Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Side 41
LAUGARDAGU R 4. MAf 2002
Helgorblctö DV
getað boðið neinum vinnuveitanda upp á það að vera
hlaupandi frá vinnu út og suður alla vikuna við að
reyna að bjarga mínum málum. Síðan við komum til
New York hefur það staðið til að dæmið yrði klárað. í
fyrra ætluðum við að sigla til Washington þegar þessi
hræðilegu hryðjuverk dundu yfir. Ég varð að hættg við
brottför og það fór algjörlega með mig. Það hefði bjarg-
að því sem bjargað varð. Þá var ég með samning við
sænska símafyrirtækið Telia og Iceland Naturally. Það
hefði orðið mikil athygli sem sá leiðangur hefði fengið.
Hann frestaðist hins vegar algjörlega. Telia hafði fyrr á
þessu ári áhuga á að kaupa íslending eða leigja en
vegna sameiningar Telia og TeleDanmark var hætt við
það. Síðan hefur verið mjög erfitt að finna eitthvað fyr-
ir skipið að gera og erfitt að vera með þennan skulda-
bagga á bakinu."
Núna er Islendingur í Westbrook í Connecticut inn-
an um nýtísku snekkjur. Er ekki sárt að hugsa til hans
þar?
„Nei, ég ber engar tilfinningar til hans. Ég er hrædd-
ur um hann því það eru mikil verðmæti fólgin í hon-
um.“
Og skiptir þar engu að hvert handtak í honum er
þitt?
„Nei, ég gerði þetta eingöngu til að koma landi og
þjóð á framfæri og verða að einhverju gagni. Ég hef
alltaf horft til þess að skipinu yrði stillt upp á glæsileg-
an hátt hér heima svo við þyrftum ekki að skammast
okkar fyrir að eiga ekki vikingaskip. Þannig sá ég það
fyrir mér og hef ekki villst neitt af þeirri braut. Mér líð-
ur eins og hálfgeröum villimanni að setja hann á e-Bay.
En svo verður að vera því ég get ekki gert meira. Það
er ekki flóknara en það.“
En ef ekki tekst aö selja íslending og íslensk stjórn-
völd hlaupa ekki undir bagga með þér? Hvað gerist þá?
„Þá er það bara hamarinn. Það er ekkert öðruvísi.“
Hvaða tímaramma er um að ræða?
„í mesta lagi tvo mánuði. Ég hef haft tilhneigingu til
að ýta þessu á undan mér. Þannig hef ég hagað mér illa
gagnvart sjálfum mér og fjölskyldu minni. Ég hef ýtt
þessu á undan mér í þeirri von að eitthvað sé að rofa
til hér heima og menn sjái rétta ljósið, flytji hann hing-
að heim og ljúki verkefninu. Mér finnst mjög sorglegt
fyrir þjóðina, ekki sjálfan mig, ef þetta skip gengur okk-
ur úr greipum."
Hvað þarftu að fá fyrir bátinn?
„Ég fékk boð upp á 600 þúsund dali og við það miða
ég. Nýtísku skútur sem eru styttri eru seldar á upp und-
ir milljón dali. í ljósi þess að íslendingur er besta eftir-
líking af Gauksstaðaskipinu hingað til og eina skipið
sem fór yfir hafið til Ameríku árið 2000 finnst mér ekki
mikið þótt 600 þúsund dalir séu settir á það. En auðvit-
að myndi ég selja hann ódýrar ef skuldirnar hvíldu
ekki á honum."
Hvað segja stjórnvöld?
Menn hafa mikinn áhuga á þessu en það er
eins og vanti eina persónu til að skila
þessu í gegnum kerfið. Ég er ekki rétti
maðurinn í það hlutverk. Ég er seljand-
inn auk þess sem ég er algjörlega búinn
með batteríin. Menn tala mikið um þetta hér og þar en
það vantar töluvert upp á að eitthvað gerist. Ég er boð-
inn og búinn að sigla honum hingað í sumar ef ég fengi
65 milljónir. Sú upphæð myndi skila sér ómælt í land-
kynningu.
Núna er hreinlega komið að því að ég verö að klára
dæmið, hvernig sem það veröur. Nú er að duga eða
drepast."
Þú ert líklega meiri skipasmiður og sjómaður en
sölumaður?
„Já, mikil ósköp, það er ég. En það kemur ekki í ljós
fyrr en á endanum. Ef ég fer á hausinn er ég enginn
sölumaður en ef það tekst að koma íslendingi hingað
heim hangi ég kannski í þvi að vera svolítill sölumað-
ur. Forfeður okkar voru oft á tíðum miklir sölumenn.“
■sm