Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Síða 10
10 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoðarritstjórí: Jónas Haraldsson Fróttastjóri: Birgir Guömundsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíö 24,105 Rvík, simi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Oræn númen Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Gegn fjölskyldtim Handrukkarar vaöa uppi í íslensku þjóðfélagi og hrella heilu íjölskyldurnar meö hótunum og ofbeldi. Þeir svífast einskis viö aö innheimta fíkniefnaskuldir ungs ógæfufólks sem ánetjast hefur eitrinu. Hrottar og lítilmenni herja á íjölskyldur í von um skjótfenginn fikniefnagróða. Margir foreldrar þora ekki annaö en greiða „skuldir“ barna sinna til að þau sleppi ómeidd úr klóm fúlmenna. Hræðslan og óttinn ráða ferðinni. Vímulaus æska og foreldrahúsið hafa vakið athygli á þeirri ógn sem íjölskyldum stafar af fúlmennum sem hafa það eitt að marki að græða peninga - í hugum þeirra skipt- ir engu þótt líf ungra glæsimenna sé lagt í rúst eða heilu fjölskyldurnar séu settar í eins konar herkví hótana og ruddaskapar. Allt leyfist, ekki síst þegar kemur að inn- heimtu fikniefnaskulda. Skilaboð Vímulausrar æsku eru í sjálfu sér skýr til for- eldra þeirra ógæfumanna sem eru fastir í skuldaneti fíkni- efnasala: Ekki borga og kærið til lögreglu. Auðvitað er oft auðvelt að ráðleggja öðrum. Enginn nema sá er reynt hef- ur getur skilið angist og ótta foreldra sem búa við hótanir handrukkara. En fúlmennin verða hins vegar ekki stöðvuð nema þeim sé veitt mótspyrna og mótspyrnan verður ekki veitt nema í sameiningu foreldra, lögreglu, dómstóla og lög- gjafans. DV hefur margoft á undanfórnum misserum fjallað um þetta þjóðfélagsböl, en óaldarlýðurinn veður enn uppi. Blað- ið hefur reynt að draga upp þessa dökku mynd af íslensku þjóðfélagi og mynda þannig farveg fyrir umræður um hugs- anlegar lausnir. Flestir hafa látið sér fátt um finnast. í leiðara DV í nóvember 1999 sagði meðal annars: „Það er kominn tími til að skorin sé upp herör gegn hrottunum, sem fara sínu fram. Fjölmiðlar hafa þá skyldu að draga fram í dagsljósið hvernig fjölskyldur, en þó einkanlega ung- menni, hafa orðið fórnarlömb handrukkara. Lögregluyfir- völd verða að tryggja öryggi þeirra sem verða fyrir barðinu á glæpahyskinu með öllum tiltækum ráðum. En löggjafinn verður fyrst að vinna sina heimavinnu og færa lögreglu þau vopn sem nauðsynleg eru í baráttunni, sem svo auðvelt er að tapa.“ Skuldif hlaðast upp Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir síðasta ár leiðir í ljós að hreinar skuldir borgarsjóðs og borgarfyrirtækja námu í lok síðasta árs nær 34 þúsund milljónum króna. Þetta þýðir að hver Reykvíkingur skuldar að meðaltali um 300 þúsund krónur og hver fjögurra manna fjölskylda um 1,2 milljónir króna. Og þá eru lífeyrisskuldbindingar ekki meðtaldar en heildarskuldir með lífeyrisskuldbindingum nema alls tæpum 67 þúsund miUjónum króna. Með lífeyris- skuldbindingum skuldar því hver fjögurra manna fjöl- skylda í höfuðborginni tæpar 2,4 milljónir króna. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins og R-listans hafa deilt um skuldaaukningu Reykjavíkurborgar undanfarnar vikur. Þær rökræður hafa farið ofan garðs og neðan hjá kjósendum, eins og svo oft þegar stjórnmálamenn deila um tölur. Fjárhagsleg staða Reykjavíkurborgar, sem sjálfstæð- ismenn hafa ætlað að gera að sérstöku kosningamáli, hefur því fram til þessa haft lítil áhrif. En hvort sem um kosningamál er að ræða eða ekki geta Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og meirihluti R- listans ekki vikið sér undan því að skýra út gríðarlega aukningu hreinna skulda borgarinnar. Ekki síst þegar haft er i huga að fjárhagsáætlun fyrir liðið ár gerði ráð fyrir að skuldir myndu lækka. Jafnvel í desember síðastliðnum gerðu áætlanir ekki ráð fyrir jafnmikilli skuldaaukningu - langt í frá. . Oli Björn Kárason 4 _________________________________ _______LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 DV Rauðu ástarsögurnar Jónas Haraldsson l - aöstoöarritstjóri Laugardagspistill Ónóg umönnun Slappleiki minn kom vel á vond- an því að almennt hef ég verið þeirrar skoðunar að minni háttar krankleiki, þar sem menn eru frá vinnu í einn til nokkra daga, sé að- eins sálrænt ástand. Með viljafestu megi koma í veg fyrir slíkan aum- ingjaskap. Nú lá ég eins og skata heima hjá mér, ýmist of kaldur eða heitur, með beinverki og maga- verk. Allt var það frekar óþægilegt og skal ekki gert upp á milli verkj- anna. Verst var þó að ég lá þama einn og fékk ekki þá umönnun sem ég taldi lasburða mann eiga rétt á. Krakkamir vom í skólanum og konan í vinnunni. Ég kunni ekki við að hringja í hana til þess að greina frá þessum vesaldómi min- um. Ég dró hins vegar ekki úr þegar hún kom heim og lýsti þjáningum mínum af þeirri tiifmningu sem líkamlegt og andlegt þrek leyfði. Ég hafði ekki lyst á neinu nema hvað ég pantaði kalt kók sem ég taldi allra meina bót, eins og á stóð. Kon- an var ekki sammála þessari lyfja- gjöf en lét þetta þó eftir mér. „Ertu búinn að mæla þig?“ spurði hún ViDocir óct lvcti oinlfDnmimim á hanri Ég hafði ekki lyst á neinu nema hvað ég pantaði kalt kók sem ég taldi allra meina bót, eins og á stóð. Konan var ekki sammála þessari lyfjagjöf en lét þetta þó eftir mér. amans væri úr lagi genginn, ég skylfi annaðhvort svo undir sæng- inni að tennur glömruðu eða svitn- aði þannig að ég henti af mér sæng- urgopanum. Ég neitaði allri mæl- ingu enda ekki stundað slikt í ára- tugi. „Mælingar eru fyrir böm,“ sagði ég. „Ég man ekki til þess að hafa gengið í gegnum slíkt síðan mamma mældi mig í bemsku." Það hnussaði í konunni. Hefði ég verið með almennilegri rænu kann að vera að ég hefði áttað mig á þvi, strax á fyrsta kvöldi lasleikans, að hún teldi mig erfiðan sjúkling. Meðvitundin var hins vegar skert svo ég hélt áfram kvarti mínu og kveini og bað böm- in að vera ekki með >ennan bölvaða há- ,aða. Vissu þau ekki af sjúkum manni í hús- inu, einstaklingi sem sýna þyrfti fulla tillits- semi? Þau horfðu á móður sína. Vera kann að hún hafi blikkað þau og bent á eiginmanns- nefnuna með glotti en ég náði þeim skila- boðum ekki. „Ég verð kominn aftur klukkan tvö,“ sagði ég við vinnufélagana þegar ég skaust heim í mánudags- hádeginu. Ástæða brottfararinnar var ekki svengd, heldur þvert á móti. Ég var ónógur sjálfum mér, gott ef ekki með beinverki og vont í maga. Þar sem ég er óvanur las- leika, sem betur fer, taldi ég tvo tíma duga til þess að ná þessum skramba úr mér. Ég lagði mig þeg- ar heim kom en var öngvu betri þegar klukkan nálgaðist tvö. Ég hringdi því á vinnustaðinn og til- kynnti að ég kæmi því miður ekki meira þann daginn. Því var tekið með jafnaöargeði og ég fullvissaður um aö öll hjól gengju smurð þótt ég væri fjarri. Ég sagði ekki neitt en þótti þetta undarlegt og raunar miður því ég stóð í þeirri trú að ég væri ómissandi. Takmörkuð heimssýn Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri Ritstjornaroref Þeir sem komnir eru til nokk- urra ára muna þá tíð þegar íslend- ingar voru í stríði við Breta. Það var mikill slagrn- og gekk reyndar svo langt að íslendingur fórst í því stríði. Sá maður vann í vélarsal eins af varðskipum íslendinga og var að rafsjóða í gat sem kom á síðu skipsins við ásiglingu breskr- ar freigátu. Þetta var í 200 mílna stríðinu fyrir góðum aldarfjórðungi og maðurinn lifði ekki raflostið þegar fylla kom á skipið í ati þess við herfley hinnar konunglegu tignar. íslendingar tóku ekki beinan þátt i stríðinu mikla um miðja síð- ustu öld. Samfélag þeirra tók hins vegar stakkaskiptum þegar breski herinn sigldi inn Flóann 10. maí 1940 og hemam eyjuna í norðri. Og íslendingar voru að mörgu leyti hrifsaðir inn í nútímann þegar sporgöngumenn breskra hermanna komu hingað til lands um ári síðar. Kaninn passaði upp á landann. Engu að síður fórust margir íslend- ingamir í þessu stríði þegar ís- lenskum skipum var sökkt á norð- anverðu Atlantshafmu. Stríð með fomöfnum Hér hefur verið skrifað um ís- lendinga. Hér hafa ekki verið notuð persónufomöfn, en það var hins vegar ítrekað gert á þessum árum. í blöðum og útvarpi var einatt skrifað og talað um „okkur“ íslend- inga og sagt að „við“ ættum í stríði. Þorskastríðin eru sýnu nærri okk- ur í tíma en seinni heimsstyrjöldin - og í seinasta striðinu sem við háð- um við Breta um þann gula og góða fisk, var ekki annað að sjá en að þessi fréttamennska með áherslu á persónufomöfn væri á blóma- skeiði. Iþróttafréttamönnum er tamt að taka málstað annars aðilans þegar landslið íslendinga etur kappi við aðra þjóð. Þar láta þeir sér fátt fyr- ir brjósti brenna og tala eða öllu heldur æpa og skrifa af þvílíkri þjóðrembu að við fátt verður jafn- að. Þó koma þorskastríðin þar til greina. Vera kann einmitt að ís- lenskir blaða- og fréttamenn hafi farið lengra en ákafir íþróttafrétta- menn á þessum átakaárum á úfnu hafi. Bretinn var nefnilega ekki að- eins andstæðingur, heldur var hann óvinur. Vinir og óvinir Löngum hefur verið sagt að blaða- og fréttamennska lúti lög- málum sínum en vissulega fylgir hún líka tíðarandanum. í hinum vestræna heimi, hver sem hann svo sem er, hefur það gerst á síðustu mánuðum að í auknum mæli er þjóðum heims og jarðarbúum stillt upp í tvo gerólíka hópa; vini og óvini. Eftir ógnaratburðina ellefta september í fyira hefur þessi skipt- ing fest sig í sessi, ekki sist innan ritstjóma og fréttastofa í Evrópu og ekki síður í Bandaríkjum Norður- Ameríku. Heilu stórblöðin og ekki síður heimsfréttastofumar hafa tekið af skarið og girt fyrir upplýsingar frá „óæskilegum" öflum. Og þegar tveir eiga í stríði eiga stóru stofum- ar orðið svo auðvelt með að taka málstað annars aðilans að gömul lögmál verða að graut í stefnu þeirra. Því má með nokkrum sanni segja að fréttaþjónusta CNN frá átökum Breta og Bandaríkjamanna við liðsmenn al-Queda í fjallahéruð- um Afganistans hafi minnt um margt á íslenskar þorskastríðsfrétt- ir á sinni tíð. Styrkur upplýsinga Vissulega fellur sannleikurinn fyrstur alls í hverju stríði. Vandað- ir fjölmiðlar hafa reynt að rétta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.