Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Qupperneq 55
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002
HeIgctrblaö JOV
55
segja að Mini Cooper sé hans aðalkeppinautur enda eru
þeir báðir sér á parti. Mini hefur þó vinninginn þegar
kemur að aksturseiginleikum. Á verði sem hljóðar upp
á 2.650.000 kr. verður hann að teljast í dýrari kantinum,
því að fyrir svipaðar upphæð má kaupa Honda Civic
Type-R sem er 200 hestafla tryllitæki. Þó má Bjöllunni
segja til hróss að hún er nokkuð vel búin í þessari út-
færslu en meðal staðalbúnaðar er ESP-skrikvöm og
spólvörn.
-NG
DV-mynd JAK
Daewoo Tacuma var kynntur í Hvalstööinni í Hvalfiröi en hann er nýr fjöl-
notabíll í meöalstærö og keppir viö bíla eins og Renault Scenic og Toyota
Corolla Verso.
Benni kynnir nýjan bíi,
Daewoo Tacuma
Bílabúð Benna kynnti á þriðjudag blaðamönnum nýjan bíl frá Daewoo sem
er á leið hingað á markað. Bíllinn heitir Tacuma og kom fyrst á markað í
fyrra, en hann flokkast sem fjölnota fjölskyldubíll af meðalstærð. Bíllinn er
með öfluga tveggja lítra vél þar sem flestir keppinautanna eru með minni vél-
ar. Billinn var hannaður meðal annars af Pininfarina og ItalDesign en tækni-
menn Porsche lögðu drögin að undirvagninum. Bíllinn verður boðinn á nokk-
uð góðu verði miðað við tveggja litra bíl, en hann mun byrja í 1.890.000 kr., að
sögn Benna.
GM kaupir Daewoo að lokum
Á þriðjudaginn gerðust lika önnur tíðindi fyrir Daewoo í Kóreu, en þá var
endanlega gengið frá samningi, sem hefur verið lengi í undirbúningi, mOli Da-
ewoo og General Motors. GM mun þá eignast Daewoo með samningi við fyr-
irtækið og skuldara þess. Nýja fyrirtækið mun hafa ráðstöfunarfé upp á fimm
milljarða doOara á ári og mun GM ætla að nota sér fyrirtækið tO að komast
inn á hinn ört stækkandi Asíumarkað. Ekki er búist við því að þessi kaup hafi
nein áhrif á Daewoo á öðrum mörkuðum. -NG
DV-mynd NG
Þaö mátti sjá kunnugleg andlit í Borgarnesi, hér er Kolli sem jafnan hefur
veriö kenndur viö Suzuki aftur farinn aö selja hjól af þeirri gerö.
Bifhjólasýning Rafta
í Borgarnesi
Nú er tíminn þegar bifhjólin fara að flykkjast á götumar og af því tOefni
hélt bifhjólaklúbburinn Raftar í Borgamesi sýningu á hjólum sínum og ann-
arra um síðustu helgi. Vom þar sýnd hjól víðs vegar að úr sveitinni og bar
nokkuð á eldri hjólum sem sjást ekki oft á sýningum sem þessum, t.d.
Malagutti vespur og Honda XL350 frá áttunda áratugnum. Einnig var í heið-
urssæti á sýningunni Harley Davidson hjól sem líklega er með dýrasta lakk á
mótorhjóli á Islandi, en það skiptir litum eftir því hvemig horft er á þaö.
Einnig sýndu flest umboðanna vöru sína og bar þar mest á torfæruhjólum sem
mikO vakning er í um þessar mundir. Stutt er svo í næstu sýningu, en Bif-
hjólasamtök lýðveldisins ætla að standa fyrir einni í Vetrargarði Smáralind-
arinnar um næstu helgi. -NG
r
Toyota Corolla Terra L/B 1,3, VW Polo Comfort 1,4, f.
f. skrd. 2.6. 1998,ek. 64 þ. 6.7. 2000, ek. 51 þ. km,
km, 5 d„ bsk. bsk.
Verð 840.000 Verð 990.000
IEKLU
Laugavegur 170-174 • Slmi 59<
1999, ek. 40 þ. km, 5
d., bsk„ 14“ álf„ vindsksett
o.fl.
Verð 1.090.000
VW Passat Alcantara 1,9
TDi, f. skrd. 10.3. 2000, ek.
158 þ. km, 4 d„ sjálfsk., 16“
álf„ leður, sóll. o.fl.
Verð 1.860.000
Audi A3 Ambition 1,6, f. skrd.
14.4. 2000, ek. 14 þ. km, 3
d„ bsk„ 15“ álf„ sóll. o.fl.
Verð 1.820.000
(ða www.hekla.is • Netfang bllathing@hekla.is • Opnunartlmar: Mánud.-föstud. kl. 10-1B og laugard. 12-16.