Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Side 43
LAUGARDAGUR 22. J Ú N f 2002
Helgarblctcli 33 V
Brosmildur
Brasilíumaður
Ife Tolentino er fimmtugur Brasilíumaður. Síðustu ár hef-
ur hann verið búsettur í London þar sem hann hefur unn-
ið fyrir sér með gítarleik og söng. Fyrir tilviljun kynntist
hann Óskari Guðjónssyni saxófónleikara og síðan þá hafa
þeir leikið brasilíska tónlist saman.
„ÉG VAR AÐ SPILA Á STAÐ í London ásamt vinkonu
minni sem er Scixófónleikari. Hún bauð Óskari að koma
og hlusta en bað hann jafnframt að taka saxófóninn
sinn með. Sem betur fer gerði hann það þvi hann end-
aði á að taka nokkur lög með okkur og þá þegar vissi
ég að hér færi hæfileikaríkur maður. Við náðum strax
í upphafi mjög vel saman og hittumst nokkrum sinnum
eftir tónleikana til að spila saman. Ég fór síðan heim til
Brasilíu í rúman mánuö og þegar ég kom aftur var Ósk-
ar búinn að bóka okkur á fullt af stöðum. Þetta kom sér
mjög vel fyrir mig þar sem mig vantaði einhvern til að
spila á saxófón með mér. Óskar var því sannkölluð
himnasending," segir Ife Tolentino, fimmtugur brasil-
ískur tónlistarmaður sem hefur unun af tónlist frá
heimahögunum og með henni hefur hann frcunfleytt sér
síðustu árin í London.
Hugljúft og rómantískt
Ife er hingað kominn fyrir tilstuölan Óskars sem
gengur í það heilaga næstu helgi. Óskar vildi ólmur fá
Ife til að spila í brúðkaupinu og ákváðu þeir þvi aö
hentugt væri að halda nokkra tónleika í leiðinni auk
þess sem Ife hefur mikinn áhuga á að kynnast landi og
þjóð. í kvöld munu þeir leika fyrir gesti Apóteksins þar
sem flutt verða lög í rólegri kantinum en næstu tvö
kvöld á eftir verða félagarnir á Hverfisbarnum. Þar
munu þeir flytja ögn hressari tóna en með þeim í fór
verður slagverksleikarinn Helgi Svavar.
„Tónlistin sem við leikum er brasilísk að uppruna en
ég fékk brennandi áhuga á henni fyrir rúmum 20 árum
siðan. Síðan þá hef ég verið að fást við þetta. Áður
hlustaði ég mest á rokk frá Bretlandi og Bandaríkjun-
.um en þegar ég heyrði fyrst í snillingum á borð við
Antonio Carlos Jobin og Joaó Gilberto var ekki aftur
snúið. Bossanova var eitthvað sem átti við mig en þessi
tónlist er einstaklega hugljúf og rómantísk. Lögin eru
heldur ekki í föstum skorðum eins og t.d. flest dægur-
lög heldur er hún opin og frjálsleg þannig að við fáum
mikið rými til að impróvisera. Lögin sem við leikum
eru þess vegna ólík í hvert skipti sem við spilum þau.
Það fer bara eftir því hverng skapi við erum í hverju
sinni hvernig útkoman verður. En oftast erum við í
góðu skapi og þá hljómar þetta vel,“ segir þessi
brosmildi Brasilíumaður og hlær. Hann er í sérlega
góðu skapi þennan daginn enda var Brasilía nýbúin að
leggja Englendinga að velli í heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu þegar viðtalið fór fram.
„Ég er að minnsta kosti í góðu skapi núna enda eru
Ife Tolentino er brasilískur gítarleikari og söngvari sem er staddur hér á
landi á vegum Óskars Guðjónssonar saxófónleikara. Sanian munu þeir
flytja brasilíska bossanova-tónlist í kvöld á Apótekinu og næstu tvö kvöld
á eftir á Hverfisbaruum. Ife vonast til að íslendingar kunni að meta
brasilísku tónana en hann segir lögin vera einstaklega hugljúf og
rómantísk.
mínir menn komnir í undanúrslit. Við sjáum svo til
hvernig skapið verður eftir næsta leik,“ segir hann að
lokum og brosir.“
Ungur maður, Davíð Tong Li, missti alla fjölskyldu sýna í hörmulegu bíislysi við
Blöndulón. Þar fórst eiginkona hans, tæplega ársgamall sonur og foreldrar hans á
sviplegan hátt. Þetta var ung fjölskylda í blóma lífsins, stoltur afi og stolt amma.
Öll voru þau lífsglöð og litu framtíðina björtum augum. Davíð stendur ekki einn
eftir. Við vinir hans og vandamenn viljum reyna að gera líf hans eilítið bærilegra.
Viljir þú sína stuðning þinn og taka þátt í þessu með okkur getur þú lagt lítilræði
inn á reikning í eigu hans nr. 328-13-888, Búnaðarbanka íslands.
Með fyrirfram þökk
Vinir og vandamenn