Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Side 14
14
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002
Helgarblað
DV
Lestrarhesturinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Held upp ljóð
og stórar
skáldsögur
Ljóöabækur Sigfúsar
Ingibjörg Sólrún hefur verið að grípa í Ijóöabækur Sigfúsar Daðasonar, Ljóð
1947-1951, Hendur og orð og Fá ein Ijóð, sem komu út á einni bók hjá Iðunni.
Lestrarátak
Pennans-Eymundssonar
á afmælisári:
Bækur
skipta
máli
Bókaverslun Pennans-Eymunds-
sonar hefur ýtt úr vör lestrarátakinu
Bækur skipta máli. Með því er verið
að vekja athygli á því hvaða gagn og
gaman má hafa af lestri bóka. Til þess
að bregða á leik og vekja athygli á
átakinu hefur Eymundsson fengið
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, borg-
arstjóra og borgarstjóraefni Reykja-
víkurlistans, og Björn Bjarnason,
borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins,
til þess að velja þær bækur sem þau
langar til að lesa og þau telja að skipti
máli. Bækurnar sem þau Björn og
Ingibjörg Sólrún hafa valið eru kynnt-
ar í verslunum Pennans-Eymundsson-
ar á höfuðborgarsvæðinu um þessar
mundir sem og rökstuðningur þeirra
fyrb: valinu. Verða bækur Bjöms og
Ingibjargar frammi í versluninni fram
í miðjan maí.
Átakið Bækur skipta máli er einn
margra viðburða til að minnast 130
ára afmælis Eymundssonar. Bryndís
Loftsdóttir verslunarstjóri segir mjög
marga hafa komið í bókaverslanir
Pennans-Eymundssonar í liðinni viku
sem var Vika bókarinnar. „Það mynd-
aðist mjög skemmtileg stemning og er
útlit fyrir að hún haldi áfram vegna
átaksins okkar,“ sagði hún við DV.
Ýmsar fleiri uppákomur verða í til-
efni afmælisársins. Þannig er dönsk
bókasýning á leiðinni til landsins, svo
eitthvað sé nefnt. -hlh
„Ég verð að viðurkenna að ég les
ekkert nema skýrslur, gröf og linu-
rit um þessar mundir. Þó að þar sé
margt áhugavert og upplýsandi þá
er það ekki yndislestur, maður situr
fastur í hinu daglega amstri í stað
þess að hverfa inn í heim skáldskap-
ar eða nýs fróðleiks. Það er einna
helst að ég kíki í ljóöabækur mér til
ánægju. Ljóðabækur eru aðgengi-
legri en skáldsögur þegar maður er
í miklum önnum vegna þess að
maður getur lesið eitt og eitt ljóð og
látið þar við sitja. Ég hef verið að
grípa í ljóðabækur Sigfúsar Daða-
sonar, Ljóð 1947-1951, Hendur og
orð og Fá ein ljóð, sem komu út á
einni bók hjá Iðunni 1980 sem ber
þann hæverska titil - sem er mjög í
stíl Sigfúsar - Ljóð. Ég hef líka grip-
ið í það að lesa erlendar greinar um
borgarfræði, um sögu og þróun
borga í Evrópu og Bandaríkjunum,
en ég hef gríðarlegan áhuga á borg-
inni sem samfélagsgerð,“ segir Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri og borgarstjóraefni Reykjavík-
urlistans, í samtali við DV í tilefni
af lestrarátaki Pennans-Eymunds-
sonar, Bækur skipta máli.
Ingibjörg segir allan gang á því
hvað hún lesi mikið. „Ég les mikið í
sumarfríi og jólafríi en minna þess
á milli. Þegar ég á frí les ég aðallega
skáldsögur vegna þess að það á ekki
við mig að grípa í skáldverk. Ég vil
helst sökkva mér ofan í þau og lesa
í einum rykk - á morgnana, um
miðjan dag og fram á nótt. Best er
aö lesa á nóttunni. Þess á milli les
ég tímaritsgreinar, greinar um nýj-
ar hugmyndir í stjómmálum og
borgarmálum, ljóðabækur og svo
gríp ég gjaman í bækur um sagn-
fræðileg efni.“
- Hver er uppáhaldshöfimdur
„Ég er aðdáandi Halldórs Laxness
eins og flestir íslendingar og get les-
ið bækumar hans aftur og aftur. Ég
er mjög hrifm af Stefan Zweig. Bók
hans, Veröld sem var, er í miklu
uppáhaldi hjá mér. Hún opnaði mér
nýja sýn á Evrópu þegar ég las hana
í fyrsta sinn, er ein merkasta lýsing
á evrópsku samfélagi og sögu á fyrri
hluta siðustu aldar sem til er. Þessi
bók ætti að vera skyldulesning í
skólum. Hannes Pétursson er það
ljóðskáld sem ég held mest upp á og
get lesið aftur og aftur eins og Lax-
ness. Af öðrum islenskum höfund-
um get ég nefnt Fríðu Á. Sigurðar-
dóttur, Einar Má, Einar Kárason og
Steinunni Sigurðardóttur. Ég held
mikið upp á stórar skáldsögur með
mikilli atburðarás og dramatík og
þess vegna er ég hrifm af Isabel
Allende og William Heinesen, svo
ekki sé minnst á gömlu rússnesku
rithöfundana. Ég gæti nefnt fleiri
höfunda og skammast mín eiginlega
fyrir að gera það ekki þvi að það
eru svo margir góðir.“
- Hvað höfðar helst til þín í bóka-
búðum?
„Erlendu bækurnar höfða mest til
mín en það er tiltölulega auðvelt að
fylgjast með íslenska bókamarkaðn-
„Ég hef nú lítið lesið af bókum
undanfarið vegna anna í kosninga-
baráttunni en aðallega gluggað í
tímarit. En siðasta bókin sem ég las
var smásagnasafn Einars Más Guð-
mundssonar, Kaxmski er pósturinn
svangur, sem kom út fyrir jól. Ég
hafði mjög gaman af þessum smá-
sögum. Þar segir m.a. frá Haraldi
Jóhannessyni hagfræðingi sem er
nýlátinn en setti svip á borgarlífíö.
Svo hef ég verið aö lesa bækur um
stöðu kristinna manna gagnvart
múslímum en um það hefur mikið
verið ritað,“ sagði Bjöm Bjamason,
borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokks-
ins, þar sem DV hitti hann í versl-
un Pennans-Eymundssonar í Aust-
urstræti í tilefni viku bókarinnar,
sem er nýliðin, og lestrarátaki
Pennans-Eymundssonar, Bækur
skipta máli.
Björn segist allajafna lesa mikið.
Hann er áskrifandi að tímaritum
um alþjóðamál og ýmis önnur mál-
efni og reynir eftir megni að fylgjast
með skáldsagnamarkaðinum og
markaði fyrir heimildabækur.
Hann fagnar þeirri grósku sem er í
útgáfu fræðirita fyrir almenning og
nefnir m.a. til sögunnar nýlegar
bækur um hálendi íslands og Þing-
vallavatn. „Þessar bækur höfða til
almennings ekki síður en sérfræð-
inganna og i þeim má kynnast land-
inu á skemmtilegan hátt án þess að
vera á ferðalagi.“
- Hver er uppáhaldshöfundur
þinn?
„Ef ég á að nefna þann sem ég hef
einna mestar mætur á af ungum
skáldsagnahöfundum kemur Einar
Már Guðmundsson í hugann, þá
hafði ég gaman af bók Hallgrims
Helgasonar, Höfundur íslands, og
einnig Gæludýrunun eftir Braga
Ólafsson, svo að ég nefni nýjar bæk-
ur. Bækur Vigdísar Grímsdóttur
vekja jafnan einnig áhuga hjá mér.
Margir fleiri höfundar höfða til
mín, ég hef mætur á Matthíasi Jo-
hannessen og sömuleiðis þeim Guð-
um í gegnum fjölmiðla. Það versta
er að ég sé alltaf svo margt áhuga-
vert sem mig langar til að kaupa en
veit jafnframt að ég hef takmarkað-
an tíma til að lesa.“
Þótt mikill tími Ingibjargar fari í
lestur af ýmsu tagi segist hún ekki
nota lestur sem slökun í kosninga-
baráttuni: „Ég nota kvikmyndir
bergi Bergssyni og Thor Vilhjálms-
syni. Þá þóttu mér bækur Böðvars
Guðmundssonar um Vestur-íslend-
inga bregða góðu ljósi á örlög þess
fólks."
- Hvað höfðar helst til þín í bóka-
búðum?
„Þar sem íslenskar bækur eru yf-
irleitt svo rækilega kynntar með
auglýsingum og annarri umfjöllun
leita ég oftast beint i erlendar bæk-
ur, fari ég i bókabúð. Ég kaupi líka
töluvert af bókum á ferðalögum er-
lendis, bæði í flugstöðvum og bóka-
búðum stórborganna. Það er gaman
að sjá hvemig bókabúðir hafa þró-
sem hvíld. Það gerir minni kröfur
til mín en bóklestur. Að auki er það
félagsleg athöfn að horfa á kvik-
mynd með öðrum, svo er hægt að
liggja upp í loft og úða í sig ein-
hverri óhollustu. Allt er þetta bráð-
hollt í hófi - ekki sist fyrir sálina.“
-hlh
ast og breyst víða. Þær eru orðnar
mjög stórar og bjóða víðtæka þjón-
ustu, er oft gott að setjast þar niður
og fá sér tesopa og glugga í það sem
er á boöstólum. Þetta er heimur út
af fyrir sig og maður getur gleymt
sér þar ekki síður en á söfhum,“
segir Bjöm.
í önnum kosningabaráttunnar
segir Björn afar slakandi að setjast
með bók þótt tíminn til þess sé ekki
mikill. „Maður er einn með sjálfum
sér og bóklestur hvilir hugann. Mér
líður alltaf mjög vel með bók í
hendi eða innan um bækur enda al-
inn upp á miklu bókaheimili." -hlh
þinn?
"'T- *
UTBOÐ
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkið: „Viðgerð
röravarmaskipta". Verkið felst í endurnýjun röra í þremur ryðfríum
varmaskiptum Nesjavallavirkjunar. Fjöldi röra í hverjum varmaskipti
er 1030. Rörin eru 25,4 mm í þvermál og um 4,2 m að lengd.
Fyrsta varmaskiptinn skal afhenda fullfrágenginn og prófaðan fyrir
10.11. 2002.
Verkinu skal lokið fyrir 1.6. 2003, sjá nánar í útboðsgögnum.
Útboðsgögn, sem eru á ensku, fást á skrifstofu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með 8. maí
2002.
Opnun tilboða: 4. júní 2002, kl. 11.00, á skrifstofu
Innkaupastofnunar.
UTBOÐ
F.h. Gatnamálastofu Reykjavfkur og Orkuveitu Reykjavíkur er
óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk: Kirkjutún - 3. áfangi.
Mánatún og Borgartún, gatnagerð og lagnir
Helstu magntölur eru þessar:
Gröftur 3.600 m3
Fyllingar 3.500 m3
Púkk * 1.700 m3
Mulningur 800 m2
Gangstéttar 1.200 m2
Holræsalagnir 220m
Vatnslagnir 150m
Rafstrengir 300m
Skiladagur verksins er 15. september 2002.
Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar,
Frfkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með 7. maí 2002, gegn 10.000
kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 16. mai 2002, kl. 14.00, á skrifstofu
Innkaupastofnunar.
GAT 53/2
Lestrarhesturinn Björn Bjarnason:
Líður alltaf vel
með bók í hendi
DV-MYND POK
Gluggar í Megas
Björn Bjarnason gluggar í Megas, bók meö textum og öðru efni höfundar, í
Bókaverslun Pennans-Eymundssonar í Austurstræti.