Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Page 46
-4. 46
H e Iqcí rb lacf H>V LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002
*
Iláliyrningur er ein þekktasta hvalategund veraldar
en þá er að finna í sædýrasöfnum víða um heim.
Þekktasti háhyrningur heims er án efa Keikó sem
svamlar um í Klettsvíkinni við Vestmannaeyjar.
Háhyrningar verða 6-9 metra langir og 3-9 tonn á
þyngd. Þeir geta lifað í 50-70 ár, kvendýrin öllu
lengur. Stauinlínukenud líkamsbygging höfrungsins
er einkennandi fyrir vaxtarlag hvala en hún
endurspeglast mjög greinilega í beinagrind
háhyrningsins hér til hliðar.
í fyrrnefnda hópnum er steypireyður, sem er stærsta
dýr jarðar og getur mælst allt að 33 metra löng og 200
tonn á þyngd, langreyður, sandreyður, sem er til
hægri i opnunni, hnúfubakur, sem er efst, og
hrefna. Til tannhvala teljast búrhvalir,
andarnefja, grindhvalur, háhyrn-
ingur, hnýðingur og leifturhnýðir.
Háhyrningur er hér neðst á síðunni og einnig beina-
grindin úr honum. í opnunni eru einnig myndir úr svo sterklega fyrir smæð sinni," segir Ásbjöm.
hvalaskoðunarferðum á Skjálfanda og loks kápa bók- Hér er rétt að vitna í inngang bókarinnar sem Ás-
arinnar sem um er rætt. björn skrifar. Þar segir: „Hvalaskoðun er í mínum huga
náttúruskoðun eins og hún gerist best. Að sigla um haf-
ið, fjörðinn eða flóann í logni, kalda, sól eða rigningu,
„Þetta eru si/o stórar skepnur, stærri en
menn sjá nokkurs staðar á jörðinni. Úti af
Snæfellsnesi má til dæmis sjá steypireyðar,
stærstu skepnur jarðarinnar. Það er engu
líkt þegar þessi stóru dýr koma upp úr sjón-
um og horfa til manns. Maður verður agn-
dofa og ræður sér stundum ekki af geðs-
hræringu. Á svona augnablikum finnur mað-
ur svo sterklega fyrir smæð sinni.“
Þannig lýsir Ásbjörn Björgvinsson, annar
höfunda bókarinnar Hvalaskoðun við ís-
land, upplifun fólks íhvalaskoðunarferðum.
MARGIR ÍSLENDINGAR HAFA löngum litið svo
á að hvalir séu ekki annað en rengi og kjöt. En
hvalir eru auðvitað miklu meira en það. Þegar
komið er út á sjó og hvalirnir sýna sig verða íslend-
ingarnir alveg jafn hrifnir og erlendu ferðamenn-
irnir, æpa og hljóða upp.yfir sig þegar hvalur birt-
ist við hlið bátsins, blæs frá sér eða stekkur. Hvala-
skoðun er ekkert annað en náttúruskoðun í víðri
merkingu þar sem dýralífið blasir við i allri sinni
dýrð, bæði hvalir, fuglar og selir og síðan marg-
breytilegt landslag," segir Ásbjörn Björgvinsson,
forstöðumaður Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík, í
samtali við DV.
Um nokkurt skeið hefur verið talað um Húsavík
sem hvalabæinn. Mikil umskipti hafa orðið í að-
sókn ferðamanna til Húsavikur síðan hvalaskoðun-
arferðir hófust 1995. Áður var Húsavík ekki mjög
fjölsótt af ferðamönnum en í dag er allt annað uppi
á teningnum. Hvalaskoðunin á þar stærstan hlut að
máli. Og Hvalamiðstöðin sem síðan reis og mun
stækka verulega i sumar. Og hvalaskoðunarferðir
hafa ekki einasta lífgað upp á ferðamannaþjónust-
una á Húsavík. Hringinn um landið eru 12 fyrir-
tæki sem sérhæfa sig í hvalaskoðunarferðum og
fagna mikilli aðsókn í slikar ferðir.
DV ræddi við Ásbjörn í vikunni til að fræðast um
uppgang hvalaskoðunarferða hér á landi, galdurinn
sem á sér stað í slíkum ferðum og ekki síst bók
hans og Helmuts Lugmayr, Hvalaskoðun við ís-
land, sem nýverið kom út á vegum JPV
útgáfu.
Notendahandbók
„Okkur fannst vanta handhæga litla vasabók sem
mundi nýtast fólki á siglingum við landið. Við ein-
settum okkur að bókin kæmist í vasa eins og veski og
að hún kostaði ekki meira en eitt þúsund krónur.
Þessu takmarki náöum við og erum afar sáttir við út-
komuna,“ segir Ásbjörn.
í bókinni er fjallað á aðgengilegan og lifandi hátt
um lífshætti hvala og hegðun, uppruna og svo ein-
stakar tegundir. Þá er yfirlit yfir nokkrar tegundir
fugla og sela sem sjást í hvalaskoðunarferðum og
tæpt er á hvalveiðisögunni. ítarlegt yfirlit er yfir fyr-
irtæki sem bjóða upp á hvalaskoðun og kort sem sýn-
ir hvar á landinu þau er að finna.
Ásbjörn segir gerð bókarinnar hafa tekið þrjú ár
sem farið hafi i efnisöflun, skrif, umbrot og aðra
vinnslu.
„Bókin er ekki gefin út á vísindalegum forsendum
heldur frekar sem notendahandbók um hvali, og
einnig fugla og seli við sjávarsíðuna. Þarna er einnig
farið í hvalveiðisöguna og hvernig hvalaskoðunar-
ferðir hafa þróast á síðastliðnum sjö árum. Á þessum
tíma hefur orðið mikil bylting í ásókn í þessar ferð-
ir, meiri aukning en sést hefur annars stað-
ar í heiminum,“ segir Ásbjörn og nefn-
ir máli sínu til stuðnings að árið
1995 hafi 2.200 farþegar farið
með hvalaskoðunarbátum
en i fyrra hafi farþega-
fjöldinn verið kom-
inn upp
Hnúfubakar eru algengir gestir við fsland á vorin en
þeir koma suður úr höfum. Þeir halda sig gjarnan á
grunnslóð og koma oft inn á flóa og firði í ætisleit.
Bægsli hnúfubaka geta orðið 5-6 metra löng. Þeir
verða 13-17 metra langir, 25-40 tonn að þyngd og
geta lifað í allt að 95 ár.
Geðshræring
- En hver er galdurinn við
hvalaskoðun, hvað er það sem
töfrar fólk í þessum ferðum?
„Þetta eru svo stórar
skepnur, stærri en
menn sjá nokk-
urs
í 60.550 manns.
Meirihluti þeirra sem fara í hvalaskoðunarferðir
eru erlendir ferðamenn. Rúmlega 37% prósent þeirra
sögðust í könnun hafa farið i slíkar ferðir meðan
samsvarandi hlutfall íslenskra ferðamana í ferðunum
er um 10 prósent.
Meðhöfundur Ásbjarnar, Helmut Lug-
mayr, er Þjóðverji sem búið hefur hér á
landi í um 13 ár. Hann er lærður leiðsögu-
maður og þekkir mjög vel til staðhátta,
fer mikið með þýska ferðamenn um land-
ið. Hann þýddi bókina á þýsku en hún
fæst einnig á ensku.
Stór dýr
Áður en lengra er haldið er rétt að
geta helstu tegunda hvala við land-
ið en þeir skiptast i skíðis-
hvali og tann-
hvali.
Hvalaskobunarferöir eru farn-
ar frá aþríl og fram yfir miöj-
an október sunnanlands, t.d.
firá Reykjanesi en standa yfir-
leitt frá maíbyrjun ogfiram í
miöjan seþtember noröanlands.
staðar á jörðinni. Úti af Snæfellsnesi má til dæmis sjá
steypireyðar, stærstu skepnur jarðarinnar. Við hvalina
er ákveðin dulúð sem ræðst af stærð þeirra og tign þar
sem þeir smjúga í vatninu. Það er engu líkt þegar þessi
stóru dýr koma upp úr sjónum og horfa til manns.
Maður verður agndofa og ræður sér stund-
um ekki af geðshræringu. Á
svona augnablikum
finnur mað-