Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Side 31
LAUCARDAGUR 22. JÚNÍ 2002
Helcjctrblað H>'Vr
31
eru víða til og efni eins og sesíum 137 eru notuð í
sjúkrahúsum til að lækna krabbamein með geisla-
virkni, kóbalt 60 er notað til að geisla matvæli til
að þau geymist endalaust óskemmd og mörg önnur
geislavirk efni eru notuð í iðnaðarframleiðslu og
framkvæmdir. Eftirlit með dreifingu svona efna er
af skornum skammti og enn minna þegar þau eru
orðin verðlaus úrgangur.
í Bandaríkjunum er vitað um hundruð dæma ár-
lega þar sem geislavirk efni týnast, þeim er stolið
eða einfaldlega hent einhvers staðar. Hryðjuverka-
menn þurfa því ekki að smygla geislavirkum efn-
um i gegnum toll eða annað eftirlit til að búa til
sóðabombur sem nota á þar í landi.
Leitarflokkur er nú að þefa uppi strontium 90 í
Georgíu, sem er eitt af Kákasuslýðveldunum. Þar
hvarf efnið úr vörslu þeirra sem áttu að koma því
fyrir. I afskekktum héruðum Rússlands er vit-
neskja um að sama efni sé á víð og dreif.
Flest stjórnvöld í heiminum reyna að hafa eftir-
lit með meöferð geislavirkra efna, en víða er það
iila virkt. Árið 1987 hirti maður dós af sesíumdufti
sem hann fann í yfirgefnum spitala. Hann opnaði
dolluna og olli það dauða nokkurra manneskja og
28 manns hlutu alvarleg brunasár. Flytja varð
burt 3.500 tonn af jarðvegi og efnahagur héraðsins
sem óhappið varð í varð að rústum einum.
í Rússlandi hefur verið tilkynnt um þjófnaði á
efnum til kjarnorkuframleiðslu að minnsta kosti
fjórum sinnum á árunum 1992 til 1999. Þjófnaður á
síður geislavirkum efnum skiptir hundruðum.
Þau eru ekki nothæf til að framleiða atómvopn en
eru eigi að síður hættulega geislavirk ef þeim er
beitt af einhverri kunnáttu. 1995 sýndu tsjetsjensk-
ir uppreisnarmenn eyðileggingarmátt sinn með
því að skilja eftir pakka sem innihélt 15 kíló af
sesíum á bekk i almenningsgarði í Moskvu. Þau
skilaboð fylgdu að þeir hefðu yfir að ráða svo
miklu magni af efninu að duga myndi í nokkur
Chernobylslys, eins og það var orðað.
Plútónium og úran sem nothæft er i kjarnorku-
framleiðslu, orkuver eða bombttr, er undir góðu
eftirliti fyrirtækja og stjórnvalda i Bandaríkjun-
um, en hið sama gildir ekki um minna geislavirk
efni sem geta komið að góðu gagni í sóðasprengj-
ur. Geislavirk efni eru notuð til ótrúlega margra
hluta í atvinnulífi og jafnvel daglegu lífi. í reyk-
skynjara er notað ofurlítið af americana, sem veld-
ur engu tjóni í litlu magni og í matvælaverksmiðj-
um er framleiðslan geisluð og þar brúka menn
þykkar stengur af kóbalti sem hvorki eru barna
meðfæri né hættulausar í höndum hryðjuverka-
manna.
Eftirlitsnefnd með kjarnorkuefnum tilkynnti í
síðasta mánuði að bandarísk fyrirtæki hefðu ekki
hugmynd um hvað orðið væri af 1500 líkum pökk-
um siðan 1996. Umhverfisverndarstofnunin telur
að 30.000 pökkum af geislavirkum efnum hafi ver-
ið hent eða skilin eftir án eftirlits. Þar að auki eru
mýmörg dæmi um geymslustaði þar sem þjófar
eiga greiðan aðgang að og að það þrífst svartur
markaður með geislavirk efni.
Atómvopn ekki í dæminu
Ef magnið af sesíum sem fannst á haugnum í
Karólínufylki væri sett i pakka með fjórum kílóum
af TNT-spengiefni myndi sú sóðasprengja gera
þinghúsið í Washington ónothæft um óráðna fram-
tið. í byggingunni er ekki aðeins aðsetur beggja
deilda þingsins, heldur er hæstiréttur þar til húsa,
stærsta bókasafn í veröldinni og ómetanlegt lista-
safn. Geislun slíkrar byggingar myndi valda efna-
hagstjóni sem varla er hægt að ímynda sér hve
mikið yrði í dollurum eða krónum, auk þess sem
eyðilegging þinghússins yrði gífurlegt áfallt fyrir
bandariskt þjóðarstolt og þá miklu ættjarðarást
sem blásin er út í þjóðfélaginu.
Öflug sóðabomba getur auðveldlega gert borgar-
hverfi óbyggileg um langan tíma og þarf því ekki að
koma sprengjunni fyrir inni í byggingu, nóg er að
kveikja í tundrinu eða sprengja hvellhettuna úti á
götu, i farartæki eða á kroppnum á sjálfsmorðingja,
eins og er í tísku hjá þeirri stétt um þessar mund-
ir.
Ekki er talin hætta á að hryðjuverkamenn geti
húið til kjarnorkuvopn. Erfitt er að fá þau efni sem
til þarf og þau eru flókin að allri gerð og ekki á færi
nema sprenglærðra kunnáttumanna á vegum rikis-
stjórna að búa slík tæki til. En séu nægir peningar
fyrir hendi er ávallt hætta á að illa launaðir hers-
höfðingar í fátækum kjarnorkuveldum selji kjarn-
orkuvopn óg eins hitt að einræðisherrar fantaríkja
afhendi hermdarverkasamtökum atómvopn til að
lúskra á meintum óvinum.
Efnavopn er auðvelt að búa til ef lágmarkskunn-
átta er fyrir hendi. I þau er hægt að nota efni eins
og áburð á tún og akra og skordýraeitur, rottueitur
og margt fleira sem auðvelt er að kaupa i ómældu
magni. En það þarf bæði sterk efni og áhrifaríkar
dreifingaraðferðir ef nota á efnavopn til
fjöldamorða. Þegar miltisbrandinum var dreift í
Bandaríkjunum í fyrra veiktust aðeins 18 manns af
hans völdum, sjö dóu.
Sýklavopn eru sömuleiðis tiltölulega auðfengin
en áhrifarík dreifing er ekki á færi hermdarverka-
samtaka. Þau koma því að litlu gagni til að skapa
örvæntingu og öryggisleysi meðal fjölmennra
þjóða.
Geislavirkar sprengjur eru því taldar áhrifarík-
ustu tækin sem hryðjuverkamenn ráða yfir tú að
koma á glundroða og grafa undan öryggiskennd
fólks í ríkjum sem þeir telja sér óvinveitt. Fyrir-
byggjandi varnaraðgerðir eru það eina sem hægt er
að gera til að tapa ekki í því stríði þar sem hefð-
bundin vopn eða hátækni dugar ekki gegn ofstopa-
mönnum sem leggja allt í sölurnar til að ná settu
marki.
En útsendarar öflugra trúarsafnaða sem sagt
hafa Vesturlöndum stríð á hendur eru úrræðagóðir
og láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna, eins og
þeir sýndu svo eftirminnilega þegar þeir breyttu
farþegaflugvélum i stórhættulegar eldflaugar og
unnu spjöll í háborgum eina risaveldisins sem teyg-
ir anga sína um nær öll lönd veraldar.
Hvort þeir nota sóðabombur eða önnur vopn í
næstu árásum er ekki vitað. En jafnvel þótt þeir
láti hvergi til skarar skríða með sprengingum og
fjöldamorðum vinna þeir ómælt tjón með því einu
að ala á hræðslu og kvíða vegna óunninna hermd-
arverka.
Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir stríði
gegn öllum hryðjuverkamönnum og hót-
ar árásum á hvert það ríki sem skýtur
yflr þá skjólshúsi eða veitir þeim hern-
aðaraðstoð eða styrkir þá með ljárfram-
lögum. En þegar bandarískir þegnar eru annars
vegar og þeir grunaðir um að ætla að hrella þjóð
sína með sóðasprengjum fer málið að vandast, enda
veit enginn hvar næsta árás verður gerð og hvaða
vopnum verður beitt. En eins og er eru geislavirku
sprengjurnar áhrifaríkastar því hugsunin um þær
er jafnvel meira niðurdrepandi en þótt þeim verði
einhvern tíma puðrað í glæsibyggingu eða iðandi
athafnahverfl stórborgar.
(Heimildir: The Economist og Herald Tribune)
HALLO^JÖRÐ
Lægra fastagjald og ódýrari símtöl
Loksins getur þú fengið heimtaugina hjá Halló. Heimtaug er koparlína
sem tengir heimili þitt við símalögnina í götunni. Halló er fyrst símafyrirtækja
til að bjóða almenningi þessa þjónustu í samkeppni við Landssímann.
Dæmi:
HallóJörð í HallóJörð: Verð samkeppnisaðila:
3,45 kr. + (0 kr. x 60 mín.) = 3,45 kr. 3,45 kr. + (1,56 kr. x 60 mín.)= 97,05 kr.
Sparnaður viðskiptavina Halló = 96,45%
Mínútugjaidið innan Halló-kerfisins er30% lægra en hjá samkeppnisaðila.
aðeins eitt símtal...
53 50 500
...og þú sparar!
HALLO 0
SlMAFYRIRTÆKIÐ þitti
Halló |i sími: 53 50 500
Frjáls Fjarskipti ehf. |j fax: 55 25 051
Skúlagötu 19 jj hallo@hallo.is
101 Reykjavík www.hallo.is