Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Side 2
2
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002
DV
Fréttir
Mögnuð salmonellusýking á bænum Ríp í Hegranesi. 50 kindur dauðar:
Bóndinn óttast að sýkin
berist í önnur beitarhólf
- ákvörðun um að farga fénu ekki tekin fyrr en eftir helgi
Mikiö tjón á Ríp
Séð heim að Ríp í Hegranesi. Kirkja, íbúöarhús og fjárhúsin sem eru vinstra megin viö miöja mynd.
Ljóst er aö bændur veröa fyrir tilfinnanlegu tjóni.
Ákvörðun um fórgun fjár á bæn-
um Ríp í Hegranesi, þar sem mikil
salmonellusýking hefur komið upp,
verður tekin strax eftir helgina.
Bóndinn á bænum, Birgir Þórðar-
son, hefði hins vegar kosið að búið
væri að lóga fénu þar sem hann ótt-
ast að sýkin geti borist í önnur beit-
arhólf. í gær höfðu um 50 fullorðnar
kindur drepist i beitarhólfmu sem
er mjög afmarkað á mýrunum niður
undan Ríp við Héraðsvötnin.
Salmonella í skurðinum
Á þessu svæði er mikið um geld-
ar álftir í hópum og hefur óvenju-
mikið af fugli verið á svæðinu í vor.
Þá hafa engin vorflóð orðiö á þessu
vori og vatn í skurðum því stöðugra
en að jafnaði. Salmonellan greindist
einmitt í vatni i skurði sem markar
af beitarhólfið. Vart var við salmon-
ellusýkinguna á fimmtudagsmorgni
í síðustu viku þegar á annan tug
kinda fannst dauður í hólfinu.
Grunsemdir beindust í fyrstu að
heyrúllum. Dýralæknir var kallað-
ur á staðinn strax þann dag og tók
hann sýni úr fóðrinu og einnig var
tekið vatnsýni. Sýnin voru send
suður til rannsóknar strax en ekki
fékkst lesið úr þeim fyrr en eftir
helgi og þá kom i ljós salmonellan í
vatninu. Rannsóknaraðilar komu á
vettvang á fimmtudag og var þá sett
farbann og mælst til þess að umferð
að bænum og frá honum yrði sem
minnst.
Öllu fénu slátraö
í beitarhólfmu er ríflega þriðj-
ungur fjárstofns Rípurbúsins, um
190 fullorðið og alls á fimmta hundr-
að fjár með lömbum en það er að-
eins fullorðna féð sem hefur drepist
enda hefur einungis það drukkið
vatnið. Telja verður liklegt að öllu
fénu í hólfinu verði lógað, að
minnsta kosti telja bændur á Ríp
það nauðsynlegt. Þá hefur verið tek-
ið sýni úr vatni í landi þriggja nær-
liggjandi bæja og ef sýking hefur
ekki borist í það verður lögð áhersla
á að koma fé af þeim bæjum á fjall
sem fyrst.
Aðspurður sagðist Birgir á Ríp
ekki hafa haft tíma til að hugleiða
bætur vegna tjónsins sem vissulega
er mjög mikið. „í minum huga er
það forgangsatriði að hindra að sýk-
ingin breiðist út og þar sem þetta er
á afmörkuðu svæði er sem betur fer
minni hætta á því.“
Gífurleg vinna
Strax og grunsemdir vöknuðu var
farið að beita sótthreinsibúnaði á
fólk og tæki sem fór um beitarhólfið
og umferð þar mn stöðvuð. Birgir
bóndi segir að gifúrleg vinna hafi
verið við það síðustu dagana að grafa
dauð hræ í hólfmu til að hefta að fúgl
komist í þau. Ekki hefði verið hægt
að sinna öðrum verkum vegna þessa.
Rípurfólk var óánægt með fyrstu
fréttir af þessum atburðum en þar
kom fram að hross hefði drepist úr
sahnonellunni. Það er rangt, ekkert
hross hefur drepist. -ÞÁ.
Tröllaskipið Goðafoss nánast gleypti Oddeyrarbryggju í gær:
Goðafoss með knatt-
spyrnuhús Akureyringa
Goöafoss nálgast Akureyrarhöfn
Skipiö er 166 metrar aö iengd, 26 metrum lengra en viötegukanturinn á
Oddeyrarbryggju. Má því segja aö skipiö hafi gleypt bryggjuna.
Ný þjóðhagsspá:
2,7% verðbolga
til næsta árs
í nýrri þjóðhagsspá fyrir árin 2002
og 2003, sem Þjóðhagsstofnun gaf út í
gær, er gert ráð fyrir 0,8% samdrætti
landsframleiðslu á árinu 2002 sem er
svipað og áður var spáð. Fyrsta áætl-
un um árið 2003 gerir ráð fyrir að
samdráttarskeiðið verði stutt og hag-
vöxtur nemi 2,4%. Verðbólga lækkar
hratt. Búist er við að verðlag hækki
um 5% milli áranna 2001 og 2002 og
um 2,7% milli áranna 2002 og 2003.
Gert er ráð fyrir að halli á viðskiptum
við útlönd nemi 1% af landsfram-
leiðslu á þessu ári, samanborið við
4,3% halla á árinu 2001. Á árinu 2003
er gert ráð fyrir að viðskiptahaili auk-
ist að nýju í takt við meiri umsvif og
nemi l‘/2%af landsframleiðslu. -hlh
Borgarfjörður eystri:
Forsetinn opnar
Kjarvalsstofu
Forseti íslands opnar Kjarvalsstofu
á Borgarfirði eystri með formlegum
hætti í dag. í Kjarvalsstofu er fjallað
um ævi og störf listamannsins Jó-
hannesar S. Kjarvals, sem ólst upp á
Borgarfirði, og tengsl hans við stað-
inn. Sýnd eru málverk sem Kjarval
vann á Borgarfirði og frumflutt verð-
ur leikverk um dvöl Kjarvals þar sem
listamanns. Viðstaddir opnunina
verða m.a. íslenskir ráðamenn, full-
trúar menningar og lista og afkom-
endur Kjarvals. í Kjarvalsstofu eru
tvær sögusýningar, hannaðar af Jóni
Þórissyni leikmyndahönnuði, auk
þess sem aðstaða er fyrir böm til að
spreyta sig á málaralistinni og setja
sig í spor meistara Kjarvals. -hlh
Goðafoss kom með knattspymuhús
Akureyringa á áfangastað í gær eftir að
hafa flutt það yflr hafið frá Rotterdam.
Húsið er i fjörutíu 40 feta gámaeining-
um og vegur samtals um 600 tonn.
Þetta þykir lítilræði um borð í Goða-
fossi því hann rúmar meira en tuttugu-
falt fleiri gámaeiningar.
Segja má að skipið, sem er 166 metr-
ar að lengd, um einn og hálfur knatt-
spymuvöllur, hafi gleypt Oddeyrar-
bryggju á Akureyri í gær. Bryggjan
þykir rúmgóð en er engu að síður 26
metrum skemmri en Goðafoss sem er
systurskip Dettifoss. Þau em stærstu
skip í íslenska kaupskipaflotanum -
14.664 brúttólestir að stærð og aðalvél-
ar þeirra skila 20 þúsund hestöflum.
Ástæða komu Goðafoss til Akureyr-
ar var vegna tímabundinnar tilfærslu
skipa í áætlanakerfl Eimskipafélags-
ins. Mánafoss er á leið vestur um haf í
stað Skógafoss sem varð fyrir vélarbil-
un. Akureyri er eina haffæra höfnin á
Norðurlandi fyrir svo stórt skip og var
vörum frá nágrannahöfnum ekið til
Akureyrar en innflutningsvöru á sama
hátt ekið þaðan. Goðafoss losaði og
lestaði á þriðja þúsund tonn af vörum í
gær. Næstu vikur kemur leiguskip í
siglingar Eimskips norður um land.
Gert er ráð fyrir að væntanlegt
knattspymuhús Akureyringa verði ris-
ið í lok nóvember eða byijun desember
á svæði Þórs á svokölluöum Hamri. ís-
lenskir aðalverktakar reisa húsið.
Skipstjóri Goðafoss í þessari ferð er
Engilbert Engilbertsson. -Ótt
Norskt hvalkjöt á íslenskan markað
Norðmenn tilkynntu í gær að þeir
hygðust hefja útflutning á hvalkjöti
til íslands á ný eftir 14 ára hlé. í
Ósló var tilkynnt að gefm yrði út út-
flutningsleyfi til handa norsku hval-
veiðifyrirtæki á næstu dögum fyrir
um 10 tonnum af hvalkjöti og hval-
spiki.
Norðmenn hófu aftur veiðar á
hrefnu 1993 og hunsuðu þannig al-
þjóðlegt bann við hvalveiðum. í gær
tilkynntu Norðmenn að þeir mundu
leyfa útflutning á hvalkjöti til þjóða
sem hlynntar væru hvalveiðum, eins
og Japana og Islendinga. Ole Mindor
Myklebust, hvalveiðimaður sem rek-
ur útflutningsfyrirtæki, sagði Reuter-
fréttastofunni að hann hefði þegar
sölusamninga við íslendinga í hönd-
unum og að útflutningurinn mundi
byrja strax i sumar.
Talsmenn High North Alliance,
þrýstihóps um hvalveiðar, sögðu að
þótt íslenski markaðurinn væri
hlutfallslega lítill væri útflutningur
þangað mikilvægt skref i rétta átt.
-hlh
Blaöíö í dag
Eitt
heilbrigðis-
kerfi fyrir alla
Jón Krlstjánsson
Hófadynur á
moldargötum
Riðið að hætti
forfeðranna
Keypti kjólinn
fimmárum
fyrir
brúðkaupið
Bjartsýn
brúður
Kjarnorku-
sprengjur í
farangrinum
Hættulegustu
vopnln______
Lyst með list
Listagóðlr
pastaréttlr
Lögfræðingurinn
þarf enga vini
Erlent fréttaljós
Ökumenn
þurfa að líta í
eigin barm
Innlent fréttaljós
Umhverfisverðlaun
Ómar Ragnarsson
fréttamaður, Trausti
Valsson, arkitekt og
skipulagsfræðingur,
og Orri Vigfússon,
áhugamaður um
vemdim laxastofna
í Norður-Atlants-
hafi, eru meðal 31
einstaklings eða stofnana sem til-
nefnd eru til umhverflsverðlauna
Norðurlandaráðs i ár.
Hlífi stórlaxi
Veiðimálastofnun beinir þeim til-
mælum til veiðifélaga og stanga-
veiðimanna að stórlaxi verði hlíft
eins og kostur er, svo vernda megi
stórlaxastofna ánna. Mbl. sagði frá.
Sker ekki á kortum
Sturla Einarsson, skipstjóri á
Guðrúnu Gisladóttur KE-15, sem
sökk við Lófót í Norður-Noregi, seg-
ir að skerið, sem skipið steytti á, sé
ekki merkt á sjókortum sem hann
hafði yfir að ráða. Sturla lagði fram
sjókortin við sjópróf sem fram fara í
bænum Svolvær í Noregi í dag. Hol-
ienskt fyrirtæki, Smith Salvage,
íhugar að gera tilboð í björgun Guð-
rúnar Gísladóttur en fyrirtækið sá
um björgun rússneska kafbátsins
Kúrsk. Mbl. og RÚV sögðu frá.
Ráðherrafundur
Ráðherrafundur EFTA verður
haldinn á Egilsstöðum 26. og 27.
júní nk. en á fundinum verður und-
irritaður fríverslunarsamningur
EFTA-ríkjanna við Singapúr.
Mansal til íslands?
Dómsmálaráðu-
neytið kannar nú
hversu áreiðanlegar
upplýsingar banda-
ríska utanrikis-
ráðuneytisins séu
um að konur séu
seldar mansali frá
Eistlandi til íslands.
Fyrir Félagsdóm
Félagsdómur fjallar um verkfalls-
boöun Félags ungra lækna en verk-
fall félagsins á að hefjast á miðnætti
á sunnudagskvöld. Fjármálaráðu-
neytið telur að verkfaúsboðunin sé
ólögleg þar sem lagaskilyrði skorti
fyrir samningsrétti Félags ungra
lækna.
Ekkert vændi
Forsvarsmenn næturklúbbsins
Óðals við Austurvöll mótmæla al-
hæfingum um að vændi þrífist í
Reykjavík í skjóli næturklúbba.
Bæjarstjóri áfram
Óli Jón Gunnars-
son hefur verið end-
uráðinn bæjarstjóri
í Stykkishólmi til
næstu fjögurra ára.
Gengið var frá
ráðningunni á
fundi bæjarstjómar
í fyrrakvöld en þá
var einnig gengiö frá skipan í ráð og
nefndir á vegum bæjarsins.
Húsbréfasprenging
Sprenging í húsbréfaútgáfu veld-
ur því að vaxtalækkun Seðlabank-
ans hefur ekki áhrif á ávöxtunar-
kröfu húsbréfa. Útgáfa húsbréfa á
árinu er þegar orðin jafnmikil og
allt áriö 1997. Rúv sagði frá.
Albani sýknaöur
Albani, sem handtekinn var við
komu til íslands nýlega, þar sem á
honum fundust folsuö vegabréf, var
sýknaður af ákæru um að hafa kom-
iö með bréfin í því skyni að hjálpa
hjónum með tvö böm, sem vega-
bréfin vom ætluð, að dvelja ólög-
lega hér á landi. Mbl. sagði frá.-hlh