Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Qupperneq 36
36 Helcfarblaö 33 "V LAUGARDAGUR 4. fvl/Vf 2002 Ljóðasöngur, heimþrá og útlegð Ranrweiq Fríða Braqadóttir söngkona oq Gerrit Schuil píanóleikari ætla að halda sunnudagstónleika í tónlistarhúsinu Ými ó morqun. Þau töluðu við blaðamann DV um Ijóðasönq, heimþrá, menningarheima, listir oq íþróttir. Þegar farfuglarnir á íslandi koma þá sannfærumst viö alltaf um að vorið sé á næsta leiti. Með farfuglun- um koma einnig útlagarnir og sumir þeirra syngja reyndar eins og frægustu söngfuglar. Einn þessara útlaga eða farfugla má segja að sé Rannveig Fríða Bragadóttir söngkona sem er komin aftur „heim“ til þess að syngja fyrir okkur og syngja í okkur vorið. Öfugt við Garðar Hólm, heimssöngvarann í Brekkukotsannál Halldórs Laxness sem alltaf var á leiðinni heim að halda tónleika, kemur Rannveig næstum árlega og er yfirleitt mun betur tekið og fær meiri aðsókn en Garðar Hólm sem söng að lokum fyr- ir móður sína aldraða eina áheyrenda. En eins og Garðar hefur Rannveig dvalist ijarri fósturjarðar ströndum en Rannveig er búsett í Vínarborg þar sem hún ílentist fyrir um 20 árum eftir nám í söng í þess- ari háborg evrópskrar tónlistar og menningar. Rannveig heldur tónleika í tónlistarhúsinu Ými við Skógarhlíð á morgun sunnudag ásamt Gerrit Schuil pianóleikara sem er listrænn stjómandi hússins. Söngur, tár og takkaskór Þegar blaðamann DV ber að garði á einni af æfmg- um Rannveigar og Gerrits er Rannveig að syngja og Rannveig Fríða Bragadóttir söngkona er komin „heim“ til tónleikahalds. það er eitthvað við þessa mjúku rödd og þessa ástríðufullu túlkun sem smýgur innfyrir rifjahylkið og togar í mína hjartastrengi. Tónlistin hefur þetta vald yfir manninum að hún læðir sínum grönnu fingrum inn í sálu manns og snertir strengina. Hina réttu strengi sem stjórna tilfinningum okkar. Þarna rifjast upp fyrir mér tónleikar sem ég var staddur á í Votivkirkjunni í Vínarborg í júní í fyrra. Þar söng Rannveig Fríða. Framarlega í þessari há- reistu mörg hundruð ára gömlu steinkirkju sat stór- vaxinn, svipsterkur maður með mikið hvítt hár. Hann hlýddi svo hugfanginn á söng Rannveigar aö tárin streymdu óhindrað niður kinnar hans og hann snökti af geðshræringu. Yfir kaffibolla i kjallaranum verðum viö Rannveig sammála um að það sé dýrmætur eiginleiki að geta hrifist af fagurri list og leyst sig úr viðjum. Síðan leiðast umræðurnar að gildi íþrótta, hvort hægt sé að gráta yfir myndlist, sem Rannveig segir að sé hægt. Gerrit heldur skorinorðan fyrirlestur gegn fótbolta og efast um gildi maraþonhlaupa. Rannveig heldur því fram að þaö sé persónubundið hvers maður getur verið án og hún segist ekki geta lifað án listár. Líf án listar er tómt líf. Getur verið að það fólk sem lifir lífi án listar haldi að fótbolti og Sopranos sé list? „List snertir anda okkar með þeim hætti sem íþróttir geta aldrei," segir Gerrit sem reyndar upplýs- ir við þetta tækifæri að hann hafi keppt í listhlaupi á skautum í æsku. „Sá sem dáir fótbolta getur upplifað sterkar tiMnn- ingar eins og reiði eöa gleði en það er aðallega múgsefjun. Endorfín er líkamlegt en ekki andlegt." Rannveig heldur því fram að listin sé það eina sem geti miðlað til okkar hugmyndum um það sem máli skiptir í lífinu og snert tilfinningar okkar. I miðri rökfærslu fyrir því að hlaupaþjálfun og sú ögun sem í henni felst geti þjálfað andann man ég allt i einu að við erum hérna til að tala um tónlist og vil fá að vita hvernig tónleikar þetta verða á morgun en þetta verða einu tónleikar Rannveigar á íslandi að þessu sinni og síðan er hún flogin aftur. Sungið til gleðinnar „Við byrjum á því að flytja lag sem Wolfgang Ama- deus Mozart samdi þegar hann var ellefu ára. Það heitir An die Freude eða Óður til gleðinnar. Þar er skáldið unga að fjalla um gleðina af listinni og gleð- ina í lífinu og við gætum öll lært af hans fallega og innihaldsríka texta sem fjallar um hinn innri fjársjóð sem er svo eftirsótt aö hafa,“ segir Rannveig en tvö önnur lög eftir Mozart eru á efnisskránni. „Síðan eru þrjú lög eftir Schubert, mjög falleg og Rannveig og Gerrit Schuil píanóleikari. Þau eru bæði nokkurs konar útlagar. Hann hcfur verið 10 ár á ís- landi, hún 20 ár í Austurríki. DV-myndir E.Ól. síðan þrjú lög eftir Gustav Mahler við texta úr safni af þjóðkvæðum. Síðan eftir hlé byrjum við á því að frumflytja lög sem Páll Pampichler Pálsson samdi sérstaklega fyrir okkur við texta eftir Wilhelm Busch sem er sennilega frægastur fyrir að semja sögumar um Max og Moritz sem eru af mörgum taldar fyrstu teiknimyndasögur heimsins," segir Rannveig og hún og Gerrit komast að þeirri niðurstöðu að sennilega hafi Max og Moritz verið Beavis and Butthead síns tíma. „Tónskáldið kallar þessi þrjú lög Erótíska söngva og tileinkaði þau mér,“ segir Rannveig og mér sýnist hún roðna örlítið. Svo lýkur tónleikunum á spænskum lögum sem þau eru sammála um að einkennist af spænskum blóðhita og fíngerðum elegans. Rannveig segir að fyrir sig persónulega sé ljóöa- söngur það form tónlistarflutnings sem henni finnst mest krefjandi og áhugaverðast og hún segist helst vilja koma heim til íslands árlega og vinna eina tón- leika með Gerrit Schuil. „Mér finnst hvert lag vera lítill heimur út af fyrir sig. Það er alltaf gaman að fara inn í þessa heima. Raddlega er það mjög krefjandi að syngja ljóð og þau gera kröfur til listamannsins um flutning. Ég man þegar ég var að æfa fyrir fyrstu Schubert-tónleikana mina og sat heima og grét því mér fannst ég vera eins og fíll í postulínsbúð." Hvað er heimþrá? Svo förum við að tala um heimþrá. Rannveig ts- lendingur hefur verið 20 ár í Austurríki en Gerrit Hollendingur hefur brátt verið 10 ár á íslandi. Þau eru því bæði útlagar í ákveðnum skilningi þess orðs. Rannveig talar um náttúruna ótömdu og hreinleik- ann og vatnið sem eru hluti af menningararfi sem fylgir henni alltaf. Hún talar um fjölskylduna og tengslin og kosti og galla þess að sitja á tveimur stól- um í senn. Gerrit talar um að ganga um dimma skóga með 500 ára gömlum trjám, feta í fótspor Beethovens og finna lyktina af skógarbotninum í desember. Hann segir frá því þegar hann fékk slæmt heimþrárkast á amerísk- um flugvelli við það eitt að sjá flugvél frá KLM. Rannveig segist oft fá heimþrá. Gerrit segir i fyrstu að hann sé heimsborgari sem eigi hvergi heima nema þar sem flygillinn hans stendur hverju sinni. Svo við- urkennir hann að hann sé afsprengi evrópskrar menningar og hann verði að fara á vit hennar með reglulegu millibili, fara að uppsprettunni en hann segist aldrei ætla að búa í stórborg framar. Svo er margt skrafað um ólíka menningarheima og gerð enn ein tilraun til þess að skilgreina íslenskan veruleika og þar koma við sögu hlutir eins og stjórn- leysi, óreiða, frelsi og fákeppni. Þetta er of löng saga til að rekja hér og ég yfirgef Ými og um leið og söng- ur Rannveigar hljóðnar - að baki mér tekur lóan við. -PÁÁ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.