Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 58
58
Helgarhlcið I>V
LAUGARDAGUR 14-. DESEMBER 2002
Hver býður iz
betur?
9.900 kr.
Nokia 3310 á 9.900 kr.
Með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald £Jj80"
Venjulegt verð 14.900 kr.
Hringdu strax í síma 800 1111 eða
komdu í verslun okkar í Kringlunni.
TZJgr
Startpakkinn
X?
allt sem til þarf
f Tilboð 1.
jk CkaHMMMMWMMMMMIMMMMWnMMt
M
Aðeins
•900 kr.
ADSL mótald • Stofngjald • Músarmotta
Samtals verðmæti 18.125 kr.
Tilboð 2.
★ ,
Íslandssími
islandssimi.is
Pride í Gallerí Hlemmi:
Þátttakandinn sem
áhorfandi
„Sýningin heitir Pride og henni er
skipt í tvo hluta, myndbandsinnsetn-
ingu og textaverk," segir Viktoría
Guðnadóttir myndlistarmaður sem ný-
lega lauk mastersnámi í myndlist frá
Dutch Art Institute. Viktoría er ný-
komin heim frá Hollandi og opnar sýn-
ingu í Gallerí Hlemmi í dag.
„Verkin á sýningunni tengjast inn-
byrðis að því leyti að þau fjalla bæði
um hlutverk okkar sem áhorfenda.
Annars vegar hvemig reynsla það er
að horfa á fólk og hvemig fólk horfir á
okkur, hins vegar er sögð lítil saga
sem flestir ættu að geta fundið sig í.“
Myndbandsupptökur
Viktoría býr í Hollandi skammt hjá
þýsku landamærunum með syni sín-
um og sambýliskonu. „Annar hluti
Pride byggir á myndsbandsupptökum
sem ég gerði í gaypride-göngunni í
sumar og árið þar á undan Ég tók
myndir af fólkinu sitt hvorum megin á
gangstéttinni meðan ég gekk niður
Laugaveginn og nota skjávarpa til að
framkalla myndimar á tvö lök. Gestir
á sýningunni ganga á milli lakanna og
upþlifa sjálfan sig sem hluta af göng-
unni. Þeir em í senn þátttakendur og
Myndbandsinnsetning og textaverk
Viktoría Guðnadóttir myndlistannað-
nr lauk nýlega mastersnámi í mynd-
list frá Dutch Art Institute. Hún er
nýkoniin frá Hollandi og opnar sýn-
iiigu í Gallerí Hlenuni í daý.
áhorfendur." Viktoría segir að þrátt
fyrir að myndimar séu teknar í
gaypride-göngunni sé það ekki höfuö-
tilgangur verksins. „Tilgangurinn er
að sýna samspilið milli þátttakenda og
áhorfenda. Hitt er lítið textaverk sem
byggir á sögu sem ég skrifaði ásamt
myndskreytingum."
Að sögn Viktoríu verður hún á Is-
landi fram yfir áramót. „Ég veit svo
sem ekki hvað ég geri eftir það, hugs-
anlega tek ég að mér verkefni í Berlín
en það er of snemmt að tala um það
strax.“
Skipti um gír
Áður en Viktoría sneri sér að mynd-
list lærði hún hársnyrtingu og vann til
ýmiss konar verðlauna á því sviði. „Ég
vann lengi á hársnyrtistofu í Reykjavík
og mér vegnaði ágætlega í því starfi en
myndlistaráhuginn var hárgreiðslunni
yffrsterkari. Það hefúr alltaf blundað í
mér áhugi á myndlist og ég byrjaði að
sækja kvöldnámskeið með vinnu."
Árið 1995 fór Viktoría til Danmerk-
ur að læra myndlist við lýðháskóla og
ári seinna fékk hún inngöngu í mynd-
listarskóla í Hollandi. Hún viðurkenn-
ir að það hafi verið mikil viðbrigði að
hætta í starfi og flytja utan til að hefja
nám. „Ég var ágætlega sett, átti íbúð
og bO, en það er ekki allt og ég var til-
búin að skipta um gír.“
Pride verður opnuð laugardaginn
14. desember klukkan 16.00 og stendur
til 5. janúar. Hún er opin frá fimmtu-
degi til sunnudags frá klukkann 14.00
tO 18.00. -Kip
hornsófar
sem sameina fegurð og þægindi
Mán. - Ifis. 10.00 -18.00 • Laugard. 11.00 -18.00 • Sunnud. 13.00 -16.00
TM - HUSGOGN
SíSumúla 30 - Sími 568 6822
- œvintyri líkust
129.000kr
Leður á slitflötum
vínrauður, grænn, rauðbrúnn,
Ijósbrúnn, dökkblár og svartur
Stærð; 200x245 cm
bak: 86 cm