Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002
Fréttir DV
Jafnræði með stjórn og stjórnarandstöðu eftir þingkosningar í Færeyjum:
Flóknari staða
en nokkru sinni
Þingmenn á færeyska lögþinginu
hafa aldrei staöið frammi fyrir jafn-
flókinni stööu og nú er upp komin í
kjölfar kosninganna á þriðjudag, að
mati Eðvarðs T. Jónssonar sem bjó
lengi í Færeyjum og er gjörkunnug-
ur færeyskum stjórnmálum. Fylk-
ingar landstjórnarinnar og stjómar-
andstöðunnar eru hnífjafnar, hvor
um sig fékk sextán menn kjöma.
Stjómarandstæðingar fengu þó ívið
meira fylgi, eða 51,1 prósent at-
kvæöa á móti 48,9 prósentum stjóm-
arflokkanna þriggja.
Jógvan Markore þjóðfélagsfræð-
ingur segir í viðtali við færeyska
blaðið Sosialurin að mjög erfítt sé
að geta sér til um hvernig næsta
samsteypustjóm verður saman sett.
Síðustu fjögur árin hefur verið við
völd í Færeyjum stjórn Fólkaflokks-
ins, Þjóðveldisflokksins og Sjálf-
stýriflokksins og hefur hún unnið
að því hörðum höndum að undirbúa
sjálfstæði eyjanna.
Vill í áhrifastöðu
Sigurvegari lögþingskosninganna
að þessu sinni var Sambandsflokk-
urinn, undir forsæti Lisbethar L.
Petersen. Flokkurinn fékk flest at-
kvæði og bætti við sig umtalsverðu
fylgi. Eins og nafnið gefur til kynna
er flokkurinn fylgjandi áframhald-
andi sambandi við Danmörku.
„Öll þessi atkvæði á að nota til að
koma okkur í áhrifastöðu,“ sagði
Lisbeth L. Petersen þegar úrslitin
lágu fyrir. Aðspurð um hvort hún
væri reiöubúin að taka að sér að
leiða nýja ríkisstjóm, sagðist hún
vera tilbúin að takast á við lög-
mannsstarfið ef sú staða kæmi upp
og flokkur hennar benti á hana.
Ekki er þó víst að Lisbeth fái að
spreyta sig að þessu sinni. Þeir Eð-
varð T. Jónsson og Jógvan Morkare
em nefnilega sammála um að An-
fmn Kallsberg, lögmaður og leiðtogi
Fólkaflokksins, muni reyna til
þrautar að mynda starfhæfa stjóm
áður en hann gefur stjómarmynd-
unarumboðið frá sér.
Hægar í sakirnar
Eðvarð segir að túlka megi niður-
stöðu kosninganna sem ákveðið
áfall fyrir stjórnarflokkana sem
hafa barist fyrir sjálfstæði Færeyja
undanfariö kjörtímabil.
Eðvarð segir enn fremur að ekki
leiki vafi á því að skilaboð kjósenda
hafi verið þau að stjómmálamenn-
imir ættu að fara hægar í sakirnar
í fullveldismálinu, ekki síst þegar
niðurfelling árlegs ríkisstyrks frá
Danmörku er annars vegar.
„Það er nú líka færeyska lagið að
taka þessu rólega," segir Eðvarð í
samtali við DV og bendir á að mörg-
um hafi þótt Hogni Hoydal, varalög-
Anflnn Kallsberg
Lögmaöur Færeyja hefur átt í viö-
ræöum viö aöra stjórnmálaleið-
toga undanfarna daga og víst er
aö hann hefur ýmsa möguleika á
aö mynda meirihlutastjórn.
Frá Ólafsvöku í Færeyjum
Jafnræöi er meö fylkingum stjórnar og stjórnarandstööu eftir lögþingskosningarnar í Færeyjum á þriöjudag. Túlka má
úrslitin sem ákveöiö áfall fyrir sjálfstæöissinna en sigur fyrir stærsta flokk samþandssinna.
maður, leiðtogi Þjóðveldisflokksins
og ákafasti talsmaður sjálfstæðra
Færeyja, fara heldur geyst í sakirn-
ar í sjálfstæðismálinu.
Ekki róttæk breyting
Ýmsir stjómmálaskýrendur eru
sama sinnis og Eðvarð og telja að
niðurstöður færeysku kosninganna
sýni að kjósendur vilji ekki fara of
geyst í að slíta öll tengsl við Dan-
Guölaugur
Bergmundsson
biaöamaöur
mörku. Heldur vilji þeir að Færey-
ingar taki smám saman yfir þá
málaflokka sem enn er stjómað úr
Kaupmannahöfn.
„Ef maður á að túlka rödd þjóðar-
innar er það svo að ekki er grund-
völlur fyrir róttækri breytingu á
sambandinu við Danmörku," segir
Lise Lyck, lektor við verslunarhá-
skólann í Kaupmannahöfn og einn
helsti sérfræðingur Dana um fær-
eysk efnahagsmál.
Poul Nyrup Rasmussen, leiðtogi
danskra jafnaðarmanna og fyrrum
forsætisráðherra Danmerkur, segir að
Hogni Hoydal
Forkólfur sjálfstæöismála í Færeyj-
um hlýtur aö hafa oröiö fyrir von-
brigöum meö aö kjósendur veittu
landstjórninni ekki skýrt umboö til
aö halda áfram á sömu braut.
niðurstöður kosninganna séu áhend-
ing frá færeysku þjóðinni tfl stjórn-
málamanna sinna um að þeir myndi
breiða samstöðu framtíð Færeyja til
heilla, merki um að nú ættu þeir „að
klappa hestinum og taka það rólega",
eins og hann orðar þaö.
Nyrup, sem var landstjóm An-
finns Kallsbergs oft óþægur ljár í
þúfu í samningaviðræðum um sjálf-
stæði Færeyja, segir erfitt að meta
hvort niðurstöðumar þýði að
bakslag sé komið í sjálfstæðisáform
Færeyinga.
„Færeyskir stjórnmálamenn
verða að mynda meirihluta sem tek-
ur mið af þessum ábendingum," seg-
ir Poul Nyrup.
Ánægður með kjörsóknina
Anders Fogh Rasmussen, sem tók
við forsætisráðherraembættinu af
Poul Nyrup og leiðtogi hægriflokks-
ins Venstre, vill ekkert tjá sig um
úrslit kosninganna í Færeyjum fyrr
en færeyskir stjómmálamenn hafa
ráðið ráðum sínum um framhaldið.
í samtali við dönsku fréttastofuna
Ritzau segir Anders Fogh aö hann
fagni góðu gengi Sambandsflokks-
ins sem er systurflokkur Venstre.
Þá lýsir hann yfir ánægju sinni með
gríðarlega kjörsókn, eða 91,1 pró-
sent sem hann segir vera til marks
um að Færeyingar taki sjálfstæðis-
málin alvarlega.
Menn virðast sammála um að An-
finn Kallsberg hafi marga mögu-
Poul Nyrup Rasmussen
Fyrrum forsætisráöherra Danmerk-
ur telur aö færeyskir stjórnmála-
menn veröi aö fara aö ábending-
um kjósenda og mynda breiöa
samstööu.
leika til að mynda nýja stjóm. Nú-
verandi landstjórn gæti haldið
áfram sem minnihlutastjórn og
reynt að afla sér fylgis úr röðum
annarra flokka á þingi þegar koma
þarf lagafrumvörpum í gegn. Ef
Miðflokkurinn gengur til liðs við
stjórnina hefur hún endurheimt
fyrri meirihluta sinn á þinginu.
Hugsanlegt er að Fólkaflokkur-
inn, Jafnaðarflokkurinn og Þjóð-
veldisflokkurinn geti myndað
stjórn. Jógvan Morkare telur að
jafnaðarmenn kunni að vera fylgj-
andi slíku stjómarmynstri, svo og
þjóðveldismenn. Þá er einnig mögu-
leiki á að Fólkaflokkurinn, Sam-
bandsflokkurinn og Jafnaðarflokk-
urinn nái saman um myndun
stjómar. Ekki er þó líklegt að slíkt
stjómarsamstarf yrði farsælt vegna
mismunandi stefnu Sambands-
flokksins og Þjóðveldisflokksins í
sjálfstæðismálinu.
Óskastjórnin í Þórshöfn
„Þaö væri pólitískt sjálfsmorð
fyrir Kalisberg að ætia sér að reyna
að leysa sjálfstæöismálið með Jafn-
aðarflokknum og Sambandsflokkn-
um,“ segir Jógvan Morkore.
Eövarð T. Jónsson segir að sú
staða sé komin upp að flokkamir
sem eru andvigir sjálfstæði Færeyja
hafi enga sérstaka möguleika á að
ná saman. Sjálfur er Eðvarð ekki I
nokkrum vafa um hvers konar
stjómarmynstur yrði Færeyjum og
færeysku þjóðinni fyrir bestu.
„Besta stjórnin fyrir Færeyjar
yrði samsteypustjóm Jafnaðar-
flokksins, Þjóðveldisflokksins og
Fólkaflokksins ef þeir geta náð
saman um aö hægja á sjálfstæðis-
ferlinu og tryggja að þjóðaratkvæða-
greiðslan fari vel fram. Ég held að
Hogni væri tilbúinn i það ef hann
sæi fram á að Jafnaðarflokkurinn
myndi í grundvallaratriðum ekki
standa gegn því að Færeyingar
fengju fullveldi innan tíu tii fimmt-
án ára,“ segir Eðvarð T. Jónsson.
Anfinn Kallsberg lögmaður lofaði
þvi strax á miðvikudag að hafa
hraðar hendur við að kanna grund-
völl fyrir myndun nýrrar land-
stjórnar. Hann sagði meira að segja
í viðtali við færeyska útvarpið að
það myndi kannski skýrast fyrir
vikulokin. Viö bíðum spennt.
Byggt á efni frá frá Sosialurin,
Jyllands-Posten, Politiken o.fl.
Færeyska stjórnin fallin?
Sambandsflokkur Lisbeth Peter-
sen er klár sigurvegari færeysku
lögþingskosninganna sem fram fóru
á þriðjudaginn en flokkurinn fékk 26
prósent atkvæða, átta prósentum
meira en í kosningunum 1998. Þjóð-
veldisflokkur Hogna Hoydal, varalög-
manns og helsta talsmanns sjálf-
stæðra Færeyja, fékk næstmest fylgi,
eða 23,7 prósent, sem er 0,1 prósenti
minna en 1998. Fólkaflokkur Kalls-
bergs, lögmanns Færeyja, fékk 20,8
prósent, 0,5 prósentum minna en síð-
ast og Jafnaðarflokkurinn 20,9 pró-
sent, 1,1 prósenti minna en í síðustu
kosningum.
Stjórnarflokkarnir þrir, Fólkaflokk-
urinn, Þjóðveldisflokkurinn og Sjáif-
stjórnarflokkurinn hafa þar með
misst meirihluta sinn þar sem fylk-
ingar eru hnífjafnar og verða að
treysta á stuðning Miðflokksins sem
fékk 4,2%, til að tryggja áframhald-
andi stjómarsetu. Þreifingar eru nú í
gangi og gæti einnig hugsast að Sam-
bandsflokkurinn, Jafnaðarflokkurinn
og Fólkaflokkurinn næðu saman.
Arafat laus úr umsátrinu
Yasser Arafat, leið-
togi Palestinumanna,
er laus úr umsátri
ísraelsmanna í höfuð-
stöðvum sínum í
Ramaliah og hafa
ísraelsmenn þegar á
fimmtudaginn flutt
allt herlið sitt frá borginni eftir að
samkomuiag náðist um að sex meint-
ir hryðjuverkamenn og grunaðir
morðingjar harðlínuráðherrans
Rehavams Zeevi yrðu fluttir úr höfuð-
stöðvunum til gæslu í Vesturbakka-
bænum Jerikó þar sem breskum og
bandarískum hermönnum er ætlað að
gæta þeirra.
Sakaðir um stríðsglæpi
Mannréttindasamtökin „Human
Rigths Watch“ birtu í fyrradag
skýrslu þar sem fram kemur að ekki
hafi farið fram fjöldaaftökur á palest-
ínskum borgurum í Jenin-flótta-
mannabúðunum, eins og þeir höfðu
verið sakaðir um af palestínskum yf-
irvöldum, en aftur á móti hafi þeir
gerst sekir um alvarlega stríðsglæpi. í
skýrslu HRW segir að að minnsta
kosti 52 hafi fallið í aðgerðum ísraels-
manna í búðunum, þar af 22 óbreyttir
borgarar, og hafi flestir þeirra verið
skotnir að yfirlögðu ráði og á ólögleg-
an hátt.
Stórsigur Musharrafs
Pervez Mushar-
raf, forseti herfor-
ingjastjómarinnar í
Pakistan, vann stór-
sigur í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni í
fyrradag um það
hvort þjóðin vildi
hann áfram sem for-
seta landsins til næstu fimm ára.
Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var
um 56%, sem er mun meira en áætl-
að var og hlaut Musharraf um 42,8
miiljónir atkvæða eða rúmlega 97%.
Lebed fórst í þyrsluslysi
Rússneski hershöfðinginn Alexand-
er Lebed, sem gegndi lykilhlutverki
þegar komið var í veg fyrir að Gorbat-
sjov yrði steypt af forsetastóli í Sovét-
rikjunum 1991, lést í þyrluslysi í gær-
morgun, 52 ára að aldri. Lebed, sem
bauð sig fram gegn Borís Jeltsín í for-
setakosningunum 1996, hafði gegnt
starfi ríkisstjóra í Krasnojarsk í Sí-
beríu um nokkurra ára skeið.
Zidane gegn Le Pen
Franski knattspymukappinn Ziné-
dine Zidane, sem er af norður-afrísku
bergi brotinn, hefur slegist í lið með
öðru frægu fólki og hvatt landa sína
til að greiða atkvæði gegn hægriöfga-
manninum Jean-Marie Le Pen í for-
setakosningunum á morgun.