Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Side 16
16
Helgarblað
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002
DV
Enld Blyton, afkastamestl barnabókahöfundur helms.
Margir hafa þóst lesa miöur geöþekka hugmyndafræöi úr bókum
hennar en þaö hefur engin áhrif á börn heims sem sækja enn sem
fyrr í bækurnar.
hans ákaflega. Hún var
fjórtán ára þegar hún
vann ljóðasamkeppni
bama og þaö varð henni
hvatning til að senda
greinar, sögur og ljóð til
ýmissa tímarita. Þeim
var hafnað og seinna
sagöi Enid útgefanda sín-
um að hún hefði vegg-
fóðrað herbergi sitt með
neitunarbréfum.
Enid þótti hæfileika-
mikill píanóleikari en
ákvaö að fara í kennara-
nám svo hún gæti séð
fyrir sér og skrifað í frí-
tímum. Hún starfaði sem
kennari í frnim ár og
birti á þeim tíma ljóð og
greinar fyrir fullorðna í
hinum ýmsu tímaritum.
Hún hafði mikla unun af
starfi sínu með bömum
og ákvaö að verða bama-
bókahöfundur. Fyrsta
bók hennar, ljóðabók fyr-
ir börn, kom út árið 1922
og fékk góða dóma. Enid
ákvað að einbeita sér að
því að skrifa fyrir böm
og smásögur eftir hana
birtust í tímaritum. Þær
nutu svo mikilla vin-
sælda að henni bárust
þúsundir aðdáunarbréfa
á hverju ári og hún svar-
aði slíkum bréfum alla
tíð persónulega.
Umdeildar
barnabækur
Árið 1930 giftist Enid
útgáfustjóranum Hugh
Pollock og þau eignuðust
Afkastamesti barna-
bókahöfundur heimsins
Barnabókahöfundurinn Enid Blyton skrifaöi á ferli sínum
rúmlega 700 bækur sem hafa veriö þýddar á yfir fjöutíu
tungumál. Hún er meöal annars höfundur Dodda-
bókanna, Ævintýrabókanna, Dularfullu bókanna og
bókanna um Fimm fræknu.
Enid Mary Blyton fæddist í London árið 1897,
elst þriggja systkina. Faðir hennar var verslunar-
maður og Enid, sem var eina dóttirin i systkina-
hópnum, varð eftirlæti hans. Saman stunduðu
þau plöntusöfnun og hann kenndi henni á píanó
þegar hún var sex ára gömul. Enid átti ekki gott
samband við móður sína sem ól hana upp til að
verða hlýðin eiginkona. Hún var afar lítið hrifin
af bóklestri dóttur sinnar sem faðirinn ýtti und-
ir. Þegar Enid var þrettán ára flutti faðir hennar
að heiman og til ástkonu sinnar og Enid saknaði
Ljóð vikunnar
Óráð
- eftir Jóhann Gunnar Sigurösson
Vindurinn þýtur og veggina ber.
Komdu til hennar Hervarar kveðju frá mér.
Segðu henni Hervöru, að hún sé stúlkan mín,
og biddu hana að geyma vel barnagutlln sín.
Segðu henni Hervðru, að ást mín lifi enn,
en hjartað sé að þreytast og hœtti víst senn.
Segðu henni Hervöru að hún haft það átf
og heyri í stunum þínum þess síðasta siátt.
Og segðu hennl Hervðru að signa mína gröf.
það verðl mér látnum sú þœgasta gjöf.
Ef Hervör mín var draumsjón og hún er ekki tll,
kastaðu þá kveðju minni í kolsvartan hyl.
Vindurinn þýtur og veggina ber. -
Bráðum fœr hún Hervör mín boðln frá mér.
Vlndurinn þýtur og vegglna ber. -
Finnið þið ekki kuldann á fótunum á mér?
Jóhann Gunnar Sigurðsson fæddist árið 1882
og lést úr berklum einungis 24 ára gamall. Hann
orti í nýrómantiskum anda og i mörgum ljóöa
hans má finna sterkan dauðabeyg. Flest verka
hans komu fyrst út í Kvæðum og sögum, árið
1909, þremur árum eftir dauða hans.
tvær dætur. Hjónin lifðu góðu lífi með bílstjóra,
garðyrkjumann og þjóna. Enid þótti harðlyndur
húsbóndi og rak þjónustufólkið miskunnarlaust
ef því varð á mistök. Á árum seinni heimsstyrj-
aldar slasaðist eiginmaður Enidar illa á sprengju-
æfmgu. Þegar Enid var tilkynnt að eiginmaður
hennar lægi slasaður á sjukrahúsi spurði hún
ekki hversu iila hann væri slasaöur heldur tók
skýrt fram að hún gæti ekki heimsótt hann á spít-
alann, hún þyldi ekki þá staði en bað um að sér
yrði tilkynnt hvemig honum myndi reiða af.
Stuttu siðar kynntist Enid skurðlækninum Kenn-
eth Waters, skildi við eiginmann sinn og giftist
Waters.
Enid var 45 ára þegr hún sendi frá sér fyrstu
„Bókin sem skóp líf mitt var LÍNA
LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren, gamla ís-
lenska þýðingin (ekki þessi nýlega sem gjörsam-
lega missti marks). Ég varð Línu-aðdáandi þegar
ég var rétt búinn að slíta bamsskónum, neitaði aö
klippa á mér hárið af því að ég var að safna í flétt-
ur eins og Lina var með. Það tókst næstum því.
Uppáhaldskaflinn minn er þegar Lína mætir í
kaffiboðið hjá öllum fmu konunum, og reytir af
sér lygasögumar um hana Möllu vinnukonu sem
var alveg ömurlegur starfskraftur. Þessi kafli er
náttúrlega algjört pönk. Þegar Leikfélag MH setti
svo upp söngleikinn Rocky Horror í Iðnó gerði ég
mér grein fyrir því að Frank-n-Furter, Lína
Langsokkur og Mary Poppins eiga mjög margt
sameiginlegt. Þau eru allt sem okkur dreymir um
að vera: sterk, klár, fyndin, rík, yfimáttúrleg og
geta jafnvel flogið. Þau eru næstum því guðleg.
Þau eiga það líka sameiginlegt að vera stillt upp
við hliðina á mjög „streit" pörum: Brad og Janet,
Tomma og Önnu, Jane og Michael. Vitaskuld
breyta þau lífi þeirra allra, rétt eins og Lína og
Frank breyttu lífi mínu. Án þeirra hefði ég ömgg-
lega haldið áfram að vera einmana lúði með öm-
urlegan húmor sem ég fékk enga svömn við. Þess-
ar sögupersónur svöruðu mér til baka - og jafnvel
bókina í bókaröðinni um hina Fimm fræknu. Síö-
an komu svonefndar Ævintýrabækur og Dular-
fullu bækur og sögumar um Dodda. Tilurð
Dodda-bókanna var á þann veg að Enid sá teikn-
ingar eftir hollenska listamanninn Van der Beek.
Hún heillaðist af sakleysi myndanna og sagði:
„Ég gæti skrifað í kringum þessar myndir.“ „Af
hverju gerirðu það ekki?“ spurði útgáfustjóri
hennar og hugmyndin var fædd.
Dodda-bækurnar nutu gifurlegra vinsælda en
árið 1958 skrifaöi bókmenntafræðingur nokkur
grein þar sem hann gagnrýndi bækumar harð-
lega og sagði þær fullar af fordómum og kynþátta-
hatri. Á þessum tíma komust einnig á kreik sög-
ur um að Enid hefði á sínum snæram aðstoðar-
menn sem skrifuðu bækumar að mestu leyti. Þar
sem Enid skrifaði að meðaltali fimmtán bækur á
ári er ekki skrýtið að erfitt var að kveða slíkar
sögur i kútinn. Reyndar hafa alls kyns ásakanir
dunið á Enid Blyton og hún meðal annars sökuð
um að hafa verið andsnúin konum, verið kyn-
þáttahatari, snobbhænsn og afturhaldssöm. Þessi
gagnrýni hefur ekki haft nein áhrif á vinsældir
bókanna meðal barna. Bækur Enid Blyton em
enn lesnar upp til agna.
Enid hafði ákveðnar vinnureglur. Eftir að hafa
borðað morgunmat vafði hún sjali um herðar sér
og settist á harðan stól með tréplanka yfir hnján-
um og hafði ritvélina á plankanum. Hún endur-
skrifaði nær aldrei. I bréfi til eins aödáanda síns
sagði hún: „Þegar ég byrja á nýrri bók með nýj-
um persónum veit ég ekkert hvemig persónum-
ar verða, hvar bókin gerist eða hvaða ævintýri og
atburðir muni gerast. Ég loka augunum í nokkr-
ar mínútur, með ritvélina á hnjánum, ég þurrka
út allar hugsanir og bíð og sé þá persónurnar
standa fyrir framan mig. Ég sé þær í smáatriðum;
hárið, augun, fætuma, fotin, svipbrigðin - og ég
veit alltaf skimamöfn þeirra en ekki eftimöfn,
þau finn ég seinna í símaskránni."
„Hugsaði eins og bam“
Enid var mjög ákveðin kona og taldi sig ætíð
hafa á réttu að standa. Eftir skilnað við fyrri eig-
inmann sinn meinaði hún honum að hitta dætur
þeirra. Hún sýndi móður sinni sama miskunnar-
leysi, en þeim hafði aldrei samið vel. Þegar móð-
ir hennar lá fyrir dauðanum neitaði Enid að hitta
hana. Dætur Enidar vissu ekki af ömmu sinni
fyrr en nokkmm árum eftir dauða hennar. Það
var alltaf látið eins og hún væri ekki til. Árið 1989
skrifaði yngri dóttir Enidar bók um móður sína
þar sem hún sakaði hana um vanrækslu og kald-
lyndi í sinn garð. Eldri dóttirin hefur hins vegar
lýst móður sinni sem ástríkri og umhyggjusamri
móður.
Síðustu átta árin sem Enid Blyton lifði þjáðist
hún af alzheimer. Eiginmaður hennar, sem lengi
hafði verið heilsulaus, lést árið 1967 og Enid lést
ári síðar á hjúkrunarheimlili. Sálfræðingurinn
Michael Woods sagði um hana: „Hún var bam,
hún hugsaði eins og bam og skrifaði eins og
bam.“
Ekki löngu áður en Enid Blyton lést var vinur
hennar í heimsókn hjá henni. Hún sagði honum
að hún saknaði eiginmanns sins. Vinurinn sagði
við hana að hún væri lánsöm að eiga dætur sín-
ar. Enid benti á bókahillumar sem geymdu bæk-
ur hennar og sagði: „Þetta em bömin mín.“
Páll Óskar
„ Uppáhaldskaflinn minn er þegar Lína mætir í
kaffiboöiö hjá ölium fínu konunum, og reytir afsér
lygasögurnar um hana Möllu vinnukonu sem var
alveg ömurlegur starfskraftur. Þessi kafli er náttúr-
lega algjört pönk. “
þótt þær hafi ekki verið alveg af þessum heimi þá
er ég ævinlega þakklátur sköpumm þeirra.“
Bókin sem skóp
líf mitt
Páll Óskar Hjálmtýsson söngvarí segirfrá bókinni sem hefur haft meirí
áhrif á hann en allar aðrar bækur.
Saga heim-
spekinnar
Ef þið eig-
ið í vandræð-
um með að
skilja kenn-
ingar fræg-
ustu heim-
spekinga sög-
unnar (og
hver ruglast
ekki í riminu
í þeim efn-
um?) þá er þetta bókin sem skýrir
málin. Einstaklega greinargóð og
skemmtileg umfjöllun um helstu
heimspekinga sögunnar og við-
fangsefni þeirra eftir breska heim-
spekiprófessorinn Bryan Magee.
Ekki spillir að í allri uppsetningu er
þetta einstaklega falleg bók og ríku-
lega myndskreytt. Bók mánaðarins
í Máli og menningu og kostar 4190
krónur.
Karlmaður
sem trúir engu þarf
samt stúlku sem trúir
á hann.
Rosenstock-Huessy
Bókalistinn
Allar bækur
1. LEGGÐU RÆKT VIÐ SJÁLFAN ÞIG.
Anna Valdimarsdóttir
2. KOPPURINN MINN. Lara Jones
3. UÓNIÐ, NORNIN OG SKÁPUR-
INN. CS. Lewis
4. ÞINGVALLAVATN. Pétur M.
Jónasson oq Páll Hersteinsson
5. PABBI - BÓK FYRIR VERÐANDI
FEÐUR. Inqólfur Gíslason
6. BRÓÐIR MINN UÓNSHJARTA.
Astrid Lindqren
7. FAÐMAÐU MIG. Lara Jones
8. SÖGUR OG ÆVINTÝRI.
Astrid Lindqren
9. ÁTÖK OG ÓFRIÐUR VIÐ ÞJÓÐ-
VEGINN. Jón R. Hjálmarsson
10. EYÐIMERKURBLÓMIÐ. Waris
Dirie
Skáldverk
1. SUNNAN VIÐ MÆRIN, vestur af
sól. Haruki Murakami
2. STÚLKAN SEM ELSKAÐI TOM
GORDON. Stephen Kinq
3. TÍU LITLIR NEGRASTRÁKAR.
Aqatha Christie
4. BREKKUKOTSANNÁLL.
Halldór Laxness
5. ÚNGFRÚIN GÓÐA OG HÚSIÐ.
Halldór Laxness
6. SMÁSÖGUR. Halldór Laxness
7. SALKA VALKA. Halldór Laxness
8. HERRA PALOMAR. Italo Calvino
9. TÚLKUR TREGANS. Jhumpa Lahiri
10. ISLANDSKLUKKAN. Halldór Laxness
Metsölulisti Eymundsson 25.4. -1.5.
Kiljur
1. ON THE STREET WHERE YOU
LIVE. Mary Hiqqins Clark
2. THE VILLA- Nora Roberts
3. DUST TO DUST. Tami Hoaq
4. KENTUCKY RICH. Fern Michaels
5. COLD PARADISE. Stuart Woods
Listinn er fré New York Times