur Unnar Úr hópi þeirra fjölmörgu sem leggja til uppskriftir i bókina tökum við uppskrift að rauðum saltfiski sem Unnur Ása Jónsdóttir bjó til fyrir Einar. Unnur drottnar í eld- húsinu á veitingastaðnum Við fjöru- borðið á Stokkseyri sem er löngu orðinn þjóðkunnur fyrir sérvisku- legan en gómsætan matseðil. Unnur lýsir tilurð réttsins svo: „Grunnhugmyndin að þessum rétti kom út'frá rauða litnum. Þegar spinna þarf upp nýja rétti er ekki vitlaust að velja einhvern lit eða bara bókstaf og telja upp það sem nota má í réttinn og byrjar t.d. á bókstafnum R. Svo má leika af fmgrum fram og bæta við hráefni sem passar saman. Oft verða til frá- bærir réttir út frá svona spuna. Prófið sjálf Segðu rrrrrr... Handa fjórum 800 g útvatnaður saltfiskur í bitum 3 msk. ólífuolía 2 stórir rauölaukar, saxaöir Unnur Asa Jónsdóttir hefur gert garóinn frægan á Stokkseyri „Þegar spinna þarf upp nýja rétti er ekki vitlaust aö velja einhvern lit eöa bara bókstaf og telja upp þaö sem nota má í réttinn og byrjar t.d. ■ á bókstafnum R. “ Stundum er sagt að fáir séu smið- ir í fyrsta sinn en það er auðvitað ekkert réttara en önnur máltæki. Einar Árnason er miðaldra hag- fræðingur í Reykjavík sem hefur nýlega gefið út sína fyrstu mat- reiðslubók sem heitir Seiðandi salt- fiskur og þorskréttir þjóðanna. Bókin inniheldur yfir sjötíu upp- skriftir frá ýmsum þjóðlöndum en höfundarnir eiga það allir sameigin- legt að vera búsettir á íslandi. Þarna er að finna rétti úr saltfiski, þorski og skreið frá Angóla, Amer- íku, Baskalandi, Frakklandi, Fær- eyjum, Grikklandi, Grænhöfðaeyj- um, Grænlandi, Ítalíu, Jamaíku, Japan, Kenía, Líbanon, Portúgal, Suður-Ameríku og Spáni. Samtals eru það 44 matreiðslu- menn, lærðir og leikir, sem leggja fram uppskriftir í bókina og spanna þær allt frá hinu hefðbundna til hins nýstárlega og framandi. DV lék forvitni á að vita hvers vegna Einar hefði valið matreiðslu- bók af þessari stærð sem frumraun sína í bókaútgáfu? „Ég kynntist þessu verkefni, má segja, fyrst þegar ég kom lítillega að útgáfu á Ævisögu þorsksins eftir Mark Kurlansky sem kom út fyrir fáum árum. Ég er ekki lærður matreiðslumað- ur enda er mitt framlag í þessari bók smátt. Ég var dæmigerður for- dómafullur Islendingur sem borðaði helst ekki þorsk. Svo kynntist ég þessu betur þegar ég fékk mat- reiðslumenn til að elda rétti úr Ævi- sögu þorsksins á Naustinu og þaö má segja að ég hafi ekki bragðað þorsk nema sem hefðbundinn salt- flsk fyrr en 1998,“ sagði Einar þegar hann rifjaði upp þorskævisögu sína viö DV. „Mér finnst að við stöndum á tímamótum hvað þetta varðar. Þetta er í líkingu við byltinguna sem varð hér fyrir mörgum árum þegar við Einar Arnason með bókina Einar er hvorki matreiöslumaður né vanur bókaútgáfu. Hann lét þaö ekki stööva sig í aö gefa út veglega matreiöslubók um saltfisk og þorsk þar sem 44 kokkar, lærðir og leikir, gefa tóninn. 150 g rauökál, saxað 5 radtsur, skornar í sneiöar 3 msk. rauövínsedik 3 dl rauðvín 1 dl púöursykur 1 tsk. heil svört piparkorn hnefi af rústnum parmaostur (má sleppa) safi úr 1/2 sttrónu sýrður rjómi Ólífuolían er hituð á pönnu eða í potti. Rauðlaukur, rauðkál og radís- ur er sett út í. Þá er bætt við ediki og rauðvíni, púðursykri og pipar- kornum og lokið sett á. Þetta er lát- ið sjóða í 10 mínútur eða þar til það fer að þykkna. Síðan er saltfiskur- inn og rúsínurnar sett út í og látið malla við vægan hita í 5-10 mínút- ur. Parmaosti stráð ofan á fiskinn og sítrónusafa dreypt á hann. Einnig má bæta við ögn af sýrðum rjóma. -PÁÁ Stærri hljóðdeild hefur nú tekið við umboðuni og vörumerkjum frá og býður nú einnig hágæða heimilishljómtæki. Við höfum á undanförnum vikum breytt verslun okkartil að gefa hljóðdeildinni aukið rými, smíðað og bætt aðstöðuna að öðru leyti. DfNAUDIO E3kin«erk*ble GRENSÁSVEGUR 13 SÍMI: 533 2222 www.pfaff.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.