Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 22. JÚNl 2002
DV
Fréttir
Heimili kvikmyndaleikstjórans:
Umsvif stöðvuð
í laupi Hrafns
- borgaryfirvöld funda með lögfræðingi Hrafns í næstu viku
Laugarnestangi 65
Hús og lóð Hrafns Gunnlaugssonar
að Laugamestanga 65 eru í stöðugri
þróun og tekur sífelldum breytingum.
Líkja sumir því við lifandi listaverk
eða skúlptúr en aðrir tala um hreinan
og kláran ruslahaug. Hrafn hefur
staðið í stríði við borgaryfirvöld
vegna skipulags og framkvæmda á
lóðinni. Þar er nú enn unnið að fram-
kvæmdum og í gær var undirbúin
steypuvinna á stétt viö kjallara húss-
ins. Samkvæmt heimildum DV er lóð-
in nú undir stöðugu eftirliti borgaryf-
irvalda og gefin hefur verið út skipun
um að stöðvaðar verði allar fram-
kvæmdir Hrafns utan hans lóða-
marka. 1 fyrrakvöld var tilkynnt um
bílkrana í fjörunni og að framkvæmd-
ir væru þar í gangi. Munu þær hafa
verið stöðvaðar i gærmorgun.
Mikið fuglalíf er við heimili Hrafns
enda er þar víða griðastaði að flnna,
moldarhrauka og góðar tjamir fyrir
endur og aðra fugla að svamla í. Þeg-
ar tíðindamenn DV bar að garði voru
þar þrjár gæsir við innkeyrsluna með
17 myndarlega unga. Fleiri gæsir með
DVJHYNDIR GVA
Umdellt helmill kvikmyndaleikstjóra
Hús og lóö Hrafns Gunnlaugssonar aö Laugarnestanga 65 taka stööugum
formbreytingum. í gær var unniö viö undirbúning steypuvinnu á stétt viö kjall-
ara hússins en í næsta nágrenni vöppuöu gæsir meö ungaskara og nutu
næöis / þessum griöastaö í borgarmiöju.
Húsiö stendur á klöpp, rétt ofan viö fjöruborðiö. Skipulagsmál eigandans á
lóö hússins hafa fariö í taugarnar á borgaryfirvöldum sem eru ekki hrifin af
því að sneitt sé hjá settum skipulagsreglum.
unga mátti sjá víðar á lóðinni. Þrátt
fyrir að fuglamir laðist að hreiðri
Hrafns eru borgaryfirvö'd ekki jafn
hrifin af umsvifum hans. Hann sé
glysgjam eins og nafni hans í ríki
fugla sem dragi gjarnan alls kyns dót
í laupinn. Þar sem slíkt mun ekki
vera gert samkvæmt ýtrustu skipu-
lagsreglum hafa borgaryfirvöld lengi
haft horn í síðu kvikmyndagerðar-
mannsins. Ekki náðist tal af Hrafni í
gær en Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
nýr formaður skipulags- og byggingar-
nefndar, sagði að hún ætti eftir að
kynna sér málið til hlítar.
„Það verður að viðurkennast að
þarna hafa verið í gangi klárar óleyf-
isframkvæmdir utan lóðar. Þær hafa
nú verið stöðvaðar. Það stendur til af
hálfu embættis skipulagsfulltrúa að
funda með lögfræðingi Hrafns út af
málinu í næstu viku.“ -HKr.
Fjölskrúöugt umhverfi
Borgaryfirvöld lengi haft horn í síöu
Hrafns vegna framkvæmda hans.
Fæðingarorlof:
Mikil þátttaka
feðra
Frá giidistöku nýrra laga um fæðing-
arorlof hafa umsóknir feðra verið um
80% af umsóknum mæðra.
Árið 2001 vom umsóknir feðra um
fæðingarorlof 80% af umsóknum
mæðra. Hlutfalliö er svipað á fyrsta
þriðjungi árs 2002, eða 79%, en hægt er
að taka út fæðingarorlof þar til bamið
nær 18 mánaða aldri. Samkvæmt lögum
um fæðingarorlof er fæðingarorlof nú 8
mánuðir. Þar af skulu mæður taka þrjá
mánuði, feður tvo og þrír mánuðir
skiptast milli foreldra. í byrjun kom-
andi árs bætist þriðji mánuðurinn við
fæðingarorlof feðra. Foreldrar fá í orlof-
inu 80% af heildarlaunum árið fyrir
bamsburð. Á liðnu ári vom meðalor-
lofsgreiðslur til mæðra 123 þúsund
krónur á mánuðir, tæp 60% af greiðsl-
um til karla, sem námu að meðaltali 212
þúsund krónum á mánuði. Kostaaðm:
var 2,8 milljarðar árið 2001 en verður
líklega 4,5 til 5 milljarðar i ár og um 5,5
milljarðar 2003. Það er um 45% meiri
kostaaður en reiknað var með í fhun-
varpi til laganna. -hlh
EM í Salsomaggiore :
Afhroð gegn
ísrael
íslenska karlalandsliðið galt mikið af-
hroð gegn ísrael á sýningartöflunni í
gær og 6 stig gegn 24 var uppskeran.
Fyrr um daginn hafði það unnið sterkt
landslið Frakklands með minnsta mun,
eða 16-14. Kvennalandsliðinu gekk
einnig illa, tapaði 14-16 fyrir Spáni og
siðan 9-21 fyrir írlandi.
Staðan i opna flokknum er sú, eftir 16
umferðir, að Ítalía er langefst með 342
stig, i öðru sæti er Noregur með 310,
þriðja Búlgaría með 299, fjórða ísrael
með 286 og fimmta Holland með 285.
ísland er í tíunda sæti með 268 stig.
í kvennaflokki er staðan sú eftir 6
umferðir að Þýskaland er efst með 132
stig, í öðru sæti er England með 125,
jöfn í þriðja sæti eru Danmörk og Sví-
þjóð með 113 og fimmta Holland með
111. ísland er í tólfta sæti með 87 stig.
Um helgina spilar karlalandsliðið við
Finnland, Ungverjaland, Pólland, Rúss-
land, en kvennalandsliðið við Rússland,
Austurríki, Ítalíu og Tékkland. -StG.
Síðasti veggur Stálvíkur fallinn
- ákvöröum ráðherra, dauöasprauta á skipasmíðar á Islandi
Kani liöinn i skipasmiöasógu ianasins
Síöasti veggurinn á húsi Stálvíkur í Garöabæ var rifinn klukkan um 10 í gærmorgun. Viö verkiö var notuö stórvirk grafa.
Síðasti veggur smíðastöðvarinnar
Stálvíkur var rifinn klukkan 10 í gær-
morgun. í tuttugu ár voru tæplega 50
fiskiskip, þar af sex skuttogarar, smíð-
aðir í skipasmíðastöðinni Stálvík, en
fyrirtækið, sem var í Garðabæ, var lýst
gjaldþrota árið 1990. Þegar fyrirtækið
gekk sem best störfuðu u.þ.b. 250
manns hjá því en síðan 1990 hefur hús-
næði stöðvarinnar staðið autt. Lengi
vel hefur staðið til að rífa húsið og í
maí síðastliðnum var hafist handa við
að rífa það og i dag var síöasti veggur-
inn, norðurgaflinn, felldur. Á svæðinu
á að koma íbúðabyggð.
Stálvík tók til starfa í ársbyrjun 1963
og voru tvö fyrstu skipin smíðuð fyrir
Olíufélag íslands og Skeljung. „Bátarn-
ir, sem eru enn í notkun, hafa reynst
vel, eins og flest önnur Stálvíkurskip,"
sagði Jón Sveinsson, einn stofnenda
Stálvíkur og framkvæmdastjóri lengst
af.
„Fyrirtækið gekk vel fram til 1983
eða þar til sjávarútvegsráðherra, sem
var Halldór Ásgrimsson á þeim tíma,
tók þá ákvörðun að þau skip sem væru
í smíðum fengju ekki leyfi til fiskveiða.
Sú ákvörðun hafði verið tekin í ljósi
svartrar skýrslu Hafrannsóknastofn-
unar sem kom út það ár,“ sagði Jón.
Þegar bannið var lagt á var Stálvík
með átta samninga um skipasmíði og
eitt skip í smíðum. Öllum samningum
var rift í kjölfarið á ákvörðun ráðherra
og sagði Jón að ákvörðunin hefði verið
sem dauðasprauta á skipasmíðar á Is-
landi. „Þegar banninu var rift, þremur
og hálfu ári seinna, voru íslenskar
skipasmíðar komnar að fótum fram og
á næstu árum gerðu íslenskir útgerð-
armenn samninga um smíði á rúmlega
50 nýjum skipum, sem öll voru smiðuð
í erlendum skipasmíðastöðvum.
Jón er sannfærður um að ef ráð-
herra hefði ekki sett bannið á sínum
tíma hefði fyrirtækið og skipasmíða-
iðnaðurinn hér á landi sem og útflutn- •
ingur náð að dafna vel, en þess í stað
lent f miklum erfiðleikum. -ss