Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Page 11
 11 LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 Skoðun Skilningur íjölskyldu minnar á beinverkjum, maga- og höfuðverk var enginn að mínum dómi. Einn og yfirgefinn Ég lifði af nóttina og ætlaði í vinnu strax næsta morgun, minnug- ur fyrri skoðana á aumingjum sem lágu lengur í rúmi en einn dag. Heilsan leyfði hins vegar ekki stór- ar ákvarðanir svo ég hringdi og lét vita af einum fjarvistardegi til við- bótar. Krakkamir fóru í skólann og konan í vinnuna. Ég hafði ekki lyst á neinu, lá einn og yfirgefinn í bæl- inu og vorkenndi mér sárlega. Eftir hádegið staulaðist ég fram úr til þess að finna mér lesefni og eins og eina parasetamól. Ég hafði áður les- ið flestar bækur heimilisins en tók þó nokkrar og fletti þeim án þess að festa við þær hugann. Þá náði ég mér í snjáð tímarit og skoðaði myndimar. Fæst vom áhugaverð. í algerri einsemd minni og tilgangs- leysi sótti ég loks myndaalbúm fjöl- skyldunnar og fletti. Við það setti að mér aukna depurð. Þama vorum við glöð og hress, ýmist í garðinum, sumarbústaðnum eða í útlöndum. Allir útiteknir. Hreystin skein úr hverju andliti, líka mínu. Ó, hver staða mín var önnur en á myndun- um þar sem ég lá einn í bein- og magaverknum. Örlög mín voru öm- urleg. Ég fór fram úr og leit í speg- il. Hryllingsmynd blasti við, folur og fár maður, tekinn í andliti. Ég lagðist á ný. Parasetamólið vann sitt gagn svo ég sofnaði, bókarlaus. Mig dreymdi undarlega. „Ég verð að fá eitthvað að lesa,“ sagði ég við konuna þegar hún kom heim um kvöldið. „Geturðu ekki farið á bókasafnið? Mér flnnst það lágmark fyrst enginn er hér til þess að hugsa um mig og hjúkra.“ Hefði vitund mín verið gleggri má vera að ég hefði tekið eftir því að konan var að því komin að hreyta í mig ónot- um og krakkamir vom við það að æpa á foður sinn og biðja hann að hafa sig hægan. Þeir héldu þó aftur af sér. Enn sannaðist hið forn- kveðna að sá vægir sem vitið hefur meira. Konan fór á bókasafnið og kom hlaðin bókum, skáldsögum, spennusögum og ævisögum. í góð- mennsku sinni hafði hún fyrst og fremst hugsað um mig en kippti þó nokkrum með fyrir sig. Ég sætti mig við örlög mín um stund. Vill einhver elska...? Ástand mitt var ekki betra næsta morgun. Ég ákvað að hringja ekki í vinnuna. Niðurlæging mín var al- ger. Ég var aumingi. Vinnufélagi hringdi um hádegið og spurði tíð- inda. Ég lét illa af mér en fann ekki teljandi samúð í gegnum símann. Hennar var heldur ekki að vænta heima. Þar var enginn frekar en endranær. í hug- anum hljómaði nokkurra ára gamail dæg- urlagatexti: „Vill einhver elska 49 ára gamlan mann ...?“ Ég fékk ekki svar við þeirri áleitnu spurningu. Ég las spennu-, skáld- og ævisögumar all- ar enda í koju fram að há- degi fostudags. Þann morgun sótti ég í bækur sem konan hafði náö sér f á safninu og end- manns, „Hjá Báru“. Með fullri virð- ingu fyrir þeirri ágætu konu og prýðilegri ævisögu hennar sá ég þá að þetta gat ekki gengið lengur. Hætta var á legusárum lægi ég leng- ur og geðheilsan var í hættu. Meira máli skipti að geðheilsa annarra flölskyldumeðlima var orðin enn verri. Þeir þoldu ekki sjúklinginn. Ég ákvað að hunskast í vinnuna áður en ég byrjaði á rauðu ástarsög- unum, bókaflokknum 1 heild. Upplýsingar eru eitt sterkasta vopnið í hverju stríði. Stríð vinnast vissulega á tœkni og ýms- um mcelanlegum stœrð- um, en líka á sannfœr- ingu. Og þar skipta upp- lýsingar miklu og oft á tíðum meginmáli. Grundvallarþáttur í stríði getur því veríð sá að geta stýrt þessum upp- lýsingum. þennan sannleika við og freistað þess að varpa einhvers konar heild- armynd af stríðsátökum um allan heim, hversu erfitt og kostnaðar- samt sem það nú er, ef það er þá nokkrun tíma hægt. Þekkt er sú að- ferð og víðast hvar viðurkennd að leita sjónarmiða beggja deilenda og láta lesandanum eða áhorfandanum eftir að dæma um það hvor hafi meira til síns máls eða hreinlega rétt fyrir sér. Og þar komum við að vandanum; glímu hvers flölmiðlamanns að greina milli starfs og þjóðemis. Hvar sleppir heilbrigðri þjóðrækni og hlýhug til sinna líka og hvar byrjar þjóðremban og þjóðblindan? Það er nefnilega svo að upplýsingar em eitt sterkasta vopnið í hverju striði. Stríð vinnast vissulega á tækni og ýmsum mælanlegum stærðum, en líka á sannfæringu. Og þar skipta upplýsingar miklu og oft á tíðum meginmáli. Grundvallar- þáttur i striði getur því verið sá að geta stýrt þessum upplýsingum. „Við“ og „þeir“ Og opinber fréttastýring þeirra sem valdið hafa hefur vitaskuld ver- ið reynd oftar en nokkur hefur tölu á. Hún var reynd í Víetnamstríðinu, en tíðarandinn hentaði ekki þeim tilraunum. Þá vom tímar frjálsræð- is og aukinnar fagmennsku í vest- rænni fréttamennsku og ákaflr blaða- og fréttamenn létu upplýsing- unum rigna yfir landa sina um báð- ar hliðar þess langa og skaðsama stríðs. Og Víetnamstríðið tapaðist ekki síst í fiölmiðlum. Eða getum viö sagt tapaðist? Jú, „við“ getum sagt tapaðist, því ólíkt mörgum öðrum stríðum er Ví- etnamstríð og saga þess ekki skrif- uð af sigurvegurum í huga Vestur- landabúa, heldur þeim sem töpuðu. Og fáar sögm- af ófórum í stríði hafa verið sagðar jafn oft og í jafn mörg- um miðlum og einmitt þetta kunna stríð sem „við“ töpuðum. Mann- kynssögubækur eru fullar af sigur- sögum, en þegar kemur að óforum er enginn ósigur jafn rækilega rak- inn í máli og myndum og einmitt þetta ógurlega Víetnamstríð. „Óvinir okkar“ Það segir sína sögu um „okkur“ að Víetanamstríðið er saga af ósigri. Við lesum þá sögu frá þeim hluta jarðarinnar sem tapaði. Hún er ekki sigursaga. Með þessum augum horf- um „við“ á heiminn og með þessum augum dæmum „við“ gildi og skoð- anir manna um allan heim. Þessi augu eru flölmiðlar og þar vinnur líka fólk sem er partur af þjóðfélagi, partur af uppruna, partur af menn- ingu og partur af samkennd. Enginn lifandi maður getur verið hlutlaus í lífi sínu - og enginn flölmiðiU. Og hver hefur sína sýn. Þegar Bandaríkjamenn undirbjuggu sókn sína á greni myrkraverkamanna í flallaskörðum Áfganistans í fyrra kölluðu þeir aðgerð sína „óskorað réttlæti". Það er æði afdráttarlaus nafngift. Bandaríkjaforseti fór mik- inn í ræðu sinni á þingi landsins á þessum tíma og dró þar nýja víglínu með eftirminnilegum hætti: Hér eft- ir fylkja þjóðir sér annaðhvort með „okkur“ eða þær verða flokkaðar undir „óvini okkar“. Þetta var ný pólitík. Og þarna var engin mála- miðlun. Farvegur dóma Þessi afdráttarlausu skilaboð frá Bandaríkjaforseta á síðasta ári þóttu vera til vitnis um nýja heims- sýn. Og reyndar nýja tegund af stríði. í reynd hefur kannski minna breyst en við höldum, núna þegar við höfum náð áttum eftir áfallið i september á síðasta ári. Sem fyrr tökum við afstöðu í fréttaflutningi og leyfum okkur að segja annan að- ila deilna vera með viöurkenndar skoðanir en hinn vera illmenni. Og þarna á milli er oftast engin mála- miðlun. Fjölmiðlar eru farvegur þessara dóma. Færa má reyndar fyrir þvf ákveð- in rök að fiölmiðlar séu á þennan hátt orðnir dómharðari en áður. Það er eins og atburðimir ellefta september hafi gefið þeim byssu- leyfi á eilifðina. Það hnykluðu alt- ént ekki margir brýnnar þegar fimm helstu sjónvarpsfréttastofurn- ar í Bandarikjunum gerðu með sér samkomulag seint á síðasta ári um að taka fyrir sjónarmið annars stríösaðilans í baráttu al-Quada og Bandaríkjastjórnar. Ástæðan var þjóðaröryggi. Ástæðan var að á „þá“ var ráðist. Fjölmiðlar í stríðsrekstri Á þennan hátt flækjast fiölmiölar út í stríðsrekstur. Það gerðist hjá Bretum og Þjóðverjum í seinni heimsstyrjöld og það gerðist hjá ís- lendingum í þorskastríðinu. Það hlaut lfka að koma að því að banda- rískir flölmiðlar færu í baklás þegar að „þeim“ var vegið, „þeirra“ þjóð og þjóðskipulagi. Þegar á hólminn er komið skipta menn liði. Það gerist í þessum efnum sem öðrum. Og báðir lýsa hinum sem jafn ógeðslegum og á að giska réttdræpum glæpamönnum og tungiunálið megnar. Stríð eru háð á öllum tímum - og sömuleiðis ógeðfelld hryðjuverk, nú síðast í flóttamannabúðunum í Jenín þar sem fatlaður maður í hjólastól veifaði hvítum fána fram- an við skriðdreka sem ók yfir manninn og kramdi. Vesturlanda- búar hafa síðustu vikur reynt að átta sig á því hvorir eru „þeir“ og hvorir eru „við“ í því heiftúðuga stríði. 1 þeim efnum hefur jafnvel heimsskipting Bandaríkjaforseta brugðist. Það er því ekkert tryggt í þessum heimi. Jafnvel ekki skil- greiningin á hinu illa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.