Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Qupperneq 24
2 -4 He Iga rb ictcð DV LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 Fegurstu byggingar borgarinnar Huerjum þykir sirw fuql fagur seqir qamalt máltæki oq er áreiðanleqa rétt. Flestir eru sennileqa nokkuð ánæqðir með sitt eiqið hús en svo eru önnur hús sem við eiqum öll saman oq höfum mismunandi skoðanir á fequrð þeirra. DV qerði skoðanakönnun á þvíhver væri feqursta bqqqinq íReqkjavík. DV HEFUR KANNAÐ ÁLIT FÓLKS á því hver sé fegursta bygging Reykjavíkur. I skoðanakönnun var fólk spurt eftirfarandi spurningar: Hver finnst þér vera fallegasta bygging Reykjavíkur? Góð svörun var í könnuninni því flestir virðast hafa á þessu ein- hverja skoðun. Könnunin leiðir í ljós að Hallgrímskirkja þykir mönnum og konum vera fallegasta bygging Reykja- víkur. Þetta var skoðun rúmlega 21 prósents þeirra sem spurðir voru. Þetta hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar því kirkjan var um miðja síðustu öld frekar umdeilt framtak og sýndist sitt hverjum um fegurð hennar og tíguleik. Andúð sumra náði slíku flugi að eitt af stóru skáldunum í bænum, Steinn Steinarr, orti heilt kvæði sérstaklega um þessa hálfköruðu byggingu og þar er að fmna þessar frægu hendingar. Ef turninn er lóöréttur hallast kórinn til hœgri. Mín hugmynd er sú að ein trappa sé annarri lœgri. Húsameistari ríkisins ekki meir ekki meir. Hallgrímskirkja er fallegasta bygging Reykjavíkur að mati íbúanna. Ráðhúsið er fjórða fegursta bygging borgarinnar. Af þessu má ráða að bvggingar sein eru umdeildar í fyrstu verða síðan íbúunum hjartfólgnar. Safnahúsið við Hverfisgötu eða Þjóðmenningarhús komst í þriðja sæti sem verður að teljast góður árangur. Húsameistarinn sem Steinn ávarpar i kvæði sínu er Guðjón Samúelsson sem var jafnframt fyrsti húsameist- ari þessarar fátæku þjóðar sem fram á tuttugustu öld lét sér nægja moldarkofa og stöku bárujárnshús án leiðsagnar arkitekta eða húsameistara. Á listanum yflr fjórtán failegustu byggingar borgar- innar eru fjögur hús sem eru höfundarverk Guðjóns. Auk Haligrímskirkju eru það Landspítalinn við Hring- braut, Þjóðleikhúsið og Háskóli íslands. Þetta er arf- leifð sveitadrengs frá Hunkubökkum á Síöu sem tókst að nýta form íslenskrar náttúru úr æsku sinni og gera aö byggingarlist heiflar þjóðar. Eins og sumar af helstu kirkjum heimsins var Hall- grímskirkja lengi í byggingu þótt byggingartíminn sé ekki mældur í öldum heldur áratugum. Skömmu áður en kirkjan var fullbúin lét af störfum smiður nokkur sem varð frægur stutta stund vegna þess að hann hafði alla sína starfsævi unnið við byggingu kirkjunnar. Nokkrar stærstu dómkirkjur Evrópu eins og Kölnar- dómkirkja, Sacre-Coeur og Notre-Dame í París og fleiri voru fast að 300 ár í byggingu. Húsið sem kemst næst Hallgrímskirkju var líka um- deilt þegar það var í byggingu en hefur greinilega náðst sátt um það í þjóðarsálinni því það kemur fast á hæla kirkjunni í skoðanakönnuninni. Þetta er Perlan sem reist var ofan á hitaveitutönkunum í Öskjuhlíð í upp- hafl tíunda áratugarins. í ljós kemur að Perlan fær aðeins þremur atkvæðum minna er Haflgrímskirkja og hlýtur þaö aö tákna að um þetta hús ríki orðið nokkur sátt. Það var Ingimundur Sveinsson sem teiknaði þetta sérstæða hús sem var töluvert umdeflt á sínum tíma en reyndar voru mótbár- ur manna gegn umræddri byggingu fremur af pólitísk- um toga en fagurfræðilegum. Hugmyndin um hús ofan á hitaveitutönkunum mun vera talsvert gömul og upp- haflega ættuð frá Jóhannesi Kjarval listmálara og ein- um ástsælasta listamanni þjóðarinnar. Svörin eru aðgreind eftir kyni og það kemur í ljós að skoðanir karla og kvenna á Hallgrímskirkju eru í miklu jafnvægi en talsvert fleiri karlar en konur nefndu Perluna og er ekki gott að átta sig á því hvað veldur þeim mun. Sumir hafa haft á orði að form Perlunnar minni á fagurskapað konubrjóst og ef til vill er skýringin fólgin í því að karlar hrífist meira af henni en konur. Þaö var síðan Safnahúsið viö Hverfisgötu eða Þjóð- menningarhús sem lenti í þriðja sæti. Þetta er merki- legt hús og fagurt sem var tekið í notkun á þriðja ára- tug aldarinnar og er teiknað af dönskum arkitekt. Það er greinilegt að Reykvíkingar hafa ekki látið nýleg hneykslismál tengd umræddu Þjóðmenningarhúsi breyta neitt áliti sínu á þessu fagra húsi en endurbæt- ur sem gerðar voru af mikilli vandvirkni fyrir opnun hússins árið 2000 þóttu takast sérlega vel. Það voru 12,1 % aðspurðra sem nefndu Þjóðmenningarhúsið og þessi þrjú hús sem skipuðu þrjú efstu sætin á fegurðarlista húsa í Reykjavík skáru sig nokkuð úr hvað fjölda at- kvæða varðar. í fjórða sæti með 6,2% atkvæða lenti síðan hús sem var afskaplega umdeflt á sínum tíma líkt og önnur sem hér hafa verið nefnd. Þetta er Ráðhús Reykjavíkur sem stendur við eða i Tjörninni. Þetta hús varð tilefni harð- vítugra deilna meðan það var í byggingu. Það var reist undir dyggri forystu meirihluta sjálfstæðismanna í borginni og þótti sjálfgeflð að andstæðingar flokksins væru andstæðingar hússins. Allhörð andstaöa innan Sjálfstæðisflokksins vakti hins vegar meiri athygli og er fullyrt að einhverjir gamalgrónir íhaldsmenn hafi átt afar erfiða daga um þessar mundir. En allt er þetta gleymt og þótt mönnum sýnist ef til vill sitt hverjum um staðsetningu hússins þá er greinilegt að mörgum finnst húsið sjálft fallegt. í fimmta sæti er síðan Alþingishúsið við Austurvöll sem fær þá aöeins stuðning 5,3% aðspurðra. Þetta gamla og fallega steinhús sem danskir steinsmiðir reistu hér á seinni hluta nítjándu aldar hefur kannski frekar pólitíska merkingu í hugum fólks en fagurfræði- lega. Landspítalinn við Hringbraut er síðan í sjötta sæti en þetta mikla hús Guðjóns Samúelsson- ar er bæði fallegt og stendur vel þótt það sé í þann veginn að hverfa bak viö trjágróður og fjölskrúðugar viðbyggingar. Hið fræga glæsihús Höfði við Borgartún kemst í sjö- unda sæti en það eru ekki mörg atkvæði þar að baki. í kjölfar leiðtogafundar Reagans og Gorbatsjovs 1985 héldu margir að Höfði yrði eitt af frægustu húsum heimsins. Ef svo væri hefðu sennilega fleiri nefnt það. Neðar á listanum er að finna ýmsar merkar bygg- ingar í Reykjavík eins og Dómkirkjuna, Háskólann, Þjóðleikhúsið, Borgarbókasafnið gamla við Þingholts- stræti og Norræna húsið. Það vekur athygli í þessu sambandi að undarlega mikill munur sést stundum á afstöðu karla og kvenna. Þannig nefndu 10 konur Há- teigskirkju sem fegursta hús bæjarins en aðeins tveir karlar voru á sömu skoðun. Hvað liggur að baki þess- ari skiptingu en sennilega engin leið að vita. -PÁÁ Perlan var uindeild þegar hún var byggð en nú telja menn hana næstfegurstu byggingu borgarinnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.