Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Síða 41
LAUGARDAGU R 4. MAf 2002 Helgorblctö DV getað boðið neinum vinnuveitanda upp á það að vera hlaupandi frá vinnu út og suður alla vikuna við að reyna að bjarga mínum málum. Síðan við komum til New York hefur það staðið til að dæmið yrði klárað. í fyrra ætluðum við að sigla til Washington þegar þessi hræðilegu hryðjuverk dundu yfir. Ég varð að hættg við brottför og það fór algjörlega með mig. Það hefði bjarg- að því sem bjargað varð. Þá var ég með samning við sænska símafyrirtækið Telia og Iceland Naturally. Það hefði orðið mikil athygli sem sá leiðangur hefði fengið. Hann frestaðist hins vegar algjörlega. Telia hafði fyrr á þessu ári áhuga á að kaupa íslending eða leigja en vegna sameiningar Telia og TeleDanmark var hætt við það. Síðan hefur verið mjög erfitt að finna eitthvað fyr- ir skipið að gera og erfitt að vera með þennan skulda- bagga á bakinu." Núna er Islendingur í Westbrook í Connecticut inn- an um nýtísku snekkjur. Er ekki sárt að hugsa til hans þar? „Nei, ég ber engar tilfinningar til hans. Ég er hrædd- ur um hann því það eru mikil verðmæti fólgin í hon- um.“ Og skiptir þar engu að hvert handtak í honum er þitt? „Nei, ég gerði þetta eingöngu til að koma landi og þjóð á framfæri og verða að einhverju gagni. Ég hef alltaf horft til þess að skipinu yrði stillt upp á glæsileg- an hátt hér heima svo við þyrftum ekki að skammast okkar fyrir að eiga ekki vikingaskip. Þannig sá ég það fyrir mér og hef ekki villst neitt af þeirri braut. Mér líð- ur eins og hálfgeröum villimanni að setja hann á e-Bay. En svo verður að vera því ég get ekki gert meira. Það er ekki flóknara en það.“ En ef ekki tekst aö selja íslending og íslensk stjórn- völd hlaupa ekki undir bagga með þér? Hvað gerist þá? „Þá er það bara hamarinn. Það er ekkert öðruvísi.“ Hvaða tímaramma er um að ræða? „í mesta lagi tvo mánuði. Ég hef haft tilhneigingu til að ýta þessu á undan mér. Þannig hef ég hagað mér illa gagnvart sjálfum mér og fjölskyldu minni. Ég hef ýtt þessu á undan mér í þeirri von að eitthvað sé að rofa til hér heima og menn sjái rétta ljósið, flytji hann hing- að heim og ljúki verkefninu. Mér finnst mjög sorglegt fyrir þjóðina, ekki sjálfan mig, ef þetta skip gengur okk- ur úr greipum." Hvað þarftu að fá fyrir bátinn? „Ég fékk boð upp á 600 þúsund dali og við það miða ég. Nýtísku skútur sem eru styttri eru seldar á upp und- ir milljón dali. í ljósi þess að íslendingur er besta eftir- líking af Gauksstaðaskipinu hingað til og eina skipið sem fór yfir hafið til Ameríku árið 2000 finnst mér ekki mikið þótt 600 þúsund dalir séu settir á það. En auðvit- að myndi ég selja hann ódýrar ef skuldirnar hvíldu ekki á honum." Hvað segja stjórnvöld? Menn hafa mikinn áhuga á þessu en það er eins og vanti eina persónu til að skila þessu í gegnum kerfið. Ég er ekki rétti maðurinn í það hlutverk. Ég er seljand- inn auk þess sem ég er algjörlega búinn með batteríin. Menn tala mikið um þetta hér og þar en það vantar töluvert upp á að eitthvað gerist. Ég er boð- inn og búinn að sigla honum hingað í sumar ef ég fengi 65 milljónir. Sú upphæð myndi skila sér ómælt í land- kynningu. Núna er hreinlega komið að því að ég verö að klára dæmið, hvernig sem það veröur. Nú er að duga eða drepast." Þú ert líklega meiri skipasmiður og sjómaður en sölumaður? „Já, mikil ósköp, það er ég. En það kemur ekki í ljós fyrr en á endanum. Ef ég fer á hausinn er ég enginn sölumaður en ef það tekst að koma íslendingi hingað heim hangi ég kannski í þvi að vera svolítill sölumað- ur. Forfeður okkar voru oft á tíðum miklir sölumenn.“ ■sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.