Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Page 27
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 HelQctrb/ctcf 33'Vr 27 Arndís Björnsdóttir er mikill aðdáandi Leiðarljóss. Hún er ekki sátt við þá neikvæðu ímvnd sem þættirnir hafa og í þeim tilgangi að bæta hana hefur liún stofnað sérstakan aðdáendaklúbb. Hún segir að þættirnir taki á forsjárhvggjunni og afskiptaseminni sem hrjáir nútíma samfélag. Leiðarljós er mitt leiðarljós ÞÁTTURINN LEIÐARLJÓS FJALLAR aðallega um örlög fjögurra fjölskyldna í Springfield í Bandaríkjun- um. Arndís reynir að missa aldrei af Leiðarljósi og því er eðlilegt að spyrja af hverju þátturinn sé svona heillandi. „Það kannast allir við söguþráðinn í Leiðarljósi og fólk getur tengt hann við sitt eigið líf. Hjónabönd ganga misvel, leyndarmál geta eyðilagt líf okkar, börnin lenda í ógöngum og þora ekki að segja foreldr- um sínum því þau eru hrædd við fordæmingu. Svo taka þættirnir líka á fordómum í samfélaginu. Fyrst og fremst er Leiöarljós fjölskylduþáttur þar sem blása um vindar ástar og afbrýði. Særðar tilfinningar valda skaða og hefnigirni. Fáum er treystandi enda ekkert jafnmisnotað og vináttan og ástin. Allt þetta sem ég hef nefnt þekkjum við úr okkar eigin lífi og annarra og þess vegna finnast mér þetta góðir þaettir." Er einhver boðskapur í þessum þáttum? „Þættirnir sýna vel hvað peningar geta spillt fólki. Peningar veita fólki óeðlileg völd, valda hroka og mannfyrirlitningu. Fólk í þessari aðstöðu finnst í lagi að leika dómara, illgjarnt slúður og mútur eru sjálf- sagðar til að eyðileggja líf annarra og jafnvel ryðja fólki úr vegi. Líf þess sem hefur of mikla peninga milli handanna brenglast. Þrátt fyrir að peningar séu öllum nauðsynlegir er trúlega rétt að þeir eru undir- rót alls ills. Boðskapurinn tengist þessari afskipta- semi sem menn geta leyft sér í krafti auðvalds. Boð- skapurinn er skýr: Láttu fólk sjá um sig sjálft. Enginn þekkir hug, sálarlíf, samvisku, óskir eða þrár annarra né hefur leyfi til að ráðskast með aðra þeim á bak. Áhorfendur þáttanna þekkja þetta vel úr sínu eigin lífi. Það þekkja allir afskiptasemina og forsjárhyggj- una í sumum einstaklingum. í öllum fjölskyldum eru slíkir einstaklingar til og yfirleitt gera þeir manni meira illt en gott. Þættirnir kenna manni ýmislegt um mannlegt eðli og sumar persónur, eins og Reva Shayne, sem er í miklu uppáhaldi hjá mér, hefur kennt mér mikið. Hún leynir á sér, er frábær kona, göfuglynd og breytir alltaf rétt þegar upp er staðið þótt hana langi til að sýna hörku. Reva er svo falleg, kát og skemmtileg og út af þessu lendir hún í illu og ómaklegu umtali öfundarfólks." Verður að fylgjast með Leiðarljósinu Þættir eins og Leiðarljós eru oft kallaðir í niðrandi merkingu „sápuóperur" og þykja oft ekki merkilegt sjónvarpsefni. Söguþræðirnir þykja slakir, leikararn- ir lélegir og kannski umfram allt annað, áhorfendurn- ir hafa þá ímynd að vera grunnhyggnir sjónvarpsfikl- ar sem liggja límdir fyrir framan imbakassann og meðtaka skilaboöin. Þeir eru óvirkir uppvakningar. Arndís kannast vel við þessa orðræðu og finnst mið- ur að þetta sé sú mynd sem fólk hafi af aðdáendum Leiðarljóss. „Mér finnst oft eins og fólk vilji ekki viðurkenna að það hafi gaman af Leiðarljósi. Maður les viðtöl við fófk þar sem það er spurt hvaða bók sé á náttborðinu Leiðarljós eða Guiding Light er án vafa einn lífseigasti sjónvarpsþáttur sem sgndur hef- ur verið ísjónvarpi, þátturinn fagnar 65 ára afmæli á árinu. Þættirnir eiga sér marga trggga aðdáendur og einn þeirra erArndís H. Björnsdóttir sem hefur fglgst með þátt- unum um allnokkurt skeið. Arndís hefur nú ásamt öðrum áhangendum stofnað aðdá- endaklúbb Leiðarljóss en tilgangurinn með stofnun hans er að kgnnast öðrum aðdá- endum og jafnvel að skella sér til New York og heimsækja mgndverið þarsem þættirnir eru teknir upp. DV hitti Arndísi og ræddi við hana um neikvæða ímgnd þáttarins, hvað sé heillandi við hann og hinn ngstofnaða að- dáendaklúbb. og alltaf eru nefndar einhverjar torskildar bækur. Ég hef lesið ótalmargar bækur sem teljast til heimsbók- mennta en ég viðurkenni alveg að ég hef óskaplega gaman af afþreyingu, eins og t.d. Leiðarljósi. Mér finnst svo mikil hræsni og ósjálfstæði að fólk geti ekki viðurkennt að það hafi gaman af þessum þætti. í Leiðarljósi verður maður að fylgjast með og ég er oft spurð að því hvort það sé ekki í lagi að missa úr þætti en svo er ekki. Þú verður að fylgjast vel með - svo margt nýtt fólk er alltaf að birtast," segir Arndís. Hroki Ríkissjónvarpsins Arndís telur að neikvæð ímynd Leiðarljóss rati alla leið upp í Ríkissjónvarp sem haft hefur þáttinn á dag- skrá í rúmlega tíu ár. „Einhvern tímann spurði ég háttsettan starfsmann innan RÚV út af hverju Leiðar- ljós væri alltaf látið víkja fyrir öðrum dagskrárliðum eins og til dæmis umræðum frá Alþingi. Hann spurði mig á móti hvort þetta skipti einhverju máli, hvort það væri ekki búið að sýna fimm hundruð þúsund þætti hvort eð er. Þetta er viðhorfið sem mætir manni! Hvílíkur hroki og yfirgangssemi. Þegar ég byrjaði að horfa á þáttinn voru þættirnir níu ára gamlir en núna er ég að horfa á ellefu ára gamla þætti. Þú sérð að Leiðarljós er aldrei látið ganga fyr- ir.“ Eins og áður sagði hefur Arndís, ásamt öðrum að- dáendum Leiðarljóss, stofnað aðdáendaklúbb. Mark- miðið er ekki eingöngu að hitta aðra aðdáendur held- ur hugsar Arndís félagsskapinn líka sem nokkurs konar þrýstihóp sem gæti veitt RÚV aðhald. „Mér finnst svo sjálfsagt að vera með eitthvað fyrir alla. Yfir hátíðarnar er eingöngu sýnt þunglamalegt efni, norrænar myndir af menningarlegum toga. Myndir um fljúgandi hrafna, myrkrahöfðingja, og hvíta vík- inga. Af hverju fáum við ekki blandað efni? Af hverju er ekki tekið tillit til allra hópa? Eru stjórnendur RÚV eða menningarhópar að eigin áliti sjálfskipaðir til að ákveða hvað lýðnum er fyrir bestu!“ Þetta er forsjárhyggja og afskiptasemi af sama toga og ég tal- aði um áðan,“ segir Arndís. Talímarldð að komast til New York Arndís gengur með þann draum í maganum að fara til New York en þar eru þættirnir teknir upp. „Hvert haust er haldin nokkurs konar árshátíð í New York. Hefð er fyrir því að gista á Hilton-hótelinu og taka þátt í 4-5 daga dagskrá, þrautskipulagðri af leikurum og forsvarsmönnum þáttarins. Hægt er að ræða við leikarana um líf þeirra og störf og þeir sitja glaðir fyr- ir og hvetja fólk til að taka myndir af sér með þeim. Slík ferð yrði á við margar sólarlandaferðir. Þetta væri til dæmis sniðugt fyrir fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum á árshátíðir erlendis þar sem rúsínan í pylsuendanum er knattspyrnuleikur eða golfmót. Af hverju ekki að fara á árshátið Leiðarljóss? Þetta yrði hápunktur ársins." Hvernig fólk hefur þegar skráö sig í klúbbinn? „Þetta er fólk á öllum aldri en mest er um ungt fólk, karlmenn ekki síður en konur. En fólk virðist samt vera hrætt við að viðurkenna að það hafi gaman af Leiðarljósi. Af hverju erum við svona hrædd við að vera við sjálf? Hæfilegur skammtur af afþreyingu í fjölmiðlum er nauðsyn. Enginn er verri eða minna menntaður þó hann hafi gaman af Leiðarljósi. Það léttir lífið að brosa og hlæja og Leiðarljósið er hæfi- leg blanda af gríni og alvöru. Hvers vegna ekki að gera að leiðarljósi að hafa lífið skemmtilegt? Menn- ingarvitamir þurfa líka á gleði að halda. Þeir verða menn að meiri ef þeir fella niður mestu helgislepj- una,“ sagði Arndis aö lokum. , -JKÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.