Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 69
LESTU BOKINA
sem allir eru aö tala um
Jg
*
a
handbækur,
lista yf« mest; sew■ > hjá
f,æðÍb om Év mundssynl eftir
Pennanum fy™“,uáaga
Úr Fjandsamlegri yfirtöku:
„Síminn hringdi þegar við vorum komin út í búð. Það var Árni
Hauksson. Hann hafði engan formála að því sem hann hafði að
segja. „Þú ert búinn að heyra um tilboðið sem kom í bréf
Húsasmiðjunnar á föstudaginn?" Ég sagði sem satt var að ég
hafði ekki heyrt annað en það sem Jón hafði sagt mér í símtali
tveimurtímum fyrr, að þau systkinin væru búin að selja sína hluti
í félaginu og að kaupandinn væri óþekktur. „Ég er kaupandinn,
það var ég sem keypti bréfin." Þögn. „Til hamingju, Árni, það var
snjallt af þér.“ í sekúndubrot eftir aö Árni sagðist vera kaupandinn
fannst mér eins og hann hlyti aö vera að meina að „við" hefðum
keypt bréfin. Gat verið að Árni Hauksson væri búinn að svíkja mig
og hafa mig svo rækilega að fífli? Vitandi um fyrirhugað frí til
útlanda með upplýsingar úr öllum áttum? Var hann búinn að spila
þennan póker lengi með öll spilin upp í erminni?...
Það þyrmdi yfir mig. Nú var Árni farinn að segja mér hvað sneri
upp og hvað niður. Þessi síðasta yfirlýsing hans var rothöggiö."
i5‘-
BQKA pm BUDIR
MÁLS OG MENNINGAR
Evmundsson
Nettó • Griffill • Bóksala stúdenta
Samkaup • Hagkaup • Office One
.akennd frásögn um
,ReyT^akenn finU
ogp'ett'!ZsZ™skii,tal'ein,i
Sönn saga ur is -n . heiw sem
samtímans. e Spennandf og
að öHd ,0“ð“sandinn leggnr
ÆSÍ^ann^
„Ein bók um viöskipti er raunar íjólabókaflóðinu og sýnist hafa vakiö
mikla athygli nú þegar, FJandsamleg yfirtaka, átakasaga úr atvinnulífínu
eftir Boga Þór Siguroddsson, sem er reyndur höfundur á þessu sviöi og
skrifaöi vinsæla þók um markaösmál, Sigur í samkeppni. Þaö vill svo til
aö ég las bók Boga Þórs um helgina, og hún er nánast reyfarakennd
frásögn um svik og pretti í viöskiptalífinu, alls konar refjar sem leikmaöur
eins og ég vissi ekki aö væru stundaöar á íslandi. Þessi bók hlýtur að
leiöa til mikillar umræöu um viöskiptasiöferöi, sem er sannarlega mikilvægt
í okkar litla þjóöfélagi, og veröur gaman aö sjá hvernig hún gengur fyrir
jólin. Kannski sú bók afsanni kenninguna - eöa taki yfir hlutverk reyfarans?“
Páll Valsson, útgáfustjóri Máls og menningar
í Viðskiptablaðinu 11. -17. desember 2002
Ur Innherja á visir.is
Sendandi: braxton87
Dags: Mið. 11. des. 2002, 23:54
Er ekki að koma 1 ljós núna að það sem Bogi er að segja 1
bókinni er rétt?
Mér lögfróðari menn segja að það hafi verið lögbrot þegar
Árni Hauks staöfesti að Jón Snorrason fékk fyrirtækið í
Eistlandi i ábót. Er hann eini hluthafinn sem fær ábót? Ég
vil líka ábót, gæti t.d. hugsað mér að fá eins og bara einn
gaffallyftara eða eitt bretti af mótatimbri takk. Hver gætir
hagsmuna smærri hluthafa?
Einnig staðfesti Árni Hauks að Hallbjörn heföi unniö í
málinu fyrir Boga hjá Kaupþingi, en hann hefur greinilega
flýtt sér yfir til Búnaðarbankans þegar Bogi fór i frí.
Mér finnst líka athyglisvert að Búnaðarbankinn og Árni Hauks
skuli segja fyrst að bókin sé byggð á sandi en síðan
staðfesta þeir daginn eftir að bókin fari rétt með i öllum
aðalatriðum þegar þeir eru spurðir á Stöð 2.
Trúverðugur málflutningur? Þetta er allt hið skritnasta
mál.
„Ungur veröbréfasali var um daginn spuröur aö þvíhvort kollegar hans
færu ekki býsna oft býsna langt inn á gráa svæðiö í viöskiptum. Hann
svaraði aö bragöi: „Á meöan dómarinn flautar ekki er leiknum haldiö
áfram”...
Þaö er verst aö siögæöi í viöskiptum fer sífellt hrakandi. I gamla daga
var mikiö lagt upp úr því aö í viöskiptum þyrfti aö ríkja gagnkvæmt traust.
Nú viröist gilda þaö lögmál aö sá sem er fyrstur aö svíkja félaga sinn
græöi mest. "
Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri Talnakönnunar
í Vísbendingu 47. tbl., 20 árg., 2002
I
SIBURi
ISHMKEPPNI
1
f