Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 Helgarblað r>v Meðalhraði á vegum úti á landi hefur aukist stórlega: Okumenn þurfa að líta í eigin barm - til að koma í veg fyrir fleiri hörmungarslys Slapp meö skrekklnn Fólkiö sem var í þessari bifreiö var meö belti og slapp meö lítils háttar meiösl. Þó haföi fólkiö aöeins sett á sig beltin skömmu áöur en slysiö varö vegna þess aö lögreglubill ók fram hjá því. Nýleg könnun sýnir aö 25% ökumanna í Reykjavík nota ekki bílbelti. Eins og DV greindi frá í vikunni hafa 52 af 69 dauðaslysum í um- ferðinni frá aldamótum orðið í dreifbýli. Það sem af er ári hafa orðið 17 dauðaslys og 16 af þeim á þjóðvegum landsins. Eins og sjá má á meðfylgjandi línuriti hefur þróunin snúist algjörlega við á síð- ustu 30 árum. Árin 1971-1975 hafði rétt rúmlega þriðjungur dauða- slysa orðið í dreifbýli en undanfar- in ár um 70 prósent. Hraði eykst Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur meðalhraði á þjóðvegum landsins hækkað und- anfarin ár. Meðalhraði allra öku- tækja hefur farið úr um 89 km/klst í rúmlega 94 km/klst. Ef ökutæki sem af einhverjum ástæð- um aka hægar en gengur og gerist, s.s. vinnuvélar, snjóbílar og fleiri, sem eru almennt talin um 15% allra ökutækja, eru tekin út úr þessu úrtaki má sjá hraða sem er mun líkari raunveruleikanum. Þá kemur i ljós að hann hefur aukist úr 99 km/klst í tæpa 105 km/klst. Það þýðir að meðalökumaður ekur venjulega á um 15 km/klst meiri hraða en leyfilegt er. Tölfæðin sýnir einnig að þeir sem aka allra hraðast aka mim hraðar nú en fyrir nokkrum árum. Nægir þar að nefna frétt um 18 ára pilt sem var stöðvaður af lögregl- unni á Akureyri á 195 km hraða í Öxnadal. Hefði sá ökuníðingur misst stjórn á bílnum hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum. Umferð úti á landi hefur aukist mikið. Eknir kílómetrar á stofn- og tengivegum voru rúmlega 1300 milljónir árið 1994 en árið 2000 voru yfir 1700 milljónir kílómetra eknir. Vegagerðin segir þessa gíf- urlegu aukningu m.a. stafa af al- mennri fólksfjölgun, batnandi veg- um, betri bílum og ýmsum öðrum samverkandi þáttum. Ungir sem aldnir Aldurshlutfall ökumanna í banaslysum frá 1998-2001 er hæst á aldrinum 17-34 ára þar sem um 65% ökumanna eru á þeim aldri. Aðrir aldursflokkar eru með mun lægra hlutfall þar til kemur að ökumönnum sem eru 65 ára og eldri en þeir eru í 14% tilfella. Þetta styrkir þær rannsóknir sem sýnt hafa að það eru einkum þeir sem yngstir eru og elstir sem eru mest áberandi í umferðarslysum. Það er ekki síður mikilvægt að beita forvömum að þeim sem elst- ir eru. Eldri ökumönnum mun fjölga hlutfallslega á næstu árum samfara aldursþróun í samfélag- inu og mikilvægt er að bregðast við því. Hækkandi aldri fylgir lík- amleg hrörnun, sjón og heyrn dofna, auk þess sem viðbragðsflýt- ir er minni. Þegar litið er á hvenær á sólar- hringnum dauðaslys undanfar- inna ára verða sést að flest verða þau að degi til og er það í sam- ræmi við fjölda ökutækja á ferð. En um nætur er mikið ósamræmi og má til að mynda nefna að á meðan aðeins 4 prósent af umferð- arþunga sólarhringsins er á nótt- unni eiga tæp 20 prósent dauða- slysa sér stað á þeim tíma. Helstu orsakir Vanhöld á notkun bilbelta er ein meginorsök þess að fólk lætur lífið í umferðarslysum. Undanfarin ár hefur i kringum helmingur þeirra Það er ekki síður mikil- vægt að beita forvömum að þeim sem elstir em. Eldri ökumönnum mun fjölga hlutfallslega á nœstu árum samfara ald- ursþróun í samfélaginu og mikilvœgt er að bregð- ast við því. Hækkandi aldri fylgir líkamleg hrömun, sjón og heym dofna, auk þess sem við- bragðsflýtir er minni. sem létust verið án bílbelta og frek- ari greining á bílbeltanotkun i dauðaslysum leiðir í ljós að hún er kynbundin, þar sem karlar nota beltin í minna mæli en konur. í aðeins um þriðjungi tilfella á árunum 1998-2001 eru það konur sem farast. Karlmenn eru og hafa ávallt verið fleiri þegar kemur að fjölda látinna og tekur það undir fyrrnefnda staðreynd um bílbelta- notkun. Skipting kynja í dauða- slysum 1998-2001 80% 64% 48% 32% 16% QQ^I 1998 1999 2000 2001Meöaltal Karlar Konur Mat á gögnum Rannsóknar- nefndar umferðarslysa frá árunum 1998-2000 bendir til þess að 18 ein- staklingar eða um 30% látinna á því tímabili hefðu lifað slys af hefðu þeir notað bílbelti og jafnvel sloppið með litla áverka. í könnun sem umferðarfulltrúar Slysavamafélagsins Landsbjargar tóku dagana 3.-6. júní, þar sem hátt í 3000 ökumenn voru skoðað- ir, kom í ljós að um 25% öku- manna í Reykjavík nota ekki bíl- belti. Eru þar í meirihluta at- vinnubílstjórar eða ökumenn á merktum bílum en þeir virðast ekkert þurfa á bílbeltum að halda. Mannleg mistök eru algengustu orsakir umferðarslysa á íslandi. Um helming aðalorsaka og undir- þátta má rekja til rangrar hegðun- ar fólks í umferðinni. Þar ber hæst hraðakstur, ölvunarakstur og ekki næga bílbeltanotkun. Einnig er vert að minna á að hið léttúðuga viðhorf margra ökumanna til akst- urs endurspeglast í orsökum slysa. Ökumenn sofna undir stýri, þeir tala í síma á meðan á akstri stend- ur, kveikja sér í sigarettu, virða fyrir sér útsýni og mörg fleiri smá- vægileg atriði mætti nefna í þessu sambandi. í norskri rannsókn sem gerð var fyrir örfáum árum á framaná- keyrslum og útafakstri, þar sem al- varleg slys urðu á fólki, kom í ljós að algengasta orsökin var þreyta, fólk ýmist dottaði eða sofnaði í 30% tHvika. Þennan þátt þarf að taka fastari tökum og brýna fyrir íslend- ingum að gæta sín betur á honum. Hugarfarsbreyting Aldrei hefur verið brýnni þörf á forvarnarstörfum en nú. Trygging- arfyrirtækin eru flest með umferð- arátak í gangi og má þar nefna þjóðarátak gegn umferðarslysum sem Vátryggingafélag íslands bindur miklar vonir við og átakið „Akstur krefst athygli" sem Sjóvá- Almennar stendur fyrir. Einnig eru umferðarfulltrúar Slysavama- félagsins Landsbjargar á stöðugri ferð við að koma almenningi til hjálpar í nánast öUum atriðum sem við koma akstri og umferð. Sjóvá-Almennar og VÍS hafa einnig starfrækt undanfarin ár námskeið fyrir fólk sem nýkomið er með bílpróf og þar er reynt að breyta viðhorfi þess tH umferðar- innar. Hefur 26% lægri tjóntíðni verið hjá þeim sem sækja þessi námskeið hjá VÍS og 34% hjá Sjó- vá og er það svo sannarlega eftir- tektarverður árangur. Skiptar skoðanir eru um störf lögreglu og hefur verið rætt um hve lögreglubílar eru lítiö sýnUegir á vegum utanbæjar nú orðið. Stað- reyndin er hins vegar sú að kærum vegna ölvunar- og hraðaksturs hef- ur fjölgað á landsvísu. Lögregla er farin að vera meira á ómerktum bU- um sem hafa reynst mjög vel og miðað við mannafla þá virðast þeir vera að vinna gott starf. Eins og réttilega var sagt í leiðara DV i vikunni er bifreið í höndum ökuníðings drápstól. Það erum við ökumennimir sem þurf- um á hugarfarsbreytingu að halda, að lita í eigin barm og átta okkur á því að akstur er dauðans alvara. Það sanna 17 dauðaslys sem öU hefði verið hægt að koma í veg fyr- ir. 17 dauðaslys eru einfaldlega 17 of mikið. Skipting dauöaslysa eftir dreifbýli og þéttbýli 1971-2002 Þéttbýli Dreifbýli *Þaö sem af er ári Guðrún sökk Tuttugu manna áhöfn var bjargað þegar nóta- og togveiðiskipið Guð- rún Gísladóttir strandaði á skerjum í Norður-Noregi á þriðjudag. Gerðar voru tilraunir tU að losa skipið og sjó dælt úr stöðugleikammum skipsins tU að létta það. Á fimmta tímanum á miðvikudagsmorgun sökk skipið og er tjónið metið á aUt að 2,1 miUjarð króna. Norski sjóher- inn sá um stjóm björgunaraðgerð- anna. Einn hluthafa útgerðar Guð- rúnar Gísladóttur segir að það hafl verið vafasöm ákvörðun að sigla svona stóru skipi um þær slóðir við Lofoten þar sem það strandaði. Vit- að var að sjókort væra ófuUnægj- andi á þessum slóðum. Of strangir dómar Sú einstaka staða er upp komin að tugir einstaklinga á landinu, sem hafa verið sviptir ökuleyfi vegna ölvunaraksturs síðustu 10 mánuði, hafa verið látnir sæta hálfs tU eins árs lengri ökuleyfissviptingu en heimUt er í lögum. Komið hefur í ljós að fyrirmæli rikissaksóknara tU allra lögreglustjóra landsins á síðasta ári, um að þeir krefðust þyngri ökuleyfissviptinga fyrir dómi á hendur þeim sem teknir era fyrir ölvunarakstur, teljast ekki lög- leg nema sérstök lagabreyting komi tU á Alþingi. Evrópuárekstur Skarpur meiningarmunur í af- stöðunni tU Evrópumála kom fram í ræðum forystumanna stjómarflokk- anna sem þeir fluttu hvor á sínu landshorninu 17. júní. Davíð Odds- son forsætisráðherra sagði á Aust- urveUi að ævinlega famaðist betur þeim þjóðum sem byggju við frelsi í stjómarháttum en þeim sem væru í fjötrum. Síðdegis var svo HaUdór Ásgrímsson vestur á Hrafnseyri við Amarfjörð, á fæðingarstað Jóns for- seta, og sagði þar að sjálfstæðið sem hugtak mætti „...aldrei verða tU þess að myndaðir séu um það ímyndaðir pólar, tU dæmis land- sölumanna annars vegar og sjálf- stæðissinna hins vegar.“ Aldraðir í gíslingu Veruleg vandræði virð- ast vera í sam- skiptum ríkis og bæja þegar kemur að þjón- ustu við aldr- aða. Uppi eru miklir hags- munaárekstrar þar sem báðir aðUar vísa hvor á annan tU að koma sér undan því að sinna nauðsyn- legri þjónustu. Þetta kemur glögglega fram í orðum forystu- manna samtaka aldraðra. Heildar- kostnaður vegna öldrunarþjónustu í Reykjavík árin 1987-1994 og 1995-2002 er nánast sá sami, eða tæpir 7,3 miUjarðar hvort tímabU. Þetta er um miUjarður króna á ári og hefur aðeins hækkað um 0,05% þrátt fyrir yfirlýsta aukna og brýna þörf í þessum málaflokki. -hlh
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.